Dagur - 11.05.1928, Blaðsíða 3

Dagur - 11.05.1928, Blaðsíða 3
21. tbl. DAGUE • 83 2>orð- 2)íoanteppi ¥1°f Brauns verzlun. Páll Sigurgeirsson. U P P B O Ð. Föstudaginn 25. Maí n. k. verður að forfallalausu opinbert uppboð sett og haldið við húsin í Strandgötu 49 (áður samein- uðu verzlanir) og þar selt hæstbjóðendum ýmiskonar innan- stokksmunir, svo sem: Sængurfatnaður, rúmstæði, hálmdýnur, dívanteppi, gólfteppi, borð, þvottaborð, vaskastell, servantfötur, buffet o. fl. — Ennfremur nokkuð af búðarvarningi, svo sem: Rafofnar, myndatökuvélar, damask matardúkar, morgunkjólar, kvensvuntur hvítar, vinnubuxur drengja, nokkrir blikkkassar með kaffibrauði o. m. m. fl. — Uppboðið hefst kl. 1 e. m. og verða uppboðsskilmálar auglýstir ástaðnum. Langur gjaldfrestur. Akureyri 11. Maí 1928. Valgerður og Halldóra Vigfúsdœtur. þeir hefðu átt gamanleik í blöðunum her um árið, þá myndi hann nú veita honum fullkomið kjörfylgi gegn J. Sv. enda stæði alt óbreytt sem þeim hefði á milli farið. Auk þeirra, sem taldir hafa verið, töluðu: Lárus Thorarensen, Halldór Friðjónsson, F. B. Arngrímsson og ’Brynleifur Tobiassori. Brynl. talaði til skýringar á einu atriði, er snerti skóla- nefndina. Fundurinn mun litlu hafa breytt um kjörfylgi frambjóðendanna. Ýmsir f- haldsmenn gerðu endurteknar tilraunir til að hafa áhrif á »Stemningu« fundar- ins með lófaklappi, en það hafði ekkert að segja. Virtist mestur hluti fundar- manna veita meiri athyg'li rökræðum, stefnufestu og framkomu ræðumanna; enda vegur það mest í endurminning- unni þegar frá líður, og gera skal upp á milli bæjarstjóraefnanna við kjör- bcrðið. -------0------- Á viðavangi. Riístj. »lsl.« talar með heilögum íjálgleik af hjartans insta grunni, um að sektar- fé fyrir vínsmyglun skuli eiga að renna í »Menningarsjóðinn«, og þykir það ekki bera vott uin »sið- gæðisgöfgk! Það er vitanlega ábyrgðarhluti fyrir löggjafarvaldið að stuðla að því, aö hinar lakari hvatir einstak- linga skuli eiga að rækta hinn bezta gróður í þjóðlífinu! En ritstj. hefir víst aldrei haft neitt við það að at- hú£a þó að t.d. tóbaksneyzla manna hafi lengi verið notuð til tekna fyrir ríkissjóð, til ýmsra þarflegra hluta í þjóðfélaginu. Ritstj. ísl. myndi víst ekki verða neitt glaður yfir því, ef sú breyting yrði á honum, að eitt- hvað gott kynni að spretta upp af þeim illgresisfræjum, sem íhalds- menn hafa sáð í heilabú hans. Stjórnvizka. »íslendingur« var fyrir stuttu síðan að fjargviðrast út af því, að Framsóknarflokkurinn hefði felt stjórnarskrárfrumvarpið á síðasta þingi; og sagði að hann hefði óttast »nýjar kosningar, sem orðið hefðu að fara fram, ef stjórnarskrárbreyt- ingin hefði verið endursamþykt«. Það er stjórnspakur ritstjóri, sem gefur slíkar upplýsingar! En í laumi má nú hvísla því að honum, að stjórnarskrársamþyktin gat ekki valdið þingrofi í annað sinn, ef frv. hefði verið samþykt óbreytt á síð- asta þingi. Það eru góðar rúsínur, sem »ísl.