Dagur - 28.02.1924, Blaðsíða 2
31
DAOUR
8. tbl.
Sveitasöngvar.
m
ii.
Sunnudagur.
Nú angar sunnanblærinn og allt er
grænt og nýtt,
frá efstu brún að grundum hefir
vorið dalinn prýtt.
í dag er sunnudagur — mín brúður
bíður mín,
og bráðum hljóma klukkur og sól
í kirkju skfn.
Með geislum hennar Sigrún mín
gengur hæversk inn —
hve gullbjart liðast hárið, hve rjóð
er hennar kinn;
sem drotning ber hún faldinn og
fagurt brúðarlín,
við fótskör guðs hún krýpur og
verður konan mín.
Ó, syngið heiðarlóur, og Ijómið
morgunský!
Þvi ljós er hjartans dagur og framtíð
ungra ný.
Þar skírð og fermd við vorum í
von og ást og trú
mun vígja okkur saman hinn gamli
prestur nú.
— Ábænum hennar Sigrúnar glitrar
gluggi hver
og golan út meö hlfðinni morgun-
reykinn ber.
I kvöld við stfgum dansinn með
dalsins æsku þar,
en daginn næsta hefjum störf, þar
eyðibýli var.
III.
Túnvísa.
Hve fagurt er túnið, þá fíflarnir
skína
og fjallgolan puntinum greiðir hár.
Eg ánægður lít yfir árssléttu mína
þar eingresi fegursta bylgjar og gljár,
en móarnir utar mig kalla, kalla,
ó, kæmist eg yfir að slétta þá alla;
þeir biða i álögum, undir er sjóður,
er iðjuhönd breytt fær í gróður.
Er nokkuð hýrara’ en heiðgræn
túnin,
sem heimkynni sveitanna vefja frlð ?
Hve fagurt sýnir þér fjallabrúnin:
friðsæla bæi f dalahiíð.
Hve gamann að teygja þann græna
feldinn
við geisla vorsins og sumareldinn
um fölleit holtin og fúamýrar,
þá fagna dalvættir hýrar.
Frá fiskiþlnginu. A fiskiþinginu,
er háð var f Reykjavík 15 þ. m.
urðu forsetaskifti f félaginu. í stað
Jóns E. Bergsveinssonar var kosinn
Kristján Bergsson, skipstjóri í Reykja-
vík. Á þinginu var og samþ. tillaga
um að haldið yrði áfram einkasölu á
Bteinolfu.
Fréf f ir.
Alþingi Framsóknarflokksmennirnir
allir f báðum deildum báru fram til-
lögu um skipun viðskiftanefndar, til
þess að taka til rsekilegrar athugunar
nú á þinginu viðskiftamál landsins.
Tillagan var feld af meirihlutanum.
En f hennar stað marðrst f gegn rök-
studd dagskrá, þar sem heimilað vár,
að bæta f fjárhagsnefndir þingsins 2
mönnum úr hvorum þingflokki vegna
viðskiftamálanna. Verði það framkvæmt
tekur nefndin væntanlega til meðferðar
kettollsmálið og fleiri meginmál við-
skiftanna. — Þann 20. þ. m. lagði
Klemenz ráðherra fram frv. til fjáriaga
fyrir árið 1925. Tekjur áætlaðar
7.797.100 kr., en gjöld 7 245.647 kr.
Tehjuafgangur áætlaður 551 453 kr.
Hann rakti sundur fjármálaófarnað
sfðustu ára og orsakir gengislækkun-
arinnar, og hann taldi helztar þeirra
of mikla seðlaútgátu á verðhækkunar-
árunum og of mikinn innflutning f
landið móts víð útflutning. Hann taldi
að raunverulegur tekjuhalli á fjárlög-
unum 1920—1922 hefði orðið 6V4
milljón króna. Vegna gengiafallsins
taldi hann að allir tollar og skattar
til rfkissjóðs yrðu að hækka um 25%.
— Flygenrlng bar íram Irv. ura und-
anþágu ftá fiskiveiðalöggjöfinni vegna
Hafnflrðinga þess etnis, að 6 erlend-
um togurum veittist heimild til að
leggja upp afla sinn í Hafnarfirði.
