Dagur - 09.04.1921, Blaðsíða 3
15. tbl.
DAGUR
59
Opinbert uppboð.
Fimtudaginn hinn 12. maí n. k. verður haldið opinbert upp-
boð að Ósi í Arnarneshreppi, og par selt með viðunandi verði:
alskonar dauðir inunir, svo sem: rúmfatnaður alskonar, ílát og
hirslur, prammi og fyrirdráttarnet o. m. fl., einnig lifandi búpen-
ingur, eins og: kýr, hestar, ær, gemlingar og hrútar.
Söluskilmálar birtir á uppboðsstaðnum.
Uppboðið hefst réttvísandi klukka 11 f. h.
Ósi í Hörgárdal 9. apríl 1921.
Elín Gunnlaugsdóttir.
Tilkynning.
Herra verzlunarmaður Jóhannes Jónasson er gjaldkeri >Sjúkrasamlags Akur-
eyrar.« Verður hann að hitta hvern virkan dag á skrifstofu Landsveralunar
Hafnarslræti 93.
Sigtr. Porsteinsson,
p. t. formaður.
Verð fyrst um sinn
Heiti, 63 kg., kr. 60.00,
Strausykur, 100 kg., kr. 140.00.
Akureyri 7. apríl 1921.
Landsverzlui).
því betur. Þroskunin krefst meiri og
minni umsvifa á leikvelli lffsins.
En ritið er þrátt fyrir þetta fróð-
legt og skemtilegt, vekur samúð les-
endanna með farsældarmálum þjóðar-
innar. Enda er það tilgangurinn. En
það vekur lfka samúð með höfundin-
um, — en ekkért væri þó betur fallið
til þess að vekja þá samúð og rétt-
an skilning, eins og merkileg æfisaga
höfundar. En af henni hefir hrotið
aðeins lftill moli f þetta rit.
Pingfréttir.
Frumvarp til laga um breytingu á
bæjarstjórnarlögum Akureyrar orðið
að lögum. Innihald: Af öllum lóðum
og lendum í Akureyrarkaupstað, sem
ekki eru opinber eign, skal greiða
árlegt gjald í bæjarsjóð, sem nefnist
lóðargjald. Bæjarstjórnin áveður upp-
hæð gjaldsins fyrir eitt eða fleiri ár í
senn. Þó má það eigi af lóðum vera
lægra en i°/o og eigi hærra en 2°/o
af síðasta fasteignamatsverði, en af
túnum, matjurtagörðum og erfðafestu-
löndum hálfu lægra. Samþykt að selja
Svarfdælahreppi jörðina Upsa. Neðri-
deild samþykti, miðvikud. frumvarp
til laga um breytingu á lögum um
kosningar í bæjar og sveitarstjórnir.
Skilyrði um gjald til almenningsþarfa
afnumið. Kosningarétt öðlast einnig
þeir sem þiggja sveitarstyrk. Tóbaks-
einkasalan marðist gegnum Nd. á
miðvikudaginn með 14 atkv. gegn 13.
Óvfst um afdrifin.
Fjárveiting til Sjúkrahússins á Akur-
eyri 17 þús- Engin von um meira.
Magnús Pétursson, læknir átti tillög-
una um að lækka þessa fjárveitinguna
úr 20 þús., sem var á frumvarpi til
fjáraukalaga.
Ekkert fé veitt til flóabáta norðan
eða austanlands. Goðafoss sem ætlað
er, að verði tilbúinn 1. júlf, á að ann-
ast strandferðir á þessu svæði, en
koma hvergi við á leið frá Reykjavfk
til ísafjarðar hvoruga leið. 60. þús.
veittar til þessara ferða. Auk þess
Sterling samkvæmt áætlun.
Breyting á póstlögum komin gegn-
um Nd. Burðargjald undir bréf innan-
lands 20 aur. f stað 15. Engin hækk-
un fyrir blöð og bækur.
Fasteignaskattur til 2. umræðu f
Nd. Skatturinn iækkaður úr 3% niður
f 2V2 á jarðeignum etc og á húsum
úr 2% niður í V2.
Danska varðskipið tók brezkan tog-
ara í landhelgi. Sá var sektaður um
10 þús. Annan fór það með til Vest-
mannaeyja og var sá sektaður um 2
þús.
Akureyri.
Glíma fór fram í Samkomuhúsinu
fyrra laugardagskvöld. Þrenn verðlaun
voru veitt. Drengir glímdu um silíur-
pening og hlaut hann Guðmundur
Ásgrímsson. Unglingar glfmdu um
gullpening og varð hlutskarpastur
Alfreð Steinþórsson. Seinast glímdu
fullorðnir menn um Akureyrarskjöldinn
og vann hann í annað sinn Garðar
Jónsson. Drengirnir glímdu bezt. Verð-
launakappið virðist ráða of miklu um
glfmuna. Enda treystust dómendur
ekki til að dæma neinum vcrðlaun
fyrir fegurðarglfmu. Lfklega verður
það seint skilið, hversu mikið ógagn
kappglímuverðlaunin og glfmulögin
hafa unnið glímunni, sem fagurri íþrótt,
auk þess sem þátttöku hefir hnignað
ár frá ári. Stefnubreyting þarf að
verða í þessu efni og vill Dagur hvetja
ungmennafélögin, til þe3s að taka
það mál til rækilegrar fhugunar.
KlukKu úrsmiður Kristján
Halldórsson nýlega sett út f glugga
á búð sinni í Strandg. 1. Hún er
ætluð öllum almenningi til afnota.
