Dagur - 23.05.1925, Side 3

Dagur - 23.05.1925, Side 3
21. tbl. DAQUR 83 f Guðrúi) Jónsdóttir Reykjahlíð. Eins og getið er um á öðrum stað í blaðinu andaðist hún 21. þ. m. Quðrún var elzt hinna merku barnajónslllugasonar i Baldursheimi. Sjáíiur er Jón landskunnur fyrir brautryðjandastarf i sauðfjárrækt. Guðrún sat i foreldrahúsum unz hún giftist Einari Friðrikssyni Por- grímssonar frá Hraunkoti. Ersú ætt mjög fjölmenn og viða greind um norðursýslur. Pau hjón bjuggu Iengi i Svartárkoti og sfðan i Reykjahlið. Eru börn þeirra þeir Reykjahlíðar- bræður Jón, Iiiugi, fsield, Sigurður og Jónas og dætur fjórar Guðtún gift Þorsteini Jónssyni i Reykjahlíð, Þuriður gift Þórhalli Hallgrímssyni i Vogum, Sigtfður gift Kristjáni Júl. Jóhannessyni í Héðinsvík og Marja gift Jóhannesi Jónssyni frá Stöng. Guðrún var fyrir margra hiuta sakir mjög merkileg kona Kunnugir menn vilja telja, að eigi hafi öðru stærra dagsverki verið skilað í Þing- eyjarsýslu. Enginn vissi hana sleppa verki úr hendi eða skifta skapi hversu sem b!és og við hvað sem var að fást. Sívinnandi, síglaðiynd og góð gekk hún um f hinu stóra heimili og veitti því blessun kærleikans og fórn- fýsinnar til hinztu stundar. F r é_H i r. Hjónaband. Sfðastiiðinn sunnudag voru gefin saraan f hjónaband á Möðru- völlum f Hörgárdat af séra Jóni Þorsteinseyni þau ungfrú Siguriaug Margrjet Jónasdóttir (rá Uppsötum og Jónas Þorbergsson, ritstjóri. Heimili þeirra verður framvegis f húsinu Sig- urhæðum á Akureyri. Sigurmundur Sigurðssor), lesknir f Reykdælahéraði hefir sótt um Grfms- nesshérað f ÁrnesBýslu og fengið veit- ingu fyrir þvf. Ftytur hann þangað nú á þessu vori. Verður Sigurmundar mjög saknað f Reykdælahéraði, þvf hann hefir hlotið þar miklar vinsældir. Er hann hvorttveggja hinn bezti lækn- ir og hinn bezti drengur. Tíðarfariö. Öndvegist'ð hefir verið undanfarna daga og grær jörðin nú óðum. Dánardœgur. Guðrún jónsdóttir Itlugasonar frá Bildursheimi kona Ein ars Friðrikssonar f Reykjahlfð andaðist aðfaranótt 21. þ. m Hún var um áttrætt, er hún lézt. Goðafoss kemur f nótt. Með skip- inu kemur utanlands frá Vilbjálmur Þór framkvæmdastjóri K. E. A. og Jón Sleíánsson kaupmaður. Meðal far- þega héðan suður verða fulltrúar á Sambandsfundinn. Bókasafnið. Bókavörður biður þess getið, að .eir sem ekki hafa enn skil- að bókum safnsins þrátt fyrir ítrek- aðar áminningar, mega búast við að bækurnar verði sóttar heim til þeirra og á þeirra koBtnað Bókum má skila til bókavarðarins sjálfs á Sigurhæðum eða Þórðar Guðmundssonar í Sam komuhúsi bæjarins. A víðavangi. Tilbúin unglinga og drengjaföt, ódýr og vönduð. Kaupfél. Eyfiiðinga. >Lengi getur vonf versnaö.