Dagur - 11.01.1923, Page 3

Dagur - 11.01.1923, Page 3
2. tbl, DAOUR l F r é 111 r. Kosningavísur. Símskeyti. En þar sem sjálfur vfkingurinn Egill var nær fallinn í valinn við lát sonar síns, hve nærri mundi þá gengið við- kvæmri móður við slfkan barmf Ekkert er eðlilegra en hún einangri sig, sem enn og ávalt er eðli þyngstu sorgar, gangi í lokrekkjuna, skjóti fyrir hana loku, aðhafist ekki, neyti hvorki svefns né matar og spyrji sem Egill: »Hver von er, at ek muna liía vilja við harm þennanf* En Þorgerður í Hjarðarholti lifir enn. Hún gengur á öllum öldum i lokrekkjuna til syrgjandans. Hún vekur, með ástúð og sambrygð, ræn- una, Hún laðar harmi lostinn til starfa, til að kveða, f einhverju líki, erfikvæði eftir látinn ástvin. Og aliir getum vér, á einhvern hátt, gert sonatorrek, þótt mikið skiiji torrek vort frá fornkvæðinu góða, er ort var eítir Böðvar á Borg. Syrgjandi móðurást Ijóðar altaf, á ein- hverja lund, dýran óð, þótt fáir eða jafnvel engir sjái hann né heyri. Enn hressist hryggur, sem fyr á öldum, er hann yrkir torrek sitt. Svo kveðjum vér, kennarar og nem- endur, sveininn Róar andaðan. Við þökkum góða viðkynning og hörmum frálatl hans, ungs og efnilegs. Verði svefninn þér vær og frjór og banabótl Friður sé með þér! Góða nótt! Sigurður Quðmundsson. Ritfregn. Sindri III. árg. i,—3. hefti. Ritstj. Otto B, Arnar. Iðnfræðafélag íslands hét verðlaun- um fyrir bezt samda ritgerð um annað tveggja þessara viðfangsefna: »Hva6 eiga menn að gera, þegar ekki er hœgi að stunda sjð og eyrarvinna bregst?* Hvað eiga mena að gera i sveitunum á veturna? Engin ritgerðanna þótti skara svo fram úr eða vera svo full- komin, að henni bæru fyrstu verðlaun, en tvær voru beztar og var verðl. skift milii þeirra. Þessar ritgerðir voru eftir Hallgr. Jónsson, Klapparst. 6. Rvlk og Jón Sigurðsson bónda á Yzta- felli. Þessar ritgerðir birtast f öllum þremur heftunum og taka upp mikið af lesmáli þeirra. Langt mál er og þar um steinsteypu eftir G. Hannes- son. Grein um rafveitu Reykjavíkur með myndum. Ný veggjagerð steinhúsa. Eftir Sveinbjörn Jonsson byggingar- fræðing. Er þar gerð skýr grein fyrir r-steininum, sem er uppfunding hans, Alit sérfræðinga á þvf byggingarefni. Uppdrættir og greinargerð um bygg- ingaraðferð úr ste'ni þessum og fengna reynslu. Að ýmsu leyti er þetta merk- asta ritgerðin f þessum árgangi. Auk 1 þess sem færð eru rök fyrir þvf, að með þessu byggingarlagi fáist hlýrri hús og ódýrari en úr venjulegri stein- steypu, er það stór kostur, að steininn má steypa á þsim tfma árs, sem lftið er um vinnu. Samkoma U M. F. A- Á sunnu- dagskvöldið hélt U. M. F. A. kvöld- skemtun. Voru sýndir þar tveir smá- leikir »Neiið« og »Upp til selja*. Auk þess skrautsýning: Leikirnir eru báðir mjög fjörugir og allvel leiknir. Bæjarstjórakosningar. Hafa ný- lega farið fram á ísafirði, Seyðisfirði og Siglufirði. Á ísafirði komu verka- menn að tveimur fulltrúum, Finnijóns- syni