Dagur - 02.10.1924, Page 3
40. töl.
DAQUR
Gagnfræðaskólinn
veröur settur í dag kl. 2 e. h.
Skólameistari talar um aðsókn-
ina að skólunum.
Á víðavangi.
Rœktun bæjarlandsins. Einhver
»LárQ8< ( 36. tbl. Verkamannsins
gerir athugasemd við grein Dags:
»Ræktun bæjarlandsins og verkamenn.<
Að sumu leyti felst . hann á skoðanir
Dags, en er honum þó ósammála í
hofuðatriðinu. Raunar er það mjög
skiljanlegt og mun Dagur ekki um
það fist. Verkamaðurinn vill að bærinn
rækti landið og gerist mjólkursali.
Er sú krafa f samræmi við stefnu
blaðsins, kommunisman. En Dagur
hefir mesta trú á þvl, að skifta landinu
réttlátlega milii einstakiinga, á erfða-
festu til ræktunar, en með aðstoð
samtakanna. Meginið af því landi, sem
þegar er komið í fulla rækt, hafa
einstaklingar ræktað. Það mun fyrst
um sinn verða heilladrýgst að hver og
einn eigi hlut sinn undir sfnum eigin
manndómi, en að réttlæti sé trygt
með góðum lögum og yfirtroðslur
tyrirbygðar með skipulagsbundnum
samtökum. í sambandi við það sem
L&rus segir, að eigi sé starfandi að
jarðabótum á þeim tfmum, sem verka-
menn skorti atvinnu hér f bænum, má
benda á ritstjórnargrein í sama blaði:
»Hvað á að gera,< þar sem sýnt er
fram á, að nú f september standi
menn og konur hér f bæ atvinnulaus
og næstum tómhent eftir sumarið. Þ6
tfðarfar sé stirt, er jörð þó ófrosin enn
þann 18. sept., þegar þetta er skrifað.
Hér er vitanlega greinilegur stefnu-
munur miili blaðanna, en um það er
ekki að fást. Bæði blöðin hafa fullan
rétt til sinna skoðana.
Jónas Hallgrímsson. Undariegur
smekkur má það vera og mikil and
leg fátækt, sem hefir valdið þ;f, að
íslendingur prentar upp úr ritinu
»Blöndu< frásögn eins samtfðarmanns
jónasar Hallgrfmssonar skálds um þ&ð,
að hann, ástsælasta skáld íslendinga,
hafi fyrir hirðuleysi maðkað lifandi.
Kunnugt vár það áður, að Jónas var
annmarkamaður eins og oft vill verða
um alburðamenn. En fegurð ljóða hans,
stærð andans, sem hefir gefið okkur
skáldverk hans, hefir dregið milda
blæju yfir þá misbresti og gefið okkur
hugþekka mynd af »listaskáldinu góða.<
Nú hefir Hannes Þorsteinsson íundið
þennan óþverra og komið honum
svo fyrir, að hann verði ævarandi. Og
ritstj. ísl. liggur eigi annað þyngra á
bjarta, en peðra þessum sama óþverra
út f blaði sfnu.
Kærkomin yfirlýsing Valtýr
StefánsBon, sá sem þjóðin kostaði
eriendis, til þess að nema búfræði
og átti að verða áveitufræðingur, en
sem nú er orðinn pólitfskur verzlun-
arfræðingur við Mbl. gefur yfirlýsingu
f Mbl, 22. ágúst. Birtist hún f grein
til Tryggva Þórhallssonar og hljóðar
þannig: »Sezt þú þá f mfnu áliti á
'153
bekk með lagsbróðir (sic) þfnum Jónasi
Þorbergssyni, er ausið hefir óhróðri
um mig f blað sitt undanfarna mán-
uði, með þeim ódæmum, að öll virð-
ing og alt tillit til mannsins er horfið
frá minni hlið. Verður hann að láta
sér lynda þá meðferð héðan í frá, að
hann sé hvorki virtur viðlits né svars
frekar en húsdýrin, sem ráðast að
vegfarendum f bæjartröðum*. Ritstj.
Dagsjhefir ritað f blað sitt eina grein,
sem snerti Valtý ail mikið og birtist
húnf tveimurblöðum nr. 26. og 27. þ.
á. Þetta er sá óhróður, sem Dagur
hefir auslð á Valtý »undanfarna mán-
uði<. Af þessu sést hversu létt Valtý
veitist, nú orðið, að segja ósatt. Rit-
stj. Digs vill láta þess getið, að
honum er þessi yfirlýsing kærkomin.
