Dagur - 19.03.1925, Qupperneq 1
DAGUR
Kemur úf á hverjum flmtudegi.
KoBtar kr. 6.00 árg. Qjalddagi
fyrlr 1. júli. Innhelmtuna annast,
Arnl Jóhannsson í Kaupfél. Eyf‘
VIII. ár.
Akureyrl, 19. marz 1025.
aforeiðslan
cr hjí Jónl !>. Þðr.
Norðurgötu 3. Talsimi 112
Uppsögn, bundin vlð áramót
lé komln til afgrelðilumannt
fyrlr 1, dei,
12, bl«8.
Tóbakseinkasalai).
I.
Eitt af böfuðmálefnum íhalds-
flokksins í þinginu, sem nú situr,
er að ganga milli bols og böfuðs
á tóbakseinkasölunni. Til þess að
prófa málstað flokksins skal gerður
hér samanburður á tekjum rikissjóðs
af einkasölunni, eins og þær hafa
reynst og tolltekjunum eins og þær
eru áætlaðar I frumvarpi þvl, sem
íhaldsflokkurinn ber fram.
Svo má telja, að árið 1924 væri
tóbakseinkasalan fyrst komin f fastar
skorður. Mætti þvi vænta að tekjur
af henni yrðu framvegis svipaðar
þvl, sem þær reyndust þá. En þær
voru sem hér segir:
Tollur..................kr. 525 000
Verzlunarágóði f rlkis-
sjóö......................— 350 000
Verzlunarágóði f vara-
sjóð.....................- 35 000
Samtals kr. 910 000
Ef tollhækkun sú, sem gekk i
gildi 1. april á árinu, hefði gengið
f gildi í ársbyrjun, heföu tekjurnar
orðið 25 þús. kr. meiri, eða um
935 þús. kr.
Samkvæmt frumvarpi þvf, er fyrir
liggur, eru tolltekjurnar áætlaðar
sem hér segir:
Á tóbaki . . . . kr. 6 00 á kg.
- vindlum og
vindlingum ... — 16.00 - —
Sé gert ráð fyrir svipuðum tó-
baksinnflutningi árlega framvegis,
verða tolitekjurnar þessar:
74.301 kg. tóbak kr.
600 kg..........= kr. 445806
17.583 kg. vindlar og
vindlingar, kr. 16.00= — 281.328
Samtals kr. 727.134
Era það þá rúmlega 200 þús. ftr.
mlnni tekjur en vœnta má, að einka-
salan gefl af sér á nvesta ári og
næstu árum. Til þess að ná sömu
tekjum f rfkissjóð, þyrfti þvf að
hækka tollinn enn meira, eða um
70% á tóbaki og 73% á vindlum
og vindlingum. Yrði hann þá
á tóbaki . . . • kr. 8 50 á kg.
- vindlum og vindl-
ingum ..í..— 1730- —
II.
Hér hefir verið með tölum sýnt
fram á óhjákvæmilegt tjón, sem af
þvf hlytist fyrir rikissjóðinn, ef tó-
bakseinkasalan væri lögð niður nú,
þegar hún er komin á fastan fót.
Tölur þessar verða ekki hraktar, þvi
þær eru teknar upp úr skýrslu um
þennan ríkisrekstur. Og er skýrslan
Iögð fyrir Alþingi.
Hjá tjóni þessu verður ekki komist
á annan hátt, en að hækka toilinn
enn gífurlegar, en frv. íhaldsmanna
gerir ráð fyrir. En þaö myndi hækka
tóbaksverðið að mun. Reksturságóði
af verzluninni 1924, sem var fyrsta
eðlilega viðskiftaárið, var 350 þús,
kr. beint f rikissjóð og 35 þús. kr.
f varasjóð eða samtals 385 þús. kr.
Nú þegar ríkissjóðurinn verður
sviftur þessum tekjum í beinum
verzlunarágóða, þarf hann vitanlega
að fá þær I tollum af þessari vöru-
tegund. Það þart að hœkka tollana,
svo að þeir gefi 385 þús. kr. i rikis-
sjðð fram yfir það sem þeir gefa nú.
En þá er nú eltir að sjá fyrir
verzlunarágóðanum, sem hér eftir á
að renna allur I vasa kaupmanna.
Ekki munu þeir, blessaðir, vera fá-
anlegir, til að reka þessa verzlun
ókeypis fyrir landsmenn. Og þess er
heldur engin von. Stórsalar munu
taka sfn venjulegu stórsölulaun og
smásalar munu hækka álagningu
slna eftir vild sinni og getu. En um
leið verður óhjákvæmilegt að tóbaks-
verðið hækki. Dæmiö er ósköp
einfalt: Verzlunarágóða ríkisins á að
breyta I toll. Tóbaksverðið helzt þá
hið sama. En svo hljóta kaupmenn
að leggja sinn verzlunarágóða þar
á ofan og það verður óhjákvæmileg
hækkun á verði tóbaksins.
III.
íhaldsmenn halda þvi fram i reif-
un máls þessa á þingi, að tolltekj-
urnar aukist við það, að innflutningur
tóbakisns vaxi, þégar einkasalan verði
lögð niður. Það eiga að verða með-
mæli með þessu glapræði, að lands
menn Ieggi i þessa verzlunargrein
stórum meira veltufé en nú gerist.
