Dagur - 11.10.1923, Blaðsíða 3
44. tbl.
DAGUR
161
Tíðarfariö er nú ákafiega hvikult
og úrfellasamt. í fyrri nótt alfölgvaði
og tók ekki fölið í gær sökum kulda.
Framboðin. Til viðbótar áðursögðu
um framboðin, hefir frézt að f N.-Múla-
sýslu bauð sig fram á sfðustu stundu
Árni Jónsson verzlunarstjóri á Vopna-
firði. í Vestur-Húnavatnssýslu bauð sig
fram Eggert Levy frá Ósi og eru þeir
sömu stefnu Þórarinn og hann, í
Barðastrandasýslu móti Hákoni bauð
sig fram Andrés Jóhannesson f Skál-
eyjum.
Vœníanlegir hingað til Akureyrar
með »Esju« tveir foringjar Hjálpræðis-
hersins, sem dvelja hér í nokkra daga.
Oberstlautinant Charles Knott og Brig-
ader Boye Holm. Oberstl. Knott er
Englendingur og hefir starfað f Hjálp-
ræðishernum frá æskuárum sfnum, c.
30 ára. Méðan á heimsstyrjöldinni
stóö, var hann sendur til Egyptalands,
Palestinu og Sýrlands, til þess að
starfa sem herprestur á meðal brezkra
hermanna f þessum löndum. Fyrir starf
hans sæmdi enska stjórnin hann kapteins
nafnbót f brezka hernum. — Brigader
Boye Holm er danskur að ætt og
hefir starfað f Hjálpræðishernum í 24
ár, f Þýzkalandi. Hann er fyrsti leið-
togi Hjálpræðishersins (Czeko-Slovakfu,
þar sem fbúarnir eru rómversk-katólskir,
en katólskan er þar mjög hnignandi
þvf fólkið þar óskar jafnt trúarbragða-
frelsis sem stjórnarfrelsis. Þar hefir
Hjálpræðisherinn mikla framtfðarmögu-
leika. Um Czheko-Slovakfu talar Boye
Hoim og 8ýnir skuggamyndir.»
Símskeyti.
Rvík 8. Okt.
Hæstaréttardómur fallinn í Land-
mandsbankamálunum. Prior dæmdur
I 120 þús. 6 dæmir í 4 þús. króna
sekt, 5 í 2 þús.
Umbrot mikil I Pýzkalandi. í
Díisseldorf lenti skilnaðarmönnum
saman við lögregluna, borgin lýst I
hernaöarástandi. Franskar hersveitir
halda uþpi reglu. Borgarstjórnin
fangelsuð. Uppreistarmenn í Kustrin
hafa reynt að frelsa handtekna for-
ingja slna, en voru ofurliði bornir.
Ritskoðun lögleidd að nýju. Verka-
menn i Ruhr neituðu að vinna undir
stjórn Frakka, en hafa þó byrjað
vinnu aftur. Stjórn Stresemanns fallin.
Jafnaðarmenn vildu ekki gefa henni
aukið vald, Ebert forseti hefir mælst
til við Stresemann að mynda nýja
stjórn, talið að hann muni geta það,
og helst sama flokkssamsteypan
um stjórnina áfram.
Grikkir mótmæla skaðabótagreiðsl-
unni til ítaia.
Svartfellingar ráðast inn í Albaniu.
Branting endurkosinn f þjóðaráðið.
Alríkisráöstefnan breska leggur
mikla áherzlu á nauðsyn samvinnu
að úrlausn vandamála heimsins.
Eftir 9 daga var 5 mönnum bjargað,
er Iokuðust inni við námuslysiö i
Skotlandi.
Lloyd George hefir haldið ræðu
i New York og hvatt Bandarikja-
menn, til að ganga í þjóöabanda-
lagið.
Corson lávarður deilir á Frakka
fyrir stefnu þeirra í Ruhrmálunum.
Nýr forseti kosinn í Kína, heitir
Tsao.
Skúti fógeti sektaður fyrir land-
helgisbrot um 10 þúSi kr. Afli og
veiðarfæri upptæk.
Fleiri togarar undir kæru.
Östlund ferðast um Gullbringu-
sýslu og flytur fyrirlestra um bann
á áfengi.
Hann hefir komist i samband við
bindindis-sinnaða Skota um að selja
allan fslenskan fisk eins góðu verði
og fæst fyrir hann á Spáni. Ein-
hverjir útgerðarmenn hér farnir að
semja við þá. Fundarhöld eru tíð
hér og í nágrenninu.
Rvík 10. okt.
