Dagur - 23.03.1928, Blaðsíða 4
I
54
DAÖUR
13. tbL *
Hjálparstöð fyrir berkla-
veika og hjúkrunarstöð
fyrir Akureyrarbæ.
Stjóm Rauða Kross deildarinnar hér
í bænum hefir beitt sér fyrir því, að
reyna að koma á fót hjálparstöð eða
hjúkrunarstöð fyrir bæinn, í líkingu
við Hjálparstöð Líknar í Reykjavík.
Hefir stjómin í því skyni sótt um
fjárstyrk til Aiþingis og sömuleiðis til
bæjarstjómar kaupstaðarins.
Hjúkrunarstöðvar af því tagi, sem
hér ræðir um, hafa á síðustu tveim
áratugum rutt sér til rúms í öilum
menningarlöndum, ekki sízt á Englandi
og á Norðurlöndum.
Af öllum þeim mörgu nytsömu
heilbrigðisráðstöfunum, sem eg í vetur
kyntist á Englandi, bæði í Lundúnum
og úti um sveitir þar í landi, leizt
mér einna bezt á hjúkrunarstöðvarnar
(Tuberculosis Dispensaries, School
Treatment Centers, Child Welfare and
Matemity Centres), sem óðum eru að
komast upp í öllum bæjum stærri og
minni og úti um sveitir.
Hjúkrunarstöðvarnar miða til þess,
að útbreiða meðal alþýðu þekkingu
á sjúkdómum og þó einkum rúðum
til þess að koma i veg fyrir þá eða
leita lœkningar i tœka tíð.
Stöðvar þessar eru ýmist kostaðar
algerlega af opinberu fé (ríkissjóði
einum eða rfkissjóði og bæja- eða
sveitasjóðum í sanieiningu) eða af
frjálsum styrk borgaranna og einstakra
félaga.
Lítt efnuðu fólki eru þar látnar í té
ókeypis leiðbeiningar af lækni og
hjúkrunarkonum um háttalag og með-
ferð sjúklinga, og þegar efni stöðvarinnar
leyfa er þeim veitt ódýr eða ókeypis
hjúkrunarhjálp í heimahúsum, lánuð
hjúkrunargögn, lánaður eða gefinn
rúmfatnaður og annar fatnaður og séð
fyrir ódýrum og hollum matvælum.
Lærð hjúkrunarkona sér um stöðina
(2 herbergi á hentugum stað í bænum)
fram við ós á fáguð svell
festa rós um nætur..
Morgunsigling.
Syndir gnoðin, svalur blær
sogar boðaföllin,
morgunroði meðan skær
málar goð á fjöllin.
Mótbyr lífsins.
Vonir fenna, vaknar þrá.
Vinslit kenna árin.
Hjörtu brenna, hlýrum á
höfug renna tárin.
Útþrá.
Fjörið eyðist; anda minn
útþrá seyðir gjarna
gegnum heiðan himininn
hátt á leiðum stjarna.
Fjólan.
Þroskuð hóli háum á
hress við gjólu slagi
dansar fjólan fagurblá
fram að sólarlagi.
Sumarnótt.
Dags við flótta skrautið skín
skýin hljótt um vefur.
Fyrir óttu sólarsýn
sumarnóttin gefur.
• • • i
Undirritaður hefir nú sem
stendur margar tegundir af málara-
pappír. Einnig pappír til þess að
líma á hurðarúður og glugga (í
staðinn fyrir matt gler). Ennfremur
allar algengar málaravörur.
Jón Þór.
Rar mætir læknir til viðtals á vissum
tímum, þar eru geymd hjálpartæki
félagsins og þangað geta þeir snúið
sér, er óska aðstoðar hjúkrunarkonu á
heimilum sínum. Þegar stöðin efnast,
eru fleiri hjúkrunarkonur í þjónustu
hennar og njá jafnvel senda hjúkrunar-
konur út um sveitir ef þarf.
Eins og áður er getið eru margar
tegundir hjúkrunarstöðva í stórbæjum
— hjálparstöðvar sem eingöngu eru
fyrir berklaveika, skólahjúkrunarstöðvar
fyrir alþýðuskólabörn, hjálparstöðvar
fyrir mæður og ungbörn o. fl. — í
smærri bæjum hefir sama stöðin mörg
verkefni að leysa. Þannig hefir það
líka orðið í Reykjavík, Hjálparstöð
Líknar leiðbeinir ekki einungis berkla-
sjúklingum, heldur veita hjúkrunarkonur
þaðan allskonar sjúklingum hjálp úti
um bæinn. Og þetta er hugmyndin að
geti einnig orðið hér.
