Dagur - 23.03.1928, Blaðsíða 2
52
DAGUR
13. tbl.
ÍLínuverK
tjargað og ótjargað, allar tegundir.
||2 Önglar og taumar fyrir mótorbáta
p@ og árabáta.
H!2 Grenslist um verð áður en þér íestið
P*® kaup annarstaðar.
3* KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA.
ífwSíwBrw
• •-• • •-•-• -• • • -• •-•-•-•-•-•-•-••-•
Myndastofan
Oránufélagsgötu 21 er opin alla daga
frá kh 10-6.
Guðr. Funch-Rasmussen.
segja að í frumvarpi þessu felist
viðurkenning frá íhaldsflokknum
á því, að bændur skorti reksturs-
fé; en þess hefir varla orðið vart
áður úr þeirri átt. Þetta er nálega
hið eina, sem telja má frumvarp-
inu til gildis; en annars hafa kröf-
ur og tillögur um aukið reksturs-
fé handa bændum verið dagskrár-
mál Framsóknarflokksins svo ár-
um skiftir; enda verður um þau
mál búið á hagkvæmari og tryggi-
legri hátt, en gert er r þessu í-
haldsfrumvarpi, því að úrlausnar-
ákvæði þess eru bæði ómerkileg og
skaðleg.
Áform B. Kr. eru þar útbúin
eins og gildrur fyrir bændur, þó
að honum kunni sjálfum að mis-
líka gyllingarnar, t. d. samá-
byrgðin; en undarlegt er, að Árni
frá Múla skuli vera svo hreykinn
af að taka þessi fósturbörn karls-
ins að sér til umsjár og framfær-
is. Hann mætti þó muna viðskifti
B. Kr. og hinna eldri samvinnu-
frömuða og bændaforingja hé/ á
landi. Þá stóðu þeir á verði um
hagsnruni og samtök bænda gegn
kaupmannavaldinu; en nú heldur
Á. J. »Vörð« um áhugamál B. Kr.
og stéttarbræðra hans.
—:—o-----
100 ára Ibsensminning.
Hinn 20. þ. m., á Þriðjudaginn
var, voru hundrað ár liðin frá
fæðingu norska stórskáldsins Hen-
riks Ibsens. í tilefni þess flutti
Davíð skáld Stefánsson fyrirlestur í
Samkomuhúsinu; var það gert að
tilhlutun Stúdentafélagsins. Rakti
ræðumaður nokkuð æfiatriði Ibsens,
en lýsti þó einkum andlegum af-
rekum þessa skáldajötuns, eins og
þau koma fram í leikritum hans.
Húsfyllir var og sátu áheyrendur
hugfangnir undir ræðunni, sem
stóð yfir nokkuð á annan tima.
--------o-------
Kirkjan. Messað á Sunnudaginn í
Lögmannshlíð kl. 12 á h, d.
„Æjintýri á gönguföF.
Að þessum tíma hefir Leikfélag
Ak. sýnt alvöruþrungna leiki í-vetur.
Nú hefir það brugðið út frá þessari
venju og hefir á boðstólum verulega
skemtilegan gamanleik. Er það
»Æíintýri á gönguför«. »Æfintýrið«
er gamall og góður kunningi, og
hefir sá leikur áður reynst einkar
vinsæll og svo mun enn reynast.
Leikurinn var sýndur í fyrsta sinn
á Laugardaginn var, og verður ekki
annað sagt en að tækist vel að
öllu samaniögðu og á vissum svið-
um ágætlega. Útbúnaður allur er í
bezta lagi og leikendur mjög vel
valdir vegna söngsins.
Jóhann Þ. Kröyer sýnir assesor
Svale; er hann sýndur í öðru gerfi
en áður hefir tíðkast og öllu
skringilegri; er karlinn hinn spaugi-
legasti og mjög vel leikinn. Dóttur
hans og frænku, Láru og Jóhönnu,
leika þær ungfrúrnar Anna Flóvents-
dóttir og Dagrún Halldórsdóttir, og
ferst báðum laglega. — Vermund
skógfrœðing ieikur Zophónías Árna-
son, og er leikur hans góður og
söngrödd hefir hann ágæta. — Kranz
he'raðsdómara leikur Jóhannes Jónas-
son. Nokkuð skortir á að þessi
nautheimski vindhani sé sýndur
eins eðlilega og vera ber, enda er
hlutverkið örðugt að ýmsu leyti, að
vísu tekst J.J. vel að sýna heimsk-
una og einbættishrokann, en þessi
hlægilega, smásmuglega sjálfsánægja
í heimskunni kemúr ekki nógu
skýrt íljós; fyrir vikið verður hann
ekki eins »komiskur« og skyldi.
