Dagur - 25.10.1928, Side 3
40. tbt.
DAGUR
181
Ullarband
þríþætt og fjórþætt,
fæst í
Brauns Verzlun.
Páll Sigurgeirsson.
Jón Jóhannsson.
Dáinn 25. Sept. 1928.
Það hrynja af augum höfug tár,
og hjarta sárin blæða,
því viðskilnaður vina er sár,
þau verður seint að græða.
Hve fallvalt lán og lifið er,
menn löngum fá að reyna;
ó! himna faðir hjálpa mér,
þú huggun mín ert eina.
Ó! hjartans vinur hinsta sinn,
ég hjá þér fæ að dvelja,
þig, kæri eiginmnður minn,
frá mér tók bitur helja.
Eg þakka alt, sem þú mér varst
og þína biíðu lundu,
sem hetja sjúkdóms-bölið barst
að bana hinstu stundu.
S W A N-pennar taka öðrum lindarpennum fram að gæðum.
S W A N-blýantar (gull, silfur o: fl.) eru smekklegir og vandaðir. Peir, ásamt Swan-pennum
og Blackbird-pennum, fást með sama útsöluverði, sem þeir eru seldir fyrir í heimalandi sínu,
Englandi, að viðbættum verðtolli.
BÓKAVERZLUN ÞORSTEINS M. JÓNSSONAR.
Nú komið er að kveðju stund,
með klökkva þín við minnumst,
þú gengur nú á guðs þíns fund,
þar glöð við síðar finnumst.
Haf þakkir, faðir, fyrir alt,
sem fús þú jafnan veittir,
í þínum örmum ei var kalt,
þú ama f gléði breyttir.
Með hreinan skjöld þú heldur burt,
til himins dýrðarlanda;
að líta á Krist, varlæknisjurt,
sem leysti allan vanda.
F*ú treystir guði í trúnni hér,
í tímans þröngum sessi;
og síðasta vor óskin er:
þig alheimsfaðir blessi.
/. Ó.
------o----
Simskeyti.
(Frá Fréttastofu lslands).
Rvík 24. Okt.
Atvinnumálai'áðherrann hefir
skipað 5 manna nefnd til að at-
huga, hversu póstgöngum verði
haganlegast fyrir komið og um
sameining á starfrækslu pósta og
síma o. s. frv. Einn nefndarmanna
er úr hverjum landsfjórðungi og
skrifstofustjóri Atvinnumálaráðu-
neytisins oddamaður í neíndinni.
Varsjá: 300 þús. verkamenn
taka þátt í allsherjarverkfalli í
Lods út af launagreiðslu.
París: Gilbert, umsjónarmaður
skaðabótagreiðslu Þjóðverja
stingur upp á til fullnaðarúr-
lausnar, að skaðabótakrafan
skiftist í 2 parta. 14 miljarðar
notist til endurreisnar stríðshér-
uðum Frakklands og Belgíu, en
16 miljarðar til greiðslu ófriðar-
skulda bandamanna við Bandarík-
in, en gefi Bandaríkin eitthvað
eftir af skuldunum, lækkar
greiðsla Þjóðverja tilsvarandi.
Setuliðið verði kallað heim og eft-
irlit með þýzkum fjármálum af-
numið.
Marsille: Sjómannaverkfall
stendur yfir. Skipaferðir í Mar-
sillehöfn stöðvaðar; 7000 farþeg-
ar teptir.
London: Við Bretland hafa
mörg skip strandað og símslit
oiðið. 3 menn hafa farist.
Pai'ís: Mikil flóð í Savoie- og
Y pserhéruðum.
New York: Nankingstjórnin
hefir beðið Ford og 4 aðra fjár-
málamenn Ameríku að vera fjár-
málaráðunauta sína. Ford tilleið-
anlegur.
------o-----—
Ný rit.
II.
Þingtíðindi Stórstúlcu íslands
írá ársþingi hennar höldnu á Ak-
ureyri í sumar eru út komin. Er
það talsvert fyrirferðarmikil bók,
er flytur skýrslur um starfsemi
Reglunnar á landi hér, vöxt henn-
ar og viðgang. Á síðasta Stór-
stúkuáii voru stofnaðar og end-
urvaktar 17 undirstúkur og 13
unglingastúkur, en 1 undirstúka
lögð niður.
III.
Saga, missirisrit gefið út í
Winnipeg, hefir Degi verið sent.
Það flytur skáldsögur, æfintýr,
ritgerðir, þjóðsagnir, leikrit,
kvæði, stökur, dæmisögur, gátur,
hugrúnar, skrítlui’, fróðleiksmola
og — hvað vilja menn hafa það
fieira. Ritið er fjölbreytt að efni
en misjafnt að gæðum.
IV.
