Dagur


Dagur - 01.02.1923, Qupperneq 1

Dagur - 01.02.1923, Qupperneq 1
DAGUR kemur út á bverjum fimtudegi. Koitar kr. 6.00 árg. Qjalddagi fyrlr 1. júlí. Innheimtuna annast ritstjórl blaðsins. APOREIÐSLAN er hjá Jónl t>. f>6r, Norðurgðtu 3. Talsimi 112í Uppsðgn, hundin við áramót sé kornin til afgreiðsitimanni lyrir 1, des. VI. ár. Akureyri, 1. febrúar 1923. 5. blað. Hallgrimur Krisfinsson forstjóri. Hann andaðist, að heimili sínu i Reykjavík, kl. 8 aö morgni þess 30. þ. m. Hann er fæddur í Öxnafells koti í Saurbæjarhreppi í Eyjafirði, 6. júlí 187ö, sonur hjónanna Kristins Ketilssonar og Hólmfríðar Pálsdóttur Hann var kvæntur Marju Jónsdóttur Davíðssonar (nú i Reykhúsum í Eyjafirði), sem lifir mann sinn ásamt 4 börnum þeirra, 3 drengjum og 1 stúlku. Móðir Hallgríms lifir hann, nú til heimilis hjá Sigurði fram- kvæmdastjóra á Akureyri, syni sínum Auk Sigurðar á Hallgrímur 2 bræður á iífi, séra Jakob í Reykjavík og Aðalstein, framkvæmdastjóra, einnig til heimilis i Reykjavík. HaJlgríraur Kristinsson var í for eldrahúsum fram á tvftugsaldur. Þá gekk hann i Gagnfræðaskólann á Möðruvöllum og útskrifaöist þaðan vorið 1898. Tveim árum síðar tók hann við forstöðu Kaupfélags Ey firðinga, en með því að félagið var þá mjög litið var hann jafnframt amtsskrifari hjáPáii heitnum Briem, amtmanni. Páll Briem var, eins og kunnugt er, einhver hinn mesti framfara og hugsjónamaður, sem uppi hefir verið hér á landi. Hann var og glöggur á ménn. Sá hann hvert mannsefni bjó í Hallgrími Kristins syni og hvatti hann til framgöngu Fyrir hans áeggjan mun Hallgrimur hafa siglt til Danmerkur, tii þess að kynna sér samvinnumál. Iieim kom- inn blæs hann nýjum lífsanda í Kaupfélag Eyfirðinga og undir stjórn hans og á vegum hans stefnu gerist það eitt allra voldugasta kaupfélag landsins. En Kaupfélag Eyfiröinga mátti ekki njóta Hallgríms til langframa. Hans var meiri þörf. Fyrir mjög ákveðnabeiðni sambands norðlenzkra (caupfélaga fór hann að gefa sig við erindrekastörfum þess í útlöndum Og eflir að samvinna hófst með Sláturfélagi Suðurlands og norð- lenzka sambandinu, varð ekki sam- komulag um annan erindreka fyrir félögin en Hallgrím Kristinsson Síðan hefir vöxtur þessarar hreyfingar og bygging Sambandsins hvílt á heröum hans. Allir fremstu menn hreyfingarinnar voru einhuga um að hann væri allra manna bezt kjörinn, tii þess að bera fram til sigurs þá hugsjón, sem hefir þróast í þessu þjóðfélagi um síðustu áratugi, — sam vinnuhugsjónina. Pað er því óhætt að segja, aö Sambandið sé að mestu hans verk Að vísu hefir hann notið samvinnu ágætra manna, þar á meðal Péturs sál. Jónssonar fyrv. formanns Sam- bandsins- En þungi starfsins, úrræða og framkvæmda hefir þó hvílt lang samlega þyngst á herðum hans. Og tvímælalaust hefir hvflt á heröum hans þyngst byrði allra þeirra manna, sem nú eiga úr vöndu að ráða fyrir pessa þjóö. Hallgrímur Kristinsson var lágui maður vexti, kvikur í hreyfingum, hinn mesti fjörmaður og starfsmaður. Hann var fríður sínum, dökkhærður og dökkbrýnn, augun dökk, snör og skutu éldi. Hann var hvers manns hugljúfi og svo vinsæli, að nálega er, sem ?nnarhvor maður i landinu hafi mist bróöur sinn við frá fall hans. Oildir það jafntum skoöana andstæðinga hans sem íylgismenn. Missir konu hans og barna, móö ur hans og bræðra er ósegjanlega mikill, en þó er hann hverfandi hjá missi þjóðarinnar, því hún hefir mist sinn mætasta mann. Svo stór var HaiJgrímur í með- vitund þeirra, sem hafa staðið næstir honum f baráttu og starfi, svo alls um varðandi, að hann fengi að lifa enn um nokkur ár, svo elskaður var hann, að þeir hefðu kosið, að missa sína nánustu, heldur en hann. níslands óhamingju verður alt að vopni," var eitt sinn sagt, er ísland misti sinn mætasta mann. Aidrei síðan heíir verið rikari ástæða, ti! að fá sér slfkt til