Dagur - 22.02.1923, Side 2
28
DAGUR
8. tbl.
Grammofónar
óvanalega ódýrir fást hjá
Jóni Þór, Norðurgötu.
að gæta þess, að skeyta um það, að
sú viðleitni, ef hún hefir nokkur áhrif,
kemur óumfiýjanlega niður á allti þjóð-
inni og er þarfiaust að skýra það (rekar.
Það tnega vera frámunalega skamm-
sýnir menn sem ekki sjá það, að hér
er um meira en meðal fólskuverk að
ræða, að nú á þessum íjárkreppu tfm-
um, þegar bankarnir eru búnir að tapa
milljónum króna bjá ýmsum gróða-
brallsmönnum og báðir aðalatvinnu-
vegir landsins eru stórlamaðir vegna
verðfalls aíurðanna og harðæris, skuli
vera fundið upp á þvl, að spilla láns-
trausti bænda erlendis. Með þessu
háttalagi er verið að spilla lánstrausti
allrar þjóðarinnar. Öll þjóðin hefir
beðið tjón af þessum svlvirðilega verkn-
aði. Pað er hjarta alþjóðar sem fyrir
tilrœðinu verðar. Pað er verið að fremja
landráð.
Þessir eru þá ávextirnir orðnir af
verkum B. Kr. og verður ekki annað
ssgt, en þeir séu nægilega fyrirferða-
miklir og áberandi til þess, að þeim
sé gaumur gefinn.
1 sambandi við þetta mál er þess
vert að athuga það, að B. Kr., sem
er meðiimur í Fálkaorðunefndinni og
orðuberi sjálfur og átti að bénda kon-
ungi vorum á þá menn, sem öðrum
fremur sköiuðu fram úr í því, að
vinna landi sínu og þjóð gagn og
sóma, skuti sjálfur hafa gefið tilefni
til, að framið hafi verið eitt hið hr£k-
legasta níðingsverk sem dæmi eru t‘l
meðal fslendinga, slðan sögur hófust.
Og nafn Björns Kristjánssonar mun
sagan lengi geyma; en samt ekki á
meðal þeirra velgerðamanna þjóðarinnar,
sem mest og bezt hafa barist íyrir
siðlegri og efnalegri viðreisn hennar,
heldar I námunda við þá níðhöggva,
sem á hættutímum hafa nagað rsetur
þjóðarmeiðsins, í stað þess að styðja
hann.
EyfirsKur bóndi.
Útdráttur úr fundargerð.
Ár 1923 miðvikudaginn 31. janúar
var stjórnmálafundur, að tilhlutun
Fundafélags Húsavfkur, haldinn í
barnaskólahúsinu á Húsavík.
Formaður Fundafélagsins, Páll Ein-
arsson kaupmaður, setti fundinn og
stakk upp á Sig. Bjarklind kaupíélags-
stjóra, sem fundarstjóra, en hann til-
nefndi þá Pétur Sigfússon og Pál Ein-
arsson, sem ritara.
Frá stjórn Fundafélagsins kom
fram svohijóðandi tillaga:
»Fundurinn lýsir óánægju sinni yfir
þvf, að þingmaður kjördæmisins befir
látið undir höfuð leggjast, að halda
þingmálafund á Húsavfk, með kjós-
endum í Húsavfkur- og Tjörnessbrepp-
um og væntir þess, að slfkt komi
ekki fyrir aftur.« Var tillaga þessi
samþykt með þorra atkvæða,
í sparnaðarmdti voru svohljóðandi
tillögur samþyktar með öllum greidd-
um atkvæðum: »Um leið og fundur-
inn telur lítt gerlegt, að hækka ríkis-
sjóðs tekjurnar með tolium og 3kött-
um frá því, sem nú er komið, væntir
fundurinn þess, að Alþingi gæti ítrustu
rparnaðar í fjárveitingum og skili
tekjuhallalausum fjárlögum.«
»Fundurinn telur frumvörp stjórnar-
innar um afnám og fækkun noklcurra
embætta ckki koma að tilætluðum
notum til sparnaðar, en er hinsvegar
eindregið meðmæltur því, að nú þegar
sé fækkað sýslunar- og starfsmönnum
ríkisins, einkum í Reykjavfk og hinn
mikli skrifstofukostnaður þar stórum
minkaður. Einnig felst fundurinn á, að
Alþingi sé einungis haldið annað hvort
ár og hinn gífurlegi Alþingiskostnaður
lækkaður svo sem íöng eru á. Sömu-
Jeiðis sé iöggildingarstofan fyrir mæli
og vog lögð niður, en iögreglustjór-
um sé falið að hafa eftirlit með mæli-
