Dagur - 20.11.1924, Page 3
47. tbl.
DAOUR
181
(iyw>ivwvWi»V<'V»^^VM»WwvMV»ý»
Danmörku kallast þeir vinstri- og
hægrímannaflokkur, í Englaadi Liberals
og Conservatives o. s. frv.
Þessi flokkaskiíting á rsetur sínar í
sálarlffi manna. Afstaðan er ekki tek-
in með tilliti tii dægurmála þeirra,
sem eiga sér grunna rót og skamman
aldur. Afstaðan til þjóðmálanna er þá
tekin fyrir áhrif innra ástands; hún
er afleiðing sérstakrar skapgerðar
mannanna. Og þeir, sem eru sálarlega
skyldir, standa saman. Þennan sálar-
lega mun manna í stjórnmálaafskiftum
mætti ef tii vill gera skfljanlegan, með
þvf að heimfæra þar hina djúptæku
samlfkingu Einars H. Kvarans um
>vorsálir« og »haustsálir<.
Þessi er f raun réttri hin eðlilega
flokkaskipun og sú, sem ber vott um
mestan þroska: — að afstöðunni til
ailra mála ráði ein meginregla, sjálfri
sér samkvæm og' sprottin af lffsskoð-
un mannsins. Slfkum þroska fylgir alt
af meiri viðsýn og skarpskygni á
meginatriðum máianna, heldur en ef
viðhorf mánnsins til málanna er bund-
ið við einkaástæður, hagsmbni og
minniháttar atvik. Átökin í þjóðmál-
unum verða heilli og sterkari.
(Meira).
F r é 11 i r.
Jarðeldur er nú talinn vera uppi
l Vatnsjökli. Berast talsverðar fréttir
um að hinir og aðrir hafi séð eidinn
bæði frá Mývatnssveit, Vopnafirði og
vfðar. En eigi virðist mega ráða af
eldíréttum þessum, að mtkii biögð séu
að eldinum.
Míslingarnir. Eigi hefir þeirra Orðið
vart hér i bænum nema i áður um-
getnum, tveimur húsum. Attur á móti
hafa þeir borist til Mývatnssveitar.
Hafði maður úr Skútustöðum gist á
Hótel Oddeyri um það bil, sem Ólafs-
firðingar voru að afhenda Akureyrar-
búum þessa hýru. Síðan hatði maður
þessi verið á skemtisamkomu f Mývatns-
sveit, rétt áður en hann veiktist. Eru
þvf miklar lfkur til, að veikin tari um
alla sveitina.
Tíðarfarið hefir verið dálftið um-
hleypingasamt sfðustu viku. Hafa ver-
ið nokkrar úrkourur og kuldakast
gerði með snúningi til útsuðurs.
Milljónamæringur ? Það þykja
heldur en ekki tiðmdi, sem nú berast
hingað um, að bóndi einn á Fljóts-
dalshéraði hafi fcngið tilkynningu um
að hann hafi erft fé, sem akiftir mill-
jónum króna, f Amerfku. Segir sagan
að bóndinn búist nú til vesturfarar
og hafi sér til aðstoðar Magnús Gfsla-
son sýslumann á Eskifi'ði. Er rétt að
trúa varlega þessum BÖguburði.
Ragnar Ólafsson fór með O.önu
suður til Reykjavikur fyrir hönd bæj-
srstjórnarinnar, til þess að reyna að
fá lán til rafveitunnar. Er tilætlunin
sú að nota það lán til greiðslu á láni
rafveitunnar við Friðriksbergbankann
f Kööfn. Þvf við það myndi bærinn
græða álitlega fúlgu, vegna gengis-
munar.
Dánardœgur- Látinn er 7. þ. m.
Pétur Halldórsson verzlunarmaður hér
f bæ, vel látinn maður. Hann var
nokkuð við aldur; hafði hann lengi
verið utanbúðarmaður við verzlun
Tuliniusar. Þá er og látinn að heimili
Bfnu,Eyrarlandsvegi 19 , héribæ, ekkjan
Quðrún Stefánsdðtilr frá Kollugerði,
öldruð myndarkona.
Helgi Kristjánsson heitir maður,
sem hefir lengi verið f sjúkrahúsi Ak-
ureyrar. Hann hefir nú unnið talsverðan
sigur á veiki sinni, svo að hann er
nú farinn heim úr sjúkrahúsinu. Er
hann nú kominn á það stig, að eigi
þarf að óttast sýkingu af hans völdum.
Helgi er listfengur maður f höndunum.