Ríkisþingið þýzka hefir samþykt
traustsyfirlýsingu til stjórnarinnar
með atkv. allra nema þjóðernis-
bayernska- og kommunistaflokksins.
Matthes foringi skilnaðarhreyfing-
arinnar f Rinarlöndum segir að
Rinarlöndin verði lýðveldi á þessu
hausti.
Rússar hjálpa skoðanabræðrum
sfnum f Þýzkalandi með fjárfram-
Iögum.
Tyrkir ráða algerlega yfir Mikla-
garði.
Finnar neita skaðabótakröfu Rússa,
en fallast á rannsókn.
Fréttaritari Dags.
Minnisblöð.
Ný flokksmyndun.
*
1. Þegar íeið að lokum kjörtfma-
bilsins, settist Mbl. upp með miklum
svip og sagði, að nú þyrftu allir þeir,
sem væru andstæðir Tfmanum og
Framsóknarfl. að ganga saman f nýjan
flokk. Aðalverkefnið átti að vera, að
vernda persónulegt frelsi og borgara-
legt frelsi og beita sér gegn Tímanum
og Alþýöuflokknum.
2. M. G. og aðrir í bændadeild
Mbl. vildu ekki bfta á ágmð. Þeim
þótti vfs ósigur að þvf, að vera kendir
við Mbl. þegar kosningar færu í hönd.
Bændadeildin fór að gefa út afarstórt
kosningamálgagn, þar sem rekin var
sama pólitfk og ( Mbl., en með öðr-
um blæ. Þar var barist aðallega gegn
einum manni og einu málgagni bænda,
sem halda saman Framsóknarliðinu um
alt land. Þar var reynt að smjúga eftir
krókaleiðum hugsananna, læðast, rægja
og tortryggja. Þar var reynt að telja
bændum trú um, að nú ætti að bjarga
þeim. Tilgangurinn sá einn, að fá þá
tit að senda þessa menn aftur inn f
Mbl.-flokkinn.
3. Mbl. varð steinhissa á vanþakk-
iæti þessara manna og gætti sfn svo
illa að það jafnvel hrakyrti þá; taldi
þverúð þeirra, sundrungu og valda-
grægði of mikla, til þess að hægt væri
að fá þá til að vinna saman, jafnvel
þó þeim hefði verið boðinn álitlegur
blaðakostur þ. e. Mbl. o. s. frv.
4. Þetta trúleysi á gildi málstaðarins
f kosningunum, gerði vfðar vart við sig
en f kringum Mbl- S'g. dýralæknir
þóttist ætla að gerast flokksforingi og
gerði áumkunarverða tilraun, að búa
til einskonar frelsis-stefnuskrá. En til-
raun sú, sem var gerð f þessa átt hér
á Akureyri varð ( samræmi við þá
hæfileika, sem á bak við stóðu. Hún
er, eins og tilraunin syðra, enduð f
gremju við vanþakklæti mannanna.
S En alt er þetta blekkingaleikur.
Mbl. vildi láta sýnast, að það ætti eitt-
hvað til að lifa fyrir og ákveðin hóp
manna, sem settu sitt traust á það til
harðræða f kosningum En Bændadeildin
og aðrir, sem áttu kjördæmi sín f sveit-
um, þorðu ekki að standa undir vernd
Mbl Það þurfti að stofna til öflugrar
og dýrrar blekkingatilraunar. Fyrsta
vetrardag endar þessi blekkingaleikur,
hver sem úralitin verða. Kosninga-
málagögnin hafa þá lifað aldur sinn
og þeir, sem óheilindin og blekkingar
fleytaaðnýju inn f þingið, skrfða inn f
útbreiddan faðm Morgunblaðsins aftur.
Pjóðin og einstaklingarnir.
1. Þess hefir orðið vart, að nokkrir
kjósendar láta persónulegar á tæður
ráða fylgi sfnu. Þeir láta meðaumkvun
ráða óg gefa þeim atkvæði, sem bera
sig hörmulegast yfir fylgisleysi og
(Smannúðlegri meðferð á sjálfum sér.
Brjóstgæði við vissar persónur er sett
skör ofar en þörf og réttlætiskröfur
þjóðarinnar.
2. Stefán f Fðgraskógi ereinn af hin-
um hörmulegri þesskonar pfslarvottum.
