Dagur - 08.10.1921, Side 3
^40. tbl.
DAOUR
159
lCppboðsauglýsing.
Kunngerist: Ár 1921, föstudaginn 14. p. m/ verður selt við
opinbert uppboð bjargað góss frá m.sk. »Rigmor% er strandaði
i Djúpuvík á Árskógsströnd 28. f. m., svo sem: Matvæli, segl,
kaðlar, legufæri o. fl. og ef til vill skipskrokkurinn sjálfur með
öllu, sem í honum er.
Uppboðið hefst kl. 12. á hádegi.
Uppboðsskilmálar verða birtir á uppboðsstaðnum við Djúpuvík.
Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu, 8. okt. 1921.
Steingrimur Jónssog
unarráðsins og einn aðstandandi Morg-
unblaðsins. Hann er sá, sem hefir
haldið uppi fyrir hönd þess flokks
andróðri gegn saonrinnulögunum. Frá
politísku sjónarmiði er þessi afstaða
mannsins ekkert óeðlileg.
Nú mun það ekki talið neitt ósæmi-
legt að ráðherra hafi ákveðna stefnu
í þjóðmálum. En það er kuanugt, að
atvinnumálaráðherrann hefir ákveðna
stefnu og enginn efast um, að hann
fylgir henni af hjartans sannfæringu
fyrir því, að hún sé þjóðinni fyrir
beztu. Stefna hans er Landsverzlun
með vissar vörutegundir. (Sbr. einka-
sölufrv. á síðasta þingi) og félagsieg
samvinna landsmanna um almennan
verzlunarrekstur. Þetta er hans stefna.
Nú mun það ekki talið óeðlilegt eða
ósæmilegt að ráðherra beiti veitingar-
valdi sínu þannig, að fremur sé hlynt
að þeim stefnum, sem að hans áliti
og eftir hans hjartans sannfæringu eru
þjóðinni fyrir beztu, heldur en að
hanh skipi í þau embætti, sem mjög
mikið veltur á, fyrir stefnurnar menn,
sem eru þeim mjög andstæðir. Enginn
vænir Pétur Jónsson, ráðherra um
hlutdrægni vegna persónufylgis og
vináttu, en því erfiðara verður að skilja
þær tvær bankastjóraskipanir, sem
farið hafa fram nýlega. Allir vita að
atvinnumálaráðherrann vill vera »loyal«.
En hans »loyalitet« birtist með undar-
legum hætti. Hann tekur af allan grun
um, að hann vilji beita valdi sínu
sfnum mönnum til geðþekni á þann
hátt, að beita því svo, sem þeim er
allra andstæðast og ógeðþekkast. Þó
flokksfylgi sé á þenna hátt sett í
hættu, er það minna vert hinu, að
stefnurnar sjálfar séu fyrir borð bornar.
Pað getur tæplega nokkurt »loyalitet«
réttlætt.
Lánskjörin. Eftir því sem The
New Statesman hermir var um sama
leyti og íslenzka ríkislánið var þoðið
út i London annað lán boðið þar út
fyrir hérað eitt á Nýja Sjálandi. Það
lán var nofckru stærra. Þegar hlutfalls-
legur samanburður þessara lána er
tekinn, verður kjaramunurinn þessi.
Þeir fá sitt lán með 4% afföllum;
við með 15x1 = 16%. Þeir borga
Allir kaupendur
blaðsins, sem skulddfyrir éldti árganga
og geta ekki náð til neins af inn-
heimtumönnum þess, eru beðnir að
greiða nú þegar skuldir sinar beint
til ritstjórans.
t»ingeying:ar!
Greiðið andvirði blaðsins til kaup-
félagsstjóra Sig. Sigfússonar Bjarklind
f Húsavfk eða kaupfélagsstj. Ingólfs
Bjarnasonar, Fjósatungu. Grýtubakka-
hreppsbúar greiði áskriftargjöld sfn
til Kaupfélags Eyfirðinga, Akureyri.
Skagfiröingarl
Greiðið alt sem þér skuldið fyrir
blaðið og áskriftargjöldin framvegis
til kaupfélagsstjóra Sigfúsar Jónssonar,
Sauðárkróki eða kaupfélagsstjóra Guðm.
Ólafssonar, Stórholti í Fljótum.