Frumvarpið íéll. Bjarni frá Vogi heflr
vakið upp frumv. sitt frá sfðasta þingi
um að gera mentaskólann að samfeld-
um lærðum skóla. Talið hafa lítið
íylgi. — Skeyti hafa komið frá Norð-
mönnum um kettollsmálið. Kröfur
þeirra gegn tilslökun á tollinum eru
taldar mjög harðar, en eigi er gefið
upp, hverjar þær eru. Lokaðir fundir
eru haldnir um málið. Tryggvi Þór-
hallsson ber fram frumvörp um að
iþyngja verzlun og atvinnuvegum Norð-
manna hér við land með geysiháum
skatti á síldarverksmiðjum, 20 króna
lestargjald af skipum þeirra og sér-
stakan vörutoll á vörum þeim, er
Norðmenn flyija einkum hingað til
lands. — í fyrradag sendi 20 manna
flokkur í þinginu tilkynningu til blað-
anna um, að fast skipulag væri komið
á myndun þingflokksins og honum
geíið nafnið íhaldsilokkur. í
stjórn flokksins eru: Jón Þorlaksson
(torm.j, Jón Magnúason og Magnús
Guðmundsson. Helztu dagskrármál
eru: Sparnaður á rfkisfé, með því að
fresta verklegum framkvæmdum og
fækka embættismönnum. Tr. Þ. ber
fram frv. um að sameina biskupsem-
bætti og guðfræðiprófessorsembætti
við háskólann. Enn hafa komið fram
frv. um að leggja niður prófessors-
embættið f hagnýtri sálarfræði við há-
skólann og grfskudósentsembættið
(Guðm. Finnb. og Bjarni frá Vogi),
Þessi frv. komu fram f Nd. í Ed ber
J. J. fram frv. um að sameina emb. f
hagn. sálarfræði og Landsbókavarðar-
embættið og annað um að leggja
niður grískudósentsembættið en fá
núverandi dósent embætti við Menta-
skólann og haldi báðir fullum launum.
Enn bér J J. fram frv. um að tak-
marka tölu nemenda f Meutaskólanum
svo að eigi verði fleiri en 25 í hverj-
um bekk.
Mývatn er váfalaust mesta veiði-
vatn landsins. Heita má að úr þvf sé
uppburðarafii allan ársins hring eink-
um á einum bæ ofanvið vatnið, Geit-
eyjarströnd. Einsdæmi mun það f
mannaminnum að héðan frá Eyjafirði
hefir verið sóttur silungur til Mývatns
nú i vetur. Þeir bændur Stefán Stefáns-
son á Varðgjá og Bergsteinn Kolbeins-
son f Kaupangi sendu sinn manninn
hvor með hesta og sleða og komu þeir
með um 1200 pund silungs. Vfða að
úr fjærsveitum er nú á þessum árum
sóttur silungur til Mývatns til dæmis
austan úr Vopnafirði.
Sigursteinn Gunnlaugssoq, öku-
manns, hér í bænum, sá er getið var
um hér f blaðinu að hefði fallið niður
af húströppum og slasast, lá lengi
hættulega veikur, svo að tvfaýnt var
um lff hans, en er nú á góðum bata-
vegi.
Dánardægur. í gær lézt á heimiii
sínu hér f bænum Kristín Eggerts-
dóttir, veitingakona, eftir langvarandi
vanheilsu. Hún þótti að ýmsu merk
kona og gáfuð og sat um skeið f
bæjirstjórn Akureyrar. í nótt andaðist
f sjúkrahúsinu hér í bænum Lúðvík
Sveinsson, ungur maður, úr taugaveiki.
Á víðavangi.
EyjafjaröarKosningin. »Svo fór
um sjóferð þá* að hún var gild tekin.
»íslendingur< gerði sig svo merkilegan
( þvf máli, að hann tók alls ekki til
greina, að yfirkjörstjórn sýslunnar gaf
Bernh. Stefánssyni kjötbréf, heldur
taldi óútkljáð um gildi kjörseðla og
úrslit kosningar milli hans og S'eíáns
í Fagraskógi. Of kunnugt er orðið
um frumhlaup Sigurðar Ein. Hlfðar,
dýralæknis og hvflíka útreið hann hefir
fengið. Loks hefir þingið slegið niður
öllum þessum gauragangi og tekið
kosninguna gilda með 26 samhljóða
atkvæðum. Meirihluti þingsins hafði
pólitfska aðstöðu, til þess að ógilda
kosninguna og ætti því úrskurður
þess að sýna, að þau atriði, er ork-
uðu tvfmælia um gildi kosningarinnar,
voru svo lftilvæg, að þingið gat ekki
tekið þau til greina, heldur nægðu
þau, til þess eins, að gera ísl. og
Sig. Ein. Hlíðar kampagleiða og til
þess að draga fram lffið f von sumra
manna um endutkosningu, — von,
sem nú er þó loksins dáin.
