Dagur - 27.05.1927, Page 1

Dagur - 27.05.1927, Page 1
DAOUR kemur út á hverjum fimtu- degi. Kostar kr. 6.00 árg. Gjalddagi fyrir 1. júlí. Innheimtuna annast Jónas Sveinsson hóksali, Eyrar- iandsveg 3 (Sigurhæðir). aaur A f g r e i ð s Ian er hjá Jóni Þ. Þór, Norðurgötu 3. Talsími, 112. Uppsögn, bundin við ára- mót, sé komin til af- greiðslumanns fyrir 1. des. X, ár. Akureyri, 27. maí 1927. 22. tbl. Þ i n g r o f. Kosningar 9. júlf. Vegna breytinga þeirra, sem þingið gerði a stjórnskipunarlög- um ríkisins, hefir verið rofið þing og verður gengið til kosninga í öll- um kjördæmum landsins 9. júli næstkomandi. Enn eru litlar fregnir af framboð- um og verða þær jafnhraðan birtar í sérstökum dálki í blaðinu. Flokkar landsins þeir, er nú ganga til kosninga, eru hinir sömu og við síðustu almennar kosningar, árið 1923. Þó má geta þeirrar breyt- ingar, að menn þeir, sem þá reyndu að halda á lofti nafni Sjálfstæðis- flokksins gamla, hafa nú gefist upp við það, en leitast við að skreyta sig fjöðrum frjálslyndrar stefnu. En að flestra manna áliti er þetta van- burða fóstur og líklegt til að kafna í fæðingu, vegna þess að þeir, er fyrir beitast, eru pólitískir æfintýra- menn, sem hika ekki við að daðra við gerandstæðar skoðanir þeim, er frjálslyndir flokkar tileinka sér og ganga jafnvel í bein og óbein sam- bönd við íhaldsmenn, sem að eðli- legum lögum hljóta a’ð vera þeim andstæðastir í skoðunum. Nú, áður gengið er til kosninga, liafa tveir af þeirn mönnum, sem töldust til sjálfstæðisbroisins, gengið formlega í Framsóknarflokkinn. Eru það þeir Benedikt Sveinsson þing- maður N.-Þingeyinga og Magnús Torfason 1. þingm. Árnesinga. Þá var og kosinn við aukakosningu í Dölum Framsóknarflokksmaðurinn Jón Guðnason prestur, í stað sjálf- stæðisinannsins Bjarna Jónssonar frá Vogi, sem andaðist á síðastl. ári. Fjórði sjálfstæðisinaðurinn Sig- urður Eggerz, sjálfur höfuðpaurinn, féll, í annað skifti á árinu. Er þá eftir Jakob Möller einn. En í Framsóknarflokknum eru 18 menn, þegar gengið er til kosninga. Aðstaða fhaldsflokksins á þingi hefir talsvert lakast síðan um síð- ustu kosningar. Liggur það einkum í því að þeir hafa tapað stuðningi þeirra sjálfstæðismanna, sem horfið hafa af þingi. í stað Bjarna er kos- inn Jón Guðnason; í stað Sig. Egg- erz er kosinn Jón Baldvinsson landskjörinn en Héðinn Valdémars- son aftur í sæti Jóns. Jafnaðarmenn hafa komið manni á þing síðan um síðustu kosningar og eru nú fulltrúar þeirra tveir á þingi. Þannig er aðstaða flokkanna, þegar gengið er til kosninga. íhaldsflokkurinn, sein hefir farið með völdin síðasta kjörtímabil, stendur nú höllum fæti gagnvart kjósendum. Samkvæmt kosninga- gumi fjármálaráðherrans síðast, ætlaði flokkurinn að hefja þjóðina upp úr fjármálaófarnaði síðustu og verstu tíma. Flokkurinn hefir efnt það á þá lund, að koma nokkrum af skuldum ríkissjóðs yfir á bak ein- staklinganna og atvinnufyrirtækj- anna í landinu. Það sem fjárhagur- inn hefir rézt við hið ytra, þegar lit- ið er á ríkisskuldirnar, hefir honum hnignað hið innra, þegar litið er á hag borgaranna og svo bankanna. Á þessu tímabili hefir því grundr völlurinn undir atvinnufyrirtækjum landsmanna, velmegun borgaranna og sönnu sjálfstæði þjóðarinnar veikst til svo stórra muna, að hon- um heldur við niðurbroti. Það er atvinnustjórn íhaldsmann- anna, lífsregla samkepninnar, starfs- aðferðir fjárhyggjumannanna, sem hafa steypt þjóðinni í sýnu méiri ó- farnað en dæmi eru til. Og nú bjóða þeir, blessaðir, upp á sömu handleiðslu! og fara í liðsbón til kjósenda. Hvernig skyldi þeim lánast að blekkja menn og íleka til fylgis við sig? Svarið bíður þangað til 9. júlí. -----0----- Framboðin. Austur-Skaftafellssýsla: Af hálfu Framsóknar: Þorleifur Jónsson alþm. Af hálfu íhaldsins: Páll Sveinsson Mentaskólakennari. Borgarfjarðarsýsla: Af hálfu Framsóknar: Björn Þórðarson hæstaréttarritari. Af hálfu íhaldsins: Pétur Ottesen