orðs. Aldrei síðan hefir meiri alvara Iagst yfir þetta land við lát eins manns. Sveitirnar eru harmi lostnar. Bæirnir alvöru- gefnir Athugum ástæður. I landinu hefir samvinnuhugsjónin verið að vaxa um síðastliðin 40 ár. Hún er bygð á, þeim skoðunarhætti, að verzlunin eigi að vera rekin vegna almenn ings fremur en einstaklinga og með hagsmuni neytenda og framleiðenda fyrir augum. Eins og ailar nýmynd- anir og þjóðfélagslegar umbætur hefir þessi hreyfing átt i höggi við mjög margháttaða erfiöleika. Það helir þurft að fylkja misjafnlega félagslyndum mönnum undir merki stórrar, Iangsýnnar hugsjónar. Það hefir þurft að vinna mjög verulegan bug á eigingirni þeirra, efla trú mn staraö í auð bil í fylkingar- brjóstinu, sem ekki gátu orðið fylt yfirsjáanlegri framtíð. Enn er autt Jil orðið i fylkingarbrjóstinu svo stórt, sem orðið getur viö missi eins manns. Og um það verður hugsað í landinu næstu daga, á hvern hátt það geti orðið fylt svo viðunandi sé. Ekkert mundi Hallgrími vera fjær skapi en að Sjá ástvinum sínum, starfs og hugsjónabræðrum faliast hendur í skaut yfir óbætanlegum harmi. Hann var einn þeirra manna, ersízt munu *haltir ganga meðan báðir fætur eru jafnlangir." Pjóðin verður á öllum tímum að gangast undir mál með sínum eigin raunum og erfiði. Það er hversdagslegt, að sjá menn glúpna og láta undan síga. Við biðjum ekki um slysalaust undan- hald. En við biðjum um vaxandi þor allra þeirra, sem nú hefir verið svo nærri höggið í ætt og i anda, f starfi og í hugsjónum. Við biðjum um stóra og vaxandi þjóðarsál, sem rís gegn erfiði og áföllum. Við biðjum um, að um alt það svið í starfi og hugum manna, sem Hallg’rímur átti til yfirsóknar, verði farið eldi sigurvissunnar. Við biðjum um stór heit við gröf hans og heilar efndir. þeirra á sína eigin framtíð og traust Við biðjum um, að fórnir kær.teik- þeirra hvers á öðrum. Það hefir þurft aö byggja frá grunni sterka samvinnu út á við og lánstraust bænda innan lands og erlendis. Loks hefir þurft að standa f snörp ustu baráttu við andstæðinga þessa málefnis og búa við seigdrepandi tortrygni og eftirtölur sumra þeirra, er átt hafa að heita fylgismenn. Enginn mun synja Hallgrími Kristinssyni þess, að hann hafi ver ið bezt kjörinn allra þeirra manna, sem starfaö hafa fyrir þetta málefni, til þess að verða við ölium þess marghátluðu þörfum Nú hefir þessu málefni þjóðar innar borist þrefaldur vandi á hendur Samvinnufélög landsins éiga við þá öröugleika að etja, sem nú þjaka verzluninni hvarvetna um heim. Auk þess eiga þau í höggi við ofsóknir og róg andstæðinga, sem hefir færst { aukana í seinni tið, svo að jafn- vel er ekki svifist, að beita hinum verstu níöingsbrögöum. Og þegar svo stendur á, fellur foringinn í valinn. Oft hefir þjóðin átt um sárt að binda við missi þeirra manna, er hún hefir sizt mátt missa. Oft hefir ans verði færðar og að borg trausts- ins verði bygð sterk frá grunni um hugsjón þá, sem þessi ástmögur kynslóðarinnar elskaði, lifði og starf- aði fyrir. Eg eggja ykkur, íslenzkir bændur, lögeggjan! Gjaldið Hallgrími Krist- inssyni þökk ykkar og munið hann, en grátið ekki né barmið ykkur. Þyrpist um merkið, sem sterkar hendur fallins foringja hafa sfungið djúpt í völlinn! Fyrir því hafa ís- lenzkum bændum veriö gefnir góðir menn og miklir, að þeim er ætluð framtið. Og fyrir því eru þeir lagð- ir undir þunga raun, að þeitn er ætlað að standast. Þeir, sem hefðu ekki getað brugðist Hallgrlmi Kristinssyni og málefni hans, að honum iifandi, ge«'a ekki brugðist honum dánum. Eg vænti þess fastlega, aö allir standi í fylk- ingunni fastir fyrir óg sterkír; — ráðnir í því að bregðast ekki Hall- grími, — ráöniriþví að horfa fram og sækja fram, unz þeir falla, eins og hann, með sárin á brjóstinu. J. A

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.