Dagur


Dagur - 23.12.1922, Qupperneq 2

Dagur - 23.12.1922, Qupperneq 2
168 DAOUR 51. tbl. öldutn saman, þroskast ekki hæfileiki, til að geta látið stjórnast. Hún leggur alt kapp á, þegar um losnar, að hrynda af sér öllum bönd- um og henni verður það á, að troða sína beztu menn undir fótum. Pað er ekki hægt að gera ráð fyrir því, að hver kynslóð eignist mann, sem ekki lætur troðast undir í þeirri oflátungaþraung. Síðan Hannes Hafstein og Björn Jónsson íéllu frá, hefir hnefinn aldrei verið lagður á borðiö. Stjórnmál okkar eru að komast í úrslitalausa bendu, þar sem forðast er að stíga stór og tvísýn spor. Hér er óvið- eigandi að fara langt út í það mál. En hjá þeim hugleiöingum verður ekki komist, þegar Hannes Hafstein er metinn. Ef unt á að verða, að hefja þjóðina úr núverandi ófremdar- ástandi, skortir ekkert jafn tilfinnan- lega eins og hans Iíka, foringja með sterkan vilja, sem þori að leggja hnefann á borðið. Yfirþáauðn.sem nú blasir við í ráðuneytisstjórn landsins, þar sem tæplega er hægt að hugsa sér svo óverulegan goluþyt, að hann ekki fengi því orkað, að skjóta ráðuneyt- inu skelk í bringu, gnæfir hann hátt maðurinn, sem þorði aö kalla of- sókna og æsingastorm um alt land goluþyt. Maðurinn, sem vann mesta og djarfasta stjórnmálalegt þrekvirki, sem unnið hefir verið í framfara- málum landsins og reyndist því máli trúr, hvað sem það kynni að hosta sjálfan hann. Símskeyti. Reykjavík, 21. desember. Jafnaðarmenn í Köln hafa beðið ensku stjórnina um, að leyfa enska setuliðinu að vera þar Iengur, svo ekki yrði sendur þangað franskur her. Mussolini forsætisráðherra Itala fagnað í Rómaborg sem sigurvegara eftir Lundúnafund- inn; talið að honum hafi tekist, að fá brezku stjórnina, til að gefa Itölum eftir öll hernaðar- lánin. — Fascistar hafa sérstak- an þjóðvörð undir stjórn Muss- olini. Auðmaðurinn Morgan hefir ráðlagt Bandaríkjunum, að lána Þjóðverjum IV2 milljarð dollara. Við þá frétt og umræður hækk- aði þýska markið mikið. Óaldarmenn hafa skotið for- seta Póllands. Forseti þingsins gegnir embætti hans um stund- arsakir. Síðustu leyfar enska hersins hafa verið fluttar heim frá Ir- landi. Jarðarför Hannesar Hafsteins fer fram á morgun (föstud.) á alþjóðarkostnað. Frétta ritari Dagí. I. Oóðlátlegir skuggar lfða um þver- an dal yfir tunglsljósbjartar fannir, því um loftið fara frá vestri til austurs slitróttir skýjabólstrar eins og leyfar horfinna hersveita. Jólaljós festingar- innar streymir yfir hijóðan dalinn, svo að hvergi ber skugga á, nema í gljúfrunum, þar sem dyr opnast inn í æíinlýrariki öræfanna. í brún- um hins hrjúfa fjallgarðs, sem beygir sig fyrir norðurenda dalsins og lokar honum meira en til hálfs, hata jötunmögn þeirra alda, sem eru horínar óralangt í djúp fortíðarinnar, hlaðið altari guðs. Á stöilum og gnýpum bergtindanna Ioga ljós hátíðarinnar, þar sem smáfannir sindra geislum mánans. Friður, friður hnígur eins og him- nesk blessun yfir jörðina. Boðskapur himnanna: „Friður á jöröu og vel- þóknun yfir mönnunum" ómar í andblæ næturinnar. Hin hrjáða jörð breytist í draumríki dýpstu mann- legrar þrár, þar sem friður, farsæld og kærleikur búa. Við hlíðarfótinn í miðjum dalnum hjúfrar sig lítill bær í brekkufaðmi milli tveggja hóla. Hann er