Dagur - 19.05.1927, Síða 2
80
DAOUR
21. tbl
.kjark í mig og meðstjórnendur
mína á aðalfundi síðast, og skal
lagt út í bardagann á ný.
Þó eg vildi draga saman seglin
um stund, var það ekki meining
mín að svæfa félagsskapinn að fullu
heldur bíða byrjar. Því þó margir
kynnu að ganga úr skaftinu, vissi
eg um nokkra félagsmenn örugga til
fylgdar, sem aldrei vilja láta Rauða
Kross deild vora deyja. Og eg veit
það vist, að fyr eða síðar eflist
Rauði Krossinn á Akureyri og í öll-
um sveitum þessa lands, eins og
hann óðfluga eflist annarstaðar um
heim. Því jafnvel meðal hundheið-
inna þjóða hafa Rauða Kross félög
verið flestum öðrum félögum vísari
til að ná útbreiðslu og afla sér vin-
sælda.
Stgr. Matth.
-----0------
Frá Alþingi.
Stjórnarskrárbreyting og þingrof.
Eftir langvinnar stympingar og hrakn-
inga milli deilda, er loks samþykt frum-
varp til breytinga á stjórnskipunarlög-
um ríkisins. Breytingarnar eru í því
fólgnar, að þing skal haldið annaðhvort
ár, að kjörtímabil landskjörinna þing-
manna sé jafnt og kjördæmakosinna, 4
ár og skulu þeir kosnir allir í einu.
Kjöraldri til landskjörs var breytt úr
35 í 30 ár. Samkvæmt þessu fer fram
þingrof og verður gengið til nýrra kosn-
inga áður 2 mánuðir eru uðnir frá
þingrofi.
Meðferð þingsins á þessu máli er því
til vanvirðu. Að vísu hefir nú gengið
fram sú tillaga, er menn hafa lengi
vænst að myndi leiða til sparnaðar, þar
sem er þinghald annað hvox-t ár. En
hvorttveggja er, að hér er verið að
skerða aðstöðu almennings til íhlutunar
um stjóm landsins, ef þetta spamaðai'-
ráð nýttist og á hinn bóginn munu flest-
ir trúlitlir á að þinghald sparist og
telja að betur hefði sæmt að leita sparn-
aðarráða í breyttu og bættu skipulagi.
þingsins og vinnubrögðum að öðru leyti.
Með breytingu þeirri sem orðin er á
landskjörinu, er fallinn niður hinn upp-
haflegi tilgangur með skipun þess. Að
vísu var sá tilgangur leifar frá þeim
tímum, sem þingræðið átti undir högg
að sækja og varð að toga hönk við aðal
og yfii'stéttir í löndunum. Við reynslu
hefir komið í ljós, að landskjörnir menn
hafa ekki getað orðið nein önnur teg-
und af mönnum en þingmenn eru yfir-
leitt. Sízt var þess að vænta að þangað
veldust aðsjálir menn og íhaldssamir,
sem mun þó hafa verið von þeirra, er
höfðu mikla trú á þessu skipulagi.
Flokkarnir skipa foringjum sínum
tryggustu og' veglegustu sæti á þing-
bekkjum; enda er svo komið, að for-
ingjar beggja umbótaflokka í landinu
eiga sæti í Efri deild.
Sú skipun að fella niður umboð
landskjörinna þingmanna allra í einu
myndi gera kaupstaðabúum fært að
neyta aðstöðumunar gagnvart þeim, er
í sveitum búa. Við síðasta landskjör
vóg Reykjavík salt í kjörsókn móti öllu
svæðinu frá Hrútafjarðará og til Lóns-
heiðar að bæjum og þorpum meðtöldum.
Úrslit þeirra kosninga eru kunn. Átti
þó svo að heita að jafnaðax-menn gengi
til kosninga með Framsókn. Munu þess-
ir refar einkum til þess skornir að hlut-
ur Framsóknar berist fyrir borð við
landskjör.
Kjöraldur til landskjörs var upphaf-
lega miðaður við þá tilætlun að lands-
kjÖrið yrði einskonar úrval gætnari og
lífsreyndari manna og þar fram eftir
götunum. Nú þegar slíkur sundurdrátt-
ur reynist ógerlegur, er .ástæðulaust að
hafa kjöraldur til landskjörs hærri en
til almennra kosninga. Samt tókst ekki
þinginu að þoka honum nema á hálfa
leið, úr 35 í 30 ár.
