Dagur - 29.12.1920, Blaðsíða 1

Dagur - 29.12.1920, Blaðsíða 1
DAGUR kimur út á hverjum miðvikua. Kosiar kr. 4.50 til áramóta. Gjalddagi fyrir 1. ágúst. AFGREIÐSLAN er hjá Jóni P. Pó r. Norðurgötu 3. Talsími 112. Innheimtuna annast ritstjórinn. III. ár. Akureyri, 29. desember 1920. 36. blað. Úthýst. Jólahugleiðing. ’ I. Hvarvetna, þar sem messað er í kristn- um kirkjum á jóladaginn, er fæ|3ingar- saga Jesú iesin upp. Og hvarvetna munu þeir, er hlýða á söguna, lita hana nokk- uð ólíkum augum. Kunnugt er, að skoðanir eru skiftar þar. Sumir líta svo á, að ímyndunarafl alþýðunnar í fornkristni hafi að mestu gert söguna úr garði eins og hún ligg- ur nú fyrir. Aðrir eru þeirrar skoðun- ar, að hún sé í flestum eða öllum at- vikum raunveruleg, en enginn skáld- skapur. Hver skoðunin er sanni nær, skiftir ekki n.iklu tnáli. Því að í öllu, sem vér hyggjum veruleik, er einhver skáldskapur, og í öllum skáldskap er einhver veruleiknr. En þótt skoðanir séu skiftar að þessu leyti, er okkur flestum eitt sameiginlegt: Við unnum þessari yndislegu sögu eins og hún er. Eg fletti upp á fæðingarsögunni og les. Venjulegast finnurn við þar ekkj artnað en fagnaðaróma. En nú fer á annan veg. Mér verður^svo starsýnt á þetta: »Fæddi hún'þá son sinn frum- getinn, vafði hann reifum og lagði hann í jötu, af því að það var eigi rúm fyrir þau í gistihúsinu.« Ekkert rúm fyrir Meistarann í híbýl- um ntannanna. Eg staðnæmist við þetta aftur og aftur. Og það gengur mér ekki úr huga. Og eg sé, að þessi ummæli fæðing- arsögunnar eru skuggsjá, sem sýnir margendurtekna og sorglega veraldar sann-reynd. II. Gyðingaþjóðin hafði átt marga merka spámenn og sannleiksfrömuði. En aldrei hafði eins göfug kenning hljómað á tungu þjóðarinnar og sú, er Jesús Krist- ur flutti. Aldrei hafði kraftur og hóg- værð og kærleikur sameinast svo í per- sónu nokkurs manns þar. Og aldrei hafði sannleikurinn verið réttur að þjóð- inni jahF'gjafmildum höndurn. Og hverjar voru svo fyrstu viðtök- urnar, sem Meistarinn fékk og hver # voru launin? Fæðingarsagan skýrir frá fyrstu, við- tökunum: Hann fékk hvergi hæli nema í úthýsi. Og það var fyrirboði þess, sem á eftir fór. F*jóð hans hafði hvorki rúm fyrir verk hans né kenningu. Hug- ur hennar var ekki nógu stór. Kreddur og fordómar höfðu þyrpst þangað inn á undanförnum árum. Og svo var sann- leikskenningu Meistarans úthýst. En við þ a ð var ekki látið sitja. Að lokum varð heldur ekkert rúm í landinu fyrir, líf hans. Og svo var því líka úthýst úr þessum heimi. Þessi voru launin og viðurkenningin, sem Meistarinn hlaut hjá þjóð sinni. Krossinn var eina virðingarmerkið, sem hann bar! Og hvers vegna var farið svona með hann? Af því að hann var að boða ný sannindi. — En Gyðingaþjóðin er ekki ein undir þessa sökina seld. Hún er hvorki betri né verri en systur hennar, aðrar þjóðir. Þær launa fleiri líkt og ‘hún. Sama harmasagan hefir viðborið aft- ur og aftur í mannlifinu, bæði fyrir og eftir komu Krists. Eða hefir nokkurn- tíma verið rúm í þessari veröldu fyrir sannleika, sem var að fæðast, nema í úthýsum og afkymum? Hafa ekki sann- leikspostularnir verið hornrekur inann- félagsins alt fram á þennan dag? Við erum sízt bættari þótt við reyn- um að fela fyrir okkur þessa sannreynd. Okkur er sæmra að kannast" við, að svona hefir þetia verið. Mannkynssagan er auðug af dæmum, er sanna það. Sókrates var dæmdur til að drekka af eiturbikar, af því að hann flutti svo sanngöfuga kenningu, að hún hefir ver- ið aðdáunarefni beztu manna, æ síðan. Yfirvöldin kváðu hann afvegaleiða æsku- lýðinn! Huss var brendur á bá'i af því að hann vildi rýma ofurlítið til fyrir þekkingunni í kreddubúri kirkjunnar. Lúther vat ógnað og eltur eins og ó- bótamaður fyrir sömu sakir. Og Gali- leo var píndur til þess á gamals aldri að sverja gegn sannindum, sem hann hafði flutt. Nóg er af áþekkum dæmum. Og sum þarf ekki að