Dagur - 21.09.1922, Blaðsíða 3
38. tbf.
DAOUR
123
Samband Ísíenzkm
Sam vinnufélaga
hefir fyrirliggjandi og útvegar alls konar
LANDBÚN AÐARVERKFÆRI:
Sláttuvélar, Milwaukee.
Rakstrarvélar, Milwaukee.
Snúningsvélar, Milwaukee.
Brýnsluvélar fyrir sláttuvélaljái.
• Plóga frá Kyllingstad Plogfabrik, er hlutu fyrstu viður-
kenningu á Iandbúnaðarsýningunni í Rvík 1921.
Garðplóga, Pinneberger.
Rótherfi, Pinneberger.
Tindaherfi, Pinneberger.
Arfaplóga, Pinneberger, með tilheyrandi hlújárnum, sem
hlutu sérstaka viðurkennmgu á fyrnefndri sýningu.
Rófna sáðvélar.
Forardælur.
Vagnhjól frá Moelvens Bruk.
Skilvindur, Alfa Laval.
Strokka, Alfa Laval o. fl. o. fl.
Ennfremur verkfæraskápa með öllum algengum smíðatólum.
Tilbúinn áburð, gaddavír o. m. fl.
Flest verkfærin hlutu viðurkenningu á Iandbúnaðarsýn-
ingunni í Reykjavík 1921 og eru valin í samráði við
Búnaðarfélag íslands, sem einnig gefur upplýsingar um pau.
eim hinum mörgu, bæöi göml
um nemendum og öðrum
kunningjum, sem jeg við
burtför mína úr bænum ekki hefi
getað kvatt sendi jeg hér með kæra
kveðju mína. - Jeg óska bænum
og héraðinu alls góðs í framtíðinni,
Akureyri 20. sept. 1922.
Halldóra Bjarnadóttir.
Árás Símablaðsins. Fréttir herma
að Sfmablaðið hafi gert megna árás á
Forberg landssímastjdra út af ýmsum
atriðum f embættaveitingum og stjórn
sfmans. Sagt er að fyrir árásinni standi
einkum Gunnar Schram stmritari í
Reykjavík og hafi eitthvað af þjónum
sfmans þar syðra á sfnu bandi. Heyrst
hefir að landssfmastjórinn hafi skorað
á óróaseggina að klaga sig fyrir rétt-
um stjórnarvöldum, ef þeir þykist
geta haft hendur í hári sinu. Degi
hefir ekki borist Símabiaðið og getur
ekki að sinni gert fyllri grein fyrir,
hvernig árás þess er vaxin. Málið er
óútkljáð og býður aðgerða atvinnumála-
ráðherrans, sem enn er erlendis.
Afhygli bænda skal hér með vakin
á auglýsingu Iogvars Guðjónssonar
um ktyddsíld. Það hefir verið og er
enn mikið umhugsunarefni á hvern
hátt íslendingar fáist, til nota sér
sjálfir sfldina sem ausið er upp við
strendur landsins. Fróðir menn álíta
það bezta ráðið, að bændur kaupi
þegjandi Ú4 úr tunnu á haustdaginn
og flytji heim til sfn og láti svo f
veðri vaka, þegar síldin kemur á
borðið, að þetta sé útlendur matur,—
Frá bæjarstjórn. Á bæjarstjórnar-
fundi siðastl. þriðjudag las bæjarstjóri
upp álit Steingr. Jónssonar rafmagns-
fræðings I Rvík á innlagningarefni því,
sem notað er hér í bænum. Hafði
honum verið sent það til álitsgerðar
út af ágreiningi þeim, sem orðið hefir
milli raforkunefndar og Electro Co.
Álit Steingr. var á þá leið, að hann
taldi efnit gott og fyrsta flokks vöru,
nema tvo hiuti, þá sem ágreiningurinn
hefir orðið um; þá taldi hann ekki
góða vöru og ekki fyrsta flokks vöru.
Samkomulag hafði komist á milli raf-
orkunefndar og félagsins um lagningu
á milli lofta á þeim grundvelli, að
félagið skuldbindur sig, til að leggja
leiðslu á milli lofta að,tíunda hverju
lampastæði án aukagjalds, þar sem
tróð er ejcki né önnur fyrirstaða.
Halldóra Bjarnadóttir, bæjarfuii-
trúi sagði af sér bæjaifulltrúastöríum
á sfðasta bæjarstjórnarfundi. Eins og
áður hefir verið skýrt frá flytur Hall-
dóra alfarin suður til Reykjavfkur og
tekur sér far með Botnfu. Hefir henni
verið veitt kennárnembætti f handa-
vinnu við kennaraskólann. Halldóra
hefir verið borgari þessa bæjar um
langt skeið, stjórnað barnaskóla hans
og starfað að ýmsu öðru einkum fyrir
heimilisiðnaðarmálið, sem hún hefir
tekið sérstaklega að sér. Stendur Ak-
ureyraibær, Norðurland og þjóðin öll
Afslátttarhestar til sölu.
R. v. á.
í mikilli þakklætisskuld við Halldóru
fyrir áhuga hennar og ósérplægni f
þjóðnytjastörfum.
