Dagur - 01.06.1922, Síða 1

Dagur - 01.06.1922, Síða 1
D A G"U R IM kemur út á hverjum fimtudegi. Kostar kr. 6.00 árg. Ojalddagi fyrir 1. júlí. Innheimtuna annast ritstjóri biaðsins. AFGREIÐSLAN ]er hjá Jónl Þ. Dór, Norðurgötu 3. Talsími 112, Uppsögn, hundin við áramót, sé komin jtil afgreiðslumanns fyrir 1. des. V. ár. Akureyri, 1. júní 1922. 22. blaö. E-L-D-F-Æ-R- A-V-E-R-Z-L-U-N. Miklar birgðir af allskonar ofnum, elda- vélum, þvoffapoffum, ofnrörum, rörjinjám, eldheldum leir o. fl. þessh. ávalt fyrirliggj- andi og selt með verksmiöjuverði. . Panfanir afgreiddar úf um land. Jón Stefánsson. Talsími 94. 'Jfer Akureyri. Stefnurnar. Ekkert er eðlilegra, en að hugs- andi, kosningabærir menn til iands- •kjörs í sumar, reyni að gera sér grein fyrir því, á hvern hátt atkvæði sínu verði bezt varið. Frá sjónar- miði stjórnariarslegs þroska, má á á öilum tímum skifta kjósendum niður í þrjá aða/flokka. 1. Mikið hugsandi menn, sem reyna jafnan að gera sér Ijósa grein fyrir þeim stefnutn, sem um er deilt og láta stefnuna, er þeir aðhyllast, ráða at- kvæði sínu. 2. Minna hugsandi menn, sem láta persónufylgi og bráða- birgðarviðhorf eða þá gamlar minn- ingar ráða atkvæðinu. 3. Lítt eða ekki hugsandi menn um stjórnmál, er láta vinmæli þeirra, sem þeir eru háðir eða vandabundnir eða þá augnabliksæsingu ráða því, hverjum þeir greiða atkvæði. Peir 5 landskjörlistar, sem komn- ir eru fram, eiga að sjálfsögðu mis- jafniega miklu fylgi að fagna í land- inu og jafnframt misjafnlega mikil ítök í áðurnefndum þremur aðal- flokkum kjósenda. Er mikil þörf á því nú fyrir kosningarnar' að gera sér ljóst, hvaða stefnum hinir ýmsu listar fylgja, þeir sem eru ekki stefn- ulausir. Má af þvf gera sér grein fyrir þremur atriðum. í fyrsta lagi: Hvernig stefnur þjóðmálanna eru. vaxnar og hver muni vera heilla- vænlegust fyrir þjóðina. í öðru lagi: I hverjum flokki kjósenda hver listi fyrir sig megi vænta sér mests íylg- is. í þriðja lagi: Hversu stjórn- málaþroski íslendinga er mikili og almennur, en ' það kemur í ljós að loknum kosningum. í fljótu bragði verður ekki annað séð, en að einungis tveir flokkarnir af þeim fimm, sem bjóða fram menn tij þingsetu, hafi ákveðna stefnu, sem því nafni geti kallast. Pað eru B listinn og A-listinn éða listar samvinnumanna og bænda og Alþýðufldkkslistinn. Hinir listarnir hafa annaöhvort mjög óákveðna eða alls enga stefnu í landsmálum. Verður nú hér í svo fám orðum, sem frekast er unt, reynt að gera mönnum grein fyrir stefnum eða þá stefnuleysi flokkanna, éftir þvf sem hægt er aö komast næst og ráða má af umræðum og afstöðu manna til þjóðmálanna síðustu árin. A listinn. Stefna Alþýðuflokks- listans er þjöðinni alkunn. Pað er stefna jafnaðarmanna. f stuttu máli má segja að höfuðstefnumiðiö sé það, að útrýma fátæktinni úr heim- inum með breyttu þjóðskipulagi. Þegar það sé fengið, hyggja fylgis- menn stefnunnar, að almenn menn- ing og þroski vaxi upp í skjóli al- mennrar velmegunar. Takmarkmu hyggjast þeir að ná með meirihluta þingfylgis, sem