Ennfremur sýnir J. J. Pétur bónda
og ferst það sæmilega; þó ekur
hann sér óþarflega mikið. -
Frú Kranz leikur frú Guðrún
Jóhannesdóttir; er hún kunn leik-
kona hér í bæ frá fyrri tið og gat
sér þá góðan orðstír og er síst að
sjá í þessum leik að henni hafi
farið aftur. — Herlöv stúdent, ærsla-
belginn niikla, sýnirSigurður Hlíðar;
tekst honum ágætlega að sýna
fjörið og græskulausan gáskann, en
málrómurinn er nokkuð hvell og
óskýr. — Hinn stúdentinn Éibekk,
leikur Agúst Kvaran. Þenna draum-
lynda gáfu- og gæðamann leikur
A K. af mikilli list. - Gísli Magn-
ússón fer með hlutverk Skrifta-Hans
og tekst honum það prýðilega.
Ágúst Kvaran var leiðbeinandi
við undirbúning leiksins, og hefir
hann að kunnugra manna sögn
leyst það starf af hendi með ná-
kvæmni og af alúð.
Það er góð og saklaus skemtun
að horfa á »Æfintýrið«.
------o------
Um víða veröld.
Hundrað ára minning Ibsens.
Hinn 20. þ. m. voru 100 ár liðin
síðan Henrik Ibsen fæddist —
skáldkonungur Norðmanna. —
Heimiurinn dáðist að honum,
Norðmenn -höfðu eignast stór-
skáld á alþjóðamælikvarða. Ef til
vill mesta skáld samtíðarinnar.
Það hefir komið í Ijós síðan hann
dó, að hann var meira skáld, en
samtíðarmenn hans álitu. Hann
var ekki vel látinn né elskaður af
þjóð sinni, enda voru ádeilurit
hans sum nöpur og oft misskilin.
En núlifandi kynslóð Norðmanna
metur Ibsen líklega mest af
norskum skáldum; og er mjög vel
vandað til hátíðahaldanna, sem
háð eru í helztu bæjum Noregs
þessa dagana.
Leiksýningar í sambandi við af-
miælið hófust 14. þ. m. í Osló og
áttu að standa til 20. s. m.; þar
átti að sýna 8 af helztu leikritum
skáldsins. En 22.—23. þ. m. átti
að hafa 2 leiksýningar í Bergen.
í Osló eru auk þessa haldnir fyr-
irlestrar um Ibsen, og sýningar
hafðar á handritum hans og ýms-
um munum'. Norska stjórnin, rit-
höfundafélag Norðmanna, lista-
mannafélagið og borgarstjórnir í
Osló og Bergen halda veizlur í
sambandi við minningarhátíðina.
Auk opinberra fulltrúa frá öll-
um ríkjum Evrópu og flestum
ríkjum Ameríku, hefir flestum
þeim mönnuifi, serrv orðstír hafa
getið sér við rannsóknir á skáld-
verkum Ibsens, verið boðið á há-
tíðina. Blaðamannafél. fslands og
Leikfél. Reykjavíkur var boðið að
senda fulltrúa þangað, og fóru
þeir utan samkvæmt vali félag-
anna: Þorsteinn Gíslason ritstj.
og Indriði Einarsson rithöfundur.
Forsetakosningar í Bandaríkjun-
um.
eiga fram að fara á þessu ári.