Kaupendur
Dags á Akureyri geri aígreiðslunni
tafarlaust aðvart, ef vanskil verða á
blaðinu.
6°/o vexti; við 7%. Við fáum útborgað
af láninu 12% minna en þeir eða
1.200.000 kr. Við borgum um 100.000
kr. méira í vexti.
Við útvegun íslenzka lánsins gekk
auk afíaHanna I % eða um 100.000
kr. til einhverra milliliða. Þetta
hefir ef til vill verið óbjákvæmi-
legt. En menn spyrja hvort sendiherr-
ann okkar, sem er talinn einn af
okkar færustu mönnum, hefði ekki
getað umgengist þetta og einhverjir
þeir fjármálamenn, sem rlkið hefir á
að skipa, svo ekki hefði þurft að
fleygja 100.000 kr. af fé þjóðarinn f
vasa einhverra óvalinna milliliða.
Heyrst hefir ennfremur að félögin
brezku, sem útveguðu lánið, hafi boðið
það út til almenning þar fyrir gi°/o.
í vasa félaganna rennur þvf mis-
munurinn á 91 og 8 5 0/0 eða 600.000
kr. Varla er hægt að segja annað, en
að ýmsum hafi tekist að »mata krók-
inn,« þegar lán var tekið fyrir hið
fslenzka ríki árið 1921.
Símskeyti.
Reykjavík, 8. okt.
Branting myndar sennilega
jafnaðarmannastjórn í Svípjóð.
Bandaríkin neyða Englendinga
og Japani til að takmarka víg-
búnað; hóta ella viðskiftastríði.
Nýir samningar milli Ira og
Englendinga.
Fréttaritari Dags.
Akureyri.
Hjónaefni. Ungfrú Guðlaug H. Kvar-
an, kenslukona fráBlönduósi og hr. Sig-
urður Kristinsson, frámkvæmdastjóri,
Akureyri birtu trúlofun sfna í gær-
kvöldi.
Ungfrú Hulda Guðmundsdóttir
Péturssonar, útgerðarmanns hér í
bænum og Gunnlaugur Jónsson
verzlunarmaður hjá Kaupfélagi Verka-
manna birtu trúlofun sfna 29. f. m.
Hjónaefnin tóku sér far með Islandi
til Reykjavlkur. Gunnlaugur gengur í
Samvinnuskólann næsta vetur. Dagur
óskar hvorumtveggja hjónaefnanna til
hamingju.
Skipafregnir. Sterling kom hingað
fyrra föstudag og fór vestur um til
Rvíkur. Sirius kom á þriðjudaginn og
fór austur um og til útlanda. Ville-
moes kom f gær og tekur ket fyrir
Sambandið hér við fjörðinn.
Frímann B. Arngrímssoi) hefir í
hyggju að gera enn ákveðna tilraun
að brenna kalk úr skeljum. Hann bið-
ur því alla sjávarbændur beggja megin
Eyjafjarðar og í Hrísey að halda til
haga kúskeljum, þegar þeir fara að
veiða þær til beitu nú í vertfðinni.
Verkfrœðingurinn Ó. Sandeii sá,
sem staðið hefir fyrir byggingu stífl-
unnar f Glerá f sumar, fór heimleiðis
með Sirius.
Nýr tannlæknir er komin til
bæjarins. Frú Caroline Espholin kona
Jóns S. Espholin kaupmanns auglýsir
að hún opni lækningastofu 15. þ. m.
Gagnfrœðasl;ólinn var settur eins
og lög standa til þann 1. okt. Skóla-
meistarinn nýi, Sigurður Guðmundsson
setti skólann með langri ræðu og
merkilegri. Hann mintist mjög ræki-
lega fyrrirrennara sinna Hjaltalíns og
Stefáns skólameistara. Hann gerði
talsvert ítarlega grein fyrir skilningi
sfnum á hlutverki skólans; þeim kröf-
um, sem yrði að gera til hans, og
þeim kröfum, sem yrði að gera fyrir
hans hönd ekki eingöngu til löggjafar-
valdsins heldur til Norðlendinga. Hann
benti á, hversu það væri mikilsvert
skilyrði fyrir velgengi skólans að hann
væri borinn á höndum umhyggjusam-
rar alþýðu, sem styrkti hann með fé-
gjöfum, gjöfum til bókasafns hans og
annara safna. Hann talaði að lokum
til nemenda sinna mjög ástúðlega en
jafnframt alvarlega.