Hann skrifar skrautritun svo, að mjög
er fágætt. Hafa bæjarbúar séð raikið
af skrift hans. Hann auglýsir nú að
hann taki að sér vélritun og skraut-
ritun. Heilaóskaskeyti, afmælis jóla-
og önnur tækifæriskort eru meira
virði þannig gerð. Áritun á bækur og
margt fleira af þvf tæi er vel vert
þeirrar litlu borgunar, er Helgi tekur
fyrir verk sfn Enn ber að gæta þess,
að skylt er að sinna þeim mön um
nokkuð, er þrátt fyrirniðurbrotna starfs-
orku leitast við að verjsst þvf, að »verða
úti«.
Símskeyti.
Rvfk 14. nóv.
Járnbrautaverkfallinu i Austurríki
er lokið.
Daglegar ryskingar á strætum
Rómaborgar. Útlitið hið alvarlegasta.
Þingið hefst innan skams. Æsingar
magnast Mussoline talinn reiðubú-
inn til að iýsa yfir einvaldssijórn.
Saltskipið nSonjs,* 1900 smálestir
að stærð, strandaði í innri höfn f
Vestmannaeyjum, i austan roki og
foráttubrimi. Sleit upþ marga báta,
einn sökk. Óvfst um skemdir á
skipinu sjátfu.
Rvík 15 nóv.
Fullnaðarúrslit bresku kosning-
anna kunn. ítiaidsfiokkurinn hefir
413 þingmenn, verkamenn 150,
frjálslyndir 40, stjórnarskipulags-
sinnar 7, utan flokka 5.
Pólski rithöfundurinn, Wadislov
Reymond hefir fengið bókmenta
verðlaun Nobels, fyrir skáldsögu, er
hann reit um lif pólskra bænda.
Stressmann, utanríkisráðherra Þjóð-
verja, hefir f ræðu sagt, að Banda-
menn hafi uppfylt Lundúnasamning-
inn.
Sfmað frá Vopnafirði, að paðan
hafi sést glögg leiftur i suðvestri.
Taiið benda til að eldur sé uppi.
Þrir vinsalar f Reykjavík dæmdir,
fyrsti i 1000 króna sekt og 30 daga
fangelsi; annar f 1500 króna sekt
og 30 daga fangelsi, og sá þriðji f
2000 króna sekt og 45 daga fangelsi-
Út af bruna hússins i Hverfisgötu,
hafa tveir menn verið dæmdir fyrir
áfengisbrugg. Annar i 500 króna
sekt og 30 daga fangelsi og hinn f
1000 króna sekt.
Axel Tulinius skipaður portu-
galskur konsúll i Reykjavik.
Rvík 16. Nóv.
Verzlunarsamningatilraunirnar milli
Þjóðverja og Frakka eru strand-
aðir i bili. Þjóðverjar krefjast
að 26% útflutningsgjaldið sé af-
numið. Télja það ólöglegt síðan
Dover samþyktin komst á. Frakkar
telja hann löglegan samkvæmt
friðarsamningunum.
Mótstaðan gegn Mussolineharðnar.
Skærur daglega. Mussoline treystir
á herinn. Stjórnarfarsbreyting talin
likleg á næstunni. Hræðilegir jarö-
skjálftar á ítalfui Um 300 þorp
gereyðilögð og fjöldi manna hefir
látið lífið og limiest.
Hræðilegir eldsvoðar f útborgum
New York. Upptök eldsins frá
saltpétursverksmiðju. 35 verksmiðjur
og fjöldi íbúðarhúsa brunnið. ‘2000
fjölskyldur húsnæðislausar. Fjöldi
fólks hefir limlest og látið lifið.
Kveðinn upp dómur I sjóðþurðar-
máli vinverslunarinnar. Báðir hinna
ákærðu dæmdir, annar i 900 króna
sekt og 40 daga fangelsi, hinn i
900 króna sekt og 30 daga fangelsi.
Dómurinn skilyrðisbundinn. Tveir
hásetar á íslandi grunaðir um vfn-
smyglun; sitja i gæsiuvarðhaldi, en
þver neita. Vín fanst ekki, rannsókn
heldur áfram. ÖII skipshöfnin á
»Kitchener« yfirheyrð, en ekkert
nýtt komið fram i málinu. Skip
stjórinn enn i gæsluvarðhaldi. Hafn-
argarðar í Vestmannaeyjum Iöskuð-
ust töluvert i austan storminum.
»Sonjafl með gat á botninum.
Rvtk 17. Nóv.
