Dagur - 13.10.1927, Side 4
164
DAGUR
43. tbl.
Jarðirna r
hálfir Helgastaðir og hálfur Kerhóll, báðar í Saurbæjarhreppi
innan Eyjafjarðarsýslu, eru til sölu og lausar til ábúðar í næstu
fardögum. Lysthafendur setnji við undirritaðann, sem gefur allar
nánari upplýsingar, fyrir 10. desember n k.
Möðrufelli 8. október 1927.
Guðbrandur ísberg.
Kaffibæfirinn ,Sóley‘.
Efnarannsókn hefir sannað, að hann stendur í engu á baki þeim kaffi-
bæti, sem beztur hefir þótt á landi hér. Atvik hafa sýnt, að vand-
látustu kaffineytendur þekkja ekki tegundirnar í sundur á öðru en um-
búðunum.
SAMBAND ÍSL. SAMVINNUFÉLAGA.
Herkules —heyvinnuvélar.
Samband ísl. samvinnufélaga.
Hreins-Kreolin
er best. Og auk þess er það innlend framleiðsluvara.
Sauðfjáreigendur! kaupið því
Hreins-Kreolin.
ingur, sem þar hefir umsjónar-
maður verið síðustu árin, ekki lát-
ið »gullið fara um greipar sér«.
Úrganginn er gott að nota mulinn
1 blómagarða í staðinn fyrir
skeljasand, og mundi vera hægt
að fá þaðan í poka fyrir lítið
verð. Þessar lítilsvirtu leifar
segja til sín, vegna litsins, úr
margra km. fjarlægð. Hálfgegn-
sæir silfui’bergsmolar finnast
annars ofanjarðar hér og hvar í
Reyðarfirði, einkum hátt til
fjalla.
Á Helgustöðum óx mjaðjurt
kippkorn ofan bæjar; var mér
vísað á hana af Einari Loftssyni,
sem þar var heimilismaður; mun
hann fyrstur manna hafa tekið
hér eftir plöntu þessari, sem er
afar sjaldgæf í Austfirðingafjórð-
Oederi) ; er hún ný fyrir Austur-
ungi. Hér fann eg gullstör (carex
land. Og í Helgustaðaárgilinu óx
allmikið af klettafrú.
15. júlí stóð eg uppi á Grákolli;
það fjall er í norðaustur frá’
Helgustöðum, og er nál. 800 m. að
hæð. Fjallið er flatt ofan og þétt-
vaxið grámosa (grimmia) ; af því
dregur það nafn. 8 tegundir há-
plantna fann eg þar á strjálingi á
mosaþembunni. Austan í fjallinu
eru hrikalegir klettar. Þangað
hafa náttúrufræðingar stundum
farið til þess að safna steinum,
því í fjalli þessu er auðugt af fá-
séðari steintegundum. Af Grákolli
er útsýni bæði mikið og fagurt.
Sér út yfir Hellisfjörð og yfir há-
lendið alt austur fjarðarins og
umhverfis Gerpi. Vestur af fjall-
inu liggur leiðin niður í Hrafna-
dalsbotn; þaðan er fljótfarið nið-
ur í Hellisfjörð. Yfir þveran dals-
botninn liggur all-mikill jökul-
skafl; meðfram honum þrífst lítið
annað en nokkrar mosategundir.
Hér var eg svo lánssamur að fyr-
irhitta afar-fágæta plöntu, snæ-
narfagras (catabrosa algida).
Planta þessi gerir ekki háar kröf-
ur til lífsins; hún unir sér aðeins
þar sem ískalt snjóvatnið leikur
um hana. Þarna stóð hún í blóma
og var bústin eftir hætti.
Farið var á »trillu« yfir Reyð-
arfjörð. Trillur nefna Reyðfirð-
ingar færeyska vélbáta litla; eru
þeir' þegar farnir að leggja niður
hina algengu mótorbáta og hafa
tekið þessa upp í staðinn; þykir
þeir léttari í snúningum og ekki
eins kostnaðarsamir þegar afli er
rýr. Virtist mér bátar þessir
vera einnig hin snjöllustu farar-
tæki.
