Dagur - 11.10.1923, Qupperneq 2
160
DAGUR
43. tbl.
Eí þér viljið fá ódýran akstur
— — — þá akið í — — —
B5Sr BIFREIÐ A-10. "Sfl
Mig er að hitta við Torfunefs-
brúna eða í tmr Síma 17.
Snæbj. Þorleifsson-
Hans Kuhrt
stud. phil.
MrVeitir tilsögn í þýzku.T*
Til viðfals dagl. kl. 5-7 ð Sigurhæðum.
útvegsmenn og nokkur hluti kaup-
mannastéttarinnar. Ennfremur þykir
ekki grunlaust um, að sumum pen-
ingastofnunum sé vel vært, þótt
þetta núverandi gengisástand hald-
ist fyrst um sinn, enda álitið að
þær muni ekki hafa tapað á þvi
hingað til. Hversu mikið tjón þjóð-
in hefir beöið við þennan gengis-
mun hingað til, er ekki gott að
segja um með vissu, ,en það má
fullyrða, að það skiftir miijónum.
Það er skoðun mín, að þjóðin
tapi árlega alt að tfu milljónum
króna, vegna þessa öfugstreymis
peningamarkaðarins, sem að mínu
áliti er að miklu leyti sjálfskaparvíti
eins og áður er drepið á. Það er
þvi hörmulegt að hugsa til þess, að
þing og stjórn skyldu ekki hafa
manridáö til þess að framkvæma
þær ráðstafanir, sem varnað hefðu
þessu fjárhagsöngþveiti, sem eg nú
hefi lýst. En eg þvæ hendur mínar,
því eg hefi ekkert tækifæri látiö
ónotað, til þess að koma framkvæmd-
unum í rétt horf og mér er óhætt
að fullyrða, að margir hinna beztu
manna hafa aðhylst sömu skoðun.
En því miður hefir eiginhagsmuna-
stefna nokkurra kaupsýslumanna og
stórútgerðarmanna borið hærri hlut
f þinginu. Þar eð nú virðist útséð
um, aö þingið, eins og það nú er
skipað, muni bjarga þjóðinni út úr
hinum fjárhagslegu ógöngum verö-
ur almenningur eða þær stéttir manna,
sem dýrtíðin, vegna óhagstæðs
gengis o. fl. kemur þyngst niður á,
að taka til sinna ráða, þannig að
mynda með sér þau samtök, sem
til hagsbóta geta örðið. Þetta hafa
landbúnaðarmenn þegar tekiö sér
fyrir hendur, með þeim samvinnu-
félagsskap, sem nú er orðin allút-
breiddur peirra á meðal og borið
hefir mikinn og góðan árangur
fyrir þeirra stétt, ekki einungis efna-
íega heldur einnig menningarlega
á margan annan hátt. Kaupfélag
Verkamanna þessa bæjar, er að vísu
rétt spor i þessa átt, en margt fleira
þyrfti að gera, ef vel ætti að vera.
Til dæmis mætti nefna, að sjómenn-
irnir ættu að fara að hugsa um að
eignast sjálfir fleyturnar, sem þeir
verða að starfa á og eiga Hf sitt
undir. Þetta á að geta komist í
framkvæmd á þann hátt, að þeir
fleiri eða færri saman myndi með
sér félög, svo margir sem henta
þykir í hverjum flokki, eftir því
hverjir eru líklegastir til að geta
unnið saman. Tilgangur félagsskapar-
ins á að vera sá, að sjómenn eignist
skipin qg bátana sjálfir, svo þeir séu
einráðir um það, hvernig öllum rekstr-
inum er hagað, bæði að því er
snertir veiðiskapinn, verkun aflans
og sölu hans. Þegar svo væri komið,
að þetta væri orðið nokkuð alment
fyrirkomulag, yrði að sjálfsögðu
myndaður félagsskapur, til þess að
selja afian í stórum stíl, jafnvel í
heilum förmum. Þá nyti hver einn
fullkomlega arðsins af vinnu sinni
eins og vera ber ogmyndi þá slíkt
fyrirkomulag verða til stórkostlegra
hagsbóta fyrir hlutaðeigendur.
Annað atriði ætla eg að minnast
á, sem einnig þarf að taka til at-
hugunar og það sem allra fyrst.
Þar sem svo hagar til eins og í
þessum bæ og nágrenni hans, virð-
ist alveg sjálfsagt, að sem allra
flestir leggi stund á ræktun lands-
ins meira en verið hefir.
