Dagur - 18.05.1928, Blaðsíða 1

Dagur - 18.05.1928, Blaðsíða 1
DAGUR kemur út á hverjum föstu- degi. Kostar kr. 6.00 árg. Gjalddagi fyrir 1. júlí. Gjaldkeri: Árni Jóhanns- son í Kupfélagi Eyfirð- inga. ••••••••••• •••••••••• Af g reiðslan er hjá Jóni Þ. Þ6r, Norðm-götu 3. Talsími 112. Uppsögn, bundin við ára- mót, sé komin til af- greiðslumanns fyrir 1. des. XI. ár. Akureyri, 18. Maí 1928. 22. tbl. Olíufélögin í Reykjavík. ' Eins og kunnugt er af umræö- unum í blöðunum, þá hafa tveir er- lendir olíuhringir, reist olíugeyma viö Reykjavík, og nú eru þeir aö láta byggja smærri geymslustöðvar víða um land við stærri hafnir. í Reykjavík starfa tvö innlend sölu- félög fyrir þessa hringa og hefir mjög verið deilt um skipulags- grundvöll þeirra og starfshætti. Það er vitanlegt aö olíuhringarnir, sem hér eiga hlut að máli hafa það sanr- eiginlegt að vilja ná sem víðtækust- um viðskiftum og tryggja eigenduni sinum markað og peningavöld, þar sem þeir fá að beita klóm sínum. Frá því sjónarmiði er engin ástæöa til þess að gera greinarmun á »Shell- hringnum« og »Anglo-Persian Oil Co.« En þá skiftir það mestu máli, hvernig stjórnarvöldunr hér á landi hefir tekist að setja olíuhringunum hófleg takmörk fyrir viðskiftum sín- um og mannvirkjum hér á landi. Nú er um það deilt. Dómsmálaráð- herra J. J. hefir vítt fyrverandi land- stjórn fyrir athafnir hennar gagn- vart »Shell«-félaginu, og skýrt frá því að þar hafi verið farið á svig við gildandi landslög. ihaldsblöðin hafa reynt að klóra yfir það með mótmælum og stóryrðum, og bent á, að viðskiftin við »Anglo-Persian«, væru engu síður hættuleg. í þessum efnum hafa blöðin farið með fölsk rök og ósannindi eins og þeim er títt; og þau ósannindi hafa hvergi verið jafn berlega og heimskulega flutt eins og í 18. tbl. »ísl.« þ. á. Brezka olíufélagið fékk leyfi hjá Reykjavíkurbæ til þess að reisa ol- íugeyma nærri Reykjavíkurhöfn, á hentugasta stað, sem bænum er þó enginn missir að né -stafar hætta af því að geymarnir eru að miklu leyfi einangraðir á klöppum, sem skaga fram í sjóinn. Þeir rúma að- eins helminginn af meðalársforða, sem notaður hefir verið hér á landi. Um byggingarleyfi þetta er þannig búið fyrir forgöngu Magnúsar Krist- jánssonar fjármáiaráðh., að Islend- ingar geta fengið þessa olíugeyma keypta með sannvirði, án nokkurra skutdbindinga um verzlunarviðskifti við hlutaðeigandi olíuhring, hvenær sem landsmenn vilja iaka að sér ol- iuverzlunina. Þetta er því auðveld- ara af því að stærð og kostnaðar- verði stöðvarinnar v^r stilt í hóf. »01íuverzlun íslands h. f.« er stofnuð af M. Kr. og Héðni Vald., eingöngu með íslenzku fjármagni. Hlutafé félagsins er 50 þús. kr. og er félagið stofnað í fullu samræmi við hlutafélagalögin. Þetta félag á að halda opinni leið til Jiess að auð- veldara sé fyrir landið að hefja aft- ur olíuverzlun, án þess að sæta ok- urkjörum, til þess að slíta af þjóð- inni fjötra erlendra olíuhringa, svo fljótt, sem því verður við kornið’. Þetta er niarkitiið »01íuv. íslands«, og stofnun þess og skipulag er að öllu íeyti í fullu samræmi við iands- lög. Forgöngumenn félagsins höfðu eigi sjálfir fjármagn tii að reisa ol- íugeymana í bili; en bjuggu þannig um, að landið ætti auðvelt með að eignast þá hvenær sem hentugast þætti. Félagið kemur hreinlega fram og skýrir rétt frá afstöðu sinni gagn- vart hinum enska olíuhring. — Les- eridum blaðanna er nú orðið kunn- ugt um skipulag »h.f.Shelláíslandi«. Þar hafa örfáir Islendingar með að- stoð fyrverandi stjórnar — einkum Aáagnúsar Guðmundssonar — lán- að öðrum stærsta olíuhringnum er- lendis nöfn sín og íslenzk borgara- réttindi til þess að reisa hér á landi óhæfilega stórar olíugeymslustöðv- ar; sem engar líkur eru til að geti orðið íslenzk éign í náinni framtíð, og eru auðsjáanlega miðaðar við eitthvað annað og meira en olíu-. tiotkun íslendinga einna. Magnús Guðmundsson og félagar hans hafa því veitt olíuhringnum fullkomna aðstoð til þess að læsa klóm sínum í islenzka jörð, án nokk- urar fyrirhyggju um að þjóðin geti gætt réttar síns og góðra viðskifta- kjara gagnvart hringnum. Stefnur og störf Magnúsar Kr. og Magnús- ar Guðm. í þessum olíumálum eru því algerlega gagnstæðar. Hinir smáu olíugeymar brezka fél. stofna ekki í hættu sjálfstæði þjóðarinnar og rúma eigí olíuforða fyrir erlend skip, en »Shell«-fél. getur geyrnt birgðir fyrir erlendar flugvélar og skip sem hefðu dvöl hér við land. Sölufélag »Shell«-hrings.