Bruni. í gær kom upp eldur í
húsi Jóns Steingrímssonar verkamanns
hér í bænum, f Búðargilinu. Siökkvi-
liðið kom ekki nógu fljótt á vettvang,
til þess húsinu yrði borgið. Efri hæðin
brann að mestu og húsið ónýttist, þó
eldinn tækist að kæfa. Af neðri hæð
tókst að bjarga innanstokksmunum, en
litlu af efri hæð. Enginn var í húsinu,
þegar eldurinn kom upp nema eitt
örvasa gamalmenni. Talið er víst að
kviknað hafi út frá eldstónni, en þykir
óskiljanlegt, með hverjum hætti það
er orðið. Húsið var að sögn mjög lágt
vátiygt og hafa fátæklingar mist hér
húsnæði sitt og eigur á haustnóttum-
9
A víðavangi.
Gagnfræðaskólinn. Blaðinu hefir
borist frekari greinargerð um skóla-
lffið en séð verður af skýrslu skólans,
sem nýlega var minst á hér f biaðinu
og skal birt hér það helzta: Auk mál-
fundanna, sem haldnir voru . 3ja hvert
laugardagskvöld f mánuði, höfðu nem-
endur samdrykkju og drukku kaffi eitt
laugardagskvöld í mánuði hverjum.
Byrjuðu þær samkomur með fyrirlestri
er kennari eða utanskólamaður flutti.
Sfðan fóru fram ræður yfir borðum.
Er þetta nýjung, sem hvergi hefir
tfðkast hér á landi nema í Samvinnu-
anum. Samkomum þessum var slitið
stundvíslega kl. 12. Þá nýjung tók
skólameistari upp sfðari hluta vetrar
að verja hálfri stund síðdegis einu
sinni í viku, til að lesa íyrir nemend-
um valinn kafla úr ritum ágætra út-
lendra höfunda. Sóttu nemendur vel
þessa »húslestra« og er gert ráð fyrir
að halda þeim áfram næsta vetur.
Hlutavelta var haldin til lúkningar
skuld íyrir merki skólans. Stutt var
að því frá skölans hálfu, að nemendur
sæktu umræðufundi um almenn mál.
Dansað var annaðhvort laugardags-
kvöld og dönsum jafnan slitið kl. 12
á miðnætti. Enn kendi frú Guðrún
Indriðadóttir dans. Ur því að menn
dansa, fer betur á, að menn læri vel
að dansa. Þeir sem ekki dönsuðu,
sátu þá að spilum og tafli. Oft þreyttu
piltar og glímur. — Um miðbik vet-
rar var leikfimi snúið upp í skauta-
ferðir þegar fært var og til þeirrar
(þróttar varið einni stund frá öðrum
greinum auk þeirrar stundar er leik-
fimi var ætluð. Þessi nýbreytni gafst
sérlega vél.
100%. í svari J. E. B. til Dags í
sfðasta íslendingi er aðeins eitt atriði
sem vert er að minnast svolftið á.
Annars er grein hans að mestu eins-
konar fyrirgefningarbón á því, að hann
skuli enn þá draga andann. Dagur
gerði ráð fyrir einum hugsanlegum
atburði, sem fyrir kynni að koma, —
að sjávarútvegsmenn stofnuðu með sér
félag og gerðu innkaup á veiðarfærum.
Og þeir kynnu að komast að þeirri
niðurstöðu, að þær vörur, þannig
keyptar, yrðu engu lakari en vörur
Stúlka,
prifin og dugleg, vön eldhúsverk-
um getur fengið vist strax í
góðu húsi hér í bæ. Hátt kaup.
Ritstjóri vísar á.
VetrarstÚlka óskast á sveita-
heimili, helzt sem fyrst. Uppl.
hjá ritstj. blaðsins.
írá Jóni og 25 — 50 eða jafnvel ioo°/o
ódýrari. Þarna náði Jón sér f hiut,
sem er í ætt við hann sjálfan þ. e.
aukaatriði. Á þessum verðbreytinga-
tfmum hefir reýnt mjög á skilning
manna á »prosentu« reikningi og þeir
htutir eru ekki enn öllum jafnljósir.
Tökum nú dæmi: Einhver hlutur hjá
Jóni kostar 100 kr. Gerum ráð fyrir
að samskonar hlutur hjá félagingu
kostaði 50 kr. Lfklega mótmælir Jón
því ekki, að hans hlutur yrði þá 100%
dýrari. Mun þá mörgum virðast að sé
dýrari hluturinn IOO % dýrari, sé
minsta kosti afsakanlegt að álfta ódýr-
ari hlutinn 100% ódýrari. Alt veltur
á hvort miðað er við hærra verðið
eða lægra. En af því þetta er svo
lftilsvert atriði, skal ekki frekar um
það rætt, en Jóni lofað að hanga á
þessu, þvf á aukaatriðum hlýtur hann
að bjargast, ef honum verður bjargað.
Snemmbær
k-ý-r
er til sölíi
Valgeir Árnason,
Auðbrekku.
Saltaöur þorskur, í tunn-
um, vel verkuð og góð
vara. Fæst hjá
lngvari Guðjónssyni
Hafnarstræti 33.
-saTakið eftir.
Á síðastliðnu vori, var tnér undir-
rituðum sendur fataskápur, með
glöggu vörumerki minu, en skila-
grein fylgdi engin. — Viti nokkur
deili á skáp pessurn, óska jeg að
hann gefi sig fram við mig hið
allra fyrsta.
Kristján Árnason.
G æ r u r og
ha ustull,
svo og hert skinn kaugi eg í
viðskiftareikninga og máske gegn
borgun út í hönd.
Krlstján Sigurðsson.