Dagur - 28.09.1922, Blaðsíða 3

Dagur - 28.09.1922, Blaðsíða 3
36. tbl. DAQUR 127 Verzlunin BRATTAHLIÐ hefir ákveöið að láta heiðraða viðskiftavini sína verða aðnjótandi sérstaks tækifærisverðs á hinum ýmsu matvörutegundum sínum, meðan birgðir endast. Vörurnar seldar með lægsta heildsöluverði. Hveiti í sekkjum á 63 kg..........« . . *..........pr. Sk. Kr- 42,00 Hrísgrjón í sekkjum á 100 kg. .....................— — — 68,00 Púðursykur í sekkjum á 100 kg...................— — 90,00 Hg. Sykur í kðssum á 50,8 kg. . . .................- kg. — 1,20 Kaffibaunir Rio í sekkjum á 60 kg.* ...............— — — 2,65 Kandís dökkrauður í kössum á 25,4 kg. . . ..— 1,20 Mjólk í kössum á 48 dósir „Ideal"..................— ks. — 42,00 Kex „Snowflake" (sætt) í ks. á 56 lbs. . . . '......... — 50,00 Þetta er aðeins sýnishorn af verðinu, til pess að fólk sjái að hér er um alveg sérstök kjör að ræða. Komið í tíma til þess að sem flestir geti orðið aðnjótandi þessara kjarakaupa. A -f z,,,/ reksturskostnaður verslunar okkar er mjög mikið AF HVERJU QETUM VIÐ SELT ™ Pvl lœgri, en margra annara verslana i þessum bœ. VÖRUR OKKAR SVO LÁQU VERÐI? Af bví v°rur okkar koma beint frá framleiðendum, eða stœrstu heildsölu- /1/ [J VI /n-isum erienc/js 0g er þaft bezta tryggingin fyrír lágu vöruverðL VERZLUNIN BRATTAHLÍÐ, ÁKUREYRI. I ber foringja Sambandsins gagnstæðum brixlum. Samkv. ásökunum hans setja þessir menn öll járn í eldinn, til þess að halda mönnum f skuldaánauð, en innheimta þó jafnframt skuldir svo harkalega og halda svo f við menn, að búast má við þvflfkum afleiðingum, sem svo skáldlega er lýst á bls. 6o. (Meira) Símskeyti. Reykjavík, 27. sept. Góð uppskera er i Rússlandi. Hallærinu lokið. Rússar pakka hjálparnefnd Nansens og Amer- íkumanna fyrir fengna hjálp. Stórbruni varð nýlega í Smyrna 120 pús. manna hús- viltir, 60 pús. fórust í eldinum. Talið líklegt að bandalag verði með Rússum og Tyrkjum í yfir- vofandi ófriði í suðausturhorni Evrópu. Þjóðabandalagið reynir að stilla til friðar á Balkans- skaga og tekst sennilega. Ástandið í Mið-Evrópu fer hríð- versnandi. Sérfræðinga Banda- ríkjanna telja óhjákvæmilegt, að gefa upp hernaðarskuldir og taka lán í Ameríku. Sennilegt talið að Landsbank- anum og ríkisstjórninni takist að prýsta útlánsvöxtum niður í 6% í október byrjun. Islands- banki stendur enn á móti. Mikil óánægja hér út af fram- komu fræðslumálastjórans í veit- ingu kennaraembætta* Fréttaritari Dags. F r é 11 i r. Skipafregnir. Goðafosa er á leið frá Khöfn upp til Austur- og Norður- landsins. Verður væntanlega hér á Akureyri seint í næstu viku. Borg fór f gærmorgun vestur á Húnaflóa- hafnir til að taka ket Sambandsins til útflutnings. Villemoes er á leið frá Ameriku og Gullfoss á leið frá Khöfn til Rvíkur. Hjúskaparheit sitt birtu þau ný- lega ungfrú Hrefna Sigurjónsdóttir og hr. Haraldur Guðnason bæði til heim- ilis hér f bænum, Bruni. Á laugardaginn var brann bærinn að Miðdal í Laugardal til kaldra kola og varð litlu bjargað. Vínverzlun ríkisins. Af henni ganga þær tröllasögur að um 20 menn eða þar yfir starfi við aðalút- söluna í Rvfk og hafi margir gffurleg laun. Þykir mönnum, sem hér muni vera um óþarflega mikia eyðslu á rfkis- fé að ræða. Tfminn flytur tillögu um að