Dagur - 23.03.1928, Side 3
13. tbl.
DAOUR
53
FUNDUR
verður haldinn í Framsóknarfél.
Akureyrar Fimtud. 29. þ. ml. í
bæjarstjórnarsalnum kl. 8 y2 s. d.
Fundarefni: 1. Þingfréttir, 2.
Brynleifur Tobiasson flytur er-
indi og verða umræður á eftir.
Stjómin.
t
Séra Jón Arason.
í síðasta blaði var stuttlega
skýrt frá láti þessa merka manns.
Sjúkdómsins (krabbameins) er
leiddi hann til bana, kendi hann
síðastliðið haust; en gegndi þó
embættisstörfum sínum til hins
síðasta. Séra Jón var fæddur 19.
Okt. 1868 í Runkahúsum á
Reykjanesi; foreldrar hans voru
Ari Jochumsson — bróðir Matt-
híasar skálds — og kona hans
Katrín Jónsdóttir. Jón útskrifað-
ist úr Latínuskólanum 1885 með
I. eink.; og af prestaskólanum
1887, einnig með I. eink. Árið
1888 var honum veittur Þórodds-
staður í Köldukinn; en Húsavík-
urprestakall fékk hann 21. Marz
1891, og þjónaði hann því til
dauðadags.
Séra Jón var vinsæll prestur
og góður ræðumaður. Kennara-
hæfileika hafði hann ágæta var
mjög góður málamaður og stærð-
fræðingur; enda kendi hann að
jafnaði heima hjá sér á vetrum,
bjó unga menn undir langskóla-
nám o. s. frv. Ennfremur kendi
hann oft við unglingaskólann í
Húsavík. Hann var jafnan frem-
ur fáskiftin um opinber mál, en
skyldurækinn í sínu embætti og
vandaður í háttum sínum. —
Kvæntur var hann Guðríði ólafs-
dóttur frá Mýrarhúsum á Sel-
tjarnarnesi; lifir hún mann sinn
ásamt 6 börnum þeirra hjóna og
eru þau: ólafur læknir í Reykja-
vík, Rútur skósmiður í Rvík,
Kristinn kaupmaður í Húsavík,
Ari héraðslæknir í Hróarstungu-
héraði, Karitas og Katrín báðar í
Húsavík.
útför séra Jóns fór fram í gær
í Húsavík að viðstöddu fjölmenni.
Húskveðju flutti Benedikt Björns-
son skólastjóri. En í kirkjunni
flutti prófastur Ásmundur Gísla-
son útfararræðu. Þar var sungið
kvæði eftir Huldu (frú Unni B.
Bjarklind) og Júlíus Havsteen
sýslumaður flutti nokkur kveðju-
orð. Kirkjan var prýðilega skreytt
tjöldum, blómum og Ijósum, og
var athöfnin öll sú viðhafnar-
mesta, sem verið hefir á Húsavík,
við slík tækifæri. — Öll börn hins
látna voru viðstödd útförina, að
undanskildum Ara lækni, sem var
nýfarinn aftur austur til héraðs
síns, en hafði verið hjá föður sín-
um' síðustu lífsstundir hans.
------o-----
Aðalfundur Samb ísl. samvinnu-
félaga er ákveðinn 12. Júní í Rvík.
Æiintýri á gönguför verður leikið næst-
komandi Laugardag úg Sunnudag kl. S.
Simskeyti.
Rvík 19. Marz.
Róðrarbátur úr Vogum fórst á
heimleið úr róðri á Laugardaginn.
Sex menn druknuðu. Báturinn hafði
hjálparvél; hefir sennilega fest sig
á dufii og hvolft; bylur var og
vont í sjó.
Enskur togari sigldi á færeyskan
kútter í Eyrarbakkabugt, og sökk
hann á fáum mínútum. Mannbjörg
varð.
Genf: Afvopnunarfundur stendur
yfir; ræðir hann um afvopnunar-
tillögur Rússa.
ísafirði: Póstafgreiðslumaðurinn í
Bolungarvík hefir verið kærður fyrir
vanrækslu við að líma verðtoilsfrí-
merki á póstböglasendingar og
fylgibréf. Sýslumaður setti réttarhöld
og úrskurðaði að póstafgreiðslu-
maðurinn skyldi settur í gæzluvarð-
hald. Fréttaritari Fb. á ísafirði segir,
að álitið sé að óvildarhugur hafi
ráðið um upptök málsins.
