Dagur - 05.03.1921, Qupperneq 4
40
DAGUR
10. tbl.
■r^~
,Sonora‘- ’
grammofónarnir
amerísku eru heimskunnir sem beztu og fullkomn-
ustu grammófónar, er hugvitsmennirnir hafa búið til.
Pantið einn slíkan grammófón hjá kaupféiagi yðar,
eða kaupmanni, með nokkrum plötum, og pér munuð
undrast hve mikill ánægjuauki pað verður fyrir heimili
yðar, pegar petta snildar áhald lætur par til sín
'n^hriflÉiÉH
hlutdrægnislaust og rétt frá. Sfðar læt-
ur hann þess getið að hvergi sé mjög
illgirnislega snúið út úr. Loks er hann,
þrátt fyrir misfellurnar, þakklátur fyrir
það, að ágripið var birt í Degi. Þetta
bendir á, að útdrátturinn sé ekki fjarri
því rétta. Það er svo ólíklegt, að hr.
B. L. væri þakklátur, ef ekki væri
haft svo mikið sem nokkurn veginn
rétt eftir honum.
Verzlunartíðindin, janúarheftið þ.
á. flytja grein eftir Otto Tulinius, kon-
súl um síldveiði og síldarsöiu. Tulini-
us getur þess að nú sé verið að vinná
að því að koma sölu á allri fslenzkri
síld á eina hönd. Það sé öflugasta
ráðið, til þess að ráða bót á misfell-
unum á síldasölunni. Hann hugsar sér
að nefnd manna sé kosin til þess að
annast söluna, og þá auðvitað helzt
færustu menn úr hópi útgerðarmanna
sjálfra. Jafnframt telur hann nauðsyn-
legt að takmarka sfldveiðina með lög-
um og skipa nefnd sem hafi fram-
kvæmd þeirra laga. Nefnd sú hafi sfð-
an úrskurðarvald um það, hversu mikið
megi veiða á hverri vertfð, og sé lík-
legt að það geti orðið því meira, sem
lengur líður og betra skipulag komist
á söluna og markaður rýmist. Jafn-
framt þurfi síidareftirlitsmann, sem
fylgist með, hversu mikið veiðist á
hverjum stað o. s. frv.
Hér er aðalinntakið úr tillögum
Tuliniusar og munu þær vera í sam-
ræmi við stefnu útvegsmanna í mál-
inu. Skýtur það mjög skökku við það,
sem hr. B. L: hélt fram á þingmála-
fundinum, að stefnan sú, að koma
sölu afurðanna á eina hönd, væri að
kippa fótunum undan atvinnuvegunum.
Hann virðist ekki hafa verið þá stund-
ina í fullu samræmi við þá, sem hann
hefir þó sennilega þózt vera að gera
mikinn greiða.
Dagur lítur svo á, að þetta sé hár-
rétt steína. Hún þárf að miða að þvf,
að tryggja atvinnuveginn, haida hon-
um innan hóflegra takmarka og tryggja
það, að andvirði síldarinnar komi fram.
Það þarf að koma slfku skipulagi á
meðferð allra greina framleiðslu okkar.
Sambandið hefir verið heillaspor fyrir
bændur í þessa átt. Síldarútvegsmenn
eru búnir að fá nóg af sundrunginni
og ganga nú fúsir samvinnunni á hönd.
En lagafyrirmæli þarf og opinbert
eftirlit, til þess að tryggja þessa umbót.
Staka.
Þurfa gnægtir afls og auðs
allar strendur kring um
í þá hleifa harmabrauðs
handa íslendingum.
*
Akureyri.
ÁsKell Snorrasoi], kennari söng f
Samkomuhúsinu fyrra laugardagskvöld.
Ungfrú Oda Schiöth aðatoðaði. Áskell
hefir mikla rödd, en ekki nógu vel
tamda né jafn blæfagra sem t. d. Sig.
Skagfcldt. Röddin virðist eiga alls kosti
við hverskonar tónþrautir með aðstoð
góðrar söngþekkingar mannsins, en
hún virðist vera innibirgð. Áskell fékk
allgóða aðsókn og var klappað mikið
lof í lófa.
Steiflgr. læknir flutti fyrirlestur
s. 1. sunnudag um baráttuna gegn
dauðanum og djöfulsins valdi. Það
var stutt ágrip af þróunarsögu mann-
legrar þekkingar á sviði sjúkrameð-
ferðar og sóttvárna.
Bárður Sigurðsson smiður frá
Höfða við Mývatn, kom til bæjarins
ásamt konu sinni “fyrir skömrau. Bárð-
ur er að reka smiðshöggið á 5 spuna-
vélar sem hann sendi hingað á undan
sér, og eiga að fara á ýms heimili
hér í héraðinu. Bárður hefir enn frem-
ur méð sér skuggamyndir af íslenzkri
náttúvufegurð og sýndi hann þær á
fimtudagskvöldið. Vegna óveðurs komu
færri en vildu, en Bárður veitti mönn-
um fágætlega góða skemtun.
