Dagur - 13.10.1927, Page 2
102
DAGUR
43. tbl.
W
Kolafarm
af hinum ágætu hörpuðu D. C. B. eimkolum fá-
um við í lok þessa mánaðar. Verða seld á bryggju
fyrir 38,00 kr. tonnið. — Fáum einnig nokkur
tonn af ágætu gas-koksi, sem verður selt á 55,00
kr. tonnið á bryggju.
Peir sem enn eiga eftir að panta kol hjá okkur
ættu að gera það hið fyrsta. — Sími 228. —
Kaupfélag Eyfirðinga.
SiiiBiiiiiiiiiiiiiilii
Mannkynið hefir úthelt blóði sínu
til þess að öðlast frelsi; borgara-
legt og andlegt frelsi. Þegar
mennina kennir til undan meinum
sínum og vandkvæðum, eru þeir
huggaðir með því, að þeir eigi
þetta dásamlega frelsi. Þó er
þetta í rauninni blekking ein.
Frelsið er ekki meira en það, að
jafnvel húsbændur mannkynsins
og stóreigendur standa skjálfandi
af angist, ef loftvog peninganna
fellur um 1% á einhverri kaup-
höllinni. Það getur orðið til þess,
að heilt land engist í krampaflog-
um, og þúsundir alsaklausra
manna finni grundvöll heimilis-
hamingju sinnar rugga undir fóí-
um sér.
Nú kann einhver að vilja gegna
því hér til, að svona slæmt sé á-
standið ekki hjá oss. Hér sé þó að
minsta kosti svigrúm fyrir sann-
færingu, og friður og ró til þess áð
öðlast andlega dýpt.
Það sýnist svo í fljótu bragði.
Það er nóg af fásinni, einangrun
og kyrð. En það er ekki nóg.
Menn geta verið mjög ófrjálsir í
kyrð og fásinni, og verið í úlfa-
kreppu andlega, þótt rúmgott sé
á milli bæjanna. Og einhvernveg-
inn er það svo, að vér finnum
fingraför rangsnúins tíðaranda
hér um bil jafn fljótt á andnesj-
um og dalabæjum, eins og í höf-
uðborgunum. Vér erum engu bet-
ur settir en aðrar þjóðijr í þessu
efni, nema ver sé. Víðast hvar er
það að verða hreint og beint pen-
ingaspursmál, hvort menn hafa
ráð á að eiga sannfæringu. Fyrir
flestum af oss er ekki svigrúm
fyrir aðra sannfæringu en eftir-
mynd af sannfæringu voldugustu
mannanna. Sú eftirmynd er eins
og nokkurskonar verndargripur.
Vér verðum að taka hana upp við
hátíðleg tækifæri, ef vér eigum að
fá að vera óáreittir í lífinu, og oss
á vel að vegna. En þetta drepur
alla alvöru, og liggur eins og farg
á andlegu sjálfstæði manna. Og
blöðin leggja einatt smiðshöggið
á þetta verk. Þau hafa mörg hver
verið langvoldugustu útverðir
blekkinganna, mannfélagshræsn-
innar og sálnadrepsins með þess-
ari þjóð. Með þrotlausum vaðli og
glamri, grúfa þau yfir hugura
fjölda manna eins og pestnæm
bölvun. Þau útskýra til þess að
flækja, þau segja frá, til þess að
leyna, þau ranghverfa til þess að
drepa hvern vott sjálfstæðrar
hugsunar, ef verða mætti. Og vér
skyldum varlega ætla, að oss sé
engin hætta búin af slíku, einkum
meðan vér erum enn á þroska-
skeiði ogþekking vor í molum. Það
hefir margur unnið sér það verk
tiltölulega létt, að týna sál sinni í
öllum þeim þvættingi. Á þeim ár-
um ríður oss lífið á, að varðveita
þann heilbrigða-þorsta sálarinnar,
sem gengur með viðfangsefni sín
fyrir dómstól fullkonmustu
fræðslunnar, sem vér eigum völ á,
og beygja sig undir úrslit þess
dómstóls með auðmýkt og karl-
mannlegri ró.
