Dagur - 05.11.1921, Blaðsíða 1

Dagur - 05.11.1921, Blaðsíða 1
DAGUR kemur út á hverjum laugard. Kostar kr. 8.00 árgangurinn. Gjalddagi fyrir 1. ágúst. IV. ár. Akureyri, 5. nóvember 1921. E-L-D-F-Æ-R-Á-V-E-R-Z-L-U-N. Miklar birgðir af allskonar ofnum, elda- vélum, þvoffapoffum, ofnrörum, rörþnjám, eldheldum leir o. fl. þessh. ávalt fyrirliggj- andi og selt með verksmiðjuverði. Panfanir afgreiddar ú f u m 1 a n d. Jón Stefánsson. Talsími 94. T& Akureyri. Framtíðarúrrœði í verkamálum. Varasjóðuratvinnuveganna. Sannvirði vinnunnar hefir í þess- um greinum verið kallað það kaup- gjald, sem atvinnuvegirnir væru á hverjum tíma færir utn að gjalda, án þess að taka sér svo nærri, að það orsakaði lömun þeirra. Sú trygging atvinnuveganna hlýtur jafnan að koma fyrst tii greina, ef þjóðin á að geta bjargast. í góðum árum, bæði að veður- áttu og i viðskiftum, mundu at- vinnuvegirnir geta goldið það kaup- gjald, sem mætti heita vel lífvænlegt fyrir alla, sem atvinnuna stunduöu. Er þar átt einkum við þá, sem sætta sig við, að vera vinnumenn i sveit, eða staðfasta sjómenn. Síður verður fullyrt um hina, sem elta ýktar hagnaðarvonir og berast eins og rekald af einum stað í annan. Peim mðnnum verður oft lítið gagn að tíma og fjármunum. Aftur á móti mundi óáran þrýsta kaupgjaldinu niður fyrir lífvænlegt lágmark, að atvinnuvegunum sæmi- lega trygðum. Þá rís sú spurning á hvern hátt verkalýðnum veröi trygð eigi Iakari Iffskjör en öðrum aðilum, sem atvinnuna reka. Alllr sjá, aö til þess getur ekki verið ætlast, að hallinn sé allur lagður á bak einni stétt, en aðrar séu trygðar, á hverju sem veltur, Tæþlega veröur unninn bugur á þessum örðugleika meö öðru, en að stofna öflugan sjóð, sem beri skakkaföilin. Úr honum yrði að gjalda þá kaupgjaldsuppbót, sem nauðsyn krefði. Sjóður þessi yrði á þann hátt varasjóður atvinnuveganna, þar sem hann gerði það jafnan fært, að íryggja þá. Hann hefðí sama hlut- verk gagnvart atvinnuvegunum eins og kasthjðl á afíve'i, scm bet hreyfiarma hennar y/ir dauða punkta. Það sem mest hefir þjakað verzlun okkar alla tíð, síðan við tókum hana í okkar eigin hendur að því Ieyti, sem hún er í okkar höndum, hefir verið skortur á veltufé og tryggingarfé. Við höfum þurft að skulda í innlendutn og erlendum bönkum meginhluta af ársúttekt okkar. Fyrstu verulegu viðleitnina, til þess að safna þessu fé, hafa kaupfélögin sýnt. í hópi annara verzlunarrekenda eru auðvitað menn, sem hafa lagt áherzlu á þetta, en allur fjöldi kaupmanna hefir lagt fé sitt í áhættu gróðabrasksins og hafa litla tryggingarsjóði að grípa til, þegar í nauðir rekur. Núverandi örðugleikar munu að líkindum sannfæra hvern einasta kaupsýslu- mann um það, að tortryggingalaus verzlun er ófarsæl. En þar sem óhætt er að fullyrða, að varasjóðir eru nauðsynlegir í viðskiftum, ætíu þeir ekki að vera síður nauðsynlegir að baki atvinnu- vegunum sjálfum. ÖIl framtíð þjóðar- innar og öll menning hennar veltur á því, að hún geti sííelt unnið og framleitt verðmæti. Með