Af ástæðum, sem á var bent í fyrr-
nefndri grein, er Valtýr sá af and-
stæðingunum, sem ritstj. Dags hefir
einna minsta tilhneigingu, til þess að
meta nokkurs. Hann mun þvf láta sér
vel iynda, þó Valtýr slíti ekki bana-
kringlunni við það að horfa um öxl
til sfn.
»Refjasamf«. ísl. segir að Dagur
hafi talið Pöntunaríélag Rauðasands-
hrepps hafa verið refjasamt. Dagur
sagði að það hefði farið fram á upp-
gjöf skulda hjá Sambandinu. Úr þvf
að ritstjóri íil. efast um að þetta sé
rétt, ætti hann að kalla upp í sfma
forstjóra Sambandsins. Myndi hann
þá fá fullnægjandi upp'ýsingar, eins
og hann varð að taka á móti um
»Ullarsölu Saœbandsins<, — og um
leið komast bjá þvf, sem honum er
svo ákaflega mótstæðilegt! — að
»segja ósatt um Sambandið<.
Símskeyti.
Rvík 25. Sept.
Þýzkur vélbátur kom til Orinda-
víkur í fyrradag og skyldi þar eftir
mann. Hvarf siðan aftur vestur
með landi Leikur grunur á áfeng-
issmyglun. Er Fylla nú að leita
bátsins, en hefir ekki fundið hann
ennþá.
Samningar hafa tekist um kaup
háseta á togurunum. Hækkar kaup-
ið um 12% og lifraþóknun 20%.
Samningurinn gildir frá 1. okt. fyrir ár.
Rvik 26. Sept.
í fyrradag var upplesin á alþjóða-
fundinum fundarbók undirnefndanna
sem áttu að gera tiilögur um af-
vopnun og ráðstafanir til varanlegs
friðar. Fundargerðin telur strfð í
allri mynd ólöglegt, allar miskliðir
skulu útkljást af gerðardómi; óhlýðn-
ist ríki honum skuiu öll önnur ríki
þjóðarsambandsins skyld til þáttöku
i samtökum gegn viðkomandi ríki;
Smárfkin vilja fá nánara ákveðið
um, hvernig hjálp þeirra gegn frið-
arspilli skuli háttað; vilja leggja
fram fé, en ekki herafla til mótvarna.
n.mj-u\r~inrr-0
Stefán Pálsson skipstjóri andaðist
í gær í Vestmannaeyjum.
Sprúttskipið ófundið.
Rvík 1. okt.
Tyrkir hafa ráðist inn yfir landa-
mæri Mesopotamiu og vopnavið-
skifti hafist milli þeirra og hers Breta
þar. Miklar ófriðarhorfur. Styrjaldar-
efnið er yfirráðin yfir olíuhéraðinu
Moscul, sem Tyrkir áttu áður, en sem
síðan f ófriðarlok hefir verið undir
Bretaveldi. Aiþjóðasambandið átti
að skera úr um framtiðaryfirráð Mos-
cul og málið liggur fyrir núverandi
fundi í Oenf. Alþjóðasambandið get-
ur ekki skakkað Ieikinn, þar eð Tyrk-
ir eru utan sambandsins.
Þýzkir þjóöernissinnar þar krefjast
þátttöku í ríkisstjórninni. Bent er á
Herzt flokksforingja sem ráðherra-
efni.
Fréttastofan.
Fr éttir.
Tíðarfarið. Um miðja sfðustu viku
gerði þurka í tvo daga. En þeir not-
uðust misjafnlega. Sumstaðar gerði
hina mestu úrfellisskúr á föstudag-
inn, svo að hún sligbleitti áður hálf-
þurt hey. Slðsn gerði krapahryðjur og
fulla vetrartfð. Sumir bændur hafa
náð heyjum sfnum mestum eða öllum,
en mjög margir eiga mikil hey úti og
eru þau nú undirlögð snjó og klaka.
Stór fsbjörg hafa komið upp að Vest-
fjörðum. Tfð er nú afar vanstilt og
erfitt um að segja, hversu vetur fer
að, en horfur eru ekki góðar.
Bókasa'nið. Bókavörður hefir beð-
ið blaðið að geta þess að bókasafnið
verði, eins og undanfarið, opið til út-
lána á mánudögum, miðvikudögum og
föstudögum kl. 5—7 sfðdegis.
Gullsmiðir tveir, Guðjón Bern-
harðsson og Aðalbjörn Pétursson eru
komnir tii bæjarins og hafa opnað
vinnustofu sfna f kjillara íslandsbanka
norðanmegin.