Ráðstefna hófst í Moskva á Föstu
daginn var um verslunarsamninga
Rússa og Þjóðverja.
»Earl Kitchener" dæmdur í 30
þús. króna sekt. Skipstjórinn í
þriggja mánaða einfalt fangelsi.
Skipstjórinn hefir skotið málinu til
Hæstaréttar.
Rvik 18. nóv.
Áfengið hefir fundist f íslandinu;
fyrst 100 litrar f kassa f gær, hitt i
dag.
Skipbrotsmennirnir af Terneskjær
eru á leið til Reykjavikur. Skipið er
sagt næstum þvi á kafi f sjó.
Oeir reynir að ná Sonju á flot
með næsta stórstraumsflóði.
Botnvörpungarnir afla vel Sterl-
ingspundið er nú kr. 2840.
Rvtk 19. nóv.
Enski botnvörpungurinn Waldorff
hefir verið dæmdur f 4000 króna
sekt fyrir ólöglegan veiðarfæraum-
búnað.
Hásetarnir á íslandinu, er settir
voru í gæzluvarðhald, hafa játað sig
eigendur áfengisins, sem fanst i
skipinu. — Sögusagnir ganga um,
að komist hafi upp tollsvik, þegar
vöruskoðun fór fram f fslandinu,
vegna smyglunarinnar. Óvist hvort
satt er. — Einn vinsali enn dæmdur
i Rvik i 1000 kr. sekt.
Bretar tilkynna að þeir þoli engan
undirróður af hálfu Rússa í brezkum
löndum.
Fréttastofan.
A víðavangi.
»Brögð eru að þá barnið finnur*.
íslendingur 7. nóv. siðastl. birtir svo-
hljóðandi smágrein:
»Nýjan mælikvarða
hafa Reykvfkingar fengið fyrir því,
hvernig skopleikendur Leikfélagsins
leysa hlutverk sfn af hendi, og það er
— hvort og hvernig Jón Magnússon,
forsætisráðherrá, hlær. (Sjá Morgun-
blaðið 26. f. m.) Skyldu þá sorgar-
leikendurnir ekki verða metnir eftir
þvf, hve mörg tár streyma niður eftir
kinnunum á honum? Það er hand-
hægt fyrir listdómarann að þurfa ekki
annað en snúa sér að svölunum og
einblfna á andlit Jóns.«
Flugumenska. Ekkert, sem gerst
hefir í fslenzkum stjórnmálum slðustu
árin, ber, á sér slfkan flugumensku-
brag sem blaðútgáfa Magnúsar Guð-
mundssonar. Falsháttur og yfirdreps-
skapur hefir atað næstum hverja sfðu
þess blaðs frá byrjun. Blaðið þóttist
eiga að vinna endurbófastarf f fslenzkri
pólitfk, einkum bændanna. Endurbóta-
starfið var f þvf fólgið, að hálffylla
flest btöðin með lognu nfði á einn
mann, að vefja úlfhéðni að höfði
bænda, til þess að giepja þeim sýn
um hreinar stefnur, að grugga hvert
mál og fiska f gruggugu vatni, að
taka með annari hendinni það, sem
gefið var með hinni, að látast bera
fyrir brjósti hag bænda, en vera á
laun að ofurselja þá burgeisa- og
braskaravaldi Reykjavfkur. Alt þetta
var glöggskygnum mönnum Ijóst, en
nú hefir það sannast. Leiguþjónninn
hröklaðiat frá »Merði« og mun eigi
hafa þózt fara með nægilegri sæmd
frá þeasu starfi, þvf nú hefir hann
hafið uppljóstranirnar Kemur þá f ljós
hverjir eru eiginiegir feður og rithöí-
undar blaðsins. Hann neitar að hafa
verið stjórnmálaritstjóri blaðsins og
játar um leið, að hann hafi verið
breiddur eins og leppur ofan á laun-
skrif Magnúsar Guðmundssonar og
annara þeirra manna, er blaðið hafa
ritað Um leið og Kristján Albertsson
tók við ritstjórninni, iýsir hann yfir
þvf, að hann ætli einnig að vera lepp-
ur og að blaðið sé gefið út af mið-
stjórn íaaldsflokksins, Jóni Þorláks-
syni, Magnúsi Guðmundssyni, Ólafi
Thors, Jóni Ólafssyni útgerðarm. og
Guðjóni Guðlaugssyni. Þessir eru þá
pólitiskir sálusorgarar bænda. Verður
þá eigi lengur dulin flugumenskan,
sem staðið hefir á bak við þetta blað.