Dagur - 09.04.1921, Blaðsíða 1

Dagur - 09.04.1921, Blaðsíða 1
% DAGUR kemur út á hverjum iaugard. Kostar kr. 8.00 árgangurinn. Ojalddagi fyrir 1. ágúst. AFGREIÐSLAN er hjá Jóni I>. t>ór, Norðurgötu 3. Talsítni 112. Innheimtuna annast ritstjórinn. IV. ár. Akureyri, 9. apríl 1921. ---j~ ~n~»~r.i~i~>-h~ij-i.i—i iiij 15. blað. TlL þess, í eitt skifti fyrir öll, að hnekkja atvinnuspillandi dylgjum um fjárhag Sambands íslenzkra samvinnufélaga og á- sökunum í garð framkvæmdastjóra þess við störf hans í Við- skiftanefndinni, sem bæði leynt og ljóst hefir verið reynt að breiða út meðal almennings, utan lands og innan, undanfarandi mánuði, þá viljum vér beiðast þess, herra ritstjóri, að þér birtið í heiðruðu blaði yðar neðanskráðar yfirlýsingar. Fétur Jónsson, X Xristinsson, formaður S. í. S. framkvæmdastjóri S. í. S. SAMKVÆMT tilmælum stjórnar Sambands ísl. sam- vinnufélaga* skulum vér taka það fram, er hér fer á eftir, að Sambandið hefir aðal-peningaviðskifti sín hér á landi við oss, að vér höfum athugað reikninga þess fyrir árið 1920, að oss virðist hagur þess, eftir því sem ástandið hér á landi er nú, góður, og að vér berum fult traust til felagsins og stjórnenda þess. Reykjavík, 26. marz 1921. Landsbanki Islands. Magnús Sigurðsson. *Benedikf Sueinsson. £. Xaaber. Að gefnu tilefni vottast hérmeð, að meðnefndarmaður vor, framkvæindastjóri Hallgr. Kristinsson, hefir aldrei við störf nefndarinnar gert minstu tilraun, til að draga taum samvinnufélaga landsins umfram kaupmanna. Jafnframt skal þess getið, að nefnd félög virðast altaf hafa stilt umsóknum sínum um innflutnings- leyfi mjög í hóf og nálega undantekningarlaust eigi farið fram á að flytja inn í landið annað en það, er teljast verður nauð- synlegur varningnr. Reykjavík, 26. marz 1921. I viðskiftanefndinni. Öddur Jíermannsson. Jes 3imsen. £. Xaaber. Mannes Chorsteinsson. Sambandið milli samvinnumanna 4 og verkamanna. Ein af ráðgátunum, sem hr. B. L. glímdi við í fyrirlestri sínum, var sambandið miili samvinnumanna og verkamanna. Hann vék oftar en einu- sinni að því, hvað það væri grun- samlegt, hversu margir Heródesar og Pilatusar væru að verða vinir nú á tímum. Hann lagði sig mjög fram við að koma þessum aðilum til þess að trúa því, að á milli þeirra væri staðfest djúp óvináttu og sund- urlyndis. Þessvegna gæti ekki sam- band þeirra í málum (Landsverzlun, bæjarstjórnarkosningar) verið heil- brigt, heldur spunnið af illum toga. Hann skýrði það, frá sínu sjónar- miði, mjög ítarlega, hversu sam- vinnumenn og verkamfenn væru miklir óvinir. Verkamenn sæju of- sjónum yfir því, ef bændur fengju hátt verð fyrir kjötið. Samvinnu- menn vildu aftur á móti sjávarút- veginn feigan og einkum síldarút- veginn. Fáir af þeim, sem hér áttu hlut að máli, munu hafa látið blekkjast af þessari tilraun, að æsa tvær stétt- ír í landinu, hvora gegn annari. Menn munu hafa fundið, hvað ræðu- maður bar litla umhyggju fyrir áliti sfnu og trausti, þegar hann valdi slíka alvörutíma, til þess að æsa upp stéttaríg. Menn munu hafa fundið, að hér talaði sameiginlegur pólitískur óvinur beggja, sem í ofur- kappi og ofsa hlífðist ekki við, að nota hættulegustu meðul. Hér skal þó, til glöggvunar qg skilningsauka á afstöðu hr. B. L. í þessu máli, tekið eitt dæmi um rök- fimi hans og samkvæmni: í fyrirlestrinum vítir hann samvinnu- menn fyrir það, að þeir vilji sjávarút- veginn feigan, en í »Kaupfélagshug- Ieiðingum" sínum, i 12. tbl. íslend- ings, vítir hann sömu menn fyrir það, að þeir séu aö stofna félagi sínu í hættu, með því að hjdlpa sjávarútvegsmönnum viðskiftalega, þar sem vitanlegt sé, að þeir geti ekki trygt viðskifti sín eins vel yfir- leitt eins og bændur. Hér eru born- ir fram af sama manni og í sömu andránni