Sérstaklega verður Dagur að lýsa
samþykki sfnu og ánægju yfir þeim
skilningi skólameistarans, sem kom
fram f ræðunni, á hlutverki þessarar
og allrar fræðslustarfsemi, að tilgang-
ur hennar megi ekki vera bókleg
fræðsla eingöngu, heldur miklu fremur
andlegur og siðlegur þroski. En sá
þroski fáist ekki nema mikið sé um
verklegar æfingar, auðugt og starfsamt
íélagslíf og náin kynni, samstillingu
og samvinnu kennara og nemenda.
Það mun ekki veita af því að skóla-
menn okkar vakni til þessa skilning
á hlutverki skólanna.
Vfgslubiskupinn séra Geir Sæmunds-
son, sem kendi dönsku í skólanum s.
1. ár, lætur af því starfi, en við tek-
ur ungfrú Hulda Árdís Stefánsdóttir
.skólameistara. Árni Þorvaldsson, ensku-
kennari skólans, er í utanför og er
væntanlegur heim um áramótin. í fjar-
veru hans kennir Lúðvfk Sigurjónsson
enskuna. Ennfremur, er eins og mönn-
um er kunnugt, nýr kennari f nátt-
úrufræði fenginn að skólanum. Ber
öllum saman um, að þar hafi orðið
fyrir vali ágætur maður, sem Guðm.
Bárðarson er. Hann er þegar orðinn
þjóðkunnur sem vfsindamaður. En vfs-
indamenskuna hefir hann stundað með
Nýjar bækur
i bókaverzlun
Sig. Sigurðssonar, 1921.
Sn. Sturluson: Heimskringla.
Sig. Nordai: Snorri Sturluson.
M. Þórðarson: íslenzkir listamenn.
G. Gunnarsson: Sælir eru einfaldir.
Ben. Gröndal: Gamansögur;
Goethe: Faust I.
Ricard: Nfu myndir úr Hfi meisarans.
Reinfels: Gull og æra (saga).
Sigurj. Jónss.: Fagrihvammur (saga).
G. Sheldon: Angela (saga).
Fechner: Lffið eftir dauðann.
Lao-Tze: Bókin um veginn.
Ný lesbók handa börnum.
A. Þormar: Hillingar.
F. Munk: Danmörk eftir 1864.
S. Þórðarson: Um hæstarétt.
I. Einarsson: Dansinn í Hruna.
Þ. Grönfeldt: Matreiðslubók fyrir
sveitabæi.
G. Guttormss.: Bóndadóttir (kvæði).
J. Friðfinnsson: Ljósálfar (sönglög).
Loftur Guðmundss: Sönglög I.-II.
G. Guðmundss.: Mjólkurfræði.
Þ. Þorsteinsson: Heimhugi (kvæði).
St. Pétursson: Byltingin í Rússlandi.
Margeir Jónsson: Torskilin bæjanöfn.
Minnisbók bænda.
Mikill mannamunur (saga).
Tímarit Þjóðræknisfél. II ár. Sindri.
Eimreiðin, Morgnnn II ár. Réttur.
Syrpa, Iðunn, Andvari 1920, Þjóð-
vinafél. bækurnar 1921 o. fl. o. fl.
Sömuleiðis mikið af útlendum
fræði og skemtibókum, kenslubókum
fyrir gagnfræðanemendur. Allskonar
ritföng, sem selt er svo ódýrt, sem
unt er.
Bækur teknar til bands.
búmenskunni. Munu vera fá dæmi
þess, að menn hafi haft þau tvö járn
í eldinum og brent hvorugt.
Nemendur eru ekki komnir allir enn,
en búist er við, að þeir verði um ioo.
2. og 3. bekkur verða að þessu sinni
báðir tvískiftir.
Raforkuveitan. Vinna við aflstöð-
ina er nú hætt fyrir nokkru. Vinna
var hafin 7. júlí. Til jafnaðar unnu
að verkinu 30 menn og 3 hestar.
Tfmakaup var kr. 1.25 á klst. Fyrir
mann og hest var goldið kr. 2.00 á
klst. Ákvæðisvinna reyndist til jafn-
aðar kr. 1.4*0 á klst. Var talsvert af