Samþingsm ður hans nýtur hins mesta
trausts héraðsbúa, af þvf að hann hefir
aldrei brugðist málefni flokksins. Fram-
sóknarflokkurinn studdi báða til þing-
setu. Annar hefir reynst honum einn
bezti styrktar og fylgismaður, hinn
algerlega óflokkshæfur. Mundi slfkt
vera ástæðulaust í
3. Einstaklingurinn deyr, en þjóðin
lifir. Málefni þjóðanna og hugsjónir
eru eins og úthaf, einstaklingshugurinn
er alda á þvf úthafi. Að vitða hugsjón
og framtfð þjóðarinnar minna en per-
sónuleg óþægindi, er glæpsamleg með-
ferð á atkvæðisréttinum. Einstaklingum
má unna alls góðs, en þjóðin er
óendanlega mikils meira virði. Þvf
þjóðin lifir þó einstaklingurinn deyi.
Eyjafjarðarárbrúin er nú fuiigerð
að kalla. Er hún hið vandaðasta smfði
og mesta samgöngubót. Hefir fjár-
rekstrarmönnum þótt greiðari gangur
yfir ána en áður. Brúin er öll gerð
af steini og járni og hvllir á stein-
stólpum, sem reknir eru niður f ár-
botninn. Austasta brúin er lang lengst
83 metrar, miðbrúin 55 metrar, vestasta
brúin 53 m., samt. 191 metrar. í
tvær hvíslarnar var aðeins hlaðin braut
enda voru þær mjög grunnar.
Á víðavangi.
BismarcK Eyfirðinga. Á Saur-
bæjarfundinum fór Stefán f Fagra-
skógi að afsaka vináttu samband sitt
við J. M. Benti hann á, að f þvf efni
væri Ifkt á komið fyrir sér og járn-
kanzlaranum þýzka, Bismarck, sem
hafi verið f .vináttusambandi við mann
f andstæðingaflokki. Ekki þótti fram-
koma Stefáns svo djarfleg, að hann
minti á Bismarck að öðru leyti. »Tvis-
var verður gamall maður barn* roá
segja um Stefán f Fagraskógi.
Sannfæringin hans Sfefáns. au-
ar þær brigður, sem orðið hafa á sam-
búð Stefáns f Fagraskógi við Fram-
sóknarflokkinn, afsakar hann á fund-
unum með þvf að hann hafi ekki getað
farið öðruvfsi að, sannfæringar sinnar
vegna. Hann sé nú hrjáður og ofsótt-
ur vegna sannfæringar sinnar. Eru
Ifkur til að hann beri sig bráðlega
saman við Lúther og Húss. Hann ját-
aði að hann hefði greitt atkv. á móti
sinni eigin tillögu um skipun peninga-
málanefndar á þingi 1921. En jafn-
framt játaði hann, að sér hefði »yfir-
sést« þegar hann gerðist flutningsm.
tillögunnar. Hanrt hefði ekki verið bú-
inn að álta sig á þvi, að í tillögunnl
fólsl vantraust á /. M. Áður en Stefáni
varð þetta Ijóst, var það sannfæring
hans, að nefndarinnar væri þörf, en
ekki eftir að hann sá, að tillagan var
nærgöngul J. M. Svona reyndist sann-
fœringin hans þarna. Brigð sfn við
flokkinn f íslandsbankamálinu á sfð-
ásta þingi afsakaði hann einkum með
því, að um seinan hefði verið að
koma fram rannsókn á bankanum.
Kunnugt er nú orðið að Framsóknar-
flokkurinu gerði tilraun að koma mál-
inu fram á lokuðum fundi áður, en
vat ofurliði borinn á þann hátt, að
mótstöðumennirnir runnu af hólmi.
Stefáni þótti ástæða til að verðlauna
andstæðingana fyrir bragðið, með þvf
að hlaupa yfir í þeirra flokk. Enn
viðurkendi hann að hafa miðað afstöðu
sfna til sveitfestismálsins við innan-
héraðástæður og verið haltrandi í þvf
og kemur það heim við það, sem
Dagur hefir sagt að kjörfylgisvonirnar
f svo tvlbentu kjördæmi hafi ráðið
sannfæringu hans f þvf máli. Stefán
var spurður hversvegna hann mundi
vera búinn að fá fylgi andstæðinga-
blaða Framsóknarflokksins og svaraði
hann á þá leið, að sér væri það ekki
ljóst, en gott væri að hljóta stuðning
góðra manna. Af framkomu Stefáns
og yfirlýsingum hans sést, að tvö öfl
ráða sannfæringu hans: annarsvegar
vinátta við gamlan og honum góðan
samherja, hinsvegar kjörfylgið heima
f héraði, einkum S'glfirðinga. Það er
næstum óheyrilegt að heyra þann
mann halda ræðu um sannfæringu
sfna, sem er gersamlega sama um,
hvar hann hlýtur pólitfskan stuðning
og sem lætur atvik bundin við sjálfan
hsnn eða vini ráða um það, hvoru
megin hann skipar sér f stærstu á-
greiningsmálum.