Dagur - 19.07.1928, Blaðsíða 3
31. tbl.
DAGUS
123
Nýkomið
í Ryels Verzlun
stórt úrval af borðteppum, dívanteppum, púða-
verum og Ijösadúkum. Silkinærföt allar stærðir í
ótal tegundum. Stoppteppi, ullar- og bómullar-
teppi.« Perluhálsfestar og arrabönd af ýmsum
gerðum. Gríðarstórt úrval af enskum húfum og
ótal margt fleira.
Baldvin Ryel.
Fr éttir.
aö kaupfélagshreyfingunni, »átu-
mein og niðurdrep« fyrir þjóðina?
Hafi ofangreind gífuryrði um kaup-
félögin verið sönn og réttmæt, þá
verður ekki undan því komist að
svara þeirri spurningu játandi. Hver
dirfist að fellá þann dóm yfir þess-
um þjóðkunnu ágætismönnum? Ef
til viil Jón Björnsson, ritstjóri Norð-
lings. Enginn annar J. B. hefir hér
vakið upp þann draug, sem hann
getur ekki karað og verður því hon-
unr sjálfum e'inum að meini.
Hað skal fúslega viðurkent, að
séra Friðrik Bergmann var einn af
gáfuðustu og mætustu mönnum
þjóðar vorrar. En mestur var hann
fyrir það, að hann þorði að skifta
um skoðanir, þegar honum birtust
ný sannindi. Eftir því sem aldur
færðist yfir hann, varð hann æ víð-
sýnni og frjálslyndari í trúmálum.
Hann var inaður, sem altaf var að
stækka. Hann heiinsótti ættland sitt
mörgum árum síðar en áður er
greint. Sá, er þetta ritar.kyntist hon-
uin þá lítið eitt, en af þeirri við-
kynningu er rík ástæða til að ætla,
að hann hafi þá litið alt öðrum aug-
um á kaupfélagshreyfinguna hér
heima, en hann gerði fyrir aldamót-
in, enda þá ólíku saman að jafna
um ástæður félaganna. Mun hann í
sinni fyrri för til íslands hafa verið
heldur um of talhlýðinn við óvini
kaupfélagsstefnunnar, sem ekki hafa
sparað að ófrægja hana og af-
skiæma í eyru hans. Það er því ekki
ósennilegt, að síra Fr. Bergmann,
þætti sér lítill greiði ger með því að
vera að flagga með þessum nær 30
ára gamla sleggjudómi, ef hann
mætti Norðl. augum líta, og mikið
má það vera, ef hinir hygnari menn
í kaupmannastéttinni kunna Jóni
Björnssyni sérlegar þakkir fyrir
frunrhlaup sitt í garð kaupfélag-
anna.
Leiðrétting.
Landshornamaðurinn í »Norð-
lingi« segist hafa »einn í höggi«, en
átti að vera í vind-höggi.
Hæg heimatökin.
Ritstjóri »NorðIings« fór í »fúsk-
ara«-leit í blaði sínu og leitaði langt
yfir skamt. Ættu honum að vera
hægust heimatökin.
Hrædilegt vatnsfall.
íslendingur segir, að 6 bæir, er
framar standi en Fjósatunga, séu
hínumegin Fnjóskár, og eígi þeir að
»öllum jafnaði« hægra að sækja
síma að Hálsi en Fjósatungu vegna
Fnjóskár. Samkvæmt þessu er
Fnjóská-ófær yfirferðar frammi í
dalnum nær allan ársins hring. Mik-
ill er sá tröllskapur árinnar! Það
virðist ekki vanþörf á því að setja
brú yfir þetta forað frammi í daln-
um. Vegna þessara upplýsinga ísl.,
verður líklega næsta sporið það, að
stjórnin gefur Ingólfi brú á ána!
-------o-------
Ólafur Ólafsson trúboði frá Kína sté
í stólinn við messugjörð í Akureyrar-
kirkju á Sunnudaginn og hélt fyrir-
lestur í kirkjunni um kvöldið. Er mikið
látið af mœlsku hans.
Símskeyti.
Rvik 14. Júlí.
London: Frakkar, Þjóðverjar og
Englendingar hafa komið sér sam-
an um að fallast á ófriðarbanntil-
lögur Kelloggs fyrirvaraiaust.