tækjum verz’ana og reksturskostnaður
Hagstofunnar sé færður niður um alt
að helming þar sem skýrslur þaðan
virðast engan vegin koma að íullu
gaRni.« %
í skattamálum voru samþyktar tvær
tillögur, f einu hljóði; svohljóðandi:
•Fundurinn er eindregið mótfallinn
hækkun húsaskattsins f írumvarpi
stjórnarinnar, en telur hlutfail það,
sem er f núgildandi lögum milli húsa-
skatts og skstts að löndum (jörðum)
rétt og sanngjarnt.« »Fundurinn telur
mjög varhugavert, aðbreyta að nokkru
marki tekju- og eignaskattslögunum,
þar sem lagabálkur þessi er enn lftt
reyndur,*
í vínsölumálinu var samþykt svo
hljóðandi tillaga:
»Fundurinn er því algerlega mót-
failinn, vfnsölustaðir séu reknir á
kostnað ríkisins og skorar á Alþingi,
að blutaat til um, að slíkir sölustaðir
séu sém fyrst lagðir niður. Heldur
ekki sé lyfsölum veittur einkaréttur til
vfnsölu. Sé vfnsala talin nauðsynleg
vegtia Spánverja, þá sé hverjum lög
ráða manni heimilað, að panta spánar-
vfn undir eftirliti og urnsjón hlutað
eigandi lögreglustjóra og rfkisstjórnar,
en áfengisinnkaup rfkisins lögð niður.«
í skólamálum var svofeld tillaga
samþykt með öllum greiddum atkvæð-
um: »Fundurinn er því meðmæltur, að
Alþíngi veiti, þegar íjárhagur ríkisins
batnar, sfytk til alþýðuskóla I Þing
ryjarsýslu. Fundurinn telur ekki fært
sökum fjárkreppu og dýrtfðar, að
komandi Alþingi Ieggi fram (é úr
rfkissjóði til styrktar nýjum skólum
eða nýjum skólnbyggingum og væntir
þess, að styrkur úr rlkissjóði meðan
verið er að koma fjárhagnum f rétt
horf, sé einungis veittur til eflingar
framleiðslunni til lands og sjávar og
til lfknarstofnana.«
í sveitfeslismálum var svohljóðandi
tillaga samþykt með öllum greiddum
atkvæðum: »Fundurinn er mótfallin
tillögu stjórnarinnar ura 5 ára sveit-
festi. Gömul reynsla hefir sýn", að
svo stuttur sveitfestistfmi veldur meiri
deilum og ruglingi og bakar hrepps-
nefndum mjög aukin störf, enda yrði
þá að breyta fátækralögunum á þann
hátt, að sveitar- og bæjarstjórnum
sé gefið vaid til þess, að neita mönn-
um um aðsetursleyfi.«
í vegamáluni var samþykt svohljóð-
andi tiilaga, með öllum greiddum at-
kvæðum: »Fundurinn skorar á Al-
þingi, að taka leiðina írá Fossvöllum
um Jökulsárhlið og Heliisheiði til
Vopnafjarðar og póstleiðina þaðan til
Húsavlkur og þaðan sýsluveginn að
Breiðumýri í tölu þjóðvega.«
í málinu sijórnir gagnvart hœstarélti,
var samþykt svohljóðandi tillaga mcð
öllum greiddum atkvæðum: »Fundurinn
skorar á komandi Alþing að taka
strax til itarlegrar rannsóknar fram-
komu stjórnarinnar, einkum forsætis-
ráðherra, gagnvart hæstarélti l saka-
málinu gegn Ólafi Friðrikssyni.?
Fleiri tillögur ekki samþyktar.
Sig- Bjarklind
fundarstjóri.
Pétur Sigfússon, Páll Einarsson
fundarritarar.
Símskeyti.
Reykjavik, 21. febrúar.
I alþjóða ávarpi hafa Rússar
mótmæit hertöku Frakka á Essen,
í ávarpinu er og hvöss ádeila
áVersalafriðarsamningana. Sendi-
herra Þjóðverja í Washington
hefir leitað hjálpar Bandaríkja-
stjórnar handa bágstöddum í
Ruhrhéraði, stjórnin neitar vegna
pess að pýzkir stóriðjuhöldar
eiga 200 milljónir sterlingspunda
í bönkum vestra, sem fyrst beri
að nota, Ein af járnbrautum í
Ruhrhéraði undir brezkri umsjá,
er Ieyfð Frökkum til afnota, pó
megi peir ekki flytja meira en
tvær hersendingar daglega-
Frakkar fella hvern herréttar-
dóminn af öðrum í Ruhrhéraði.