Við Jónas læknir Rafnar höfum
lofað aðstoð okkar við stöð þessa á
vissum tímum vikunnar. Og svo er
ætlast til, að sú hjúkrunarkona, sem
ráðin verði við stöðina, geti bæði veitt
aðstoð á heimilum úti um bæinn, litið
eftir fátækum heimilum til að leita að
hvar hjálpar sé þörf og verið hjúkr-
unarkona við barnaskólann þ e komið
þangað á vissum tímum til að aðgæta
þrifnað og heilsufar barnanna, vigta
þau og í ráðum við foreldrana sjá
um að þeim verði veitt læknishjálp og
önnur hjálp er þarf. — Rað er að
vísu nú töluverð framför orðin
frá því sem áður var, að Iæknir skoðar
öll skólabörnin á haustin, en margfalt
meira virði er þó, að börnum þeim,
sem veil eru fundin, sé vandlega fylgt
á hverri viku og ráð í tíma tekin til
að varðveita heilsu þeirra.
í barnaskóla Reykjavíkur hefir hjúkr-
unarkona síarfað daglega í nokkur
undanfarin ár í samráði við skólalækni
og tannlækni og hefir það reynst
ágætlega. Eg er ekki í vafa um að
sama muni Akureyrarbúum reynast.
Að endingu skal eg geta þess, að
áhugi minn á að stuðla að því að
hjúkrunarstöð hér í bænum komist á
fót er meðfram til orðinn fyrir það, að
eg þekki íslenzka hjúkrunarkonu, sem
lært hefir á Englandi í 4 undanfarin
ár sérstaklega til þess að starfa sem
bæjarhjúkrunarkona (Health visitor).
Og eg veit að hún væri fús á að taka
þessa stöðu að sér hjá okkur ef vér
gætum bpðið henni það. Og eg veit
hinsvegar, að ef hún ekki fær slíka
stöðu hér á landi, mun hún ílengjast
á Englandi eða í Ameríku, því henni
býðst nóg að starfa, þar þareð hún
hefir leyst próf sín af hendi með ágæt-
um vitnisburði og talar ensku sérlega
vel
Eg get fullyrt að bænum væri
giftusamlegt að prófa þjónustu þessarar
stúlku og vil eg skora á góða menn
og konur bæjarins, að ljá því máli
fylgi sitt. Áhættan væri í öllu falli
ekki mikil að leggja í þann kostnað
a. m. k eitt ár fyrst um sinn.
Akureyri 20. Marz 1928.
Steingrimur Maiihíasson.
Uppboðsauglýsing.
Ár 1928, Laugardaginn 31. Marz, vprða á opinberu uppboði
seldar hæstbjóðanda, ef viðunanlegt boð fæst, útistandandi skuldir,
tilheyrandi þrotabúi verzlunar Snorra Jónssonar, Akureyri.
Uppboðið fer fram á skrifstofu bæjarfógetans á Akureyri
og hefst kl. l'/2 síðdegis.
Uppboðsskilmálar birtir á staðnum.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Brent og maláð kafji framléiðum við úr beztu vöru og með nákvæm-
ustu aðferðum. Hver er sá, sem neitar því, að rétt sé — að öðru jöfnu
— að styðja það, sem íslenzkt er?
Kaffibrensla Reykjavíkur.
Fleur d e P a r is
og
Fleur de L uxe
smávindlarnir eru mest
R E Y K T I R.
Mjalfavélar
Alfa-Laval
mjaltavélar eru
B—E—Z— T—A—R.
XATOL
Samb. ísl. Samvinnufél.
Verð kn 0,75stk
hin dásamlega
Tatol-handsápa
mýkir og hreinsar hörundið
og gefur fallegan og bjartan
litarhátt.
EINKASALAR:
I. Brynjólfsson
&
Kvaran
Reykið
Capstan
Navy Cut Medium
Reyktóbak
(pressað).
Pilsner
Sezt. — Ódýrast.
ínnlent.
Van
Houtens
Suðusúkkulaði
er það bezta sem til
landsins flyst.
Ailar vandlátar
húsmæður kaupa það.
Ritstjóri: Þórólfur Sigurösson.
Prentsmiðja Odds Björnsaonar.