« Sigurður Arngrfmsson ritstjóri Hænis hefir ritað langa grein í blað sitt 2. maf þ. á. til þess að hella úr skálum reiði sinnar yfir ritstjóra Dags. Orsökin er sú, að Dagur hefir einstöku sinnum gert meinlaust gýs að þessum vesæling fslenzkrar blaðamensku. Óhugsandi er að deila við hann orði til orðs, þvf hann hefir á sér það snið, sem óvand aðir ritsnápar temja sér. Hann slitur sundur málsgteinar og setnlngar, tll þess að geta falsað hugsanir mótstðða- mannsins og lagað þær til f hendi sér. Þetta er svo svívirðileg blaða- menska, að ekkert þekkist lægra og vesælmannlegra á þvf sviði og getur hún ekki orðið virt svars, heldur að- eins fyrirlitin. Sigurður heldur < nefndri grein uppi vörnum fyrir stjórnmála- mensku sjálfstæðismanna ( þinginu, sem halda þar við hrossakaupum og selja fylgi sitt við flokkana. Hugsandi og sjáandi menn úr báðum megin- flokkum f landinu sjá að þetta er óheilbrigt ástand, sem hamlar ákveðn- um vinnubrögðum í þinginu og kemur f veg fyrir að nokkur stjórn geti setið með meiri hluta stuðning að baki sér. Sig. Arngrímsson sór þetta ekki, af þvi að hann skortir gáfur, til þess að hugsa nógu skarpt og er ofur sjón- dapur f stjórnmálum. Það eru raunateg örlög fyrir Austfitðinga, að þeir hafa nú til margra ára ekki eignast annað en úrhraksblöð. Eftir að kaupmenn (óru að sjá þeim fyrir blöðum hefir alt af versnað. Blöð Hagalfns voru alment íyrirlitin, af því að þau áttu ekki neina hugsjón f fórum sfnum. Þau voru leigð til að bregða fæti fyrir hugsjónamenn landsins. En þau blöð voru þó á sinn hátt sæmilega rituð. Öðru máli gegnir um Hæni. Að inn- ræti er hann jafnþýlyadur og hugsjóna- laus. En hann er þeim mun verii, sem Sigurður Arngrfmsson er minna gefinn en Hagalfn. Ynging kynstofnsins. Só hefir orðið reynslan hvarvetna, að stótborga- lífið hefir spílt kynstofnum landanna. Afkomendur bændalý’sins þeir, sem i borgunum búa, eru í 3 og 4 lið orðnir úrættaðir svo, að hoifir til byastofnsspillingar. Borgirnar þnrfa að yngjast með stöðugum innflutningi úr sveitum. Nd eru að vsxa upp borgir hér á landi. Reykjavik er orðin stærsta höfuðborg { heimi, þegar litið er á fólkstölu f landinu. Árlega streymir fólk úr sveitunum í kaupstaðina. Fjölg- un þjóðarinnar fer öll fram á sjávar- mölinni, af þv( að engir nýir vegir opnast til bjargræðis fólki f sveitunum. Með svipuðu áframhaldi og nú hefir verið afðustu áratugina vsxa hér upp borgir, sem við iðnað og æðisgengið veiðilff spilla kynstofninum, en jafn- framt gefast elnyikjabændurnir fram til dala upp í baráttunni við örðugleika fámennis f sveitunum. Forn vfgi þjóð- menningarinnar falla eitt af öðru og f þeirra stað vex upp f bæjunum ný fésýslumenning og veiðimenning af erlendum toga spunnin. Einn af fram- sýnustu bændasonum landsini fer fram á það, að nú sé hafist handa að forða gereyðingu fslenzkakynstofnsins á þann hátt að sjávarútvegurinn og verzlunar- rekendur leggi nú þegar fram fé til styrktar landbúnaðinum þannig, að ein- yrkjar og heimilislausir menn geti fengið löag VBXtalaus lán til húsabóta og nýbýlagerðar. Petia er aðvarandi rödd um að kynsíofnlnn í landlnu varðveltl slnn elglnn vlðhaldsmátt. Þá rfsa öndverðir hugsjónalausir degur- málaskussar og bliudir fépú^ar, sem hugsa mest um það að krafsa saman f eigin pyngjur fé þjóðarinnar. Þeir kalla þessa hugsjón »skemtilega vit- lausa.t J. Þorl. segir að tillagan sé borin fram til þess að viðhslda fátækt- inni f landinu, að