Harðjaxl heitir bláð, sem nýlega
er farið að gefa út f Rvfk. Ritstjóri
blaðsins og ábyrgðarmaður er talinn
Oddur Sigurgeirsson formannssonur,
skáldasonur og sjómaður hinn sterki
af Skaganum. Blaðið er mjög fyndið
og vel ritað.
Kuldar. hafa verið svo miklir f
Eaglandi allan ágústmánuð að alment
hefir orðið að leggja f ofna í Lund-
únaborg allan mánuðinn. Hin óvenju-
lega mikla eldiviðareyðsla olli þvl að
einn daginn var heimsborgin að verða
kolalaus og hækkuðu kolin þá f verði
um 2 shillings 6 pence smálestin að
þvf er »Politiken< segir. — Vana-
lega hefir verið hrakviðri allan mán-
uðinn, en þegar rigningunni hefir slot-
að hefir það stundum verið með frostil
Slysfarir. í sfðustu göngum f
Þingeyjarsýalu voru fjórir ungir menn
LeiKfimisskór
fást í skóverzlun
Hvannbergsbræðra.
úr Köldukinn að ganga torfærur aust-
an megin f Kinnarfjöllum. Þverhnýpt
hamrafjöll ganga þar f sjó fram og er
eigi fært sumstaðar nema að ganga
fjöru fyrir forvaða og er ávalt nokkur
hætta, ef sjór er bólginn. Óvenjumik-
ið brim var og hugðust þessir fjórir
piltar að sæta lagi, að hlaupa yfir
torfæru milli ólaga. Hugðu þeir sig
örugga fyrir sjó, þó stóröldur riðu að-
En svo fór að ólagið skolaði þeim
öllum af kletti þeim, er þeir stóðu á
og druknuðu tveir þeirra, en tveir
náðu aftur landi og komust þrekaðir
til bæja hvor sfnu megin við forvað-
ann, Naustavfkar og Bjarga. Mennirnir
sem druknuðu, voru Jónas Vilhjálms-
son frá Torfunesi og Þiðrandi Frið-
mundarson frá Skál. En af koroust
Ragnar Guðmundsson frá Gvendar-
stöðum og Batdur Baldvinsson frá
Ófeigsstöðum.
Frá SfórsfiiKunni. Stórtemplar
Brynteifur Tobiasson fór að heiman
7. ágúst s.l. f ferð kringum land f
erindum Stórstúkunnar. Hann kom aft-
ur 5. sept. Sérstaklega var förinni
heitið til Rvfkur, en jafnframt fann
hann að máli umboðsmenn sfna, kynti
aéz ástandið og aadirbjó atolaaa
stúkna á nokkrum stöðum. ÍReykjavfk
átti hann viðtal við helztu stórmenni
þau, er hafa framkvæmd áfengislög-
gjafarinnar með höndum. Dagur hefir
fengið hjá Stórtemplar þessar helztu
fréttir úr förinni: Forsætisráðherra gaf
honum yfirlýsingu um það, að Spánar-
samningarnir myndu á þessu ári verða
birtir f Stjórnartfðindunum. Kemur þá
í ljós, hver nauðsyn hefir borið, til að
opna vfnsölubúðir vfða á iandinu.
Eigi kvaðst forsætisráðherra treysta
sér, til að loka áfengisverzlun rfkisins
á Siglufirði þrátt fyrir eindregin til-
mæli Alþingiskjósenda á Siglufirði og
útgerðarmanna norðan lands. Virðist
af þvf, að núverandi og fyrv. forsætis-
ráðherrar lfti nokkuð svipað á ákvæði
sámningsins. Enda virtist Stórtemplar
óttinn við Spánverja vera mikill á
hærri stöðum. Gannar Egilsson hefir
enn að nýju verið sendur suður á
Spán, til þess að greiða fyrir fisksölu,
aðþsfer talið er. Hann er hvorttveggja
f senn, konsúll Spánverja hér á landi
(( Rvfk) og fulltrúi íslendinga á Spáni.
Var Stórtemplar trúlaus á það, að
bannmálinu stæði gæfa af þessari tvö-
földu þjónustu þessa þekta andbann-
ings. — Talið er líklegt að stjórnin
leggi — eftir tillögu landlæknis —
fyrir næsta þing frv. um að niður falli
heimild f lögum frá 24. nóv. 1917
til handa læknum og lyfsölum að selja
áfengi eftir lyfseðlum. Er það f sam-
ræmi við ályktun síðasta læknafundar.
Yfirleitt taldi Stórtemplar Regluna vera
f framsókn, enda mikla þörf þess, þvf
að vfða væri ilt ástand f áfengismál-
inu, og einkum á Siglufirði.