Dagur - 15.12.1920, Síða 4
136
ÐAOUR
Nýjar myndir.
Fjórar ágætar litmyndir eftir listamanninn H. Copping: (t.) Hirðarnir við
Betlehem; (2.) Hirðarnir finna Mariu og barnið; (3.) Flóttinn til Egyptalands;
(4.) Góði hirðirinn; (stærð 25X16 sm.) fást á Sjónarhæð, og kosta aðeins
25 au. stykkið. Allir listavinir ættu að sjá þessar myndir.
Biblíur og testamenti eru góðar jólagjafir, og fást í skinnbandi og í
ódýrara bandi á Sjónarhæð.
PRJÓNASAUM
kaupir móti vöru-úttekt, v e r z 1 u n
OTTO TULINIUS.
Jörð til sölu.
Vatnsendi í Ólafsfirði verður seldur fyrir
16000 krónur ef ekki fæst hærra boð.
Borgunarskilmálar: !|10 greiðist strax. Hitt
með afborgunum á alt að tíu árum.
Munið eftir: 7—800 hesta heyskapur.
Hrísey 5. des. 1920.
PáU Berg'sson.
Heilbrigðisfulltrúinn
nýi (Sig. Ein. Hlíðar) lét til sín taka
á síðasla bæjarstjórnarfundi. Hann hafði
séð öskuhauga og margskonar saurindi
og óþrifnað við hús manna og vegi í
bænutn. Ólöglegar skólprennur o. s.
frv. Gaf síðan skýrslu á fundinum um
það, sem hann hafði orðið áskynja.
Bæjarstjórinn og fl. álitu, að þessi
skýrsla ætti ekkert erindi fyrir bæjar-
stjórn. Hún ætti að ganga beint til lög-
reglustjórans, sém ætti að sjá' um að
fyrirmælum heilbrigðissamþyktarinnar
væri hlýtt. Hann ætti að sækja menn
til sekta fyrir brotin og gera ráðstaían-
ir, sem þurfa þættu. Lögreglustjórinn
vildi ekki láta vísa slíkum klögumálum
til sín. Sagðist vera hér frekar, til þess
að vernda bæjarbúa, heldur en til þess
að sekta þá. lJá spurði einhver, hvort
hverskonar sökudólgar ættu sér vísa
vernd lögreglustjórans. Annar bæjarfull-
trúi tautaði í bringu sína og sagðist
ekki geta séð, að í því væri sérlega
inikil vernd, þó mönnum væri Ieyft að
dreifa skarni og saurindum út um torg
og götur. Það hjálpar rnönnum að
skilja afstöðu lögreglustjórans að vita,
að hann er friðsamur maður og ljúf-
menni. En líklega hefir heilbrigðisfull-
trúinn ekki getað fengið á fundinum
ótvíræða uppiýsingu um það, hvert
hann á að snúa sér með klögumál sín.
Kirkjan
er orðin þrætuepli bæjarstjórnar innar
A tveimur fundum er búið að þrátta
um hana og bæjarfulltrúarnir geta ekki
orðið á sama máli um, hvort bær eða
söfnuður eigi hana. Síðasti bæjarstjórn-
arfundur gafst svo upp við þetta flókna
mál og vísað því frá sér til úrskurðar
stjórnarráðsins. En ágreiningsatkvæði
gerðu þeir Jóh bæjarstjóri og Ingimar
Eydal. Alitu að málið væri ekki form-
lega afgreitt til æðri úrskurðar, þar sem
bæjarfulltrúarnir hefðu ekki talið sér
fært að gefa úrskurð í málinu.
Kirkjugjöldin
hafa hækkað. Bæjarstjórnin leyfði fyr-
ir sitt léyti að þau hækkuðu, en gat
ekki gert það að beinu úrskurðaratkvæði
sínu þar sem er óútkljáð um það, hvort
kirkjan er bæjarkirkja eða safnaðarkirkja.
En gjöldin hafa nú hækkað samt, en
blaðið veit ekki með hvaða heimildum
það er orðið.
Bæjarbúar,
sem hafa ekki enn greitt áskriftar-
gjald blaðsins fyrir árið 1920, eru beðn-
ir að gera það nú þegar. Oddeyrarbú-
ar greiði þau til Jóns t\ Þórs Norður-
götu 3 en aðrir bæjarbúar til ritstjór-
ans,
sem kynni að vérða var við
rauðstjörnótta hryssu, 2ja vetra,
ómarkaða, er vinsamlega beðinn að
gera undirrituðum aðvart hið fyrsta.
Bændagerði 14. des. 1920.
Askell Sigurðsson.
Verkstæði mitt við Túngötu 1 á
Oddeyri hefir fyrirliggjandi með
tækifærisverði: ferðakistu, »Ser-
vant*, bökaskáp, kofforl, borð. Allar
pantanir fljótt og vel af hendi leystar.
Sanngjarnt verð.
Gunnf. Friðriksson,
. trésmiður.
Úr öllusn áttum.
Barnaveikin
stakk sér niður á Siglufirði fyrir
nokkuru síðan og var illkynjuð. Aðeins
fá börn veiktusl og tvö dóu. Veikin
var þcgar kæfð fyrir ötula framgöngu
héraðslæknis.
Sala
á innlendum framleiðsluvörum geng-
ur ekki sem bezt. Ket S. I. S. mun þó
að mestu selt. Ofurlítil von um ullar-
sölu en gærur óseldar og horfur með
þær hinar verstu. Fiskur kvað vera að
mestu seldur, en ekki allur fluttur úr
landi. Langverst gengur með síldina.
Nú selst alls ekki af henni sem stend-
ur og síðasta sala með tapi.
Verðfall
virðist nú vera í aðsigi. Sagt að er-
lendar verksmiðjur segi upp verkafólki
og dragi saman seglin. Kaupgræðgi al-
mennings og kaupþol að bila, en til-
kostnaður hinsvegar hinn sami, Frézt
hefir einnig um vsrðfall í Reykjavík á
vefnaðarvörum 10 — 40°/o.
Verðlagsnefndin
er sett yfir alt landið.
Bruni.
Sunnudagsnóttina var brann bærinn
í Holtakoti í Ljósavatnshreppi í Suður-
Ringeyjarsýslu. Kúnum, sem voru í
bæjarþorpinu, var bjargað en litlu af
muiium. I Holtakoti býr Jón Jónsson
Jóhannssonar, sem áður bjó á Rauðá,
giftur Sigríði Friðriksdóttur frá Skógar-
seli. I3au eiga tvö börn. Par eru og til
heimills foreldrar Jóns, Jón og Mekkín.
Vestanpóstur
hafði flutning á 21 hesti þegar hann
fór frá Stað,
I Kaupfélagi Eyfirðinga
fást:
Unglingastígvél á 27 kr. parið.
Pappírsserviettur, margar teg.
o. fl. o. fl.
mu
Samband íslenzkra
Samvinnufélaga
útvegar beint frá verksmiðj'
unni hið viðurkenda, ágæta
Mc.Dougall’s Baðlyf
MhSI
SÖLDBUÐ
Kaupfélags Eyfirðinga
verður lokuð I. til 24. janúar n. k. vegna vöru-
könnunar, reikningsskila og málningar á búðinni.
Akureyri 13. d«s. 1920.
Félagsstjórnin.
Tóbaksvörur
allskonar eru áreiðanlega ódýrastar hjá
Jóh. Raguels.
Verzlunin er elzta tóbaksverzlun landsins.
Ritstjöri: Jónas Porbargsson.
Prentsmiðja Björns Jónssonar,