Moskva: Mariano og Zappi höfðu
veiiö algerlega matarlausir i 13
daga, áður en þeir fundust og hinn
fyrnefndi auk þess kalinn á öðrum
fæti. Sjuknevski hefir nauðlent;
flugvélin skeindist; 4 Rússar eru
með honum og hafa þeir radiotæki
og matvæli í 14 daga, Báðu þeir
»Krassin«, rússneska ísbrjó’tinn, aö
bjarga ítölununr á undan sér.
Rómaborg: Agenzia Stefani til-
kynnir, að »Krassin« hafi bjargað
Viglieri-flokknum í gærkveldi; er
þetta samkvæmt skeyti á Föstudags-
kvöldið.
Skeyti í morgun hermir: Frétta-
stofa Rússa skýrir frá því, að ioít-
skipsflokkurinn sé fundinn austan
við Viglieriflokkinn, og að »Kras-
sin« sé að reyna að bjarga honum.
Oslo: Norska fréttasofan til-
kynnir, að »Krassin« hafi fundið
týndu Alpahermennina og aö sænsk-
ar flugvélaf hafi bjargað þeint.
Rvík 18. Júlí.
Síðustu fregnir frá Stokkhólmi
segja, að Ekman yfirráðherra skýri
frá því, að Svíastjórn hafi í huga
að gera ráðstafanir til að stofna til
opinberrar rannsóknar út af dauða
Malmgrens. Blöðin búast við, að
Sviastjórn setnji við stjórn Noregs
um rnálið.
Moskva: »Krassin« hefir bjargað
Sjuknovski og félögum hans og ætl-
ar nú til Adventbay til að afla sér
kola, og fer því næst að leita að
ioftskipsflokknum og Amundsen.
París: Frakkastjórn hefir fallist
á ófriðarbanntillögu Kelloggs.
Berlín: Jánrbrautaárekstur varð
nálægt Mtinchen; 10 hlutu bana og
13 meiddir.
Winnipeg: Guðfræðideild Chi-
cagoháskóla hefir útnefnt séra
Rögnvald Péturssoh sem heiðurs-
doktor.
Síldarvíxlarnir rússnesku hafa nú
allir verið greiddir, segir sendi-
herraskeyti til forsætisráðherra.
Ríkisstjórnin hefir komist að
samningum um beint viðskiftasam-
band milli hins stóra erlenda áburð-
arhrings og einkasölu ríkisins á
tilbúnum áburði; jafnframt er það
fullráðið, að Sís hafi á hendi áburð-
arverslunina fyrir hönd ríkisins.
Mjólkurbúanefndin hefir skilað
áliti sínu; leggur hún til að stofna 2
mjólkurbú eystra, annað í nágráini
Ölfusár, en hitt á Reykjunr í ölfusi;
hefir það orðið að samkomulagi
með bænduin á Flóaáveitusvæðinu,
og forsætisráðherra nú þegar látið
byrja á framkvæindum við ölfusár-
búið, og er lán veitt til þess með
svipuðum kjörum og til áveitunnar.
Hannes Jónsson er skipaður
dýralæknir í stað Magnúsar heitins
Einarssonar.
--------o-------
Maynús Kristjánsson ráðherra varð
nýlega fyrir því áfalli, að hjólreiðmað-
ur stýrði á hann á götu, svo aö hann
féll harkalega og meiddist í andliti.
Gerði hann þó lítið úr meiðslinu og
gekk til vinnu sem áður eins og ekkert
vau'i að, svo dögum skifti. Þar kom þó,
að honum elnaði svo verkur, að hann
varð að ná læknisfundi, og kom þá í
ijós, að hann var kjálkabrotinn. Lá
hann sárþjáður á eftir, en er þó sagð-
ur í afturbata.
Mælt er að Magnús hafi verið kraf-
ir. sagna um það, hver hefði orðið vald-
ur að slysinu, svo að hægt væri að
koma hegningu yfir hann fyrir ógæti-
lega reið, en hann kvað sér enga heilsu-
bót mundi af því stafa að manninum
væri hegnt og neitaði að segja til hans.
Lýsir þetta manninum nokkuð.