með lögum skipi til um þjóðmálin þannig, að öll megin atvinnufyrirtæki verði rekin sem rík- iseign. Pannig hyggjast þeir, að brjóta'á bak aftur auðvald heims- ins, sem nú fleyti rjómann ofan af sameiginlegu mjólkurtrogi mannanna og haldi öllum fjöldanum 1 síþjak- andi fátækt. B-listinn. Segja má að stefna samvinnumanna og bænda sé í verulegu airiði hin sama og jafn- aðarmanna. Peir vilja koma til leiðar almennn framför og almennri velmegun. En þá greinir mjög á við jafnaðar- menn ura aðferðina. Samvinnumenn gera sér ljóst, að almennum þroska er enn ekki svo farið, að ríkisrekstur á atvinnufyrirtækjunum komi að til- ætluðum notum eða geti átt sér stað. En þeir vilja koma almennri velmegun og almennum þroska til leiðar með frjálsri samvinnu ein- staklinganna neðan frá þannig, að einstaklings framtak og átorka fái notið sín og borið úr býtum hlut-, faílslega réttan skerf. En um Ieið sé, eftir því sem unt er, girt fyrir yfir- troðslur og þeir yfirburðir heftir, er bragðavit og fjárplógsaðferðir veita. Petta vilja þeir að komist til leiðar með hægri framþróun, svo að það sé fremur trygt, að skipulagið sé á hverjum tíma í samræmi við þrosk- ann og að hvað styðji annað þrosk- unin og skipulagiði Starfshættir sam- vinnumanna eru að vísu enn skamt á veg komnir, en þó svo Iangt, sem vænta má. Samvinnumenn hafa nú þegar tekið undir sín umráð nokkuð mikið af verzlunarveltufé landsins og þeir safna sér sjóðum til verzK unarþarfa. Tilraunir eru og gerðar á öörum sviðum bæði um húsa- byggingar og atvinnurekstur, en þar er aö mestu ónumið land, sem bíður eftir úrlausnum þessarar þjóð- málastefnp. í ýmsum málum hljóta samvinnumenn, að taka höndum saman við aðra flokka og þá eink- um jafnaðármannaflokkinn t. d. f samgöngumálura og bankamálum. D-listinn. Til hægðarauka er þessi listi tekinn næst. Hann er studdur af kaupmönnum og þeim öðrum, sem ganga með stóra fjár- gróðadraumóra. Hann er því bein andstæða alþýðuflokksiistans og í mjög verulegum atriðum andstæður lista samvinnumanna og bænda. Naumast er hægt að kalla að þessi listi hafi neina stefnu. Ef um stefnu er að ræða, þá er hún sú, að halda fast við það sem er: íhaldsstefnan. Fylgjendur þessa Iista vilja fyrir hvern mun vernda óheftan rétt og umráð einstaklinga, [til þess að fara með veltufé almennings í verzlun- inni. Peir vilja hvarvetna sporna á móti samtökum almennings, sem brjóta bág við hagsmuni þeirra einstaklinga, sem græða mest á samtakaleysi og sauðþægni alþýð- unnar. Stærri atvinnutæki vilja þeir hafa undir umráðum og í eigu fárra manna og haga rekstrinum fremur sem gróðafyrirtæki þeirra fáu manna en sein atvinnufyrirtæki almennings. í hópi þessara manna er að finna helztu stuðningsmenn íslandsbanka, þá menn, sem mundu sízt sporna yið því að Eimskipafélag íslands yrði með tímanum eign og gróða- félag fárra manna (Fáfnir). í þessum hópi voru þeir menn, sem þyngst lögðust á sveifina með Spánverjum, til þess að kúga íslendinga. í þess- um hópi eru þeir menn, senj gá- lauslegast hafa spilað f