En þótt skilyrðin séu þannig
fyrir öllum þorra af oss fremur
óvænleg til eflingar máttugs per-
sónuleika, þá er ekki réttmætt að
varpa öllum vonum fyrir borð,
fyrir þá sök. ,
í hugum ykkar æskumannanna
brýtst svo þróttmikil vitsþrá og
vaxtar þörf, að ekki verður slökt,
ef rétt er á haldið. Þannig er allri
æsku farið. Á þessari eigind æsk-
unnar eru vonir mannkynsins
grundvallaðar. Og þegar vér hinir
eldri menn sjáum vandkvæðin
nálgast, þau sem stafa munu af á-
tökum og sviftingum komandi
ára, um tilhögun alls mannlífs, þá
heldur það höfðum vorum upp-
réttum og hugum vorum óskelfd-
um, ef vér megum vita, að í röð-
um ykkar hinna yngri eru að hefj-
ast menn, máttugir í skapgerð,
varmir í hjarta, auðugir að dóm-
greind og vizku.
Það finnur það enginn betur en
eg, hvað lítið eg get lagt yður af
mörkum í heilsusamlegum ráðum,
ef yður fýsir að leggja á þá leið, hve
lítt eg er fær um að svara, ef þér
kynnuð að spyrja: Hvað á eg að
gera, til þess að verða máttugur
maður? Egvilspyrjayður að ann-
ari spurningu: Hvað er máttur,
hvað er kraftur? Kraftur er
framkvæmi þess, að einhverju
hefir verið þrýst saman einbeitt,
hert. Starfandi kráftur er ein-
beiting, samþrýsting, herzla, sem
leyst úr læðingi.
Demant er sterkur. Þó er hann
úr áþekku efni og kolin, sem vér
brennum í ofnum vorum. En hann
er skapaður við ógna þrýsting.
Þér getið látið demant loga, en þá
logar hann með ægilegum hita. Þá
brýzt hin gífurlega herzla úr læð-
ingi.
Dynamit er sterkt, en það er
efni, þar sem ógurlegum aflgjafa
er þjappað saman í örlítið rúm-
tak. Stál er sterkt. Það er járn,
sem hefir fengið glóandi herzlu.
Alt sem er útþynt, teigt og mjúkt,
er máttlaust. Alt sem hefir verið
hert, éinbeitt, þrýst saman, er
sterkt. Hvernig á eg þá að verða
máttugur? Með því að veita sjálf-
um mér hliðstæða meðferð þeirri,
sem sterkir hlutir hafa hlotið,
með varðveizlu, herzlu, einbeit-
ingu.
Sjálfsvarðveizla er fyrsta boð-
orð þess, er verða vill máttugur,
varðveizla andlegrar og líkam-
legrar heilbrigði, varðveizla vits
og orku. Sá, er ’verða vill máttug-
ur, verður að læra að skoða sem
synd alt, sem skaðað getur heil-
brigði hans, skoða sem synd alla
sóun á sjálfum sér, alt sem drepið
getur mætti hans á dreif. Hrein-
leikur, hófstilling, tamning, verða
hinar gullnu reglur lífs hans. Af
öllu, sem eg hefi séð. sóað, hefir
mér ekki orðið eins helsárt um
neitt, eins og þá sóun heilbrigði
og orku, sem vér gerum oss sek í,
og æskan ekki hvað sízt. Vér týn-
um á þann hátt meiri verðmætum
árlega, en öllu því, sem eytt er
fyrir fánýtar skemtanir, verð:
laust tildur og deyfandi lyf. Og
vér, hinir cldri, höfum einnig
þungar syndir á baki í þtfí efni,
enda var illa að oss búið með upp-
fræðslu og hjálp. Eg er hræddur
um að skólarnir okkar sumir, og
le'iðtogar þeirra, eigi þar til alvar-
legra saka að svara. Eg þekki
fjölda af námsmönnum, og nokk-
uð af skólum, þar sem það virtist
vera ríkjandi samkomulag, að
skólarnir reyndu að slá einhverja
gjaldgenga mynt úr þeim leyfum
vits og orku, sem afgangs voru
þegar búið var að færa göturáp-