Sláttur var alment byrjaður hér um
sveitir um og fyrir síðustu helgi. Gras-
spretta er rýr bæði á túnum og eng'jum,
en fer þó nokkuð fram síðan deigjur
byrjuðu. t
tiróður á fjöllum. Greinagóður mað-
ur, Hjálmar bóndi .í Villingadal, hefir
skýrt Degi frá því, að gróður á fjöll-
unum fram af afrétti Eyjafjarðar sé
með besta móti og óvenjulega mikill;
segir hann að grasið liggi í legum fram
hjá Laugafelli eins og best á túni. Er
þetta því einkennilegra, þar sem gras-
spretta í fremri hluta Eyjafjarðar og
afréttum hans er sára aum, enda
streymir féð af afréttunum fram á
fjöllin í góða haglendið. Sennilegustu
eða einu skýringuna á þessu telur
Hjálmar þá, að norðannæðingarnir hafi
ekki náð fram á fjöllin í vor, en þar
hafi verið sunnanátt og skúrir. Hjálm-
ar er allra manna kunnugastur á fjöll-
unum á þessum slóðum og veðráttufari
þar.
Dánardxgur. Nýlega er látinn Snorri
Jónsson hreppstjóri að Þverá í Laxár-
dal, nær hálfáttræður að aldri. Snorri
var greindur maður og fróður um
marga hluti og hinn merkasti maður.
Hann var bróðir hins þjóðkunna gáfu-
manns Benedikts frá Auðnum.
Þá er og' nýlega önduð á Húsavík
Ifelga ísaksdóttir, kona Vilhjálms Guð-
mundssonar og móðir Guðmundar Vil-
hjálmssonar erindreka Sís og þeirra
biæðra. *
Nýlátin er að Skútum í Glerárþorpi
Margrét Septíma Jónsdóttir, eiginkona.
Halldórs Halldórssonar frá Skútum á
Þelamörk, eftir langvarandi vanheilsu.
Skij). fsland kom hingað að kvöldi
þess 12. þ. m. með marga farþega;
meðal þeirra var Sigurður Kristinsson
forstjóri og frú hans, er dvelja hér fyr-
iv norðan vikutíma. Skipið fór aftur á
I augardaginn; meðal farþega til Rvík-
ur var Jón Sveinsson bæjarstjóri; fór
hann suður í fjármálaerindum fyrir
bæinn.
Lagarfoss kom að vestan á Föstu-
dagsmorgunin. Með honum komu Geir
Jón Jónsson bókhaldari og frú hans og
Dagmar Dahlmann símamær.
Gullfoss kom hingað á Föstudags-
kvöldið með fjölda farþega úr Rvík,
sem voru að skemta sér. Fór skipið
aftur á Sunnudagskvöldið með skemti-
ferðafólkið.
»Oronico«, þýskt skemtiskip, kom
hingað á Mánudagsmorguninn og fór
aítur síðari hluta sama dags.
Flugskipið Súlan kom hingað um há-
dcgisíiilið sama dag, án þess menn ættu
von á því. Með því komu þrír farþegar:
Bolli Thoroddsen verkfræðingur, Bjarni
Stefánsson skipstjóri og Þórður Guð-
jehnsen frá Húsavík. Súlan flaug aftur
eftir skamma viðdvöl.
Prestastefnan á Hólum. Aðalmálið,
sem fyrir prestastefnunni lá, var hand-
bókarmálið. Var kosin þriggja manna
nefnd í það, og skipuðu hana prófast-
arnir Hálfdán Guðjónsson og Stefán
Kristinsson og séra Friðrik J Rafnar.
Skiluðu þeir nefndaráliti, en eigi varð
málinu ráðið til lykta að þessu sinni.
Séra Þorsteinn Briem flutti erindi
um trúarlíf mannsins, prófessor Sig-
urður Sivertsen um Norðurlandakirkj-
urnar þrjár og einkenni þeirra, séra
Gunnar Árnason um samband prests og
safnaðar, ólafur Ólafsson kristniboði
um kristniboð í Kína. Enn flutti séra
Bjarni Jónsson dómkirkjuprestur er-
indi.
í sambandi við prestastefnuna fór
fvam biskupsvígsla Hálfdáns próf. Guð-
Jónssonar. Við þá athöfn lýsti próf.
Ásmundur Gíslason vígslu, en síra
Friðrik Rafnar þjónaði fyrir altari. Er
vígsluathöfn þessi talin hafa verið
mjög hátíðleg. Talið er að 700—800
manns hafi verið viðstatt vígsluna.
Trúlofun: Hermína Sigurgeirsdóttir
og Björn Kristjánsson kaupm. frá Sauð-
árkróki.
Menn eru ’rieðnir að athuga, að 7.
lína að neúan á 3. dálk 1. síðu á að
vera noðsta lína dálksins af nokkru af
upplaginu.
Kjiupendur Dags eru ámintir um að
gjalddagi blaðsins var fyrir 1. Júlí.