Dagur - 22.01.1921, Qupperneq 3
3. tbl.
DAGUR
11
Sement
fæst í
7
a.
J*or$töðu$tarfið
við Sjúkrahúsið Gudmanns Minde er laust frá
14. maí n. k.
Upplýsingar hjá héraðslœkni.
Spífalanefndiiv
*
*
• •• • • • • ••••••
Ödýrt
plötutóbak (bæði munn-
tóbak og reyktóbak) fæst í
Kaupfélagi Eyfirðinga
*
T -
>• • •• • •••••• •
*
Jörðin Sverfingssfaðir
í Öngulstaðahreppi fæst til kaups og ábúðar í n. k. fardögum, ef um
semur við eigandann.
Friðrik Sigurðsson.
Vinum og vandamönnum tilkynnist að maðurinn minn
elskulegur
skólameistari Stefán Stefánsson
andaðist að heimili okkar fimtudagsnóttina 20 p. m.
Akureyri 21. jan. 1921.
Steinunn Frímannsdóttir.
Akureyri.
Nýr söngmaSur
er kominn til bæjarins, hr. Sigurð-
ur Skagfeldt. Hann hefir verið við
söngnám í Danmörku og kom heim
s. 1. sumar. Hann hefir ágæt með-
mæli írá frægasta söngkennara Dana,
Paul Bang, konungiegum söngkennara
við óperusöngskólann í Khöfn og
fleirum. Hr. Skagfeldt gerir ráð íyrir
að dvelja hér ( bænum þar til Sterl-
ing kemur næst, þá tekur hann sér
far til útlanda til frekara náms. Hann
hefir í hyggju, að gefa bæjarbúum
kost á að heyra til s(n meðan hann
dvelur í bænum.
Gullfoss
kom fyrra laugardag. Með skipinu
var fjöldi farþega. Þórólfur Sigurðsson
bóndi í Baldursheimi, Kristjana Pét-
ursdóttir, ráðherra, Sig. Skagfeldt,
söngvari, Þórhallur Baldvinsson, Nesi,
Aðaldal o. fl. Skipið fór aítur á mið-
vikudagsmorgun. Þá tóku sér íar:
Einar Haraldsson frá Einarsstöðum til
Ameríku. Til Khafnar tóku sér far
Þórhallur Bjarnarson, pientari, kaupm.
Ragnar Ólafsson og kaupm. Rögnvald-
ur Snorrason með frú sinni. Ennfrem-
ur fór með skipinu Einar Jónsson
prentari og sjálísagt fleiri.
ísrek
varð hér á Pollinum á laugardaginn.
Stór ísspöng losnaði og dreif undan
hvössu sunnanveðri. Ruddist fsinn upp
á Oddeyrartangann og bylti um
tveimur fiskiskipum, sem stóðu þar
upp á landi og brotnaði annað þeirra.
ísinn skemdi hornið á uppfyllingu
Kaupíélags Eyfirðinga og fleiri skemd-
ir mun hann hafa unnið.
Endurskoðendur
bæjarreikninga voru kosnir þann 13.
þ. m. um leið og bæjarstjórn var kos-
in. Sjálfkjörnir voru þeir Kristj. Árna-
son kaupm. og Tómas Björnsson verzl-
unarmaður, þv( engir keppinautar voru.
Þessa láðist að geta í síðasta blaði.
Kæra
hefir komið fram frá nokkrum kjós-
endum í bænum út af síðustu bæjar-
stjórnarkosningum, kæruatriðin eru:
1. Að mönnum hafi verið bætt á
kjörskrá á ólögmætan hátt.
2. Að ekki hafi verið auglýst lögum
samkvæmt hvenær kosningarathöínin
skyldi hafin.
3. Kjörseðlakassarnir hafi verið of
litlir svo iðulega hafi þurft að hrista þá.
4. Að maður eða menn hafi kosið,
sem ekki stóðu á kjörskrá.
5. Að milli þess, sem kjörstjórnin
sjálf gekk til kosninga, hafi aðrir kjós-
endur kosið.
6. Að seðlar hafi verið teknir gildir,
sem ranglega hafi verið meiktir af
kjósendum.
7. Að mörgum kjósendum hafi verið
bægt frá kosningu og kosningarat-
höíninni hafi ekki verið slitið á lög-
legan hátt.
