Dagur - 21.05.1921, Page 3
21; tbl.
DAQUR
83
það er torsótt !eið til fjárafla að
þurfa að sækja allan styrk. í hendur
þremur stjórnarvöldum, þ. e. bæjar-
stjórn, sýslunefnd og alþingi, en
neyðarúrræði að bækka stöðugt dag-
gjöld sjúklinga (þau eru nú kr. 5
fyrir sýslubúa, kr. 6 fyrir utansýslu-
búa og 10 kr. fyrir útlendinga.
Akureyri 1. maf iQ2i.
Steingrímur Matthiásson,
héraðslæknir.
Símskeyti.
Reykjavík 20. maí.
Lloyd George Iýsti yfir í parla-
mentinu, að yfirlýsingar pólsku
stjórnarinnar um hlutleysi í
Slesíu væri helber fyrirsláttur.
Kvað Breta ekki mundu pola
pað brot á friðarsamningunum.
Stjórn Frakka tók upp pykkju
fyrir Pólverja og liggur nærri
að upp úr slitni bandalagi Frakka
og Breta. Hafa báðir stór orð
og vilja í engu vægja. Sum ensk
blöð telja Iíklegt, að til vináttu
dragi með Bretum og Pjóðverj-
um.
Enska kolaverkfallið heldur
áfram. Vandræða ástand í Eng-
landi.
Steingrimur Arason heldur
sumarskóla fyrir börn yngri en
10 ára til júníloka. Mikil aðsókn.
Síldveiðifrumvarpið dagar uppi
í efrideild.
Fasteignabankinn sampyktur,
prátt fyrir megnan andróður B.
Kr., Kvarans, Steinssonar, H.
Snorras. Guðjóns og Jóhannesar
Jóhannessonar.
Jón Magnússon siglir næstu
daga, líklega vegna lántöku. —
Viðskiftaástandið fer síversnandi,
svo og allar atvinnuhorfur.
Valdemar Halldórsson frá
Kálfaströnd nýkominn úr Italíu-
ferð. Talin vera fyrsti ísl. bóndi,
sem fer skemtiferð pangað suður.
Fréttaritari Dags.
Pingfréttir.
Frumvarp 8 Ed. þingmanna f banka-
málum samþykt f Nd. f fyrradag, með
litlum breytingum. Til einnar umr. í
Ed. f gær. Búist við samþykt. Þessi
verður þá niðurstaðan f þessu mikla
rnáli: íslandsbanki hafi seðlaútgáfurétt
sinn óskertan, til 31. okt. 1922
(breýting Nd. úr 1. maf 1922I, þá
má bankinn hafa úti mest 8 miljónir.
Draga síðan inn eina miljón árlega
ofan í 2V2 miljón. Ur því jafnar upp-
hæðir til loka leyfistfmans 1933.
Seðlaútgáfan rennur þannig smám
saman - til rfkissjóðs. Bankanum er
skylt að selja ríkissjóði við nafnverði
það af gullforða sfnum, sem hánn
þarínast tii tryggingar seðlum Gull-
forðinn skal allur geymdur f Reykja-
vík.
Hlutafé bankans skal auka um
100% á þann hátt að ríkisstjórnin
leggur fram hlutafjáraukann úr rfkis-
sjóði, ef það þykir hyggilegt, eftir að
rannsókn hefur farið fram. Meðan
bankinn hefir á hendi seðlaútgáfu, eða
rfkið ber ábyrgð á skuldbindingum
hans, skal rfkisstjórnin skipa tvo af
bankastjórunum. Lögin öðiast þegar
giidi, /en falla úr giidi 30, sept. 1921
nema því aðeins að hluthafafundir
bankans verði þá búnir að gera þær
ráðstafanir, sem lögin áskilja.
Einar Arnason og fl. báru fram í
samein. þingi í fyrradag þingsálykt-
unartillögu um að skipa nefnd milli
þinga stjórninni til ráðuneytis f pen-
ingamálum, en var feld.
Tillaga M. Kr. um Landsverzlun
samþ. í Nd. með 18 gegn 5. Hún
fer í þá átt, að halda Landsverzlun f
horfi. Búist við að frumv. til laga
um sfldveiði dagi uppi í Ed. Sömu-
leiðis frumv. um skatístofna til sýslu-
vegasjóðs. Fjárlögin afgreidd f íyrra-
dag með 2 miljöna tekjuhalla.
Forsætisráðherra sigldi í gær til Dan-
merkur. Þinglausnir í dag. Sterling
fer úr Reykjavfk á morgun.