Þaö, sem mest á ríður, er, að sem
allra flestir þurfi að eiga alt sitt
undir öðrum um atvinnu og af-
komu sfna og sinna. Þessvegna tel
eg það iífsnauðsyn, að hver fjölskylda
hafi nokkurt land til umráða, þar
sem garðrækt og grasrækt geti þrif-
ist. Það er áreiðanlega mikilsvert
til tryggingar og stuðnings heimilum,
þegar atvinnuskort ber að höndum,
þeim erálandi vinna og eins þeim
er sjóinn stunda þegar aflinn reynist
rýr eða jafnvel bregst með öllu.
Þau munu vera mörg heimilin, sem
svo ér ástatt um, að það er heim-
ilisfaðirinn einn, sem getur átt kost
á nokkurri atvinnu og sú atvinna
reynist jafnvel oft mjög slitrótt.
Það er því auðsjáanlega mjög
mikilsvert, að sem flest heimili eigi
heima fyrir einhver þau verkefni,
sem heimilisfaðirinn geti unnið að,
þegar önnur atvinna reynist stopul
eða engin. Ennfremur veröur að lfta
á það, að oft og tfðum stendur svo
á, að kvenfólk og unglingar gætu
unnið mikið að jarðræktinni, en sá
vinnukraftur verður, með núverandi
fyrirkomulagi, oft að litlum notum,
vegna skorts á hæfilegum viðfangs-
efnum. Til þess að gera almenningi
kleift, að fá tii umráða það land,
sem nauðsynlegt er, væri að mínu
áliti heppilegast, að hið opinbera
annaðist undirbúning, þar sem vél-
vinsla í stórum stíl á við. Þegar
búið væri að slétta og herfa Iandið
væri þvi skift í hæfilega reiti 2 til
3 hektara og mönnum gefinn kostur
á því til erfðaábúðar, hvort heldur
væri til þess að reisa á því ný
býli eða til annara nota. Það vill
nú svo vel til, að þessi bær stendur
sérlega vel að vígi, til þess að njóta
góðs af slíku fyrirkomulagi, ef það
yrði upptekið, sem eg tel brýna
nauðsyn. Það er auðvitað skylda
löggjafarvaldsins, að styðja að þvf,
að slíkar atvinnubætur, sem eg nú
hefi minst á, geti komið til fram-
kvæmda sem atlra fyrst og þá eink-
um með hagfeldum lánum. Það
hlutverk veröur að ætla fasteigna-
veðsbankanum, sem bráðlega verður
að taka til starfa. Eg hefi nú lýst
nokkuð tildrögum fjárkreppunnar
og afleiðingum hennar. Jafnframt
hefi eg minst á tvo atvinnuvegi
landsins og bent á hverjar leiðir eg
tel liklegastar þeim til umbóta og
þá jafnframt til varanlegra þjóðþrifa.
Þá virðist mér ástæða til að minn-
ast nokkrum orðum á iðnaöinn, sem
eins og kunnugt er má aðeins telja
á byrjunarstigi. Hér á landi virðist
mér að varla geti verið um annað
að ræða en smáiðnað, að minsta
kosta ekki i náinni framtíð. Það er
skoðun mín, að nauðsyn beri til, að
löggjafarvaldið láti þetta mál nú
þegar til sín taka. Ullariönaðurinn
er nú þegar nokkuð á veg kominn
fyrir tilstyrk einstakra manna, bæja
og sveitafélaga. Einnig hefir rikis-
sjóðurinn hlaupið þar undir bagga,
að því er lánveitingar sriertir. Þetta
er /ð vísu rétt stefna, en þó verður
það að vera innan vissra takmarka,
þvi slík fyrirtæki mega ekki vera
fieiri en svo, að þau hafi nægilegt
verkefni hvert á sínu sviði. Verði
þau of mörg, getur það leitt til óheil-
brigðrar samkepni, sem getur haft
illar afleiðingar. Það er áiit mitt, að
æskilegt væri, að ríkið sjálft tæki
að sér þær iðngreinar, sem miklu
skiftir fyrir velferð landsins, að vel
fari úr hendi, til dæmis baðlyfjagerð,
sem eg álít að sé vel til þess faliin
að rikið taki að sér einkarekstur á
henni. Ástæðurnar fyrir því, að eg
fyrst og fremst nefni þessa vöru-
tegund eru þær, að reynslan hefir
þegar sýnt, að hún hefir oft reynst
illa og veröið óhæfilega hátt. Af
þessu hefir landiö beðið stórtjón.
Að sjálfsögðu þarf aö fást full trygg-
ing fyrir að sú vara komi að til-
ætluðum notum, þvi annars svíkja
menn sjálfa sig og ala í landinu þá
pest, sem getur valdið landbúnaðin-
um svo miklu tjóni, að hann fái
eigi undir því risið.
