Dagur


Dagur - 17.11.1926, Qupperneq 3

Dagur - 17.11.1926, Qupperneq 3
50. Ibl. DAOUR 101 t Jónas Gunnlaugsson, dbrm. frá Prastarhóli. Hann andaðist áheimili sínu hér í bænum 13. þ. m. íhárri elli, hart- nær 91 árs gamali. Jónas var ern og hress til efstu daga og bar ellina vel. Hann var fyrrum ráðs- maður Péturs amtmanns Hafsteins á Möðruvöllum en síðan lengi bóndi á Prastarhóli. Jónas var vinsæll maður og hinn mesti heiðursmaður í hvívetna. og unglinga. Böm læra samfeld kvæði. En er þroskinn færist yfir, taka þáu að velja úr. Pá skína þeim einstakar ljóðperlur gegnum bylgjukvik háttanna. Nokkrar meinlegar prentvillur hafa slæðst inn í þetta hefti og er það mjög á móti vilja þeirra, er settu saman bókina, því að þeir eru vand- virkir menn báðir og Benedikt skóla- stjóri er þektur að frábærri kunnáttu á íslenzkri tungu og smekk á mæltu máli og rituðu. Prentvillurnar verða síðar leiðréttar hér í blaðinu. , Saga, missirisritið, sem Porst. Þ. Porsteinsson skáld gefur út í Winni- peg er nýkoinið. Er það fyrri bók II. árgangs. Höfundarnir, sem ieggja til þessa heftis, eru meðal annara Stephan G. Stephansson, Jóh. M. Bjarnason, Kr. N. Júlíus (Káinn), Steinn Dofri, Aðalst. Kristjánsson, Guttormur J. Guttormsson, Þorskabítur, Jóhs. P. Pálsson og svo útgefandinn sjálfur. Veigamestu kaflar ritsins er ágætis- kvæði Stephans G. Stephanssonar: >;Erfðir«, um síðasta skilnað ^sdísar og Grettis og löng ritgerð eftir Þ. Þ. Þ. sem nefnist »Spjall«. Er það djarf- leg sókn fyrir hönd íslenzkrar tungu og þjóðernis gegn ofureflinu vestan hafs. Fer höfundurinn víða yfir og er vígfimur og höggviss og grein hans ágæt. Saga er fjölbreytt og læsilegt rit. Enda mun hún þegar hafa náð mikilli útbreiðslu og vinsældum. Ættu íslendingar að auka kaup sín á ritinu, því að það mun flytja margt af því, sem bezt verður ritað á íslenzka tungu í ljóði og í lausu máli vestan megin hafs, Hamingjuleiöin heitir nýútkomið rit eftir O. Swett Warden en í íslenzkri þýðingu eftir Arna Olafsson. Bók þessi fjallar um skapgerðarlist og er andleg líffræði. Er hún tilraun að kenna mönnum að efla sig og bæta, sérstaklega að þroska viljalífið og færa sér í nyt til þroskunar og orkubóta ónotuð öfl sálarlífsins, eigi á neinn dulrænan hátt heldur með hollum lifnaðarháttum og hugsunarreglum. Bókin er að efni nýstárleg íslendingum. Hún er hlýlega og fjörlega rituð og vel þýdd. Prentsmiðjan Acta gaf út. Kóngsdóttirin fagra heitir æfintýri, eftir Bjarna M. Jónsson, sem prentsm. Acta hefir nýlega gefið út. Útgáfan er prýðileg og auðguð mörgum vel gerð- um myndum, sem munu vera eftir Tryggva Magnússon. Æfintýrið sjálft við hæfi barna, taumlaust hugmydaflug, málið létt og gott og undirtónninn göfgandi. Niðursuðudósirnar eru komnar aftur. — Mjög handhægar til rjúpnaniðursuðu. Kaupfélag Eyfirðinga. Inrftín Rrvfi 1 Glæsibæjarhreppi, fæst tiljkaups |ogj|ábúðar í tJUt UTií LJí y 11 næstu fardögum. Semja ber við undirritaðann. Bryta 4. október 1926. Þorlákur Thorarensen. F r é 11 í r. Fjórtán dagar hjá afa heitir rit nýútkomið í prentsm. Acta. Er það hreinlætis og heilsufræði barna, rituð á frumlegan hátt af Arna Árnasyni hér- aðslækni í Dölum. Efnið er sögulegt og greinir frá heimsókn systkinanna Sigga og Ásu, tveggja kaupstaðarbarna, til afa þeirra, sem bjó í sveitinni. Þar dvöldu þau fjórtán daga og lærðu hreinlætis og heilbrigðisreglur á hverj- um degi. Kennarinn er afi, sem segir þeim sögur og fræðir þau um þessi efni. Kverið er myndum prýtt en pappír og ytri svipur bókarinnar er ekki góður. S í m s k e y t i. Rvík 10. nóv. Brúarfoss (kæliskipið) hleypur af stokkum 1. des. og á aðverðafull- gerður 1. marz. Júlíus Júliníusson verður skipstjórinn, en Pétur Björns- son tekur við Lagarfossi. Útflutningur vara í október nam 7,179,000 kr. AIls á árinu 31,381,491 gullkrónur, móti 43,375,000 síðastl. ár. Símað er frá Washington, að við nýgengnar kosningar í Bandarikjun- um hafi Republicans fengið 48, De- mokrats 47 og flokkur verkamanna og bænda 1 fulltrúa í Senatinu. En í Fulltrúadeildinni er áætlað, að Re- publicans fái 231 