póstm. og Haraldi Guðmundssyni en kaupmenn einum, Birni Magnússyni. Á Seyðisfirði komu verkamenn að tveim fulltrúum, þeim Karli Fmnboga- syni skóiastjóra og Jóni Sigurðssyni og kaupmenn einura, Ottó Wathne. Á Siglu- firði komust tveir að á verkamannalista þeir Flóvent Jóhanssonog Helgi Hafliða- son kaupro. en á kaupmannalista einn, séra Bjarni Þorsteinsson. Bruni. Fyrra þriðjudag brann til kaldra kola tóvinnuvélahúsið á Halldórsstöðum f Lsxárdal, Olsaveður var á og varð sem engu bjargað en önnur hús með naumindum varin. Brunnu þarna vélar þær, sem viða eru kunnar og mikið af ull sem ýmsir áttu. Skaðinn er tilfinnanlegur fyrir eiganda vélanna, Hallgrfm Þorbergsson bónda á Halldórsstöðum, þvf vátrygg- ing mun vera lág. Einnig mikill ullar- skdði og mestur óbeinn skaði fyrir sýslubúa, að sjá á bak vélunum. Talið er að kviknað hafi út frá eldstæði f þaki hússins, og varð eldsins ekki vart, fyr en húsið loagði hið efra, Dánardægur. Nýlega er látin hér í sjúkrahúsinu ungfrú Málfrfður Jóns- dóttir frá Kiömbrum í Þfngeyjarsýslu, heitmey HaiIsteinsKarlssonar frá Húsa- vfk. Mállrfður var stórmyndarleg og vel látin kona. Einnig eru nýlega látn- ar hér f bæ, Valgerður S'gurðardóttir, kona Ólafs Þorsteinssonar ökumanns og Ragnhildur Metúsalemsdóttir ekkja eftir sén Stefán Pétursson sfðast prest að Hjaltastað, en tengdamóðir Davfðs Sigurðssonar, timburmeistara. Lárus Rist, leikfimiskennari, kom heim úr Amerfkuför sinni með Ville- moes sfðast. Lárus lætur vel yfir sinni ferð og yfir gestrisni og góðvilja er hann mætti hvarvetna hjá löndum vestra. u. M. F. A. Fundur næsta Sunnudag kl. 3. Hlufaveltu halda nemendur Gagn- fræðaskólans heima f skólanum næstk. sunnudag og hefst hún kl. 4 e. h, Dansað verður á eftir. Nánar á götu- auglýsingum. Liygasaga sú, gengur staflaus um Akureyri og vlðar, að Benedikt Sigur- jónsson, sem gætti fjgrins á Mývatns- öræfum, hafi flúið frá íénu vegna draugagangs f sæluhúsinu. Að fengn- um upplýsingum telur Dagur sér öld- ungis óhætt að lýsa þetta tilbæfulaus ósannindi. Eftirfarandi vfsur, sem hafa verið gerðar út af sfðustu bæjarstjórnarkosn- ingum, eru teknar upp úr »Verka- manninum*. Út á hálan óðarstig Ýti’ eg — sár að vonum. — Þvf enginn vildi eiga mig Á undan kosningunum. A. 1. Erfitt gekk þeim A-liðum, — Oít er smátt að meini. — Trausti gleymdi »tyglinum«* Og tók f skott á Sveini. A. 2. Steinþór ekki kjósa kann Kvenþjóð létt í spori. Engin girnist mentamann Merktan sfldarslori.** B. I. Sveini fylgja frfiiðar, Sem frjálsum hæfir kappa. Sumir flytja »fréttirnar,« Á fundum aðrir stappa. B. 2: Sá flaut inn á samvinnu S'st með löku hiski, »Einokunar«-olfu Og »samkepnis«-fiski. C. Það var ei von að þessar tvær Þægju hylli af konum, Þvf allir karlmenn eltu þær Á undan kosningunum. D. Um D-listans afrek má Eg það færa f letur. Hann hefir biðilsbuxum á Brölt f allan vetur. Öllum virtist þörf á þvf — Það fór efcir vonum, — Að setja mótor aftan f Efsta mann á honum. E. Þorsteinn enga frægðarför Fór að þessu sinni. En nú skal lekan kjalarsknör Kljúfa á þagnargrynni. Z. * Sambr. >—nemaTraustimeð tygilinn.