inu, næturvökunum og byrjunar-
stigum svallsins, sínar ríkulegu
fórnir. Þeir smáskildingar voru
svo allur sá höfuðstóll, sem þessir
menn áttu til þess að leggja fram
í lífið. Þegar kynþroskatíma-
bilið hefst, þá er það sannað mál,
að orkuforði einstaklingsins vex
til stórra muna. Ægilega miklu af
þeirri orku sóum vér á meiðandi
hátt fyrir manngöfgi og þrek. Það
er til undra-spaklegt orð, í fornu
hebresku kvæði, er svo hljóðar:
»Vekið ekki ástina fyr en hún vill
sjálf«. Það er engin hætta á því,
að lífið geri yður afskift af unaði
sínum fyrir þá sök. í þeim efnum
er bezt að »hlýða réttu og góðs að
bíða«. Og það getur farið svo
nörmulega, að þér sitjið hungruð,
en þó lystarlaus við háborð lífsins
á sínum tíma, ef þér sóið mætti
yðar á ötímastund. Það getur far-
ið svo, að allur sá höfuðstóll, sem
þér eigið að leggja fram í heimil-
ishamingju yðar, verði leyfar
þeirrar orku, sem týnd er í aur cg
sand á þúsund gatnamótum, orku,
sem hefði mátt stilla í hóf og
temja til starfs og vaxtar, sem
hefði getað orðið grundvöllur að
vitþroska yðar, vinnuleikni og vel-
gengni. Eg hefi gengið í gegn um
þennan bæ á björtu kveldi. Eg
hefi mætt hópum af kornungum
meyjum og sveinum, sem virtust
gunnreif og glöð. Eg á ekki mikið
af andlegum næmleik, en þó finn
eg að þessi hópur æskulýðs er
þrunginn af lífsmáttugri orku.
Svo er allstaðar.á fslandi. Ef þér
tækjuð þessa orku og temduð, og
beittuð henni á þau viðfangsefni,
sem sama heilbrigðri æsku, sem
stefnir til farsældar sér, þá mund-
uð þér verða þess megnugir í vits-
munum og þreki, sem engin kyn-
slóð á undan yður hefir verið. En
gætið þess, að hver sóun getur
orðið þess valdandi, að máttur yð-
ar hrökkvi yður ekki til fulltingis
á úrslitastundum æfinnar, að
dómgreind yðar sortni fyrir aug-
um, þegar mest ríður á.
Samhliða sjálfsvarðveizlunni
hefst sjálfskönnun. Hún er fólgin
í því, að þér hefjið rannsókn á
innviðum persónu yðar, að þér
reynið að kanna skapferli yðar
sem vandlegast og skilja kost
þess og löst, hvað það ber í
sér þess eðlis, að *efla megi
máttugan mann, og hvað þar sé
það, er yður mætti verða rýrð eða
óvirðing að. Þér kannið eftir
mætti tilfinningalíf yðar, gætið
þess hvernig yður liggur næst að
andæfa utanaðkomandi áhrifum,
frá umhverfi og mönnum og reyn-
ið að skynja hvort svarið, endur-
áhrifin frá yður eru í þeim tón,
að þau göfgist eða auðvirðist á
því að snerta persónu yðar. Þér
rannsakið hneygðir yðar og vilja-
líf, veilur viljans og þol. Sjálfs-
könnun yðar verður að vera hlífð-
arlaus og róleg, hlutlaus og djörf.
Þér verðið að brjótast inn að
dýpsta grunni sálar yðar, inn í
instu launklefa hennar og horf-
ast þar í augu við sjálfa yð-
ur, eins og þér. eruð í raun og
veru, vilja-þurfa, vits-þurfa, mátt-
ar-þurfa. Og þaðan lítið þér á
starfstæki yðar, reynið að skilja
meginhæfileika yðar, og hvert
hann stefnir, hvað það er í yður,
sem þér þurfið að magna og efla,
og hvað þar er, sem þér þurfið að
sveigja til auðsveipni og þjónustu
við höfuðtilgang yðar. Þegar sá
skilningur er fehginn, er komið
að þriðja höfuðatriðinu; herzlu