Það er auðvelt að sýna með á-
byggilegum tölum, að ríkið gæti
haft mikinn beinan hag af slíkum
iðnrekstri og jafnframt veitt almenn-
ingi hagfeldari viðskiftakjör en áður,
hvað þessa og jafnvel fleiri vöru-
tegundir snertir. Hinn óbeini hagn-
aöur, sem felst í tryggingunni, er á
þennan hátt fengist fyrir vörugæð
unum, verður eigi til peninga met-
inn.
Því miöur leyfir tíminn ekki, að
ræða þessi mál öll svo ítarlega, sem
þyrfti, en eg áleit þó rétt að hreyfa
þeim hér, til þess að vekja ménn
til umhugsunar um það, hvað til-
tækilegast er að gera á þessu sviði.
Til þess að menn eigi hægra
með að átta sig á aðal atriðunum
í þessum hugleiðingum mínum, skaí
eg nú framsetja þau í sem fæstum
oröum:
1. Að eg hefi ætíð og vil fram-
vegis gæta hagsmuna allra stétta,
sem slarfa á heilbrigðum grundvelli og
sérstaklega reyna að varna þvf, að
sá, sem erminni máttar, verði troð-
inn undir i baráttunni fyrir tilver-
unni.
2. Að bægja útlendu auðvaldi frá
því, að klófesta arðinn af verzlun
Iandsins, og öðrum auösuppsprettum
þess.
3. Að koma nýju og betra skipu-
lagi á peningastofnanirnar í landinu
þannig, að slík fjárkreppa, sem nú
sverfur svo fast að þjóðinni, komi
eigi oftar fyrir.
4. Að löggjafarvaldið hlutist til
um, að íbúar kaupstaða og þorpa
geti átt kost á hagfeldum lánum til
reksturs sjávarútvegs og landbúnaðar
með samvinnusniði.
5. Að ríkisstjórnin hafi vakandi
auga á því, að nauðsynjavörur séu
ætíð fáanlegar í iandinu, þar sem
slíkt er nú illa trygt vfða á landinu
með núverandi verzlunarfyrirkomu-
lagi.
6. Að rikið taki að sér tilbúning
og sölu einstakra iðnaðarvara, sem
fyrirsjáanlegt er að framleiða megi
f landinu, með hagnaði fyrir ríkið
samfara almenningsheill, að þvf er
snertir verðlag og vörugæði.
7. Að stuðla að því, að þing og
stjórn knýji bankana, til þess að
lækka útlánsvexti til muna frá því,
sem nú er og jafnframt annast um, -
aö þeir hagi starfsemi sinni þannig,
að íslenzka krónan nái verðgildi til
jafns við hina dönsku, sem allra
fyrst.
8. Að gerðar verði ráðstafanir, tii
þess að landhelgisgæzlan verði aukin,
svo sem með þarf, til þess að fiski-
veiöum landsmanna sé eigi hætta
búin af yfirgangi útlendinga. Jafn-
framt annist ríkisstjórnin um, að
nokkrir ungir og efnilegir, innlendir
sjómenn njóti styrks af ríkisfé til
þess að mentast svo, að þeir verði
færir um að taka að sér forustu á
islenzkum löggæzluskipum."
F r é 11 i r.
Fundahöld hefjast í Suður-Þing-
eyjarsýslu á morgua og verður fyrsti
fundurinn á Breiðumýri. Af fréttum að
dæma verður kosningin sótt af fjöri
miklu f Þingeyjarsýslu Fylgi Ingólfs
er að sjálfsögðu yfirgnæfandi og fer
vaxandi, þegar mönnum verður Ijóst,
hversu óhyggilega er stofnað til fram-
boðs keppinauts hans: Að með þvf
er stofnað til bróðurvfga (sé Sigurður
f rauninni Framsóknaiflokksmaður), að
flokkurinn er með þvf óvirtur og að
hann er settur f hættu, ef andstæð-
ingur sæi sér fært, að nota þessa
tvídrægni samvinnumanna f héiaðinu.
úr Skagafirði fréttist, að líkur séu
til að Jón á Reynistað falii en Fram-
sóknarflokksmaður komist að. Er
Þetta líklegt, því Jón var upphaflega
kosinn á þing af Framsókn, en komst
á vald M G. og hefir fylgt honum
síðan eins og aukaskuggi.
Dánardœgur. Fyrir skömmu lézt
á sjúkrahúsinu á Akureyri Niels Hart-
mann sonur Kristjáns Kristjánssonar
frá Birningsstöðum en bróðir Jóhanns
Kristjánssonar, sem lézt á Vffilsstöðum
sfðastl. vor. Berklaveiki varð báðum
að bana. Hartmann var vel gefinn
piltur, prúður í framgöngu. Dauða-
meini sfnu tók hann með stillingu. Er
látið skamt stórra högga milii í garði
þessarar fjölskyldu.