Frakkar lána Pólverjum 400
milljónir marka. Parisarblöð
ásaka brezka sendiherrann í Paris
um liðsinni við Þjóðverja.
Stjórn Sambandsins komin
saman í Rvík til ráðstafaria út
af fráfalli forstjórans. Jarðarför
Hallgríms Kristinssonar fór fram
í dag á kostnað Sambandsins,
að viðstöddu afarmiklu fjölmenni.
Þorsteinn Briem flutti húskveðju,
Sig. Kr. Pétursson kveðju Guð-
spekisnema, Har. Níelsson lík-
ræðu.
* *
*
Forseti sameinaðs pings Magnús
Kristjánsson, varaforseti Sveinn Ólafs-
son, forseti neðri deildar Benedikt
Sveinsson, varaforseti Þorleifur Jóns-
son, skrifarar Þorsteinn Jónsson,
Magnús Ouðmundsson; forseti efrí-
deildar Halldór Steinsson, varafor-
seti Quðmundur Ólafsson, skrifarar
Einar Árnason, Hjörtur Snorrason.
Fjárveitinganefnd neðri-deildar: Þor-
ieifur Jónsson, Ingólfur, Eirlkur, Jón
Sigurðsson, Þórarinn, Magnús Pét-
ursson, Bjarni. Fjárveitinganefnd
efri-deitdar: Jóhannes Jóhannesson
formaður, Einar Árnasoti skrifari,
Jónas, Hjörtur, Ingibjörg. <
Frétlaritnri Dag».
Pingmálafiindurinn
4. febr. 1923.
Herra ritstjóri!
í blaði yðar, er út kom 8, þ. m.,
gerið þér tvær athugasemdir við fund-
arstjórn mína á þingmálafundimtm 4.
þ. nfi, er vart geta skilist öðruvísi,
en sem ásakanir um hlutdrægni. Tel
eg nauðsynlegt fyrir mig, að bera
hönd íyrir höfuð mér, og vona að
þér leyfið mér rúm í blaði yðar til
þess.
Athugasemdinni viðvíkjandi atkvæða-
greiðslu um viðaukatillögu Jónasar Jón-
assonar, hefi eg svarað með athuga-
semd aftan við fundargerðina og er
hún birt í blaðinu. Hefi eg engu öðru
þar við að bæta, en geta þess, að
þingmaðurinn fór aldrei fram á, að eg
reyndi átkvæðagreiðslu að nýju með
handauppréttingu, heldur krafðist hann
þegar nafnakalis. En eg er þess full-
viss, að allir skynbærir menn, sem við
voru staddir, voru mér samdóma um
að nafnakall var óframkvæmanlegt.
Annars er mér óskiljantegt, hvers vegna
þingmaðurinn eigi vildi samþykkja við-
aukatillöguna, því öllum hlýtur að vera
ljóst, að það er síður en svo, að hún
spilli tillögu hans.
Þá er ræða Jónasar Jónassonar. Það
er rétt hermt, að hann fór allhörðum
orðum um þingið, en ekki harðari'orð-
um en alment gerist, þegar menn tala
sín á milii um þingið og þingmál, og
er það, að minni hyggju, bæði óholt
og rangt, að fyrirmuna mönnum, að
koma fram með slíkar aðfinslur opin-
berlega. Þersónulegar árásir voru eng-
ar í ræðu Jónasar, og hafði eg því
enga ástæðu til að víta orð hans. Að
sjálfsögðu var viðstöddum þingmönu-
um og öðrum, sem tóku tii máls,
heimilt að mótmæla þessum ummæl-
um lians, en þegar þingmaður kjör-
dæmisins tók það fratn, að Jónas hefði
ráðist á sig, með persónulegum ásök-
unum, þá varð eg að mótmæla því,
því það var ekki rétt. Og jafnframt
varð eg að víta nokkur ummæli þing-
mannsins, sent voru frcklega móðg-
andi fyrir Jónas og illa viðeigandi á
opinberum fundi.
Akureyri 11/2 1923.
Virðingarfyllst
Sleingrlmur jónsson.
*
* !f>
Aths.
Ritstjórimi er fjarverandi, en áskilur
sér rétt til athugasemda, síðar.