íRvík erað vísu íslenzkt að formi. En það þýðir ekkert fyrir »ísl.« og önnur íhalds- blöð, að fleipra með þau ósannindi að »mannvirki öll (við Skerjafjörð) séu eign félagsins« í Rvík! Það, hlýtur að vera eitthvað óhreint í pokahorninu hjá þeim mönnum, sem bera frani slíkt fals og telja fyrir- tækið innlent. Hversvegna segja þeii ekki satt? Af því að M. Guðm. og félagar hans vilja dylja þjóðina þess að þeir eru þjónar erlends auðvalds, án þess að þeir hafi trygt rétt og hagsmunaaðstöðu íslendinga gagn- vart »Shell«-hringnum. Hversvegna hafa þeir brotið hlutafélagalögin og gefið ranga skýrslu um innborgun hlutafjárins þegar hið svokallaða »SheIl á íslandk lét skrásetja sig? Dómsmálaráðuneytið hefi^ nú skip- að opinbera rannsókn á stofnun og skipulagsatriðum félagsins; til þess að það verði alþjóð kunnugt. Þá þýðir ekkert fyrir Ihaldsblöðin að halda áfram skollaleiknum. Það er Jregar þjóðkunnugt, að hlutafé »Shell á ísl.« 250 þús. kr., er að mestu erlent fé, og fleira mun koma þar úr kafinu þegar rannsókn verð- ur lokið. Olíumálunum verður að Ijúka á þann hátt, að ísl. ríkið eigi sjálft olíugeyma þá, sem reistir eru hér á landi við hæfi landsbúa og reki ol- íuverzlunina sjálft. — Aðrar og stærri olíustöðvar eiga ekki að líð- ast hér á landi. ------o—----- Vinarminning. (Kvæði þetta var flutt við jarðarför Sig'. Theodórs Kristjánssonar á Hall- dórsstöðum í Kinn, sem fór fram h. 23. Apríl s. 1.). Þegar vorgyðjan sæla svífur úr suðrænni geislahöll, með hlæjandi svip, og söngva þá er sumar um dal og fjöll. Ei sól yfir bygðum blikar og bræðir klaka og ís, þá flýtum við okkur á fætur tii að fagna þér sumardís. Nú er sumar á leið yfir.iandið, með lokkandi söngva-hljóm, en kóngur hins kalda vetrar kom með sinn stranga dóm. Því enginn hans mikla anda 'né afli á móti rís. Og færri’ eru nú í flokki til að fagna þér sumardís. Yfir harmandi vorsins vinum biosir viknandi himinsól og vorgyðjan sorgar-söngvá syngur um dal og hól. Á hádegi æskunnar heiðu slær húmi á glaðan dag þvi eirrn er nú fluttur frá okkur, sem efldi vort bræðralag. Þú hugþekki vinur ert horfinn — Jiitt hjarta var sól og blær — og hljóðnaður söngvanna heimur, sem hörpuna sló í gær. Við tónanna helgu hljóma var hugur þinn bundinn æ Konsert heldur Áskell Snorrason næstkomandi Sunnudag kl. 5 siðd. í AKUREYRAR-BÍÓ. Vigfús Sigurgeirsson aðstoðar. Mest íslenzk lög, sum áður ó- þekt hér. Nánar auglýst á götunum. og hrifningu Ijúflings-Iaga þú leiddir í margan bæ. í skammdegis næðingunr nöprum, . í norðursins ramma slag, þú vermdir með vorsins lögum vetrarins kalda dag. Er sólgeislinn lék sér í lokkum hins ljómandi skýjabands, þú stiltir strengina þína við straumelfur fósturlands. Sem geisli er blikar á bárum, sem blómið er skreytir lund, var trúin er bjó þér í barmi og brosti mót komandi stund. Hver drotning þá öðlast ungur hann aldrei er viilugjarn, luin vermir og lýsir og leiðir til ljóssins hvert jarðar barn. 0 Frá hlýjum og saknandi hjörtum berst hljóðlega rödd sem spyr: Hví fékstu’ ekki vinur að vera hjá vorinu og æskunni kyr? — Við setjumst hjá eldinum alda, sem eilífan skapaði mátt og sorgin þá verður að vini og vorblæ á ýmsan hátt. Því dýrasta gulli þú deildir: varst drengur í orði og raun, sá gylfi, sem gefur og tekur mun greiða þér verkalaun. Eg sé þig í gullnu sæti við seyðandi hörpuslátt, þú brosir til bræðra og systra á bak við fjallið hátt. Nú er sumarið komið að sunnan og sól yfir fjöllin ber. Og vordísin vængjunum blakar og þig vefur að hjarta sér. Þó féllirðu snemrna að foldu og fljótt kæmi sólarlag, er minning > þín bundin við blæinn og bjartan og heiðríkan dag. Baldur. -------o------- Sigurður Stefánsson kandidat, sem hlaut flest atkvæði við kosninguna í Möðruvallaprestakalli hefir fengið veit- ingu fyr-ir brauðinu. I

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.