því tog- streytuskipulagi, sem nú er á at- vinnurekstri þjóðarinnar, verða ein- att misbrestir á þessu. Öflugur vara- sjóður ætti að geta komið í veg fyrir, að þjóðinni yrði verkfall af þeim orsökum, að atvinnuvegunum yrði siglt í strand. Auk þess hlutverks að halda at- vinnuvegunum gangandi gegnum örðugleikatíma, ætti sjóður þessi að hafa annað mikilsvert hlutverk. Fé hans mætti að miklu verja til at- vinnubóta og arðbærra fyrirtækja. Það mun vera flestum mönnum fullljóst, að mjög margt fólk gengur svo að segja iðjulaust mikinn hiuta ársins, vegna þess að enga vinnu er að fá. Þetta er ein orsökin til þess, að verkalýðurinn gerir háar kröfur á hendur aívinnuvegunum. Það er vissulega áríðandi til trygg- ingar þeirn atvinnuvegum, sem fyrir eru, að aukin verði vinnu- brögð í landinu og atvinnulífið verði fjörugt og fjölþætt. Atvinnu- vegirnir ættu þá að styðja hver annan í því að veita hverjum ein- staklingi lífvænleg kjör. Einkum mundu þeir styðja hver annan gegnum sjóð þann, er hér ræðir um. Dagur telur þaö ekki sitt hlutverk, að ganga mjög inn á aukaatriði þessa máls. Sjóðstofnunin er eitt aöalatriðið. Hitt er skipulagsatriði á hvern hátt sá sjóður yrði mynd- aður. Aðeins má benda á það, að hlutverk sjóðsins á að vera, að efla aimenna hagsæld og almenna at- vinnutrygging. Það virðist þvi ein- sætt að allir aöilar þjóðarinnar eigi að taka þátt í myndun hans. Verkamálarátí. Því var haldið fram hér að fram- an, að framboð og eftirspurn mætti ekki ráða kaupgjaldi, heldur yrði jafnan að leita að sannvirði vinn- unnar og Iáta það ráða. Á það var bent ennfremur, að sannvirðið yrði eklci fundið fyrirfram, heldur þyrfti að leita að því eftir á. Að vísu mun leitin að sannvirði vinnunnar vera talsvert örðugt hag- fræðilegt verkefni, en þó fram- kvæmanlegt. Á hverju ári þyrfti að gera upp búreikning þjóðarinnar. Talsvert af verkinu er nú þegar framkvæmt með skýrslugerð em- bættismanna og starfi hagstofunnar. Það mætti hugsa sér að starfsvið hagstofunnar yrði fært út yfir þetta mál. Til grundvailar þyrfti að Ieggja ítarlegt landshagsfræðilegt kerfi. Á þann hátt mætti búast við að þjóðin gæti vitað, hvar hún væri stödd efnalega á hverjum tíma o. s. frv. Ekki er hægt að hugsa sér fram- kvæmd þessa skipulags án miðstööv- ar eða miðstjórnar. Mætti kalla þá stjórn vcrkamálaráð, sem væri skipað fulitrúum allra atvinnustétta og þar á meðai verkaiýðsins. Verkamála- ráðið hlyti að starfa í satnbandi við hagstofuna, eða vera hluti af starfs- kröftum hennar. Verkefni verkamálaráðsins yrði í fyrsta lagi það, að komast að niður- stöðu um þann ábata eða halla, sem verður á rekstri atvinnuveganna árlega og ákveða kaupgjaldið eftir því. í öðru Iagi að ákveða íillög í varasjóðitm. 