Kristján er hugvitssamur og hagleiks-
maður mikill. Klukka hans er að því
leyti merkileg, að sólarhringurinn allur,
ásamt eyktanöfnum, er markaður á
skffuna, og hefur Kristjáni tekist með
miklum útreikningi, að haga samsetn-
ingu hennar svo sem þuríti. Þetta er
bæjarbúum mikið hagræði og gæti
orðið einhverjum sérstaldega mikið
hagræði, sem geta undir öllum kring-
umstæðum áttað sig á því, >hvort
það er nótt eða dagur,« ef þeir þekkja
á klukkuna hjá Kristjáni.
GóBar samgöngur. innflutnings-
nefndin bannaði innflutning á ávöxtum
og varð úi þvf rekistefna, að einn
kaupmaður flutti inn eitthvað af þeirri
vöru snemma f vetur og kallaði græn-
meti. Um mánaðarmótin síðustu hætti
svo nefndin störfum. En tveimur
eða þremur dögum sfðar voru ávextir
seldir f mörgum kaupmannabúðum
hér á Akureyri. Annaðhvort er hér
um að ræða' mjög kunnáttulegan við-
búnað, eða að samgöngurnar milli
Akureyrar og útlanda eru orðnar svo
góðar, að það er alveg dæmalaust. En
því miður er ekki hægt að segja um
hversu mikið verðfall á þessari vöru
frelsið orsakar, því hún var hér ekki
fyrir, til sölu, í búðunum.
Molar.
Peningagengið. Fyrir nokkru steig
danska krónan til muna. íslendingur
eyddi mörgum dálkum f rökvillu, til
þess að sanna, að orsök þess hafi
verið eú, að innflutningshöftunum var
létt af f Danmörku. Nú hefir krónan
aftur fallið, næstum því í sama verð
og áður var og nú þegir íslendingur
um málið.
Nýjar gestaþrautir hefir ísiending-
ur fundið upp nýlega. Það er leiðandi
greinarnar í 18. og 19 tbl. blaðsins.
Ýmsir kaupendur blaðsins láta gesti
sína glfma Við að skilja þessar grein-
ar, en það hefir enn ekkl tekist. Sumir
hafa jafnvel fullyrt, sð sér hafi orðið
ilt við lestur þeirra, eins og stundum
verður, þegar mótsagnir og flókin
hugsanaþvæla mætir mönnum. Þraut-
irnar munu vera þannig úr garði gerð-
ar, að þær verða því óskiljanlegri sem
meira er um þær hugsað. Getur það
verið ein tegund af list, að búa til
þesskonar hugsunarfræðilegar svika-
myllur. Hér skal tekin ein heilsíeypt
málsgrein sem sýnishorn, gripið af
bandahófi:
>Sé það eins og fjármálaráðherrann tók
fram, að allar okkar matarholur séu tæmd-
ar, þá er eyðslan* nátturlegasta og næst-
liggjandi ráðið að grípa til, þess að ná
upp sköttunum, og þetta ráðið ásamt
þeirri heilbrigði, sem slík sparsemi* mundi
hafa í för með sér, geturdrepið okkur úr
núverandi viðskiftadróma miklu fyr en
okkur sjálf grunar og veitt oss möguleika
til þess að nofaþau auðæfi, sem náttúran
* Leturbreytingin mfn. Ritstj.
Bókband.
Bæktir fást fljótt og vel innbundnar
hjá
Sig. Sigurðssyni,
bóksaia á Akureyri.
hefir látið okkur falla í skaut.< (ísl. 19.
tbl. 1921.)
Fleira þessu lfkt mætti tína úr
greinum þessum. En þetta hlýtur að
vera nóg í bráðina.
Úr öllum áttum.
Helgi magri. Nýkomin Heims-
kringla getur þess að Helgi magri,
sem er félag Eyfirðinga vestan hafs,
ætli að þessu sinni, að verja ágóðan-
um af Þorrablóti sfnu til Sjúkrahússins
á Akureyri, sem sé í fjárþröng eftir
því sem blaðið Dagur segi. Mun þar
vera skfrskotað til greinar, sem birtist
í blaðinu s. 1. haust um sjúkrahúsið.
Vestur-íslendingar sýna enn sem fyr
bróðurhug sinn og viðbragðsflýti, þegar
þörf er hjálpar. Dagur biður Heims-
kringlu að flytja þeim alúðar þökk og
vinarkveðju allra þeirra mörgu manna,
sem njóta þessarar hjálpsemi.
Sfaðarfellsfjjónín, sem á sfðast
liðnu hausti urðu fyrir þungum harmi,
er fernt af heimilisfólkinu druknaði,
þar á meðal einkasonur þeirra og fóstur-
sonur, hafa snúist við harmi sfnum á
höfðinglegan og stórmannlegan hátt.
Þau hafa ákveðið að gefa eignarjörð sfna
Staðarfell, með öllum húsum og mann-
virkjum, til skólajarðar fyrir hinn
væntanlega kvennaskóla við Breiða-
fjörð. Er gjöfin helguð minningu þeirra
Gests sonar þeirra og Magnúsar Guð-
finnssonar fóstursonar þeirra. Enn
íremur bjóða þau ríkinu til kaups, við
sanngjörnu virðingarverði, búslóð sfna
alla, sem er f fyrirmyndarástandi.
Loks óska þau hjón eftir þvf, að mega
búa um sig í ellinni heima á Staðar-
felli og njóta styrktarfjár. Óhætt mun
að segja, að samúð þjóðarinnar allrar