Innfiutningurinn myndi sjálfsagt
vaxa fyrst í stað, meðan aliur kaup-
mannaskarinn væri að unditbúa sig
til að ná I þessa langþráöu aura af
tóbaksverzluninni. En sú aukning
innflutningsins yrði aðeins fyrst i
stað. En íhaldsmennirnir vona, að
hinn aukni innflutningur fyrst í stað
reynist nægileg blekking I augu
þjóðarinnar og að þegar innfiutn-
ingurinn minkar aftur og um leið
tekjurnar, þá muni þjóðin aftur
verða sofnuð i málinu. Og liklega
reikna íhaldsmenn ekki skakt I
þessu efni,
IV.
Ekki er ástæða til að Ieggja niður
þessa verzlunargrein rikisins vegna
þess, að hún bindi svo mikiö af fé
rfkissjóðs. Sú viðbára hefir oft heyrst
og þótt ákaflega sterk fhalds-rök
gegn einkasölu. Nú er það vopn
falllð úr höndum íhaldsmanna að
þvi er snertir tóbakseinkasöluna.
Samkvæmt áðurnefndri skýrslu Lands-
verzlunar til Alþingis hefir staðið f
tóbakseinkasölunni þetta rekstrarfé
um siðastiiðin áramót:
“Útistandandi skuldir viðskiftamanna
(þar með taldar póstkröfur og
veðskuldir) . . . . kr. 160 000
Tóbaksbirgðir ... - 330.000
Samtals kr. 490.000
Auk þess er nokkuö af fé I sjóði
og hjá bönkum, en á sameiginlegum
reikningi við steinolfueinkasöluna
og hina eldri Ltndsverzlun.
Rekstrarfé þetta erfengið þannig:
Vörulán hjá erlendum viðskifta-
mönnum...................kr. 468 000
Varasjóður tóbakseinka-
sölunnar..................— 65 000
Samtais kr. 533.000
Tóbakseinkasalan er því rekin
eingöngu með vörulánum erlendra
verksmiðja og eigin varasjóði, án
þess að rfkið leggi henni til nokk
urt fé."
Og enn segir í skýrslunni: „Hins-
vegar má telja það vist, að mikið
af þessum erlendu Iánum, sem eru
vaxtalaus, myndu ekki veröa veitt
einstaklingum, og hefði afnám einka-
sölunnar þá i för með sér það, að
mikið af fé landsmanna yrði að
óþörfu bundiðí verzlun með þessar
vðrutegundir.*
Mennirnir, sem nú vilja svifta
ifkissjóð hundruðum þús. kr. verzlun-
arágóöa af tóbakseinkasölunni, eru
sömu mennirnir, sem þykjast ekki
geta á heilum sér tekið vegna um-
hyggju fyrir rikissjóðnum. Sannleik-
urinn er sá, að þegar hagsmunir
ríkissjóðsins og þeirra eigin pyngju
rekast á, veröur rlkissjóðurinn að
lúta I lægra haidi. Á þetta var bent
nýlega I blaöinu og verður enn
gert nákvæmlegar sfðar. — En þessir
sömu menn eru fúsir á að haga
fjárheimtu rikissjóðsins þannig, að
eigi sé hlifst viö aö tina aurana úr
hinum léttari pyngjum iandsmanna.
JARÐARF0R Kristjáns Guð-
mundssonar er ákveðið að farifram
frá heimili hans, Aðalstræti 54 hérf
bænum, Laugardaginn 21. þ. m. kl.
1 e. h.
Afistandendurnir.
S í m s k e y t i.
Rvlk 16. marz.
Forsetskosning á að fara fram <
Þýzkalandi 29. þ. m. Kommúnistar
héldu fund f Berlín fyrir nokkrum
dögum, til að undirbúa kosninguna.
Hlutust óeirðir af, fjðldi manna særð-
ist, 7 voru drepnir.
Frá Peking er sfmað, að Sun-Yat-
sen sé látinn.
Engtendingar dauðskelkaðir við verzl-
unarsamkepni þjóðverja.
Enskur dráttarbátur er lagður af stað
með Villemoes til útlanda.
Emkur Hafnarfjarðartogari var nserri
strandaður f Grindavfk 12. þ. m.
Stýriskeðjurnar slitnuðu. Aðrir togarar
komu til hjálpar.
Lög um skiftimynt og breytingu á
póstlögum afgreidd frá þinginu. Efri-
deild hefir felt frumvarp stjórnarinnar
um hækkun sóknargjalda. Neðrideild
hefir vfsað sjúkratryggingarfrnmvarpinu
frá með rökstuddri dagskrá allsherjar-
nefndar.
Állsherjarnefnd hefir klofnað um
bannlagabreytingarnar. Minni hlutinn,
Árni frá Múla og Jón Kjartansson,
vilja ekki svifta lækna leyfi til að
gefa út áfengisseðla; ekki heldur
heimild millilandaskípa til að hafa
sterk vfn til að veita farþegum. Einnig
vilja þeir ekki svifta ræðismenn ér-
lendra rfkja lagaheimild til innflutnings
á vfni til heimilisnotkunar.
Rvlk 18. marz.
Mótmæli gegn stofnun varalögreglu
voru samþykt á borgarafundi, sem
Alþýðusambandið stofnaði til f gær.
Asgeir flytur frumvarp um hvala-
veiðar. Meginatriði þess eru, að sér-
leyfi til hvalaveiða séu veitt gegn
gjaldi f rfkissjóð. — Tryggi flytur
þingsályktunartillögu um að skipuð
skuli fimm manna nefnd, til að rann-
saka Krossanesmálið. — Breyting á
lögum um fiskiveiðar f landhelgi er
eftir 2. umr. f Nd. á þá leið, að
landsmönnum sé óheimilt að nota
erlend skip til fiskiveiða f eða utan
landhelginnar. Atvinnumálaráðherra
getur veitt undanþágu um tiltekið
árabil snertandi leigu á erlendum