Landsbanlcafrumvarpið er orðið að
lögum. Neðri deild gerði út af við flest-
ar skemdartillögur íhaldsins í Ed. og
var frumv. síðan samþykt breytinga-
lítið í Ed. aftur. Er þá loks bundinn
endi á það mikla átakamál í þinginu.
Kosningar ýmsra starfsmanna fóru
fram í þinginu í fyi’radag. í stað Jör-
undar Brynjólfssonar kaus Framsókn
Pétur Þórðarson/ til þess að endurskoða
landsreikningana. Af hálfu íhaldsins
var kosinn Þórarinn á Hjaltabakka. f
milliþinganefnd í landbúnaðarmálum
voni kosnir Jörundur Bx-ynjólfsson,
Þórarinn og Árni Jónsson. í bankaráð
íslandsbanka var kosinn í stað Bjama
frá Vogi, Magnús Kristjánsson og þótti
íhaldinu mistakast þar heldur en ekki,
því að það mun hafa ætlað starfið ein-
hverjum sinna manna. í bankaráð
landsbankans vora, samkvæmt nýsett-
um lögum, kosnir Jónas Jónsson og Jón
Árnason af hálfu Framsóknar en Jóh.
Jóh. og Magnús Jónsson af hálfu
íhaldsins. Varamenn eru af hálfu
Framsóknar Bjarni Ásgeirsson á Reykj-
um og Methúsalem Stefánsson búnað-
armálastjóri. — í lögjafnaðarnefndina
var kosinn í stað Bjarna frá Vogi
Einar Arnórsson. Auk þess var, sam-
kvæmt ósk frá sambandsþjóðinni bætt
einum manni í nefndina. Var til þess
kjörinn af Fi’amsókn Jón Baldvinsson,
til þess að allir stjórnmálaflokkafnir
ættu fulltrúa í nefndinni.
o
við kappi'eiðar. Stjómarskipunai’laga-
breytingu var vísað til einnar umi’æðu í
Nd. í gær. Samþykt var breytingartil-
laga um að Alþing 1928 mætti setja
fjárlög fyrir árin 1929 og 1930, ef
frumvarpið öðlaðist gildi meðan á þingi
stæði. Hvalveiðafrumvarpið var felt.
Sjávarútvegsnefnd flytur þingsályktun
um lánsstofnun handa sjávarútvegin-
um. Þingslit sennilega á fimtudag.
Enski - togarinn sem Óðinn tók, fékk
12.500 kr. sekt.
------o------
F r é 11 i r.
i Leirvörur
§• N ÝKOMNAR:
§|® Diskar, djúpir og grunnir, sósuskálar^
skálasett sex stykki á kr. 4.20, steikarföt
!§• og smáföt, litlir diskar, þvottastell frá
kr. 7.50, kartöfluföt, tarínur, smáfötog fl.
H® Kaupfél. Eyfirðinga.
•m
S íms key ti.
Rvík 16. maí.
Tilboð hefir komið frá Lufthansa
um reynsluflugferðir hér á landi næsta
sumar um þriggja mánaða skeið með
einni 7 farþega vél. Eru í'áðgerðar 3
ferðir vikulega með póst og farþega
milli Reykjavíkur og Alcureyrar og
Reykjavíkur og Vestmannaeyja. Er
sennilegt að tilboðið verði rætt í þing-
inu.
Afgreidd eru lög um iandamerki,
varðskip ríkisins, vamir gegn berkla-
veiki. Páll Sveinsson mentaskólakenn-
ari verður frambjóðandi af hálfu
íhaldsins í Austur-^kaptafellssýslu en
Einar Arnórsson og Valdemar í Ölves-
holti í Ámessýslu.
London: Lögreglan gerði húsrann-
sókn hjá í’ússnesku verzlunarfélagi í
Arcos. Óvíst af hvaða orsökum. Rússar
eru reiðir og er talið líklegt, að stjóm-
málasambandi verði slitið en óliklegt
að til styrjaldar leiði.
Khöfn.: Prófessor Vilhelm Tomsen er
látinn.
Innfluttar vörur í apríl fyrir
3,691,319 kr.; þar af til Rvíkur fyrir
1,341,509 kr.