Fjöldi Republikana hefir viljað
að Coolidge yrði enn í kjöri. Hef-
ir um það verið deilt, því sumir
telja að hann hafi verið forseti
tvö kjörtímabil; var hann kjörinn
varaforseti 1920, og tók sætið við
fráfall Hardings. En það er göm-
ul, rótgróin venja, að engin má
gegna forsetastörfum nema tvö
kjörtímabil. — Hinsvegar hefir
Coolidge sjálfur lýst því yfir, að
hann gefi ekki kost á sér; og öld-
ungadeild þjóðþingsins í Banda-
ríkjunum hefir nýskeð samþykt
ályktun andvíga því, að nokkur
forseti gegni embætti þrjú tíma-
bil; má því telja víst að Coolidge
komi ekki til greina, þó það sé á-
hugamiál fjölda manna vestra.
Herbert Hoover verzlunarmála-
ráðherra Bandaríkjanna hefir
fallist á að verða í kjöri við kosn-
ingu forsetaefnis Republikana.
Hann er einn mikilhæfasti stjórn-
málamaður Bandaríkjanna, og
hefir gegnt ábyrgðarmiklum
störfum, við hin stærstu skipu-
lagsmálefni. Hann annaðist yfir-
stjórn matvælaúthlutunar á með-
al bágstaddra ófriðarþjóða í lok
heimsstyrjaldarinnar, á friðar-
fundinum í París 1919 var hann
skipaður yfirmaður Amerísku
hjálparstarfseminnar í Evrópu;
og umsjón hafði hann með allri
hjálpar- og endurreisnarstarfsemi
eftir að Missisippiflóðin geisuðu í
fyrra um Suður-ríkin. Hoover er
verkfræðingur, og fæddur 1874, í
ríkinu Iowa.
Þráólaust talsímasamband
magnast óðum!. Má nú tala frá
Bandaríkjunum og Canada til
Englands og einnig til Brussels
og Andwerpen í Belgíu; er ráð-
gert að setja upp þráðlausar tal-
stöðvar í flestum stórborgum
Norðurálfunnar. Verður þá Eng-
land einskonar skiftistöð milli
Norðurálfu - og Vesturheims.
Einnig er ráðgert að fjölga til
mikilla muna þráðlausum tal-
stöðvum um alla Norður-Ame-
ríku.
Brezki stjómmálamaöurinn Her-
bert Henry Asquith,
lést 15. f. m. Hann var fæddur
1852. Lögmaður varð hann 1876
og víðkunnur fyrir málafærslu-
starfsemi sína. Á þing var hann
kosin 1886. Hann var innanríkis-
ráðherra 1892 í fjórða ráðuneyti
Gladstones, og gegndi því til 1895.
Ráðherra varð hann aftur 1905;
og þegar Campell Bannermann
lést 1908, varð Asquith forsætis-
ráðherra og gegndi því til árs-
lcka 1916. Hann var aðal-leiðtogi
frjálslynda flokksins (liberala)
1905—1914, er flokkurinn fór
með völdin í landinu. Átti hann
manna mest þátt í þeim miklu
umbótum, sem þá voru á ýmsum
sviðum í Englandi, og þótti vin-
veittur verkalýðnum. Á stríðsár-
unum þótti sumum flokksmönnum
hans, að hann skorta einbeitni og
kjark og fylktu sér þá um Lloyd
George, þáverandi fjármálaráð-
herra, er bolaði Asquith frá
stjórnarformenskunni 1916. En
flestir ákveðnustu flokksmennim-
ir héldu þó trygð við Asquith.
Hann féll að vísu við Desember-
kosningarnar 1918, en komst aft-
ur að við aukakosningar í Febrú-
ar 1920; gerðist þá aftur aðalleið-
togi flokksins síðustu árin og
stýrði honum með meiri festu og
vinsældum en L. G. — í fyrra tók
Lloyd George við flokksstjórninni.
Firðsýni (television)
hefir hepnast nýlega, samkvæmt
tilraunum á milli London og New
York. Þeir, er töluðu saman yfir
Atlantshafið, gátu greint andlits-
drætti hvor annars. Tilraunirnar
voru gerðar með aðférð hins
skotska uppfyndingasnillings
Baird, og undir forystu hans. Er
rannsóknum og endurbótum hald-
ið áfram af miklu kappi beggja
megin hafsins og talið að bráð-
lega verði komið á firðsýnissam-
bandi, er borgi sig, á milli Bret-
lands og Ameríku.