sækja langt aftur í tímann. Frömuðir andlegra nútíðarstefna hafa komist að raun um að enn er andinn hinu sami. Augljóslega er enn verið að reyna að úthýsa allri andlegri þekkingu, sem fetlur ekki við fornar vanagrónar skoðanir, Kúgunarandinn og þröngsýnin þykj- ast æfinlega vera kongur-og drotning í ríki. Þau þykjast æfinlega vera valdhaf- ar af Guðs náð og réttborin til að ráða yfir hugum manna. En stjórnarstefna þeirra er jafnan sú, að tjóðra þegnana, sem allra traustlegast niðri í lægstu lautunmn. F*ví að þótt þau sjái sjaldn- ast annað en súrur og biðukollur óg annan gróður á þúfnakollunum í kring, þvkjast þau ávalt komin npp á hæsta sjónarhólinn og horfast í augu við all- an sannleika. Enginn þekkingarauki fær nokkurt griðland þar sem Jajónar þeirra ná til Og þeir þjónar eru fjölmennir í hverju landi. — III. jartanlega þökkum við öllum þeim, sem sýndu hluttekningu með nærveru sinni, mátiudaginn þ. 29. f. m. við jarðarför Elínar Sesselju fóns- dóftur frá Gautsstöðum. Gautsstöðum 6. des- 1920. Aðstandendur hinnar látnu. V i ð viljum vafalaust ekki láta bendla okkur hið minsta við kúgunaranda og þröngsýni. Við þvourn hendur okk- ar af óhæfuverkum þeim, sem unnin hafa verið. V i ð teljum okkur alsýkna af blóði þeirra mannvina, sem víkkað hafa sjónhring sálarinnar. Látum svo vera. Um það skal ekki þrátta. En vita megum við það, að sann- leiksfrömuðir fæðast eftir þenna dag. ug við eigum áreiðanlega okkar hlut í því, hvernig þ e i m verður tekið. Okkur er ókleift að lifa, án þess að vinna eitthvað til ills eða góðs þeim, er eftir standa og áfram halda, þegar við erum fallnir í valinn. Við gerum það með oröum, gerðum, geðs- og hugarhræringum. Allan æfidaginn erum við að vinna eitt af Ivennu: auka van- þekkingarþoku og hleypidómafjúk heims- siris, eða greiða ofurlítið þyknið frá þeirri sól, er skín að skýjabaki. Hvort verkið erum við að vinna? Höfum við gerst þjónar þokunnar og kúgunaraiidans eða erum við að berj- ast gegn þeim? Áreiðanlegt svar liggur ekki laust. F’vt að blindur er hver í sjálfs sín sök. Og flestir þykjast vera að vinna sann- leikanum. En við eitt má þó miða: Við þekkjum hvað þjóðtrúin segir um f y 1 g j u r. F*ær gerðu jafnan vart við sig á undan eigandanum. Og glöggskygnir gátu af þeim ráðið, hverra gesta var von. Alt sannleiksættar á eina kynfylgju. Sú fylgja er sjálfsfórnin, Þar sem sjálfsfórn gerir vart við sig að mun, gistir andleg þekking innan skamms. En sízt er sannleika von þangað, sem kynfylgja hans kemur eigi. Fyrir því skulutn við ganga undir dóm samvizkunnar og sjá hve miklu var fórnað fyrir hugsjonir, velferðarmál og meðbræður. Og að því búnu kann að skýrast, hvort við höfum unnið að því að fjölga eða fækka torfærunum á leið þeirra sendiboða Drottins, sem enn eru ófæddir og ókomnir fram í þenna heim. — Kúgunaranda og þröngsýni hefir æf- inlega farist eins. F’au hafa vilt sýn og gint til glapráða. Pau hafa útskúfað bóðberum þekkingarinnar, kvalið þá, brent þá, krossfest þá. En þau hafa al- drei getað banað sannindunum sjálfum, sem þeir báru fram. Og svo mun æ verða. F’ví að sigur sannleikans er full- trygður. Ósigur hans væri ósigur Guðs, því að Guð er sannleikur. Og enginn má við mætti hans. En þó eru okkar sakir jafnþungar, ef við höfunf lagt þeim lið, sem hefta vildu för hans. Við erum oftast ósparir á jólagjöfum hver við annan. En h o n u m, sem vér þykjumst helga þessa jóiahátíð, færum við cuga gjöf. Er það gleymska eða gáleysi. Eða erum við enn þá að úthýsa Meistaranum? Vinur minn! Við skulum ganga fyrir Meistarann um þessi jól og reyna að bæta fyrir ræktarleysi liðinna ára. Við skulum gefa honum þá heilögu heit- strengingu: að reyna af fremsta megni að úthýsa aldrei sannleikanum eða nokkru af ætt hans. Og með þá heitstrengingu í huga bjóðum við GLEDILEG JÓL! Jakob Kristinsson.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.