yfir- lætislaus en snirtilegur. Fátækt og trúmenska hafa ráöiö þar ríki um langa tíð. A þessum bæ hefir rokið óvenjulega mikið þennan dag. Jóla- viðbúnaöurinn hefir verið mestur þann daginn og bærinn er fullur af sjaldgæfri, angandi matarlykt. Gegnum alt kunnáttuleysi mannanna, að hagníta sér gjafir guðs og nátt- úrunnar, hefir það sjaldan brugðist, að jafnvel fátækustu foreldrar fyndu einhver úrræði, til að veita börnum sínum jóiagleði. Og jólin koma í þennan litla bæ. Ótvíræð íslenzk sveita jól. Og það kemur sér betur því á bænum eru börn, sem hafa alt af hlakkað tii jólanna siðan um síðustu jól; en þó einkum síðan dagana dimdi og fyrstu snjóa gerði. Og nú hafa þau með vaxandi hrifn- ingu rásað milli búrs og baðstofu. Inni hefir amma gamla þvegið alt hátt og lágt, en mamma stjórnar frammi. Og pabbi sagöist ætla að gefa kindunum meira en vant væri, af því að öllum ætti að líða svo vel á jólunum. í rökkurbyrjun voru þau tekin og þvegin öll mjög rækilega hátt og lágt og svo höfðu þau öll fengið nýja flík, til þess að þau „klæddu ekki köttinn." Það er svo skelfilegt „að kiæða köttinn," að það getur ekkert barn gert ógrátandi. En grátur barns á jólunum er sár- astur af allri heimsins sorg. Og pabbi er kominn inn frá gegning- unum og búinn að þvo sér líka. Og alt er svo hreint og bjart og mamma er svo glöð og iítið þreytt. t>að eru jól. Og svo er jólamaturinn borinn inn. Hverjum er skamtað sitt: hrok- aðir diskar af hangiketi og allskonar góðgæti og þar að auki fær hver hlaða af Iaufabrauði, snjóhvítu og yndislega góðu. Og þetta alt er svo mikið, að ekki einungis fær hver og einn nægju sína, heldur hlýtur að leyfa miklu, svo að jólin geta að nokkru leyti endurtekið sig, hver veit hvað lengi? Klukkan sex var oröið heilagt og eftir það máltu ekki eiga sér stað nein ærsl og ólæti, heldur aðeins gleðihlátrar og hjartans fögnuður. Að lokinni hljóðlátri og ánægjulegri máltíð er Iesinn jólalesturinn og að honum loknum, er kveikt á kert- unum, meðan mamma hitar kaffið. Og börnin marka sjálf á kertunum: þangað mega þau brenna og ekki lengra, því þau eiga að bera birtu jólanna inn í ókomna daga. Og litlu augun eru kvik og tindrandi björt, því hjartað er fult af hreinasta sælulögnuði, sem guð gefur börnum jarðarinnar. Meöan háttatiminn nálgast, segir amma Iitiu börnunum meira um afmælisbarnið, Jesúm Krist, sem þessa nótt var fæddur í fjárhúsjötu í borg- inni Betlehem. Amma kunni svo margt um hann, hvað hann var vitur og góður og að hann kom til að taka smábörn í faðm sinn og blessa þau. Og í himninum býður hann faðm sinn hverju barni og hverjum, sem til hans kemur eins og barn. Og nóttin er komin með þreyt' unnar djúpa svefn. Ljós jólanætur- innar vakir í heimkynni góðra manna, þar sem er unnað og þjáöst með kærleikans óbifanlegu þollyndi. En dýrð festingarinnar hvelfist yfir lítinn bæ í brekkufaðmi milli tveggja hóla. II. Jólin hafa öld eftir öld gefið okkur Ijósustu sannanirnar fyrir því, að raunverulegt gildi hlutanna fer ekki eins mikiö eftir því, hversu dýrir þeir eru og ásjálegir, eins og eftir því, hvernig þ^ir svara til þrár mann- anna og eftirlöngunar. Lífskröfurnar fylgja engri ákveðinni mælisnúru, en þœr ráða gildi hlutanna. Naum- ast er á öðru tvennu meiri munur, en