Eimreiðin, 3. h. þ. á., er fyrir
nokkru út komin. Efni sem hér
segir: Sigurj. Friðjónsson: Haust-
nótt (kvæði). Einar Benediktsson:
Gáta geymsins. G. Briem: útvarp
og menning (með mynd). Stein-
dór Sigurðsson: Frá Grímsey og
Grímseyingum (með 10 myndum)
niðurl. Herdís Andrésdóttir: Litið
til baka (kvæði). ólína Andrés-
dóttir: 70 ára (kvæði). Sveinn
Sigurðsson: Þjóðlygar og þegn-
skylda. Bergsteinn Kristjánsson:
Réttardagar (saga). Sv. S.: Vask-
ir drengir (með 2 mýndum) Ric-
hard Beck: William Shakespeare.
Valtýr Guðmundsson látinn (með
mynd). Sveinn Sigurðsson: Lifa
látnir? (framh.). F. W. H. Myers:
Veraldarsýn (kvæði), J. Smári
íslenzkaði. Sami: »Horfin ljúf-
lingslönd« (kvæði), J. Smári ísl.
Raddir — Ritsjá.
Heftið er margbreitt að efni og
læsilegt að vanda. Sérstaklega
skal bent á ritgerðina: útvarp og
menning.
V.
Slcýrsla. aðalstjórnar Rauða
kross íslands, fyrir árið 1927 hefir
Degi verið send. Skal hér drepið
á fáein atriði í skýrslunni:
Stjórn félagsins er óbreytt. > G.
Claessen, læknir, er formaður að-
alstjórnar.
Fjárhagur. útdráttur úr árs-
reikningi 1927 er á þessa leið:
í ársbyrjun voru í sjóði kr.
7064.63. Tekjur á árinu kr.
15171.54, en gjöld kr. 9673.04. í
árslok voru eignir félagsins kr.
12563.13. Þar að auki á félagið 1
sjúkrabifreið, nokkuð af hjúkr-
unargögnum og fleira smávegis.
Alþingi veitti R. Kr. ísl. 2 þús.
kr. styrk á árinu.
Félagatala var í árslok 1228.
Akureyrardeildin. Formaður er
Steingrímur Matthíasson héraðs-
la'knir. Félagatala í árslok var 95.
Deildin hefir í þjónustu sinni
hjúkrunarsystur Ingunni Jóns-
dóttur, og hefir hjúkrun verið
haldið uppi alt árið. Hjúkrunar-
dagar voru alls .206, en 446 vitj-
anir til sjúkra. Mestur hulti
hjúkrunarinnar var unninn ó-
keypis.
Tekjur deildarinnar voru alls
kr. 3095.11 (félagagjöld, ágóði af
skemtunum, áheit), en gjöld kr.
1999.25.
Hjúk'run. Eins og undanfaiin
ár, var haldið uppi hjúkrun í ver-
stöðinni Sandgerði, á vetrarver-
tíðinni, Rauða Kross systirin
Kristín Thoroddsen dvaldi þar í
jan.—aprílmán., og inti af hendi
425 hjúkrunaraðgerðir og sjúkra-
vitjanir.
Námskeið í hjúkrun og hjálp í
viðlöguni. Að afloknu hjúkrunar-
starfi í Sandgerði ferðaðist hjúkr-
unarsystirin um, og hélt uppi
námskeiðum á Flateyri, Suður-
eyri, Bolungarvíkr, Hnífsdal, ísa-
firði, Súðavík, Siglufirði, Akur-
eyri, Saurbæ í Eyjafirði, Vest-
mannaeyjum og í Reykjavík. —
Þátttakendur voru alls 300, karl-
ar og konur. Auk þessa veitti
hj úkrunarsystirin sjómönnum í
Sandgerði tilsögn og æfingar í
lífgunarlilraunum og fyrstu hjálp '
við slys.
Hjúki-unaniám á Bedford Col-
lege í London. League of Red
Cross- Societies hefir með venju-
legri rausn og hjálpsemi orðið við
tilmælum R. Kr. ísl. um að veita
Sigríði Bachmann ókeypis vist og
kenslu í eitt ár á Bedford College,
sem er framhaldsskóli fyrir út-
lærðar hjúkrunarkonur.
Sjúkrabifreiðin. Reynslan hefir
sýnt að full þörf er á sjúkrabif-
reið til flutninga á sjúklingum ut-
an Reykjavíkur. Árið 1927 flutti
bifreiðin alls 101 — eitt hundrað
og einn —- sjúkling, og voru það
alt utanbæjarflutningar, að und-
anskildum 14 sjúklingum, sem
fluttir voru í R. Kr. bifreiðinni í
forföllum bæjarbifreiðarinnar.
F réttir.
Leikfélag Akureyrar er að byrja að
æfa »Munkana á Möðruvöllum« eftir
Davíð Stefánsson. Stjómandi æfing-
anna er Haraldur Björnsson.
Kvenfélagið »Framtíðin« hefir sent
sámskotalista um bæinn og safnar inn
til gamalmennahælis Akureyrar. Er það
falleg hugsun og nauðsynjamál; væri
óskandi að sem flestir yrðu vel við.
Málið virðist oss snerta alt bæjarfélag-
ið sem heild, en hverjum einstökum
ætti að vera ant um að greiða götu þess.
Dánardægur. Um miðja síðustu viku
andaðist hér í bæ Jóhannes Þorkelssón
fangavörður, hátt á áttræðisaldri. Hanu
dó úr slagi. *