þetta megi skoða sem sveitarstyrk og að með þvl eigi að verðlauna niðurnfðslu býlanna 0. s. frv. Sllk rök og önnur þvllik hafa sementskaupmenn landsins og »afla- klærnar* á takteinum, þegar f tfma eru heimtaðar varnir gegn þvf, að sveltunum blceði út í atvinnubyltingu þeirri, sem nú gengur yfir landið og þegar við þvf er varað, að kynitofn- inn skeri um þvert sfnar eigin rætur. Fyrir 19—20 árum. B(jörn) Sl(efánssoD)?, sá er ritar >Bréf úr Húnavatnssýslu* f Degi 19. marz (VIII 12) s. L, sýnist hafa gleymt, hvernig ástatt var, þá er fyrsta sfmalfnan milli Sf. og Rvfkur var á- kveðin og lögð fyrir 19 — 20 árum. Með streitu vanst það í þinginu, að fá samþykta ódýrustu lfnuna, og svo var óvildin gegn fyrirtækinu þá megn f HúnavatnS' og Skagafj.sýslum, að »trúnaðarmönnum stjórnarinnar* við nndíibúning starfsins er hún minnis- stæð. Þótti gott að tókst, að koma sfmanum skémstu og ódýrústu leið gegnum béruð þessi. Eg geri ekki ráð fyrir, að >kaupmenn Sauðárkróks« hafi néinu um það ráðið, hvernig lfnan var lögð, OS þó Fhoiberg sfmastjóri væri þá ókunnugri hér, en hann er nú, má fullyrða, að hann hefði lagt Ifnuna sumstaðar öðruvfsi en geit var, ef hann hefði mátt ráða. Og sumstað- ar er nú búið að færa. hana; vérður máske gert víðar, þá er ástæður leyfa. Er t. d. ekki ólfklegt, að sfminn verði færður af Kolugafjalli á Vatnsakarð, ella að símagrein komi frá Biönduósi til Bólstaðarhlfðar og fiá Ssuðárkróki til Vfðimýrar og önnur frá Vatnsleysu til Silfrúnarstaða. Ráðið til að fá slfkar greinar frá aðaisimanum, er það, eins og tfðkast annársstaðar, að sveitir sýslur og einstakir menn leggi fram h&lfan stofn- kostnaðinn, þá er Uklegt að rfkið t Ólafur Briem frá Alfgeirsvöllum, formaður Sambands íslenzkra samvinnufélaga, andaðist á heim- ili sinu í Rvík p>ann 19. p>. m. eftir stutta legu. Verður hans nánar minst siðar. leggi til hálfan, og að greinin fáist lögð áður langt um lfður. Er mesta furða hve lengi dregst að slfkar greinar komi, t. d. (auk fytnefndrar greinar) inn f Eyjafjarðarsveit, Vatnsdal og vfðar. Nú er þó svo komið, að allir skilja og viðurkenna þýðing og not sfmanna. B. B. Orðsending frá^verzlun Eiríks Kristjánssonar. Nú með siðasta skipi hefir verzlun min fengið einhverjar þær stærstu birgðir af leir-, postuiins- og email- eruðum vörum, sem komið hafa hing- að til staðarins. Vegna rúmleysis er ekki hægt að sýna f einu allar tegundir, en reyni svo fljótt sem tími vinst að láta út í búðargluggana af flestum tegund- um með tilfærðu útsöluverði. Til að iiýta afgreiðslunni geta væntanlegir heiðraðir kaupendur pantað af vörunum, — það sem ekki yrði hægt að afgreiða strax, — sem jeg svo mun afgreiða eftir 1 til 2 daga og senda heim til þeirra sem hér eru búsettir í bænum. Verðinu og tegundunum þurfa allar húsmæður að kynnast, því þetta er selt svo ódýrt til að fram- fylgja þeirri reglu: Að selja fljótt en ódýrt. Viröingarfylst. Eiríkur Kristjánssorj. Fáum ágæta tegund af Hjóihestum með Qoðafossi. Kaupf. Eyfirðinga.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.