á jólum fátæks sveitarheimilis og á ríks manns heimili í kaupstað. En hver vill segja að fögnuður og gleði jólanna sé minni á sveitarheimilinu en í kaupstaðnum? „Man eg það, er sviftur allri sút, sat eg barn raeð rauðan vasaklút." Svo kvað Matthias. Naumast hefir nokkur stærri jólagjöf síðari ára glatt barnshjarta hans meira en rauði vasaklúturinn í foreldrahúsum. Stór gjöf er ekki meira verð því barni, sem oftlega þiggur gjafir, en lítil gjöf því, sem sjaldan er gefið. Sveitar- barnið gleðst jafnmikið eða meira yfir kertaljósi en kaupstaðarbarnið yfir jólatténu. Sú gjöf er stærst, sem gleður hjartað mest, því þakk- látt hjarta er betra en ytra skraut. Fyrir því skyidum við forðast þá viliu, að meta gildi iífsins of mjög Nýtt hjá Sigurði bóksala. Jólagjöfin VI. Jólarósir (skrautútgáfa). Hallgrímskver (Péturssónar). í Betlihem (sönglag Kaldalóns). Har. Níelsson: Hví slær þú mig? II, Sig. Pét: Um vetrarsólhvörf II. Jón Sveinsson: Nonni. Jak. Thorarensen: Kyljur. J. J. Aðils: ísl. þjóðerni. Pemberton: Borgin óvinnandi. Leiðarvísir f ástamálum II. Barnabækur 0. fl. Erfiminning Matt. Joch. Ennfremur mikið af útlendum fræði- og skemtibókum hentugum til jólagjafa.Lindarpennar,seðlaveski o.fl. eftir ytri gæðum, heldur eftir því hjartalagi, sem getur glaðst yfir litlu og þolað mikinn harm, án þess að glata „Iifandi von." Bjartur morgun verður enn þá bjartari í augum þess manns, sem lengi hefir í myrkri setiö. Ynnra viðhorf er aðalatriöi, sem gefur ytri gæðum breytilegt gildi. Enginn skollaleikur er jafn fávíslegur, eins og þess manns, sem reynir að elta uppi og fullnægja eigin vaxandi kröfum. Og í þessu Ijósi ber að skoða gildi jólahaldsins. Okkur ber að athuga með hverskonar hjartalagi við göngum inn í fögnuð hátíðar- innar. Að hve miklu leyti við helg- um sjálfu afmælisbarninu hugsanir okkar og gerðir. Er ekki jólahaldiö að verða allvíða taumlaus viðleitni, að fullnægja vaxandi kröfum, þar sem heimtufrekja ræður hugarástand- inu? Jól! ó jól! Það máttuga orð, sem með hljómi sfnum hefir öld eftir öld komið þúsundum milljóna af barnahjörtum til að titra af fögnuöi. Megi hljómur þess nú og jafnan sefa æsta hugi viltra manna og milda heimsins grimd. Ouð gefi okkur öllum þá náð, að við, fyrir mátt þess orðs, fögnum jólahátíðinni eins og börn; því ávinningur jólahátíðar- innar er ekki fólginn f ytra mikil- læti, heldur í innri gleði, sem er vaxin við kærleikans heimilisarinn og sem vex við skinið af hverju fagnaðartári, sem blikar í barnsauga. III. Lesari. Ef til vill finst þér, að þú ekki, einhverra hluta vegna, getir fagnað þessum jólum. Ef til vill átt þú þína veika, eða dauðinn er nýgenginn um garð. Ef til vill er eitthvaö annað að. Menn eiga svo margvíslega bágt. En þá er að horfa til baka, þar sem endurminningar blika við fagurrjóðan kvöldhiminn eða fram á leið móti nýrri sólar- upprás, sem ekki getur brugðist. Varla er nokkur maður svo ógæfu- samur á þessari ólánsömu jörð, að hann eigi ekki í sjóði endurminn- inga sinna einhvern glaðan jóla- geisla, sem rýfur myrkur sorgarinnar því nær hvernig sem á stendur um þessi jól. Og þó, þó er eymd stór- borganna öllum skilningi dýpri. En þú, lesari, átt hann vafalaust.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.