Dagur - 27.01.1927, Page 4

Dagur - 27.01.1927, Page 4
16 DAGUB 4. tbl. Jörð til sölu. Hálflenda jarðarinnar LAMBANESREYKIR í Fljótum (Holtshreppi, Skagafjarðarsýslu), er til sölu og ábúðar í næstu fardögum. — Oott og nýlegt timburhús er á hálflendunni og nægileg peningshús. Tún og engjar eru hvortveggi greiðfær og mjög grösug. Töðufall ca. 300 hestar. Útheyskapur ca. 1200 hestar. Ágæta silungsveiði hefir jörðin í Miklavatni. Ennfremur er laug við túnið vel fallin til upphitunar húsa. Nánari upplýsingar gefur umboðsmaður eiganda jarðarinnar Alfons Jónsson, lögfrœðingur Siglufirði. B A Ð L Y F. Eins og að undanförnu útvegum vér beintfrá verksmiðjunum McDougalls Coopers Barratts Hreins baðlyf með beztu kjörum sem hægt er að bjóða. Samband ísl. samvinnufélaga. Leikhúsið, Spanskflugan, gamanleikur í 3 þáttum. Margir vitrir menn mæla svo, að góð- ur og hressandi hlátur lengi lífið og ef svo er, skal þeim það ráðlagt, sem lang- iífir vilja verða, að bregða sér í leik- húsið og sjá »Spanskfluguna«, hið nýja leikrit, sem Leikfélagið sýndi fyrsta sinn á sunnudagskvöldið var. Það eru engar ýkjur, að langt mun vera síðan að með jafnmiklum sanni hefir mátt segja um leikhúsið sem að þessu sinni: »Gleði var í höll«. Leikrit þetta er svo sem ekki veigamikið, síður en svo, en samtölin eru stórhnittin og smellin, og gáskamiklum atburðum og hlægilegum misskilningi komið sérstaklega vel fyrir. Efni leiksins verður ekki þrætt hér. Að- eins skal getið um nokkur hlutverkin. Klinke sinnepsverksmiðjueiganda leikur Jóhann Þ. Kröyer, er það stærsta hlut- verkið. Er Kröyer mjög spaugilegur víðasthvar og segir margar setningar á- gætlega, gerfið gott. Konu hans, Emmu, ærið umsvifamikinn kvenskörung, leikur frú Svava Jónsdóttir einkarvel og eðli- lega. Gísli Magnússon léikur Burwig þingmann; er karl sá »þéttur á velli og þéttur í lund« og hagar orðum sínum ætíð svo sem hann sé staddur í þing- salnum; er frammistaða Gísla mjög sæmileg. Dóttur Burwigs leikur frú Þóra Havsteen mjög vel, svo sem vænta mátti. Wimmer mág Emmu leikur Mar- inó Sigurðsson; er hann nýliði á leik- sviði hér; hlutverkið er mjög spaugi- legt, og gerir leikandinn því ágæt skil, svo hin mesta ánægja er að. Ungfrú Jó- hanna Jóhannsdóttir lék unga og lag- lega heimasætu og var hvorttveggja, og Steinþór Guðmundsson lék »Assyríu- fræðinginn« svo vel, að tæplega verður á betra kosið. Þá eru ennþá nokkur hlutverk ótalin, og í stuttu máli er ekki anxiað hægt að Jörðin Hlíð í Svarfaðardai, er laus til ábúðar í n. k. fardögum. Leigumáli mjög lágur. Sala getur komið til mála. Semja ber við undirritaðan fyrir 15. marz n. k. Hofi 31. des. 1926. G. Jónsson. Arsmann vantar á heimili i Bárðardal frá 14. maí n. k. Upplýsingar gefa Páli Jónsson bóndi á Stóruvöllum og ritstj. blaðsins. Fjármark mitt er: Stýft biti a. h.; stúfrifað biti a. v. Höskuldur Geirfinnsson, Núpum Aðaldal. Svört tík, með hvíta bringu, hvít á löppum og með týru í skotti tapaðist á Akureyri fyrir síðustu jól. Nafn hennar er: Týra. Finnandi greiði fyrir skepn- unni til Þorsteins Steinþórssonar, Búð- arnesi, eða Þorsteins Þorsteinssonar í Kaupfél. Eyfirðinga. segja, en að sum af þeim voru mjög sæmilega af hendi leyst og ekkert illa. Vil eg svo enda þessar línur með því að láta í ijósi að eg trúi ekki öðni, en »Spanskflugan« eigi oft eftir að fylla leikhúsið hlæjandi áhorfendxxm. X. — Nýlega er látinn hér í bænum Ólafur Runólfsson, gamall maður, vel látinn. Hann var tengdur Karli Nikulássyni konsúl og til heimilis hjá honxxm. Ritstjóri: Jónas Þorbergsson. Prentsmiðja Odds Bjömssonar. T eikningar að húsum geta menn fengið gerðar hjá mér undirrituðum og verður mig að hitta á Hótel Oddeyri: A mánudögum kl. 1—6 e. m. og á þriðjudögum — 10 f. m —2 e. m. alt til byrjunar marzmánaðar. Halldór Halldórsson frá Garðsvík. Jörðin Yfri-Hóll í Olæsibæjarhreppi fæst til kaups og ábúðar í næstu fardögum. Upplýsingar um jörðina, söluverð og söluskilmála gefa: Agúst [ónasson bóndi Sílastöðum og Vilhjálmur Pór, kaupfélagsstj. Akureyri. Jörðin YTRI-TUNGA á Tjörnesi getur, að þrem fjórðu hlutum, fengist á leigu frá næstu far- dögum. Pessum hlutum jarðarinnar tilheyrir m. a.: Nýtt íbúðarhús úr timbri, 4 — 5 kýrfóðra tún slétt og í góðri rækt, allmikið útengi, víðáttu- mikið beitland, fjörubeit, reki, svarðar- og mókola-tekja, og aðstaða tij útræðis. — Sá, sem tekur jörðina á leigu, getur átt kost á að fá keypta nokkra áhöfn á staðnum Lysthafendur snúi sér til undirritaðs eiganda jarðarinnar. Ytri-Tungu 12. janúar 1937. Björn Helgason. Prjónavélar. Yfir 50 ára reynsla hefir sýnt og sannað að „Brittannia, prjónavélarnar frá Dresdner Stríckmaschinenfabrik eru öllum prjóna- vélum sterkari og endingabetri. Siðustu gerðirnar eru með viðauka og öllum nýtisku útbúnaði. Flatprjónavélar með viðauka, 80 nálar á hlið, kosta kr. 425,00* Flatprjónavélar með viðauka, 87 nálar á hlið, bosta kr. 460,00. Hringprjónavélar, 84 nálar, með ðllu tilheyrandi kosta kr. 127,00 Allar stærðlr og gerðir fáalnegar, nálar og aðrir varahlutir út- vegaðir með mjög stuttum fyrirvara. Sendið pantanir yðar sem fyrst til Sambandskaupfélaganna. I heildsölu hjá Sambandi ísl. samvinnufélaga. Peir, sem hugsa sér að panta hjá oss GRASFRÆ Og tilbúinn abui ð til næsta árs, eru hérmeð vinsamlega beðnir að senda pantanir sínar hið allra fyrsta. Samb. ísL samviníjuféi.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.