Nú var eg staddur að Hafra-
nesi, sunnan fjarðar; þar er stórt
og myndarlegt steinsteypuhús, og
gestrisnir húsbændur innan vegg-
ja. Hér er láglendisspilda með sjó
fram en skaimt til snarbrattra
fjalla, með fátæklegum háplöntu-
gróðri. Á Hafranesi fanst mér
vera einkennilega falleg-t. Stuðla-
bergshleinar eru víða, bæði við
sjó fram og í fjöllum uppi. Sum-
staðar er líkast því sem bergið
vœri hlaðið upp af manna hönd-
um. Háir, lóðréttir stuðlabergs-
veggir standa á jafnsléttu —
stundum fleiri saman; minnir það
á kastalarústir fornár. Uppi í
veggjunum hefir stöku planta náð
að festa rætur; annars er þar ó-
skaplega þurt, einkum mót sólar-
átt. Þar fann eg bergsteinbrjót,
sem áður var búið að geta um og
liðfætlu (woodsia ilvensis). Hin
síðarnefnda er lítil, snotur
burknategund, sem óvíða finst
norðanlands.
f suðvestur frá Hafranesi geng-
ur dalur einn óbygður inn í fjöll-
in, Breiðdalur er hann nefndur.
Þar er fjölgrösugt mjög; enda
liggur dalurinn lágt (80—100 m.)
yfir sjó, og nýtur sumpart betur
sólar, en flestir aðrir staðir sunn-
an fjarðar. Hér fann eg rauð-
berjalyng (vaccinium vitis Iclæa).
Hefir það áður fundist á einum
stað horðanlands, í Núpasveitinni.
Allmargir munu kannast við
danska nafnið á tegund þessari;
það er Tyttebær. Berin eru etin,
og væri því reynandi að rækta
tegundina hér í görðum. Blómin
eru ljósrauð og berin hárauð.
Áfram inn með firðinum! Víða
eru fjöllin allsnakin; og sumstað-
ar mætir hærukollur Grámosi ið-
grænum láglendisgróðrinum, 100
m. yfir sjó. Einkennilegt!
(Meira).
-------o------
S im s k ey i i.
Rvík 12. okt. 1927.
Frá New York: Uppreist er
hafin í Mexiko undir forustu
Gomezar hershöfðingja, er virðist
hafa sterka aðstöðu.
Frá London: Styrjöld er aftur
hafin í Kína og veitir ýmsum bet-
ur.
Frá París: óopinber fregn frá
Moskwa segir að Rakovski verði
kallaður heim.
Frá Berlín: Jugoslafneskur
hershöfðingi hefir verið myrtur,
sennilega af Makedoníumönuum.
Þetta, ásamt fleiru, hefir orsakað
deilu milli Búlgara og Jugoslafa,
sem þó virðist á enda kljáð vegna
tilslakana hinna fyrnefndu.
Frá London: Landsfundur
brezkra íhaldsmanna hefir fallist
á tillögur Baldwins viðvíkjandi
breytingum á efri málstofunni.
Anna Borg hefir verið ráðin til
að leika Agnesi, í Brandi Ibsens, á
Betty Nansens leikhúsinu _í Khöfn
í vetur.
Veðuráttan hefir verið ágæt á
Suðurlandi, en nokkuð úrkomu-
samt. Afli og sala togara er held-
ur lakari en undanfarið.
Frá- Berlín: Nýir verzlunar-
samningar hafa tekist milli Persa
og Rússa, er heimila innflutning
fyrir 50 miljónir rúblur til Rúss-
lands.
------o------
— Móttekið áheit á Strandakivkju
frá N. N. kr. 20.00.
— Kirkjan. Messa og altarisganga á
sunnudaginn kl. 2.
Góð kýr
tii sölu hjá
Sigtr. Guðlaugssyni
Halldórsstöðum.
Ritstjórn og ábyrgðarmenn:
Stjórn útgáfufélags »Dags«.
Prentsmiðja Odds Bjömssonar,