« gæðir lesendum sínum á! -----------------o------ Barnaskólanum verður sagt upp í Samkomuhúsinu á morgun kl. 2. Skóla- bcrn, og önnur börn, sem gengu undir próf, eiga að vitja einkunna sinna í skólann kl. 1. Sýning á handavinnu, teikningum og skriflegum verkefnum verður opin í skólahúsinu Sunnud. 13. þ. m., kl. V/2 -4%, Urslit „Shelt-málsins á Akureyri. Á síðasta bæjarstjórnarfundi var að fullu gengið frá byggingarleyfi til Shell-fél., um að reisa olíugeyma á Odd- eyrartanga. Fundargerðir bygginga- nefndar og brunamálanefndar um það mál voru lagðar fyrir fundinn, en eins og áður er getið, var þar linlega frá málinu gengið. — Jafnaðarmenn og Ingimar Eydal höfðu nú undirbúið til- lögur fyrir þenna fund með ýmsum rót- tækari skilyrðum; og var Erlingur Frið- jónsson framsögumaður að þeim á fund- inum; flutti hann till., sem breytinga- tiil. við áðurnefndar fundargerðir. 1 þessum breytingatill. var þess krafist, að geymarnir skyldu reistir í 35 metra fjarlægð frá öðrum byggingum og að félaginu væri skylt að byggja 2ja mtr. háan garð úr járnbentri steinsteypu umhverfis olíulóðina og þar ofan á bárujárn; þess var og krafist, að allur útbúnaðui- oljustöðvarinnar væri í fullu samræmi við kröfur Brunabótafél. ís- lands; og að ef innlend eða erlénd brunabótafélög kynnu að hækka bruna- iðgjöld í bænum, vegna nálægðar olíu- geymanna, þá væri Shell-félagið skuld- bundið til að greiða slíka hækkun sjálft. Breytingatill. voru allar samþyktar í staðinn fyrir hliðstæð ákvæði í fundar- gerðum nefndanna. — V,ar þannig að lokum þolanlega gengið frá þessu máli sökum harðfylgis jafnaðarmanna og Ingimars, úr því að' svo ógæfusamlega tókst í upphafi að félagið fékk bygg- ingaleyfi á Tanganum. -----o----- Simskeyti. Rvík 11. Maí. Loftskip Nobiles flaug yfir Sví- þjóð á leið til Spitzbergen 3. þ. m. og lenti daginn eftir á Vadsö og komst svo til Spitzbergen. Aþenu: Ár og fljót hafa flætt yf- ir bakka og valdið miklu tjóni í Grikklandi; 2900 manns heimilis- lausir. Tokio: Kínversku og Japönsku herliði hefir lent saman í Tsinan; þann 5. þ.'m. héldu skærurnar á- fram, og voru háðir götubardagar; 6. þ. m. voru 300 Japanar drepnir í Tsinan, er suðurherinn rændi bæ- inn á dögunum. Nú er skærum þess- um lokið í bráð og hefir herlið Jap- ana hindrað framrás þjóðernissinna til Peking. London: Þingmenn verkamanna- flokksins hafa samþykt yfirlýsingu, þar sem þeir tjá sig andvíga fram- komu Breta gagnvart Egiptum. Ber.lín: Miklir heiðaeldar geysa í Hollandi. Um 200 þús. Rúmenskir bændur hafa skorað á stjórn Brataníu að leggja niður völd; una bændur illa skattaálögum hennar. Þann 7. þ. m. iét stjórn Brataníu loka símanum til annara landa. Séra Jakob Kristinsson hefir ver- ið settur skólastjóri á Eiðum. Konungur íslands og Danmerkur á fyrir höndum opinbera heimsókn til Finnlands. Forsætisráðherra is- lands verður með honum í þeirri för. Nýtt útvarpsfélag er nýstofnað í Rvík og á það að ná yfir