* ♦"■Sambr. að það var helst fundið að Steinþóri, að hann hafði gengið að síldar- vinnu s. I. sumar. Útsölumenn Dags eru vinsamlega beðnir að senda til ritstjórans það sem bjá þeim kann að liggja af eftirgreindum tölublöðum Dags. Árið 1920: 1. 3. og 8. tbi. — 1921: 2. 4- 40 43 45- og 51. — 1922: 21. og 22. Ennfremur eru þeir kaupendur, sém ekki hirða um að halda blaðinu sam- an, en kynnu að eiga greind tbl. ( góðu ástandi, beðnir að eftiriáta blað- inu þau gegn hárri borgun. RUsij. j Reykjavlk, 10. jaaúar. Bandalag Englendinga og Frakka hefir rofnað út af skaða- bótamálunum. Bretar vildu að Frakkar lækkuðu skaðabætur Pjóðverja um helming, en peir neituðu. Búist við að Frakkar hertaki lönd á vestanverðu Þýzka- landi og að Bandaríkin og Eng- Iand mótmæli, en láti að öðru leyti hlutlaust. óeyrðir á ltalíu móti ein- valdsstjórn Mussolini. Bankaráð Islandsbanka hefir leyst Tofte frá bankastjórn með 70 pús. kr. dönskum, en Hannes fær háa fúlgu árlega. Eggerz hefir tekið í sínar hendur yfír- stjórn bankamálanna og auglýsir nú tvö embættin i Islandsbanka- stjórn laus. Umsóknarírestur til 1. tebrúar. Fréttaritarl Dags. Á víðavangi. Götugerð Akureyrar. S 1. haust og vetur hafd Akureyratbúar öslað götufor- inameðengum hvflúum um margravikna skeið. Þollyndi manna gagnvart þessum ótögnuði gefur ástæðu til að ætla, að götugerðin f bænum sé vel fallin, til að þroska lyndiseinkunnir sóðanna og það getur ástæðu til að harma það, að bæjarstæði svo fagurt, skuli ekki vera bygt. þroskaðri verum, en þeim, sem með sfjöfnu rólyndi og sjálfs- ánægju geta borið sóttkveikjugrautinn af götunum inn f hýbýli sfn. Bæjar- stjórnw lét á sfnum tfma vissa grjót- brotsmenn nota sig til »spekú!ationa« og fleygði út (é fyrir brotið grjót. En að nota grjótið til þess, sem það var upphaflega ætlað, — að gera varan- lega við versta götukaflann, datt bæjar- stjórninni ekki f hug, nema veganefnd- inni og stóð þó til boða ókeypis verkstjórn sænska verkfræðingains, Sandells. Grjótið liggur ónotað. í vetur um langt skeið var mesta önd- vegistfð og senni egt að ódýr vinna hefði íengist, til að frarokvæma verktð, En bæjarstjórnin notaði blfðviðrisdag- ana til að ösla sfdýpkandi for með einstakri ánægju yfir þeirri fyrirhyggju- semi, að hafa eignast brotið grjót í mestu dýrtfðinni. Og næsta sumar verður svo, til að forða mönnum frá druknun í bráð, ekið meiru af fsaldar- leir ofan í Bótina. Götugerð Akureyrar ræður væntanlega hér ettir sem hingað til gamall háttur fslenzkrar óframsýni: að bceta í biáð úr b/ýnusiu þðrt, á einhvem hátt, með sem minstum til- kostnaði. En með þeim hætti verður minstur tiikostnaður mestur, þegar til lengdar lætur og vegafé bæjarins kast-ð ( forina. i

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.