1 þriðja lagi að kveða á um úíborgun úr sjóðnum, þegar svo ber undir. í fjórða lagi að leita að atvinnubótum og lána fje úr sjóðnum til almennra atvinnufyrir- tækja o. s. frv. Á þenna hátt ætti það að vetða trygt, að þjóðin gæti alt af haldið á- fram að vinna og'framleiða. Hún mundi jafnan vita hvar skórinn krepti mest og hefði, þar sem sjóð- urinn væri, ráð i bakhendinni, til þess að hlífa og hjálpa, þar sem þörfin væri mest. (Meira.) Bannmálið. Eí sá orðrómnr er á rökum bygður, að stjórnin muni leggja fyrir næsta þing frv. til laga um rýmkun bann- laganna, er fyrirsjáanlegt, að til róstu dregur um málið. í sögu bannmálsins eru margir dökkir drættir, en því betur fleiri AFOREIÐSLAN er hjá Jóni I>. Þór, Norðurgötu 3. Talsími 112. Innheimtuna annast ritstjórinn. 44. blað. >.A innii,VM*i ■ "'n *'■ “ i *' *—t*t—i-^i—■—ii-■ — i.■%■->-»^ ljósir. Þrátt fyrir allan áfengisinnflutn- ing hefir að mestu leyti unnist bugur á ofdrykkjunni í landinu. í sveitum eru umskiftin sérstaklega mikii. En írá því fyrsta hefir verið uppi í landinu hálfgerður óaldarflokkur í garð þessara laga, sem hefir sett sér það mark og mið, að ganga af þeim dauðum. Flokkur þessi hóf starfsemi sína með blaðinu Ingólfi. En ekki tókst blaðinu að lifa á svo einhæfri stefnuskrá, enda hefir aðstandendum þess verið þörf peninga, til þess að fylgja stefnuskránni fram f verki. Ingólfur sgrengdi sig á stóryrðum um málið. Því hefir verið haldið fram að lögin væru svo stórspillandi fyrir siðferði manna vegna brotanna. Afnámi þeirra hefir því af andstæðingunum verið haldið fram sem alþjóðarnauðsyn. Eftirtektarvert er það, að þeir, sem hafa hrópað hæst um þetta, eru einkum úr hópi þeirra, sem brjóta lögin manna mest. Það væri svipað því, ef þjófar héldu því fram, að hegningarlögin væru siðspillandi vegna þess að þeir þyrftu, þeirra vegna, að stela í óleyfi. Engin lög, sem stefna að stórri, siðlegri hugsjón, eru f sjálfum sér siðspillandi. Það eru lögbrjótarnir, sem eru siðspillandi. Það þarf að komast inn í meðvitund manna, að ofdrykkjan sjáif er siðspill- ing, en ekki þau lög, sem banna hana. Og aldrei hefir hræsnin í þjóð- lífinu keyrt svo um þverbak, sem í þessu máii. Menn hafa þózt bera siðíágun þjóðarinnar fyrir brjósti, þegar þeir hafa verið að eggja al- menning til þrjózku, virðingarleysis og ofstækis gegn þeirri öflugustu tálman, sem reynt hefir verið að leggja á leið siðspillingar og úrætt- unar þessarar þjóðar. Annari veigameiri röksemd hefir verið haldið fram gegn banninu. Það er krafan um aðstöðu einstaklingsins, til þess að geta af sjálsdáðum sigrast á vínnautninni. Bannstefnan hefir verið fordæmd vegna þess að hún væri hálfgerð siðleg uppgjöf. Gallinn á þessari röksemd er þvl miður sá, eins og á stendur, að henni er lfka haldið hæst á lofti af þeim, sem eru allra manna ófærastir, til þess að stjórna sér sjálfir. Það er því hæpið, að hún eigi við, þó hún sé í sjálfri sér frambærileg. Eg hefi altaf litið svo á, að óhófleg nautn eiturdrykkjar væri of lítilfjörlegt siðlegt viðfangsefni, til þess að fórna þessvegna miklu af tfma, fjármunum, heilsu, mannslffum, heimilisánægju og hamingju þjóðarinnar um marga manns- aidra eða jafnvel aldir. Mesta þroska-

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.