alt land; formaður þess er Jakob Möller. Dómsmálaráðuneytið hefir fyrir- skipað rannsókn á athöfnum Shell- félagsins hér á landi. Þýzkur vísindamaður er að rann- saka hina svonefndu Hvanneyrar- veiki, og er vongóður um árangur- inn. Einmunatíð um alt land. ísafirði: Mokafli er hér jafnt á vélbáta sem róðrarbáta. -----0------ Fr éttir. Síra Jakob Kristinsson verður skóla- stjóri á Eiðum í stað síra Ásmundar Guðmundssonar. Mun mikils mega vænta af starfsemi hans þar við skól- ann. Jón H. Þorbergsson bóndi á Bessa- stöðum hefir nýskeð keypt Laxamýri í Þingeyjai'sýslu, og er kaupverðið talið 90 þús. kr. Má vænta þess að Jón reki mikinn búskap á Laxamýri. Hann hefir lengi þráð að setjast að í átthögum sínum í Suður-Þingeyjarsýslu. Trúlofun sína hafa opinberað, ung- frú Björg Sgurðardóttir frá Geirastöð- um við Mývatn og' Árni Jóhannesson vélstjóri frá Brunná. Pétur Jónsson læknir er fluttur hing- að til bæjarins, og verður hann aðstoð- arlæknir Steingríms Matthíassonar. Benedikt Elfar hafði sönkskemtun í Grundarkirkju síðastl. Sunnudag eftir messu. Sungu þar auk hans sjálfs, ung- frúrnar Helga Jónsdóttir og Guðrún Þorsteinsdóttir. Söngurinn hljómaði vel í kirkjunni og veitti fjölda áheyrenda hina beztu skemtun. Knútur Rasmussen hinn danski Græn- landsfari kemur hingað til bæjarins með »Fyl)a« næsta Miðvikudag og ætlar að halda hér fyrirlestur um Grænland það kvöld. Næsta dag mun hann fara aftur með skipinu. Nú er kominn, í afarfjölbreyttu úrvali, sumarvarningur, og víst er það, að hvergi utan höfuðstaðarins hefir sést eins fjölbreytt og fallegt úrval af nýmóðins vör- um, það er gaman að geta sýnt viðskiftamönnum varn- inginn, og bið eg þessvegna alla, sem vilja sjá okkar afar- fjölbreyttu vörubirgðir, að líta inn í búðina og athuga verð og vörugæði, þið munið fljótt sann- færast um, að ómakið að fara til Ryels er spor í rétta átt, því það er peningasparnaður. Baldvin Ryel. Ljósmyndastofan í Gránufélagsgötu 21 hér í bæ hefir nýlega verið útbúin eftir beztu föngum. Aðalljósmyndasal- urinn er uppi á lofti, og er það vafa- laust stærsti og bjartasti ljósmynda- salurinn í bænum. Hann er hitaður með miðstöðvarofni, og í sambandi við sal- inn er sérstakt búningsherbergi, fyrir þá sem vilja, láta mynda sig. Full á- stæða er því til að vekja athygli fólks á þessari góðu myndastofu. Útgerðarmenn hafa kosið Ásgeir Pét- ursson fyrir sína hönd í síldarútflutn- ingsnefndina. Er hann væntanlegur heim í næstu viku. E. s. Goðafoss kom að sunnan að kveldi 9. þ. m. Frá Reykjavík komu Bernharð Stefánsson, frú hans og börn; ennfremur Ari Guðmundsson og Baldur Guðmundsson frá Þúfnavöllum. Bæjarbruni. Bærinn Sandfellshagi í Axarfirði brann fyrir stuttu til kaldra kola; nýbygt hús óvátrygt. Litlu bjarg- að af innanstokksmunum; mun hafa kviknað frá reykháf. Bændurnir Vil- hjálmur Benediktsson og Jón Sigurðs- son hafa beðið stórtjón.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.