tveir alveg gagnstæöir sak- aráburðir á hendur samvinnumönn- um. Hr. B. L. stendur ekki einn uppi í því öfugstreymi heilbrigðrar hugs- unar, að þessir tveir aðilar hljóti altaf að verða andstæðingar. Þaö eru ekki mörg ár síðan Oísli Sveins- son gerði mikið veður út af sama efni. Auövaldsklíkumenn hafa jafn- an orðið æfir, þegar þeim hefir virzt Jbóla á samtökum alþýðunnar. Sérstaklega hefir þeim þótt það í- skyggilegt, þegar bændur og verka- menn hafa tekið höndum saman. Pá hefir þeim þólt sá ofjarl reka upp höfuðið, sem væri líklegur til þess að geta ráðið nokkuð miklu um örlög misnotaðrar auðvalds- stefnu, og til þess að kippa við- skiftamálum þjóðarinnar og atvinnu- háttum í það horf, aö meir stefni til almennrar hagsældar, en til auðg- unar fáum mönnum. Þessvegna hafa þeir gert sem mest úr þeim ágrein- ingsatriðum, sem þessir aðilar eiga sín á milli. Því miður verðurekki unt, rúms- ins vegna, að svara fyrirspurnum hr. B. L. um þetta efni mjög ítarlega. Hjá því verður þó ekki komist, að leitast við að skýra málið fyrir hon- um og öðrum, svo það verði ljóst, hversu aðdróttanir hans eru ástæðu- lausar, og bygðar á miklum skiln- ingsskorti á því, sem er að gerast i landinu. Fyrst og fremst má benda á það, að verkamenn hafa, hér í bæ og víðar, farið í slóð bænda um stofn- un samvinnufélaga. Pað er því eng- in skynsamleg ástæða, til þess að ætla, að samvinna þeirra í þeim málum, er að viöskiftum lúta, hljóti að vera spunnin af illum toga. Slík samvinna er þvert á móti mjög eðlileg og óhjákvæmileg. í öðru lagi hafa þeir fylstu ástæðu, til þess að standa saman á verði gegn sameiginlegum ofjarli, þar sem er misbeiting auðvaldsins í hönd- um einstaklinga. Margir halda því fram, að hér á landi sé ekkert auð- vald. Slíkt sé fjarstæða. Þá hafa þeir borið saman fjármunaupphæðir ein- staklinga hér á landi og í öðrum löndum. En það er blekkjandi. Vald fjármuna f höndum eins manns verður að metast í hlutfalli við þann fólksfjölda, þjóðarauð og þann mátt, sem á móti stendur. Þegar borin er saman íbúatala á íslandi og í Banda- ríkjunum og gert ráð fyrir jöfnum skilyrðum að öðru Ieyti, verður ein miljón jafn sterk í höndum íslend- ings gagnvart þjóðinni, eins og þúsund miljónir í höndum Banda- ríkjamanns, gagnvart þeirri þjóð. Tvent ber til að auðvaldið hefir náð slíkum tökum á Bandaríkjamönnum, sem raun er á. Þar eru hin beztu fjársöfnunarskilyrði og þjóðina hefir skort samtök gegn valdi auðsins. Satt er það, að skilyrði til fjár- söfnunar eru minni hér á landi. Sumir telja, að þess vegna sé fjár- vald hér óhugsanlegt. En það er sprottið af skammsýni. Framfarirnar breyta skilyrðunum. Sjálft fjárvaldið skapar þau. Annað bjargar þessari þjóð frá öfgum auðvaldsins. Það eru samtök alþýðunnar. Það má víst heiía svo, að tveir þræðir gangi gegnum stjórnmála- sögu heimsins. Annar er einstaklings- ‘ vald y/ir tjöldanum, hinn, sjáljslœði fjöldans og vald yfir eigin lífskjörum. þessar andstæður hafa togast á, ekki eingöngu í stjórnarfarsbaráttunni, heldur og í viðskiftamálum og at- vinnuháttum. Hvar sem gripið er niður í deilumálum veraldarinnar nú á tfmum, má rekja baráttuna til rótar í þessum andstæðum. Við íslendingar komumst ekki hjá þessari baráttu, fremur en aðrar þjóðir. Ýms atvik valda því, að hún er sem stendur sérstaklega hörð. Kreppur, fjármunatap og ýms- ir örðugleikar gera umbrot þeirra, sem eru auðvaldssinnaðir, svo hörð, að þau ganga fjörbrotum næst. En það hvetur þá, sem á móti standa, til fastari samtaka. Afskaplegir við- skiftaörðugleikar valda því, að bar- áttan einangrast því sem næst á sviði viðskifta og fjármála. Hún tekur því á sig óheilbrigðislegan blæ. Eigi að síöur má rekja hana

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.