Sig. Eggerz flytur þá breytingu
við hegningarlöggjöfina, að dauða-
refsing skuli úr lögum numin, en
í staðinn komi tyftunarhúsvinna
æfilangt.
Rvík 21. Marz.
Mentamálaráð, þinglýsing skjala
og aflýsing, alt afgreitt sem lög frá
Alþingi.
Washington: Bandaríkjastjórn
sendir 2000 sjóliðsmenn til Nicara-
gua, til þess að gæía kosninga
þeirra, er þar fara í hönd.
ísafirði: Póstafgreiðslumanninum
i Bolungarvik hefir verið slept úr
gæzluvarðhaldinu; sakir taldar litlar
eða engar.
Frumv. um ríkisrekstur á útvarpi
afgreitt sem lög; ennfremur frumv.
um sundhöll i Reykjavík.
Rvík 22. Marz.
Þegar Esja kom til Reykjavík-
ur úr síðustu hringferð, kom í ljós
að brotin höfðu verið innsigli
tveggja póstpoka frá Blönduósi
og Sauðárkróki. úr Blönduóspok-
anum var stolið verðpóstinum ca.
4000 kr. í peningum og úr Sauð-
árkrókspóstinum var stolið al-
mennum bréfum, en verðpóstinum
ekki hreyft.
Frá Húsavík: Pemberton tog-
ari frá Hull strandaði morguninn
20. þ. m. við Kílsnes á Melrakka-
sléttu; mannbjörg varð.
Rvík. 23. Marz.
Konungur vor og drotning hafa
sent hingað 1200 kr. gjöf til forn-
rítaútgáfunnar og tjáð sig fús til
þess, að verða verndarar fyrir-
tækisins.
í gærkveldi kom hingað færeysk
skúta »Acorn« með lík 6 háset-
anna og þrjá hættulega særða.
Skútan var 20. miarz á Selvogs-
banka, er sjór gekk yfir skipið og
kviknaði í karbit-dunk. Varð
sprengingin í lúkarnum og hann
allur í eldhafi. 10 menn aðrir voru
á skipinu, en þeir sem í eldinum
lentu og tókst að slökkva eftir %
stundar.
herbergi til leigu á »Sigur-
hæðunu,
A I þ i n g i.
Þingsályktunartillaga kom fram
í sameinuðu þingi í fyrradag, frá
5 íhaldsmönnum, með Jóni Þor-
lákssyni í broddi fylkingar, þess
efnis, að Alþingi álykti að víta
dómsmálaráðherra fyrir aðgerðir
hans í varðskipamálinu. Er brosað
að þessu tiltæki Jóns Þorláksson-
ar og vita menn ekki enn, hvað
hann ætlar að græða á því,
Neðri-deild afgreiddi fjárlögin
með 660 þús. kr. tekjuhalla.
Tekjuaukafrumvörpin voru þá
það á veg komin, að sýnilegt þótti
að fram myndu ganga; þótti því
rétt að auka gjöldin til verklegra
framkvæmda og til Landnáms-
sjóðs. Fjárlögin eru nú í nefnd í
Efri-deild og er ætlun meiri hluta
deildarinnar að skila fjárlögunum
tek j uhallal ausum.
Breytingartill. beggja nefndar-
hluta, við frumvarp um dragnóta-
yveiðar, eru á þá leið, að leyfa megi
veiði í landhelgi yfir haustmán-
uðina, nema á þeim stöðum, þar
sem veiðin er bönnuð með sérstök-
um samþyktum. *
Afgreidd lög: Um undanþágu
Eimskipafélags íslands frá skatt-
greiðslu og lög um heimild fyrir
hreppstjóra til þess að fram-
kvæma lögtak.
-----o-----
Ranghverfar fréttir.
Ritstjóri »ísl.« er of mikið smá-
menni til að leiðrétta missagnir
sínar. En honum er kunnugt að
stjórnmálafréttir frá honum sjálf-
um eru eigi teknar trúanlegar al-
ment; þessvegna þykir honum
vissara að flytja þingfréttir frá
ónefndum »fréttaritara í Reykja-
vík«. Og þegar slíkar þingfréttir
eru samansoðinn blekkingavaðall
og uppspuni, þá telur »Dagur« ó-
svífni af »ísl.« að flytja þær und-
ir slíku yfirskini. — ^ Það er al-
kunnugt að Gunnl. Tryggvi hefir
allar þingfréttir sínar frá rit-
stjórum Morgunblaðsins; en hann
veigrar sér þá líka við að feðra
þær rétt, af því að »Morgunbl« er
alræmt fyrir hlutdrægni og rang-
hermi um þingmál í vetur. —
Vesalmenskan er á háu stigi þeg-
ar ritstjórar íhaldsblaðanna telja
sér ekki orðið fært að gangast við
fréttaburði sínum!
