Dagur - 11.01.1923, Síða 4

Dagur - 11.01.1923, Síða 4
DAOUR 2 tb!. 6 Fóðursíld í fötum og tunnum. Saltfisk og hákarl kaupa menn bezt og ódýrast hjá Ingvari Guðjónssyni, Hafnarstræti 33. Þingmálafundir verða haldnir að Breiðumýri, miðvikudag 24. jan. 1923 og í Skógum i Fnjóskadal, laugardaginn 27. jan. Fundirnir hefjast kl. 12 á hád. á báðum stððum. Fjósatungu, 10. jan. 1923; Ing. Bjarnarson. y\ðalfundur U. M. F. A- verður haldinn sunnudaginn 21. þ. m. kl. 3 síðd. í Samkomuhúsi bæjarins. — Dagskrá samkv. fél- agslögunum. Jörðiij Miðhálsstaðir í Öxnadalshreppi er laus til ábúðar frá næstu fardögum. Semja ber við undirritaðan. Þverá í ÖxnadaJ, 30. des. 1922. Stefán Bergsson Jörðín JNIonni Hominn heim. í Öxnadal fæst til kaups eða ábúðar í n. k. fardögum Semja ber við undirritaðan eiganda jarðarinnar Pólitískan fyrirlestur héit Bjarni frá Vogi á annan f jólum f Rvfk. Hvein þar í gömlum sjálfstæðisrembingslúðri hans um fjölgun sendiherra. Annað nauðsynjamál bar hann þó fyrir brjósti, en það var að setja kaupfélög lands- ins undir opinbert eftirlit. Cn ekki mintist Bjarni á það, að neitt eftirlit þyrfti með íslandsbanka, þar sem hon- um er falið að gæts nokkuð margra milljóna af fé landsmanna. Má segja að sú þjóð ér seinþreytt til vandræða, sem þolir jafnlengi hijóðið f sllkum stjórnmálabullustrokk, sem Bjarni frá Vogi er. Landráð? »Tíminn« skýrir frá þvf, að nákominn maður Höepfners verzl- un f Rvlk hafi sagt skilorðum manni þar frá þvf, að einhver ónafngreindur maður eða menn hafi sent stór-danan- um Berlemé bækling B. Kr. um Sam- bandið og beðið hann að þýða hann og senda samvinnubankanum danska. Sennilega fyrir þá sök, að Bsrlemé þótti tilræði þetta svo svívirðilegt, hafi hann neitsð að verða við kvöðinni. En þrátt fyrir það hafi bæklingur þessi verið þýddur bæði á dönsku og ensku og sendur helztu viðskiftabönk- um Sambandsins I Euglandi og á Norðurlöndum. Bert er, að hér er um tilraun að ræða, til þess að svíkjast með morð tól að baki eins helzta verzlunarfyrir- tækis f landinu og hafa sllkar sakir verið kallaðar landráð, þar sem skaði, unnin þessu fyrirtæki, mundi koma mjög þungt niður á miklum þorra landsmanna. Mun þetta jafnan verða talinn einstæður vottur um þroska »bændavinanna< og sérkennileg fram- kvæmd »kærleikslögmálsins.« Þögn og umhugsun hæfir betur en orð þau, sem völ er á, slfkri óhæfu. Kafli úr Austfjarðabréfi. »Fréttir eru fáar. Tíð er ágæt; má fremur heita sumar- en vetrartfð. Jörð alt fást í Heildverzlun O Tulinius. Kaffi, Sykur, Súkkulaði og Cácao fæst í H e i 1 d v e r z 1 u n O. Tulinius. yVnnálf 19. aldar, 5. hefti (endir á 1. bindi) er nýkomið út og kostar 3 kr. Alt bindið 475 + 14 bls. í stóru 8 bl. broti, tneð mynd höfundarins, kostar fyrst um sinn að- eins 7 kr. Utsölumenn óskast. Ritið geta menn pantað hjá undir- rituðum. Akureyri, Lundargötu 9.27. des. 1922. Virðingarf. Hallgr. Pétursson. af sumarauð að heita má, það sem af er vetrarins og frost ekki teljandi. Samvinnubreyfing vaxandi og »Sam- bands«-hugur. R tsmfðar B Kr. ger- samlega áhrifalausar, nema f gagn- stæða átt við það, er til virðist vera stofnað. — — — Það mun sagan sýna, að fáir hafa unnið Samvinnu- hreyfingunni þarfara verk én B Kr. með þessu riti slnu — þ. e. a. s. ef þjóðin er nógu þroskuð, til að meta það réttilega og þekkir sinn vitjunar- tfma. Og um það efast eg ekki eitt augnablik.« Syðri Bægisá 3. jan. 1923. Snorri Þórðarson. Samband Islenzkta Sam vinn ufélaga hefir fyrirliggjandi og útvegar alls konar LANDBÚN AÐARVERKFÆRI: Sláttuvélar, Milwaukee. Rakstrarvélar, Milwaukee. Snúningsvélar, Milwaukee. Brýnsluvélar fyrir sláttuvélaljái. Plóga frá Kyllingstad Plogfabrik, er hlutu fyrstu viður- kenningu á landbúnaðarsýningunni í Rvík 1921. Garðplóga, Pinneberger. Rótherfi, Pinneberger. Tindaherfi, Pinneberger. Arfaplóga, Pinneberger, með tílheyrandi hlújárnum, sem hlutu sérstaka viðurkenningu á fyrnefndri sýningu. Rófna sáðvélar. Forardælur. Vagnhjól frá Moelvens Bruk. Skilvindur, Alfa Laval. Strokka, Alfa Laval o. fl. o. fl. Ennfremur verkfæraskápa með öllum algengum smíðatólum. Tilbúinn áburð, gaddavír o. m. fl. _ Flest verkfærin hlutu viðurkenningu á Iandbúnaðarsýn- ingunni r Reykjavík 1921 og eru valin í samráði við Búnaðarfélag íslands, sem einnig gefur upplýsingar um pau. ^í^tIwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwhec Ritstjóri: Jónas Þorbergsson. Prentsmiðja Odds Björnssonu.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.