Rafveitumálið. Sænska félagið
Bill & Wijtmark hafa nú með umboði
bæjarstjórnarinnar boðið út veikið á
stöðinni við neðsta fossinn. Utboðið
nær til Svíþjóðar, Noregs, Danmerkur,
Þýzkalands, Frakklands, íslands og e. t.
v. Amerfku.
Jú/ff hús til sö/u,
bygt úr steini, eins árs gamalt, á góðum stað í bænum. Lóðin
undir húsinu er eignarlóð. Nánari upplýsingar gefur
Þorsteinfl Þorsteinssofl,
Samkomuhúsinu.
Landssíminn.
Leyft er að senda símskeyti gegn lægra gjaldi en nú er, til
Bandaríkjanna i Norður-Ameríku, Canada, Mexico, Suður-Ameríku,
Vesturindia og Astralfu; pannig að skeytin séu send »via Marconi«,
p. e. a. s. afgreidd af Ioftskeytastöðvum Marconifélagsins í Eng-
landi, til stöðva í móttökulöndunum. Sendendur skeytanna ákveða
hvort skeytin skuli send pannig eða á venjulegan hátt með sæ-
símanum. Símskeytagjöld til Bandaríkjanna og Canada eru frá 30
til 40 aurum Iægri fyrir hvert orð »via Marconi« en með sæ-
símanum.
Ritsímastjórinn á Akureyri, 20. febrúar 1921.
Haildór Skapfason.
Jörðin Efri-Dálkssfaðir
í Svalbarðsstrandarhreppi er til sölu.
Akureyri, Norðurg. 7, 2. marz 1921.
Bjarni Hjalíalin.
Á s k o r u n.
Sjúkrahúsið á Akureyri hefir nú fengið víðtækar umbætur frá pví sem
áður var. Það er orðið ólíkt vistlegra sjúklingunum, herbergin fleiri og
rúmbetri, rúmafjöidinn aukinn, ný og betri miðstöðvarhitun, geislalækn-
ingatæki bæði til skoðunar og lækninga og hjúkrunin fullkomnari en
nokkurn tíma hefir áður verið.
Af þessu leiðir, að reksturskostnaður sjúkrahússins hlýtur að aukast
töluvert framvegis, enda vantar enn ýmsa muni eftir pví sem aðsóknin
eykst, svo sem stóla, borð, spegla, ábreiður, dýnur, lök o. fl.
Við undirrituð höfum bundist félagsskap i því skyni að vekja áhuga
góðra manna, hér á Akureyri og í nærsveitum, fyrir pví að styrkja sjúkra-
húsið árlega með gjöfum, likt og erlendis tíökast. Mætti með því koma í
veg fyrir að daggjald sjúklinga verði hækkað. Höfum vér þegar gjört
byrjun í þessa átt með þvi að halda skemtisamkomu hér á Akureyri nýlega,
sem gaf í hreinan ágóða kr. 762.25.
Við viljum að sjúkrahúsið okkar geti verið fyrirmyndarstofnun, þar
sem hjúkrun sé í bezta lagi, svo að sjúkrahúsvistin geti orðið sjúklingum að
setn beztu gagni. Einnig viljum vér stuðla að því að ungar stúlkur, sem
framvegis eins og hingað til leita þangað til hjúkrunarnáms, geti fengið
þar sem fullkomnasta tilsögn og æfingu.
Pess vegna viljum vér skora á félög, heimili og einstaka menn að
slyrkja okkur í verki meö gjöfum til sjúkrahússins. Margskonar munir,
smáir sem stórir sem sjúkrahúsið þarfnast, eru jafn þakklátlega meðteknir
og peningar; má þar til nefna; sjúkranærföt, rúmfatnað eða efni í sama,
svo sem ull, fiður, iéreít o. m. fl.
Akureyri, 22. febr. 1921.
Virðingarfylst.
Guðrún fochumsson. Halldðra Bjarnadóttir. Laufey Pdlsdóttir.
fúliana Friðriks. Lára Ólafsdóttir. Válgerður Ólafsdóttir.
Hedvig Skaptason. Hallgr. Davíðsson. fónas Rafn&r.
Anna Manúsdóttir. Guðfinna Antonsdóttir. Margrethe SchiÖth.
Einar Gunnarsson. St. Ó. Sigurðsson. Marin Vigfúsdóttir.
Jóhanna Jónsdóttir. Guðrún Ólafsson. Kristján Sígurðsson.
Póranna Pétursson. Sigurlaug Jakobsdóttir. S. Kristinsson.
Pórunn Havsteen. Sigv. Porsteinsson. Júl. Havsteen. Friðjön Jensson.