Heimildafrumvörp stjómarinn-
ar. Stjórnin bað um 100 þús kr.
fjárheimild til þess að reisa
fangahús eða vinnuhæli fyrir
fanga og nú er það orðið að lög-
um. »ísl.« taldi að hér væri um
að ræða 3—400 þús kr., og hann
heldur áfram að lemja höfðinu
við þessi ósannindi, og slúðrar um
yfirlýsingar frá dómsmálaráðh. í
ræðu. — En dómsmálaráðh. tók
það skýrt fram í umræðum um
þetta mál, að þessi fjárheimild
yrði ekki notuð, nemja að fært
þætti að gera við Eyrarbakkaspít-
alann í þessu augnamiði, fyrir
svipaða upphæð og heimildin til-
tekur.
t heimildarfnmvarpi stj. um að
reisa hús fyrir opinberar skrif-
Héraðslæknirinn
ætlar fyrst um sinn að hafa viðtalstíma
daglega fyrir sjúklinga kl. 1—2 í
Brekkugötu 7A. niðri,
en heima Spítalaveg 9 kl. 5—6 e. h.
stofur í Rvík er engin tiltekin
fjárupphæð; þó að »ísl.« hafi þær
tölur á hraðbergi. Annars mun
stj. gera ráð fyrir lántöku til
þeirrar byggingar, þegar til kem-
ur. Það er hinsvegar upplýst að
ríkissjóði muni árlega sparast fé
svo að skiftir mörgum tugum þús-
unda í húsaleigu, þegar þessi
bygging verður reist. Svo að það
er næsta ósvífin blekking af »ísl.«
a$ telja þessa ráðstöfun til fjár-
bruðlunar«.
Nýja strandferöaskipiö var eitt
missagnamál »ísl.« (en ekki
»strandvarnarskipið« eins og rit-
stj. misritar í síðasta blaði sínu!)
Taldi hann að skipið ætti að kosta
700—800 þús. kr., og reynir nú
að hengja hatt sinn á, að minnihl.
samgöngumálanefndar áætli það
600—700 þús. kr., svo að þess-
vegna séu nú ósannindin ekki
mikil! en þess er að gæta, að
nefndin gerir ráð fyrir fullkomn-
ara skipi, en stjórnarfrumvarpið
ræðir um því að stjórnin ætlaðist
ekki til að kostnaðurinn færi yfir
4—500 þús. kr., eins og »Dagur«
hefir sagt. Ritstj. »ísl.« fer í öll-
um atriðum í gegnum sjálfan sig.
»ísl.« hafði sagt að landbúnaðar-
málin og tekjuaukafrumvörpin
gengju treglega í þinginu; nú er
hann farinn að skýra frá samþykt
þeirra; það er sárast fyrir hann
að þurfa að snoppunga sjálfan sig
fyrir skröksögur sínar.
Miklar gáfur þykist Gunnl. Tr.
sýna með því að þrjóskast við að
játa ósannindi sín um skiftingu
bæjarfógeta- og lögreglustjóra-
embættanna í Rvík. íhaldinu þyk-
ir sárt að ríkissjóður skuli spara
60—80 þús. kr. á þeirri ráðstöfun.
Rímæfingar
eftir
Benedikt Einarsson.
Vetrarkoma.
Fölnar hárið Fjörgynjar,
fellur snjár á merkur.
Ýfir báru út á mar
armur Kára sterkur.
Morgun.
Fram til stranda flest er hljótt,
faðmar landið særinn.
Sól að vanda sigrar nótt;
sunnan andar blærinn.
Vorið.
Hrím af tindum hverfur burt,
hlýjum vindi borið.
Elfur, lind og unga jurt
örmum bindur vorið.
Haustkvöld.
Sig þá flytur sól að mar,
sendir glit um voga,
brosa litir bifrastar:
blys á vitum loga.
Vetur.
Hnjúkar frjósa, hlíð og fell;
himinljósa glætur