Fulltrúafundir. Þingmenn Eyfirð-
inga brugðu í vetur út af þvf, sem
venja hefir verið, að þeir færu um
sýsluna og héldu vfða þingmálafundi.
Til þess bar f fyrsta lagi, að mál
höfðu verið þrautrædd á kosninga-
undirbúningsfundunum sfðastliðið haust.
í öðru lagi komu stjórnarfumvörpin
þeim ekki f hendur fyr en sama dag
Hjer með tilkynnisí vinum
og yandamönnum að Lúðvík
Sveinsson andaðist á Sjúkra-
húsinu aðfaranótt 28. þ. m.
Aðstandendur.
Og þeir stigu á skipsfjöl á ieið til
þings, ef þeir hafa fengið þau þá,
sem talið var eigi óliklegt, én ekki
víst. Þeir tóku því það ráð, að efna
til fundar með þar til kjörnum full-
trúum úr hreppnm sýslunnar og var
fundurinn haldinn á Akureyri 26. jan.
s. 1. eins og fundargerð f 6. tbl. Dags
ríýnir. Nú tókst miður með undirbún-
ing þessa fundar, en æskilegt hefði
verið. Sumir hreppar þóttust ekki,
vegna fjarlægðar, geta sent fulltrúa á
fundinn. Sumir sintu ekki málaleitun
þessari vegna tómlætis. Enn aðrir ekki
vegna þverúðar. Samt komst fundur-
inn á og fór vel fram, en gat aðeins
talist gilda fyrir 5 hreppa sýslunnar.
Þverúð sú, er kom fram gegn þessu
fundarhaldi, mun að sumu hafa verið
risin af þvf, að hreppsbúar hafi al-
ment viljað fá þingmennina á fund til
sín, Sumstaðar mun verra hafa valdið.
Á fundinum sjálfum kom fram megn
andúð gegn fundarhaldi þessu bjá
mönnum, er eigi voru þar fullcrúar.
Hreppstjóri einn, sem sumir hafa viljað
telja vel gefinn mann, en sumir ekki,
var þar staddur. Mælti hann mjög
gegn slfku fundarhaldi og taldi það
olbeldi við kjósendur, að fyrirmuna
þeim að neyta atkvæðisréttar sfns á
fundinum og krafðist, að fá að greiða
atkvæði. Var honum þá bent á sérstakt
form og eðli fulltrúasamkomu, eins og
þessarar, en hann vildi ekki láta sann-
lærast. Var honum bent á að fara til
Alþingis og heimta að fá að greiða
atkvæði þar. Þingmaðurinn Bernh.
Stefánsson, sýndi ljóslega fram á fjar-
stæðuna Og Ólafur Þorsteinsson á
Ktossum hélt snarpa ræðu gegn þeim
mönnum, sem gerðu þannig tilraun
að trufia fundinn. Loks lét sýslumað-
urinn, sem þarna var staddur, uppi
álit sitt um slfks fundi og sýndi fram
á, að þeir hefðu áður tíðkast mjög og
ættu fullan rétt á sér. Við þetta alt
sefaðist hreppstjórinn og aðrir þeir,
sem reyndu til að gera þarna upp-
nám. — Væri ástæða til að hugleiða,
hvort ekki væri rétt að taka upp slíkt
form á þingmálafundum, Fyrírkomu-
lagið mætti hugsa sér á þessa leið:
Hccer hreppur héldi íund, þar sem tekin
væru til umræðu þingmái og ákveðin
tala fulltrúa kosin. Þingmennirnir skiftu
með sér sýslunni og mættu á þessum
fundum f sfnum parti sýslunnar hvor
og til skiftis í hvorum parti frá ári
til árs. Þeir innleiddu málin, skýrðu
frá stjórnarfrumvörpum o. s. frv. Hinir
kjörnu fulltrúar kæmu sfðan saman á
fund með báðum þingmönnunum og
sá fundur gerði ályktanir f málum og
afgreiddi þau til Alþingis. Mætti virð-
ast, að með slikum hætti væri fremur
trygt, að málin yrðu hugsuð og rædd
betur og gaumgæfilegar en orðið getur