Dagur - 25.10.1928, Síða 2
180
DAOUR
4ð. tbl.
»-«-«■ « • • » » « » • • • • »t § • • • » « » » « « » ««» > « » «-■ (
a«
Qoodrich- æ
•m
gúmmístígvél Jgf
handa börnum og unglingum eru sterkustu stígvélin.
Verðið er nú á svörtum stígvélum með brúnum
botnum, barna kr. 13.75, unglinga kr. 17.50
jjg Kaupfél. Eyfirðinga. JJ|
mimmmmmmmm
■"i—AKURBYRAR BÍÓ
Laugardagskvöldið kl. 8V2. Sunnudag kl. 5:
BEI HÚR.
Heimsfræg mynd í 12 þáttum um efni frá Krists dögum.
Aðalhlutverkið leikur:
RAMÖN NOVARRO
af óviðjafnanlegri snild. í þessari mynd er frásögn Biblíunnar
um líf Jesú sýnd á dásamlegan hátt. Maður sér Maríu
og Jósef á leið til Betlehem, vitringana frá Austurlöndum og
fleira. BEN HÚR er hafinn yfir allar aðrar kvikmyndir, og
hefir aldrei nein þvílík mynd sézt hér áður.
Myndastofan
Oránufélagsgötu 21 er opin alla daga
frá kh 10-ö.
Guðr. Funch-Rasmussen.
fengir drykkir sem skip hefir
meðferðis, ei-u settir undir inn-
sigli í fyrstu höfn, sem skipið tek-
ur, og má það eigi brjótast fyr en
skipið er komið úr landhelgi.
Rannsókn sú, er fram fer á skip-
unum, er skörp, og ef það kemst
upp að einhver gæzlumanna hafi
séð gegnum fingur með einhverju
ólöglegu, á hann sér engrar vægð-
ar von, hann er tafarlaust rekinn.
Ef bxænnivín finst, verður sá seki,
umfram aðra hegningu, að svara
40 krónum fyrir hvern lítra. Ráð-
herrann hefir sett sérstakan lög-
regluembættismann til að annast
þessi mál. »Hann fjölgar embætt-
ismönnum!« hrópa andstæðingar
hans, en »Tíminn« svarar, að
aukið sektarfé sé meira en sem
svarar launum eins embættis-
manns.
Þegar á alt er litið, fæ eg eigi
skilið betur, en Jónas Jóixsson
hafi almenningsálitið með sér. En
eg efast um, að hann hefði tekið
öðruvísi á málunum, þó svo hefði
eigi viljað til — og eitt er víst:
Það stendur ótti af manninum.
Hann er ekki til að henda gaman
að.
------0----—
Ritfregn
Benedikt Bjömsson:
Þjóöskipulag Islendinga.
Kenslubók handa alþýðu-
skólum og í heimahúsum.
Bókaverzlun ' Þorsteins
M. Jónssonar. Akureyri
1928.
»Hverjum hugsandi manni mun
vera það Ijóst og auðskilið, að nú
á tímum almenns kosningarréttar,
þingræðis og stjórnmála, sé almenn
fræðsla nauðsynleg um skipulag
þjóðar vorrar. Rví að íhlutun um
það verður að byggjast á viti og
þekkingu, ef vel á að takast.«
Þetta eru hin fyrstu orð formála
þessarar bókar, og gefa þau þegar
hugmynd um ætlunarverk það, er
höfundurinn hefir ásett sér að leysa
af hendi með því að rita hana, og
verður eigi annað sagt með sanni,
en að honum hafi tekist það prýði-
lega vel.
í raun og veru hefir oss tilfinnan-
lega vantað handhæga bók til al-
mennrar fræðslu í þessum efnum,
en úr því er nú bætt með bók
þessari, í henni er hægt að finna
flest það, sem nauðsynlegt er hvej-
um manni að vita, svq að öllum,
sem vilja, er nú vorkunnarlaust að
fræðast um skipulag hins íslenzka
þjóðfélags.
Pað mun alment álitið, að þjóð-
skipulagsfræði sé nokkuð þung og
þur fræðigrein, enda hefir eigi verið
gert mikið í þá átt, að hún gæti
komið almenningi að notum, þó
undarlegt megi virðast, þar sem
hún þó er sú fræðigrein, sem einna
mest snertir hvern einstakling í
hverju landi.
Með þessari litlu bók sinni hefir
höfundurinn sýnt, að það er hægt
að rita skemtilega um þessi mál
og einnig hitt, að þetta einmitt erxr
fræði, sem öll alþýða getur haft
gagn af, endæ fer hann lítið að
siðvenju lærðra manna um með-
ferð efnisins, en miklu meira eftir
því, sem hann finnur er skiljanlegt
hverjum lesanda.
Bókinni er, fyrir utan formála og
inngang, skift í kafla. - Er fyrsti
kaflinn um einstaklinginn, annar
kafli um heimilið, o. s. frv. Öll nið-
urröðun efnisins fer eftir reglum
eðlilegrar þroskunar í því, að jafnan
er byrjað með því einfaldasta og
frá því er gengið til þess, sem er
margbrotnara og torskildara. Eigin-
lega er það óþarfi að benda á nein ein-
stök atriði í bókinni, en þó vil ég
sérstaklega vekja athygli á siðfræði
þeirri, sem gengur eins og undir-
straumur undir öllu efni bókarinnar,
er það einkar heilbrigð og góð
hugsun, sem alstaðar kemur fram,
til eflingar þegnlegum þroska, sam-
tökum og þeirri gagnkvæmu hjálp,
sem nauðsynleg er, ef nokkurt
mannfélag á að geta þrifist eða
tekið framförum til fullkomnunar.