Akureyri.
Látinn er í Kaupmannahöfn á
hvítusunnudagsmorgun Valdemar Thor-
arensen, lögfræðingur. Hann sigldi
með Gullfossi fyrir rúmum mánuði
sfðan, til þess að leita sér lækninga.
Valdemar var rúmlega fimtugur að
aldri. Hann er mörgum kunnur hér á
iandi. Þótti vera snjall löfgræðingur.
SÍr'lUÍ, skip Bergenska félagsins
kom hingað á annan f hvítusunnu.
Skipið var yfirfult af farþegum. Frá
Reykjavík komu: Mag. Hallgr. Hall-
grfmsson frá Reistará ( kynnisför
hingað norður í land og á leið til
útlanda. Guðm. skáld Friðjónsson á
Sandi á heimleið eftir allianga kynnis-
för til Reykjavíkur, þar sem hann
hélt ailmarga fyrirlestra. Stúdentarnir
Jón Steingrímsson, bæjarfógeta og
Theódór Lfndal. Svanfríður Jónsdóttir
kona Sig. H. Jónssonar, verkstjóra
o. fl. Skipið fór aftur kl. 12 um nóttina.
Sig. S. Skagfeidt, söngvari kom
til bæjarins íyrir nokkru síðan. Á
annan f hvftusunnu söng hann f Sam-
komuhúsinu og gazt mönnum ágæt-
lega að, sem íyrri. Sigurður dvelur í
Skagaflrðinum f surnar, en siglir til
útlanda að hausti til frekara náms.
Heyrst hefir, að að þingið muni ætla
að veita honum styrk til fararinnar
að upphæð 3000 kr.
Kaupendur Dags, sam hafa bú-
staðaskifti eru beðnir að tilkynna af-
greiðslunni það tafariaust, clla bera
þeir sjálfir ábyrgð á vanskilum á blöð-
um þeirra.
Silfurbrúðkaup sitt héldu þau f
fyrradag, Jónas Sveinsson frá Uppsöl-
um f Skagafirði ogfkona hans Björg
Björnsdóttir. Gestunum var veitt af
mikilli rausn og alúð. Davfð Jónsson,
hreppstjóri flutti þeim hjónum erindi,
sem birtist á öðrum stað f blaðinu.
Brynjólfur Bjarnason frá Þverárdal
mælti fyrir minni hjónanna, mjög
skörulega og laglega, en brúðguminn
þakkaði báðum. Fjöldi heillaóskaskeyta
bárust þeim hjónum og margar dýrar
gjafir.
Það var létt og bjart yflr brúð-
hjónunum þenna minningasama dag.
Dagurinn varð endurskin 25 ára gæfu.
Hann var éndurtekning 25 ára rögg-
semi og rausnar, enda varð þessi
samverustund frjálsmannleg og ánægju-
leg. Jónas er alþektur dugnaðar og
atorkumaður og þau hjón bæði marg-
reynd að góðu. Auk einkadóttur sinn-
ar, Sigurlaugar, hafa þau fóstrað upp
tvö börn.
Dagur óskar brúðhjónunum einlæg-
lega til hamingju.
Minningarspjald lét Steingr. iæknir
gera og gaf listigarðinum gjöf til
minningar um frú Ötinu Ch. Schiölh,
sem lézt hér í bænum 27. f. m. Frú
Schiöth var ein af þeim fáu erlendu
konum, sem festu verulegar rætur f
íslenzku þjóðlffi. Leit hlýjum vinar-
augum á þenna bæ og þetta land,
enda ávann sér ástúð og virðingu
þeirra sem þektu hana. Listigarður-
inn er sagður orðinn til að mestu fyrir
hennar framgöngu. Garðurinn var henn-
ar ellidraumur. Ekki verður henni
þvf annan hátt betur þakkað hennar
starf og fagurt dæmi, en að hlynna
að óskabarninu.
Úr öllum áttum.
Séra Gunnar Benediktsson var
nýlega kosin prestur f Grundarþingum.
Inflúenza er á ný gosin upp í
landinu. Hún kom snögglega upp á
Seyðisfirði um hvítusunnuleytið, og
vita menn ekki hvaðan hún er komin.
Veikin er talin vera upp á Héraði og
telur Seyðisfjarðarlæknir að meiri líkur
séu til þess að hún hafi borist þaðan
f kaupstaðinn, heldur en úr kaupstaðn-
um þangað. Telur litlar eða engar
lfkur til að hún hafi borist frá útlönd-
um. Hátt á 2. hundrað manns hafa
lagst á Seyðisfirði, en veikin talin væg.