Það er álitamál milli mauna f bæn-
um, sem þykjast hafa vit á, hvort
kærenduvnir muni ekki komast undir
22. kap. hegningarlaganna fyrir rangar
sakargiftir f opinberri kæru.
Alþm. Magnús J. Kristjánsson
kom með Gullfossi síðast, Hann
mun sennilega hafa fund með kjósend-
um sínum meðan hann stendur við.
Úr öllum áttum.
Bruni.
Nýlega brann bærinn á prestssetrinu
Stað í Grunnavík til kaldra kola.
Presturinn séra Jónmundur Halldórsson
tók staðinn fyrir skömmu mjög nið-
urntddann. Hann hefir með sérstak-
legum dugnaði bygt upp öll bæjar-
hús og fjárhús. Nú, þegar því er fyrir
skömmu lokið, brennur bærinn. Skað-
inn er metinn um 20 þús. króna.
Gengismunur,
gjaldeyris í bönkunum og á póst-
húsinu þykir roönnum undarlegur. Þann
13. þ. m. var gengið:
Dollar Sterlingsp.
íslandsb. 6 80 — 24 50
Pósth. 625 — 22.50
Gengið er tilkynt frá hærri stöðum
eins og gefur að skilja. Annaðhvort
er Póststjórnin að spila íé úr hendi
sér eða íslandsbanki að taka meira
en honum ber.
Frá útlöndum
ber mest á fréttum um kreppur og
hrun. Hallgr. Kristinsson, sem var á
ferðalagi erlendis. s. 1. tvo mánuði
segir frá því að verzlunarhús fari unn-
vörpum á höfuðið og fyrverandi millj-
ónerar verði öreigar. Um það leyti
sem hann var í London, íór þar
stórt verzlunarhús, sem verzlaði með
skinn, á höfuðið, og tap þess var um-
fram alt hlutaféð yfir 36 milljónir
króna. Vilhjálmur Þór starfsm. K. E.,
sem dvelur nú í Danmörku og hefir
ferðast um Skandinaviu, hefir sömu
sögu að segja. Jafnvel gömul verzlun-
arhús eru á heljarþremi. Verksmiðjur
segja uijnvörpum upp starfsfólki sínu
og loka. Sumar gera þó verkafólkinu
þá kosti, að veita því atvinnu áfram,
ef það lækki kaupið um lU. Yfir höf-
uð virðist atvinnnlíf og viðskiíti vera
að hlaupa í baklás. Fólkið íarið að
takmarka eyðslu og innkaup; býður
eftir frekara verðfalli. En ekkert hjól
f þessu dýrtíðarsigurverki má atanza.
Spennuþrýstingin hrindir á og orsak-
ar sprengingar. Heimurinn þarf senni-
lega að ganga fram af sér, til þess
að geta bætt ráð sitt.
Veðráttan.
Mánudag brast á norðan ofstopa-
veður,’ þó ekki með miklum fannburði.
Uppbirta á þriðjudag. Slðan bjart og
rnugguveður til skiftis. Fimtudaginn
var út3ynningur m^ð renningsrokum,
Frost hafa verið lítil þessa viku.
Þingmálafundi
hafa þingmenn Eyjafjarðarsýslu haldið
undanfarna daga. Mun Dagur sfðar
geta þess merkasta er á þeim hefir
gerst. ,
Vefnaður.
Vegna forfalia er rúm autt, skemri
eða lengri tíma, á námsskeiði Heim-
ilisiðnaðarfélagsins, Brekkugötu 15.
Stjórnin.
L E 8 1 Ð!
Borffstofu- og svefnher-
bergismubiur (sett) útvegar und-
irritaður. Sömuleiðis sjerstök' buffet,
borð og stóla, skrifborð og mynda-
saulur og fl.
Myndir innrammaðar fljótt og vel.
Hvergi ódýrara.
Kristinrj Helgasorj, trésmiður.
Aðalstræti 14 Akureyri.
Búsáhatdasýningin
í Reykjavík 5,—12. júli 1921.
Þeir, sem ætla sér að senda muni
íil sýningarinnar verða að vera bún-
ir að tilkynna það til Búnaðarfélags
íslands eða Ræktunarfélags Norður-
lands fyrir 28. febrúar næstkomandi.
Akuréyri 18. janúar 1921.
Cinar J. Sleynis.
Ritstjóri: JÓNAS PORBERGSSOJj"* Vi
V. Prentari: OPDUR BJÖRNSSOJJ .y