alþm. Strandasýsla: Af hálfu Framsóknar: Tryggvi Þórhallssan alþm. Af hálfu fhaldsins: Björn Magnússon símastjóri. Jóhantíes Jósefsson. Eftir að hafa um 19 ára skeið stundað iþróttir í Evrópu og í Ame- ríku og eftir að hafa unnið sér heimsfrægð, er Jóhannes horfinn heim til ættjarðarinnar ásamt frú sinni, Karólinu Guðmundsdóttur sýslumanns og tveimur dætrum þeirra hjóna, Heklu og Sögu. Jóhannes hóf íþróttaför sína er- lendis með flokk íslenskra glímu- manna.. Sýndi hann þannig og víð- frægði þessa þjóðaríþrótt fslend- inga. Síðar setti hann saman kerfi nokkurt varna og bragða og nefndi sjálfsvörn. Var það bygt á íslenskri glímu, en til þess fallið að verjast árásum og atlögum vopnaðra eða vopnlausra ofbeldismanna. Enn síð- ar setti hann saman leiksýningu, reista á þessari íþrótt. Er leikurinn þáttur úr frumbyggjalífi hvítra manna í Ameríku og viðureign þeirra við hina herskáu og grinnnu Indíána, þar sem Jóhannes verst árásum og vopnum nokkurra manna. Hefir Jóhannes verið mjög eftirsótt- ur í heimi leikhúsanna og getið sér heimsfrægð, eins og áður er tekið fram. En samtímis því, að stunda í- þróttir sínar, hefir Jóhannes, lagt mikla stund á að kynna ísland og ! íslenzka menningu á ferðuni sínnm og borið hróður þjóðar sinnar hvar- vetna, sem hann hefir lagt leið sína. Hann hefir fylgst vel með því, sem gerst hefir heirna, veitt athygli og samhug hverju því er hann mátti og sem horfði til sóma og nytsemdar landi hans og þjóð. Loks hefir liann flutt mörg erindi um ísland, ís- lenska menningu og sögu og hefir þeim erindum verið víðvarpað Hið síðasta flutti hann í New-York um Alþingishátíðina 1930. Jóhannes Jósefsson er fyrst og fremst íslendingur. íslendingseðlið er í fari hans og meðvitund, þrótt- ug og hrein ímynd drengskapar og afreka. Þetta hefir fengið honum stórsigranna. En það hefir gert meira það hefir gefið ho.num lífs- mið og ætlunarverk. Hann er kom- inn heim jafnþróttugur og heitur Ungmennafélaganna. Og hann kominn með nýjar fyrirætlanir um stórvirki í landinu. Veri hann og fjölskylda hans vel- komin heim. Jarðarför litla drengsins okkar, Páls, sem andaðist 20. þ. m. fer fram þriðju- daginn 31v maí og hefst á heimili okkar kl. 11 f. h. Hvammi 24. maí 1927. Guðný Pálsdóttir. Halldór Guðlaugsson. Maður nokkur, sem mun hafa tekið að sér fyrir litla borgun, að skrifa þjóðmálablekkingai' í íslending', lætur í grein í 14. tbl. þ. á. ummælt meðal ann- ars á þessa leið: »--------. Ef athugaður ei' útflutn- ing'ur landsins á árunum 1920—25 sést, að útfluttar landbúnaðarafurðir nema eigi meira en 6/7 hluta af verðmæti alls útflutnings og virðist mismunur þessi stöðugt fara vaxandi. Það er því auðsætt að allar framfarir og afkoma okkar byggist nú aðallega á sjávarút- veginum og að skattar og tollar ríkis- sjóðs koma mestmegnis þaðan eöa í svipuðu hlutfalli, þannig að þessi at- vinnuvegur stendur undir alt að öb hlutum alls þjóðarbúskaparins.*-------« Því er að vísu svo háttað, að alment mun þykja litlu skifta, hvort samtíningi þessa manns úr öðrum blöðum og ó- merkilegu skrifum, er svarað eða ekki. En staðhæfing þessi er látin fara án at- ■% hugasemda af blaðsins hálfu; enda er hún margendurtekin þjóðmálablekking' llialdsblaðanna. Þykir Degi því rétt að fara Um hana nokkrum orðum. Sú gífurlega staðhæfing, sem hér ræðir um, er í tvennu lagi: 1. Að skattar og tollar ríkissjóðs komi að 6h hlutum frá sjávarútvegin- um. 2. Að sjávwrútvegurinn standi undir 6h hlutum alls þjóðarbúskaparins. Verður hér fyrst athugaður hinn fyrri liður. Samkvæmt landsreikningi fyrir árið 1924, voru tekjui' ríkissjóðs samtals á 12. milljón króna. Skal hér gerð tilraun að sundurliða tekjubálkinn og gera grein fyrir hlutfallinu milli opinberra er • gjalda þeirra, sem hvíla á sjávarútvegi annarsvegar og landbúnaði hinsvegar: I. Eigna- og tekjuskattur var 841 * Leturbreytingin mín. Ritstj.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.