fjárgróða- braski síðustu ára og tapað mestu af fé þjóðarinnar (Fiskhringurinn) Af mönnum í þessum hópi má jafnan frekast vænta þess, að þeir Ieggi aðaláherzluna á það í hverju máli, að bjarga hagsmunum einstakl- inganna á kostnað almennings. C-listinn- Á þessum lista eru eingöngu konur o g hann mun vera studdur af konum einvörðungu. Ekki hefir heyrst, að þessi flokkur hafi neina aðra stefnu, en að koma konu á þing. Samkvæmt því á líkams- sköpulag eitt, að ráða pólitískri af- stöðu þessa flokks og getur þetta að vfsu kallast stefna, en ekki er það ótvíræð þjóðmálastefna. Þess- um flokki er ekki hægt að segja neitt til lofs né lasts, því alls ekki er hægt að vita, hvað hann ber fyrir brjósti um þjóðmálin. Um kyn- ferðið geta kjósendur verið vissir, en að öðru leyti er kötturinn keyptur í sekknum, þar sem þessi listi er. E-listinn. Pessi listi er kallaður ýmist Sjálfstæðisflokkslisti eða Vísis- listi. Það er nú naumast hægt að gera sér skynsamiega grein fyrir þvf, að sjálfstæðismál íslands sé þannig vaxið nú orðið, að nokkur flokkur geti haldið við tílveruréttí sfnum með því að standa saman um það eitt. Allir flokkar urðu að Iokurn sammála um úrlausn þess máls og eru að sjálfsögðu enn sammála um það í öllum þöfuðatriðum. Pessir menn hljóta því að iifa i einskonar sæludraumi um forna frægð og af- rek. Pessi þátlur í stefnu fylgismanna E-Iistans er því hégómlegur og einskisverður en um aðra þætti er alls ékki kunnugt. Kosningarnar 8. júlí skera úr því, hver stefnan, sem hér um ræðir, á ríkust ítök í 35 ára kjósendum og eldri. Þær skera úr því hversu margir vilja styðja framkvœmanlegar og þegar reyndar umbœtur, hversu margir vilja halda öllu í sömu skorðum eða eyðileggja þær umbætur sem komn- ar eru í kring og hversu margir þeir eru, sem láta augnabliksæsingar, leiðitemi, gamlar minningar, persónu- fylgi og likamsskapnað ráða atkvæði sfnu. Kjósandi! Hvern flokkinn viltu fylla ? F r é 11 i r. Fundur í ö. M. F. A á annan í Hvítusunnu.—Árfðandi mát á dagskrá. Skip vanta. Áður var getið hér f blaðinu um bátinn Samson af Siglufirði sem vantaði eftir sfðasta stórhrfðar- garðinn og hefir enn ekki frézt um hann. En auk hans vantar tvö skip héðan af Akureyri og eitt af ísafirði. Akureyrarskipin eru Aldan, eign Guðm. Péturssonar og Mari Anne, eign Höepfners verzlunar. Bæði varðskipið Fylla og togarar hafa verið fengin til að leita þessara skipa, en ekki hefir enn frézt, þegar þetta er skrifað, um árangur af þeirri leit. Fundið lík. Á sunnudaginn var fanst Ifk klæðskera H. Bebensee sáluga, sem hvarf hér í bænum öndverðan sfðastliðinn vetur. Lfkið fanst f mógröf um 25 faðma frá veginum ofan við svo nefnda Brekkugötu. Eins og frá var skýrt, gekk klæðskerinn út seint um kvöld og telja menn vfst að hon- um hafi slysast f gröfina. Tíðarfarið. Þar til fyrir fáum dög- um hefir tfðin verið stirð og köld í vor og ólfk þvf sem hún var sfðast- liðin vetur. Nú er þó skift um til hlýinda og að sögn mátti ekki seinna 1

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.