afnema þessa stofnun, haga lyfja innflutningi eins og áður var gert, en leggja vfnsöluna undir Landsverzlunina verði henni haldið áfram lengur en til næsta þings. Ketsalan. Kf. Eyf. auglýsir ket á kr. i.oo, kr. 1.20 og kr. 1.25 með 15 aura lækkun eða hækkun eftir þvf sem ketið selst. Svo slæmar horfur eru um ketverð, að litlar lfkur eru taldar til, að verðið hækki upp úr þessu. Þeir bæjarbúar, sem f fyrra keyptu ket af Höepfners verzlun borg- uðuendanlega 15 aurummeira fyrir hvert kg. en þeir, sem keyptu af kaupfélaginu. Var það þó skammað f ísl. fyrir frammistöðuna en um Höepfner vár þagað. Athygli skal hér með vakin á aug- lysingu Brattahlfðar hér í blaðinu. Verzlun sú stenzt að minsta kosti samkepni í þvf, að þora að auglýsa vérð. Islenzk málfræöi handa alþýðu- skólum eftir Benedikt Björnsson kenn- ara í Húsavík er nýkomin út í Prent- smiðju Björns Jónssonar. Þetta kver er 66 bls. að stærð. Niðurskipun efnisins er með nokkuð öðrum hætti en tfðkast hefir um samskonar bækur. Ýmsir góðir fslenzkumenn og kennarar hafa yfirfarið handritið áður út var gefið. Þeir kennarar, sem þegar hafa kynst þessari málfræði, telja hana mjög góða og frágang hennar bera vott um afburða málfræðiþekkingu og skilning á kenslu þeirrar greinar. /Uþjóðalegt skákþiijg var háð í London f sumar. Hófst það 31. júlf og stóð í marga daga, Frægustu skák- menn ýmissa landa, 16 að tölu, tóku þátt f þvf. Átta verðlaun voru veitt og voru þau hæstu 250 pund sterling. Sigurvegarinn varð J. R. Cipablaca frá Cuba, þá A Alekhine frá Rússlandi, þá Dr. M. Vidmar frá Czecko-Siovakia, þá A. Rubinstein frá Pollandi. Vinn- ingar þeirra voru sem hér segir: 13, 11V2, 11, 10V2. Ostagerðin í Þingeyjarsýslu Eins og kunnugt er var f fyrra hafin ostagerð í Þingeyjarsýslu. Varð nokk- uð af vörunni annars flokks vara vegna veikinda ostagerðarmannsins, Jóns A Guðmundssonar og annara örðugleika. Spáðu þá margir, að Þingeyingar mundu gefast upp við svo búið. En á því varð önnur raun. í ár hefir ostagerðinni verið haldið áfram svipaðri að vöxtum og er sagt að nú hafi hún hepnast vel. Verðið á ostinum er nú áætlað kr. 3.50 danskar og verður osturinn að mestu seldur til Danmerkur. Góð kýr, 7 vetra, í 12 merkum, er til sölu. R. v. á. Umslög, ódýr og falleg nýkomin. Prentsmiðja 0. Björnssonar. Aðalsíræfi 17. Talsími 45. Kaupendur blaðsins f Múlasýslum og Norður-Ping- eyjarsýslu eru beðnir að greiða áskriftar- gjöldin til þess kaupfélags, sem þeir verzla við, Eyfirðingar! Greiðið andvirði blaðsins til Kaup- félags Eyfirðinga eða útbús þess á Dalvík, eftir því sem yður hentar bezt. Dragferja hefir nýlega verið sett á Skjálfandafljót, gegnt Þoroddsst f Köldu- kinn. Hún mun vera það stór, að hún taki hesta með kerru. Frekar er blað- inu ekki kunnugt um ferju þessa, þvf enginn Þingeyingur hefir lagt það á sig, að greina blaðinu nánar frá þess- ari ekki lftilsverðu samgöngubót. Mælingamenn eru f. nokkru komnir hér til bæjarins, til þess að mæla og kortleggja götur og hús bæjarins samkv. nýlegum lögum frá Alþingi um skipulag bæja. Fyrir verkinu stendur Jón Víðis og hefir sér til aðstoðar Ásgeir J. Jakobsson. Verkfræðingur rfkisins, Geir Zoega hefir yfirumsjón- ina með verkinu.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.