Menn liggja 2—3 daga og fá sumir
allháan hita. Enginn dáið og ekki talað
um lungnabólgu. Á Austfjörðum eru
ráðstafanir gerðar til þess að hefta
úlbreiðslu veikinnar og vilja sumir
miklu kosta til, að stöðva hana með
öllu. Stjórnaráðið er að hugsa sig um,
hvaða hlut það vill eiga í sóttvarnar-
ráðstöíunum og er óráðið þegar þetta
cr skrifað. Fyrsta sjálfsagða ráðstöf-
unin væri sú, að láta Sterling fara
fram hjá Seyðisfirði.
Halinn á þinginu er að verða jafn-
langur ómagahálsinum. Þó er talið
óhjákvæmilegt að kleppur verði á end-
anum og sum mestu vandamálin verði
afgreidd í hálfgerðu fumi og tjaldað
til einnar nætur.
Ritstjórann
er að hitta á Eyrarlandsvegi Nr. S
(Æsustöðum). Gengið upp á loft að
sunnan.
Hreinsun fata,
strauning; og þvott
afgreiðir
jósefína Eyjólfsen,
Hótel Akureyri, niðri.
Frímanrj B. Arngrímsson biður
þess getið, að vegna annrfkis hafi
hann ekki getað tekið til athugunar
ritgerð Friðriks Möllers: Húsnæðis-
leysi, sem birtist fyrir nokkru í íslend-
ingi, en muni gera það svo fljótt,
sem kringumstæður leyfa.
Viðkvæmni. Verkamaðurinn er
undarlega viðkvæmur fyrir þvf umtali,
sem bændur hafa haft með sér um
það, hvaða kaup þeir telji landbúnað-
inum fært að borga, eins og nú horfir.
Bændur hafa þó ekki enn slegið föst-
um neinum tsxta, svo vitanlegt sé,
heldur aðeins reynt að gera sér grein
fyrir gjaldþolinu. Þetta þykir Verka-
manninum ótanngirni, svo bændum
farist nú ekki um að tata ósanngirni
verkafólksins; jafnvel að nú sé óvand-
ur eftirleikurinn! Ekki bendir það á,
að öflug samtök bænda yrðu vel þol-
uð af verkamönnum. Mönnum getur
hnikt við, að sjá í spegil. Dagur lft-
ur svo á, að það sé alls engin ósann-
girni af bændum, að gera sér grein
íyrir þessu, fremur en það er ósann-
girni af verkafólkinu, að gera sér
grein fyrir þvf, hvaða kaup það þurfi
að fá. Hitt er annað mál, að eins og
raálum er skipað og nú horfir, munu
hvortveggja aðilar þurfa að ganga
feti framar, en þeim þykir gott.
Afíurganga. nú er það orðið þjóð-
kunnugt, að Morgunblaðið sá það
vænlegast, virðingar sinnar vegna, að
bera Einar Sigfússon á Stokkahlöðum
út f -sorphauginn fyrir utan og biðja
þjóðina afsökunar á þvf, að hafa hleypt
honum inn. Sfðan hefir hann legið
þar í greinarleysi og enginn viljað
kannast við hann, ekki einu sinni hann
sjálfur. í eyru fleiri manna en eins
hefir hann þverneitað því, að hafa
akrifað bréf það úr Eyjafirði, sem frægt
er orðið. En þegar böndin bárust að
honum, sá hann sér ekki fært, að
halda þá leið, Nú hefir bréf þetta
>gengið aftur* f íslendingi og er Einar
hreykinn yfir þeirri velvild, sem blaðið
sýni sér, að skjóta yfir sig skjólshúsi
eftir hrakninginn fyrir sunnan. Eftir
ástæðum er það við hæfi ísl. að hirða
þetta úrkast Morgunbl. og eru þeir
vel sæmdir hver af öðrum ísl. og Einar.
Dagur ætlar ekki að svara Einari
neinu, að svo stcddu. Bréfi þessu
hefir verið svarað hér áður f blaðinu
í umræðunum við hr. B. L, það er
hvort sem er aðeins jórturtugga af
fyrirlestri hans. Það hefir engin áhrif
hér í Eyjafirði, nema ef vera kynni,
að þess sæjust merki á viðskiftareikn-
ingum Einars við Höepfners verzlun
og sumar aðrar verzlanir hér f bæ.