Pað er engin vafi á því, að hinir
mörgu góðu eiginleikar bókaiinnar
munu gera hana einkar vel hæfa
sem kenslubók í unglinga og al-
þýðuskólum. En hlutverki hennar
er þó eigi þar með Iokið. Eins og
fyrirsögn hennar bendir á, er til
þess ætlast, að hún einnig geti
komið að gagni í heimahúsum, og
til þess er hún einnig mjög vel
fallin. Hún er svo skýrt og skemti-
lega rituð, að fullorðnir menn, er
vilja mentast af sjálfum sér um þjóð-
skipulag vort, munu lesa hana með
ánægu og geta lært það helzta er
þeir þurfa að vita; bókin ætti því
helzt að vera til á hverju heimili
landsins og ætti hún að vera notuð
sem handbók.
F. A. B.
------0------
Mikil var
Díana Efesusmanna —
en meira er hugmyndaflug »Norð-
lings«—úr almennri, alveg hlutlausri
fréttagrein í siðasta tbl. »Dags« verð-
ur honum »stórpólitík«!
O, jæja, ekki öfunda eg hann nú
af þessari tveggja dálka grein, sem
honum varð úr málinu, það er ekki
svo oft, sem hnífur ötuls blaða-
manns kemur í feitt. —
En úr því »Norðlingur« lítur
á fréttagrein um fjárhagserfiðleika
Rússa sem alvarlega aðvörun til ís-
lenzku þjóðarinnar, var það gróf-
lega bagalegt fyrir íhaldið hér á landi,
að hún skyldi koma svona seint —
líklega hefðu íhaldsmenn forðast að
líta hýrum augum til socialistanna
fyrir kosningarnar á fyrra ári, ef
greinin hefði verið komin þá—mildi
var að slys hlauzt ekki af!
Annars verður »aðvörunin« held-
ur lítils virði, þegar litið er á, hversu
öll afstaða og ástand er ólíkt hér,
því sem var í Rússlandi fyrir bylt-
inguna 1917, það væri naum-
ast hugsanlegt, að neitt svipað
gæti komið fyrir hér, jafnvel þótt
jafnaðarmenn kæmust í meirihluta,
mynduðu stjórn og færu með völd
um lengri eða skemri tíma, eins og
hefir átt sér stað víða um lönd hin
síðari árin, hvað þá, þagar miðflokk-
ur situr við völd, eins og nú á sér
stað hér — flokkur, sem að öllu er
óháður samtökum jafnaðarmanna,
jafnvel þó flokkarnir geti átt samleið
á einstökum sviðum þjóðmálanna.
Pað er heldur engin ástæða
til að ætla íslenzkum bændum þá
grunnhygni, sem »Norðlingur« virð-
ist drótta að þeim, ef hann ætlast til,
að þessi grýia hans muni fæla þá
úr Framsóknarflokknum.
— Ennfremur vil eg í sambandi
við hina umræddu grein i síðasta
tbl. »Dags« og afstöðu þeirrar, er
»Norðlingur« hefir tekið til hennar,
benda á, hvílíkum barnaskap og
fáfræði það lýsir, að ætla að sanna
getuleysi kommúnista á Rússlandi,
með því að þeir og rússneska þjóð-
in eigi við ýmsa örðugleika að
stríða. Tími sá er liðinn er, síðan
byltingin fór fram, er styttri en svo,
að hægt sé að búast við nokkru
öðru. Hver hugsandi og skynsam-
ur maður verður af hreinum og
beinum sögulegum ástæðum að við-
urkenna að svo er, jafnvel þótt hann
á engan hátt finni köllun hjá sér
til að fara að verja gerðir kommún-
ista, hvorki á Rússlandi né annar-
staðar. — En lesendur blaðanna eiga
heimtingu á, að þeim sé sagt sem
sannast og réttast frá viðburðum
og stefnum úti um heiminn, hverj-
ar sem þær eru. Sé lagður á fregn-
irnar rangur og flokksbundinn dóm-
ur, eins og »Norðlingur< hefir gert
í þetta sinn, væru þær betur óbirt-
ar, því þær koma almenningi að
engum notum, þvert á móti auka
þær þá fáfræði, heimsku og þröng-
sýni í landinu —vona eg að »Norð-
!ingur« sjái sóma sinn í að láta af
siíku tramvegis.
F. Á. B.
-------0--------
Hjónabönd. Nýlega voru gefin saman
í hjónaband ungfrú Ólöf ólafsdóttir frá
Krossum og Halldór Halldórsson bygg'-
ingarfulltrúi hér í bæ. — Ennfremur
eru nýlega gift ungfrú Anna Friðriks-
dóttir og Jón Nikodemusson vélstjóri.
Sílda/reinkasalan er nú búin að selja
nálega alla þá síld, sem veidd hefir ver-
ið í salt. Eitthvað mun enn óselt af
kryddsíld og sykursaltaðri síld.
JVIálningarvörur
— ALLSKONAR —
mest úrval, beztu tegundir
hjá
Tómasi Björnssyni.