af 435. Rvík 16. nóv. Símað er frá Khöfn, að vegna sundurþykkju milli stjórnarflokksins og gerbótaflokksins, sem hefir stutt stjórnina, útaf fyrirhuguðum kreppu- tímaráðstöfunum, verði rofið þing og gengið til kosninga 2. desember. Símað er frá Stokkhólmi, að Bern- hard Shaw hafi verið veitt bókmenta- verðlaun Nóbels. Símað er frá London að fulltrúa- fundur námumanna hafi fallist á héraðasamninga, lengri vinnutíma og kauplækkun. Baldwin hefir lofað námumönnum, að í slaðinn fyrir landssamninga muni hann flytja tillögu um gerðardóm í deilumálum, sem rísa af samningum héraða. Námueigendur 'ýsa yfir, að tillögur Baldwins séu gerðar að þeim for spurðum og séu því ekki bindandi fyrir sig. Námumenn greiða atkvæði um sáttatillögur Baldwins nú í vik- unni. Fulltrúar þeirra ráða þeim til að samþykkja þær. Baldwin kveðst muni vinna að lögleiðing gerðar- dómsins, hvað sem námueigendur segi. Miðnœturgesturinn heitir fyrirtaks- góð kvikmynd, sem sýnd er á Nýja- Bio um þessar mundir. Dagur gerir lítið að því að hvetja menn til bio- göngu, en að þessu sinni telur hann það rétt og hverjum manni ávinning að því, að sjá þessa mynd. Sú ný- breytni er, að solo er sungin í sam- bandi við myndina. Jónas Rafnar læknir tók sér far, ásamt frú sinni, til Rvíkur með Novu síðast. Mun hann koma aftur með ís- landi og fara með því til útlanda, til framhaldsnáms um meðferð berklaveikra manna á heilsuhælum. Steingrímur læknir Matthíasson tekur daglega á á móti sjúktingum í húsi J ónasar Rafn- ars kl. 5 — 7 e. h. Simabilanir afarmiklar hafa orðið í undanfarinni ótíð. Haía valdið þar um mestu ísingar, er hlaðast á þræð- ina, svo að hann mistognar en kúlur brotna og jafnvel staurar, þegar hvess- ir á símann þannig til reika. Fellur þá síminn stundum niður á stórum svæð- um. Samkvæmt upplýsingum símastjór- ans hér, hafa bilanirnar orðið þessar helztar austan Akureyrar: A Vaðla- heiði féll síminn niður á 40 staurum á sunnud. Áður hafði hann fallið niður á 70 staurum milli Ljósavatns og Skjálfandafljóts og 2 staurar brotn- að. Á Fljótsheiði brotnuðu 7 staurar og féll síminn niður á 13 km. löngu svæði. Á Fjarðarheiði brotnuðu 4 staurar. Vestan Akureyrar brotnuðu 4 staurar á Heljardalsheiði en 8 staur- ar í Vöðlunum austan Sauðárkróks. Féll síminn niður víðar, t. d. á Kol- ugafjalli og Holtavörðuheiði. Hefir verið símasambandslaust að kalla má um viku tíma, en hefir lagast nokkuð síðustu daga. Otiðin. Sífeldar krapahríðar og stór- rigningar hafa gengið undanfarið og þykja vera eindæma mikið úrfelli hér á Norðurlandi. Gerist mikill húsaleki og stórskemdir á heyjum, eldsneyti og matvælum. í gær birti í lofti. Snjóflóð munu hafa fallið víða undanfarna úríellistíð, en fréttir eru óglöggar og alls engar víða af land- inu vegna símabilana. í Svarfaðardal fórst í snjóflóði tnaður að nafni Dag- bjartur Þorsteinsson. Var hann á rjúpnaveiðum í Háagerðisfjalli. Á Skeri á Látraströnd féll mikið snjóflóð og tók af fjárhús með nálega öllu fé bóndans þar, Steingríms Hallgrímsson- ar, ásamt tilsvarandi heyforða. Svo hagar til á Skeri, að norðan við bæ- inn er gil, nefnt Ausugil. Þar hafa oft fallið snjóflóð, en þó bægst frá bæn- um vegna landslags. En á síðastliðnu sumri hálffyltist gilið við skriðuhlaup I Smektybuxur |í (§> karlm. og'ungl., allar stærðir, (<§> m fástí m jU Brauns Verslun. j|J 0 PálllSigurgeirsson. 0 Kiukkur og Ör fáið þið hvergi meö betra verði, en hjá, Fr. Þorgrímssyni, íiá því í dag og til jóla. A^enter ansættes mot höi Provision for Salg av Obl. & Ge- vinstbevis. Skriv straks efter vore Agenturbetingelser. — Bankirfirman LUNDBERG 8c Co. STOCKHOLM C. Ofnrör og hné nýkomin. Kaupfélag Eyfirðinga. Óhætt er að fullyrða, að hvað gæði snertir, tekur Pette sukkulaði fram öilum öðrum tegundum, sem seldar eru hér á landi. Pette-sukkuhdi er einnig vafalaust Ódýrast eftir gæðum. Fæst altaf i Kaupfélagi Eyfirðinga. og féll þessvegna kvísl úr snjóflóðinu heim undir bæinn og tók af áður- greint hús. í húsinu voru um 60 fjár og náðust 7 kindur Iifandi.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.