í fjallinu norðan Önundarfjarðar
hefir fundist þykt leirlag, sem inniheld-
ur 32—50% aluminium. Eftir því sem
Mbl. skýrir frá, hefir Kristján Torfa-
son sent til Glasgow sýnishorn af leirn-
um. Hefir félag þar pantað 500 tons til
reynslu. Torfason hyggur að það muni
borga sig að senda leirinn til Skotlands
óunninn til vinslu þar. Efri deild hefir
samþykt áskoran til stjðmarinnar um,
að nota lántökuheimild til áframhalds-
byggingar Landsspítala. Frumvarp um
forkaupsrétt kaupstaða á liafnarmann-
virkjum var vísað til stjórnarinnar.
Frumv. um hvíldartíma háseta á botn-
vörpungum felt.
41 fulltrúi sitja nú aðalfund Sambands-
ins. Jóhannes Jósefsson og fjölskylda
komu með íslandinu í nótt. íþróttamenn
og vinir halda þeim samsæti í Iðnó i
kvöld. Þau halda áfram norður með ís-
landinu.
Fimleikaflokkar íþróttafélags Rvíkur
fá ágætustu dóma í Noregi.
Landsbankafrumvarp afgreitt sem lög.
Heimavistir við Mentaskólann feldar.
Samþyktir hafa verið landsreikningar
fyrir árið 1925 og fjáraukalög fyrir ár-
ið 1925. Afgreidd hafa vei*ið lög um
breytingar á skemtanaskattslögum og
og heimildarlög um veðmálastarfsemi
— Heilsuhæli Norðurlands báx'ust á
þriðjudaginn 410 kr. úr Akrahrepp í
Slcagafirði. Þar af hafði Jóhann bóndi
Sigux'ðsson á Úlfsstöðum safnað 240 kr.
í syðri hluta hreppsins, en 170 kr. voru
fi'á Kvenfélagi Akrahrepps. Vottast
heilar þakkir fyrir sendingarnar.
— Theódóra Þói'ðardóttir húsfreyjan
á Kambsmýrum, sem getið var um í síð-
asta blaði, las upp í Akureyrar Bíó á
föstudagskvöldið var, ‘erindi og kvæði,
sem hún kveðst hafa ritað ósjálfrátt.
Var þar húsfyllir áheyrenda. Frú Theó-
dóra misti mann sinn, Egil Olgeirsson,
í sjóinn fyrir fjórum árum síðan. Fyr-
ir rúrnu ári síðan hófst samband það,
er hún telur sig hafa við þá, sem flutt-
ir eru af jörðunni. Síðan stendur hún,
að því er henni virðist, í nánu vitundar-
sambandi við mann sinn og fleiri menn
framliðna. Höfundar hins ritaða
máls, bundins og óbundins, er hún
kveðst hafa ritað ósjálfrátt, teljast
véra sumir mei'kustu rithöfundar og
skáld, sem uppi hafa verið í landinu.
Stjórnendurair teljast vera séra Páll
Sigurðsson frá Gaulverjabæ og Þor-
steinn Erlingsson skáld. Um erindi
þau og kvæði, er hún las upp, er það
fljótast að segja, að fáum munu þykja
vera líkur til, að það sé alt runnið úr
hennar eigin vitund. Var sumt svo
gott, að af ber flestu því, er menn eiga
kost á að heyra um samskonar efni.
Yfirleitt má segja að fólk hafi ekki
þózt fara ónýtisferð á fund Teódóru.
— Bernharð Stefánsson alþingis-
maður varð að hvei’fa skyndilega heim af
þingi vegna þess að kona hans veiktist
hættulega. Síðustu fréttir af henni
hermdu nokkrar batavonir.
— Frú Lára ólafsdóttii’, sem hefir
verið erlendis nú um þriggja missira
skeið, til þess að leita sér heilsubótar,
kom heim með Goðafossi síðast. Hefir
hún fengið mikla heilsubót.
— »Island« kemur í dag. Eins og
hermt er í skeytum, er Jóhannes Jósefs-
son íþróttamaður meðal farþega, ásamt
fjölskyldu sinni. Ennfremur eru meðal
farþega Einar Árnason alþm., fulltrúar
af Sambandsfundi Davíð Jónsson
hreppstj. á Kroppi, Ingimar Eydal
kennari, Ingimar Hallgrímsson bóndi á
Litlaholti og Vilhjálmur Þór fram-
kvæmdastjóri Kf. Eyf. Ennfremur er
með skipinu Þórólfur Sigurðsson bóndi
í Baldursheimi.
— Kaþólskir menn eru að láta reisa
kirkju mikla á háhæð Landakotstúns-
jns í Reykjavík, gegnt sjúkrahúsinu.