Dagur - 01.11.1928, Side 3
47. tbl.
DAGUR
185
Pað tilkynnist, vinum og vandamönnum, að Ingimar Frið-
finnsson frá Nýjabæ, andaðist á sjúkrahúsinu á Akureyri,
Mánudaginn 22. Október s. 1.
Jarðarförin er ákveðin á Möðruvöllum 5. Nóvember n. k. og
hefst kl. á hádegi.
Aðstandendur.
Grammofónar ^2) plotur.
Með Dr. Alexandrine kom mikið úrval af grammofonom (12 teg.). Verð frá
kr. 67.00—kr. 500.00. (Skáp- borð- og ferðafónar). — Einnig kom mikið
órvai af plötuin, t. d. íslenskar söngplötur, þ. á. m. allar þasr nýj-
natn, útiendar kór- og einsöngfs-plötur, fiölu, orgel, cello og
Hawailan-plötur. Margar nýjar dansplötur, sérataklega mikið úrval
a( nýjum harmónikuplötum. — Nálar (5 teg.), fjaörir, hljóödósir,
plötuburstar og verk i fóna fyririiggjandi. — Komiö á meöan
úrvalið er niesti — Sendi gegn póstkröfu út flm land.
Jón Guðmann.
LANDSINS BEZTA
BRENT og MALAÐ K A F F I er frá KAFFIBRENSLU
REYKJAVÍKUR, elztu og fullkomriustu kaffibrenslu á íslandi.
Styðjið það, sem fslen zt er.
Heildsölubirgðir ávalt fyrirliggjandi hjá
I. BRYNJÓLFSSON & KVARAN.
SÍMI: 175. AKURETHI. SÍMNEFNI: VERUS.
uppboð:
Ár 1928, Mánudaginn 12. Nóv. kl. 1 e. h.,
verður opinbert uppboð sett og haldið við síld-
arbræðsluverksmiðju H|F Ægir í Krossanesi og
þar selt allmikið at timbri og járnariisli. —
Uppboðsskilmálar verða birtir á uppboðsstaðnum.
Akureyri 30. Október 1928;
Sýslumaðurinn.
Húseigendur á Akureyri,
munið að gjalddagi allra iðgjalda til Brunabótafélags Islands er
15. Október. Peir, sem láta greiðslur dragast, verða að vera við-
búnir lögtaki og áfallandi kostnaði, án fyrirvara, þar sem rjeynslan
sýnir, að hlífð við innheimtu gjaldanna hefir í för með sér
sívaxandi vanskil.
Umboðsmaður Brunabótafélags Islands.
Böðvar Bjarkan.
JFrá Jlandssímanum■
Frá 1. Nóvember verður landsímastöðinni hér lokað klukkan
21 á kvöldin hvern virkan dag, en bæjarsíminn verður opinn,
eins og áður, til klukkan 22.
Akureyri 31. Okt. 1928.
Símastjórinn.
H é r m e ð gefst vinum og
kunningjum til kynna, að jarðar-
för eiginmanns og föður okkar,
Gissurar Gissurssonar, sem and-
aðist 24. október, er ákveðin
Föstudaginn 2. nóvember næst-
komandi, og hefst með húskveðju
kl. 11 árdegis. Verður jarðsung-
inn í Glæsibæ samdægurs.
Skarði í Glerárþorpi, 27. Október 1928.
María Jónsdóttir og börn.
Tunqumalakensia.
Enska, þýska, Danska
og Sænska.
Estrid og
Friðrik Ásmundsson Brekkan.
Aðalstræfi 15.
Ný rit.
VI.
BúnaðarritiÖ 1928. Efni þess
er sem hér segir: Álit Flóanefnd-
arinnar. Jón Pálsson, dýralæknir:
Lungnaormar og landbúnaður.
Þórir Guðmundson: Fóðurtilraun-
ir, gerðar að Hvanneyri veturna
1921—1927. Hannes Jónsson,
dýralæknir: Gin- og klaufaveikin.
Verkfæratilraunir Búnaðarfél. ísl.
1927. Guðmundur Jónsson: Gróð-
urathuganir á Blikastöðum í Mos-
fellssveit. Ásgeir Jónsson: Hug-
leiðingar um fóðrun og hirðingu
sauðfjár. Einar B. Guðmundsson:
Æðardúnn. Hallgrímur Þorbergs-
son: Nýrækt og nýbýli. Reglur um
verklegt jarðræktarnám. Eigna-
reikningur Búnaðarfél. fsl. 31.
des. 1926. Sjóðir undir umsjón
Búnaðarfél. ísl. 1. jan. 1927.
Jarðræktarlög 1923—1928.
o ■ ■■
Fréttir.
Hvítárbrúin nýja er vígð í dag. For-
sætisráðherrann fór í fyrradag til Borg-
arfjarðar, til þess að vígja brúna. Er
hún talin glæsilegt og merkilegt mann-
virki.
*
Lamb fæddist hér í bænum fyrsta
vetrardag. Ærin bar í vor eins og til
stóð og hefir gengið með dilk í alt sum-
ai'. Hefir hún því borið tvisvar á sama
áiinu. Mun það sjaldgæfur viðburður.
Eigandi ærinnar er Magnús Jónsson frá
ísafirði.
Forstöðumaöur Vinnuhælisins á Eyr-
arbakka verður Sigurður Heiðdal kenn-
ari. Er hann farinn til Noregs, til þess
að undirbúa sig til starfsins.
Áætlunarferðir
að Kristnesi.
Eins og að undanförnu verða fastar
ferðir að Kristnesi kl. 12 á hád., þriðju-,
föstu- og sunnudaga og kl. 3 e. h. á
sunnudaga. Staðið við heimsóknartím-
ann. Gjald saraa, þótt benzin hækki og
vegir versni. — NB. Frá deginum í dag
og fyrst um sinn verður tekið gjald
fyrir smábögla og sendingar, 10—50 au.,
eftir stæi’ð og þyngd, sem gengur í
bóka- og pianosjóð Kristnesshælis.
Akureyri 1. nóv. 1928.
Bifreiðarstöð Akureyrar.
Kr. Knstjánsson.
Starfsfólki við Vífilstaðahæli, öllu
sem hefir meira en 150 kr. kaup á mán-
uði, hefir verið sagt jipp. Er þetta gert
til þess að fá kaup þeirra hæstlaun-
uðu lækkað með nýjum starfssamningi.
Kleppsspítalinn nýi er ætlast til að
taki til starfa 1. mars næstk. Helgi
Tómasson verður yfirlæknir nýja spít-
alans; en Þórður Sveinsson prófessor
heldur áfram starfi sínu í gamla spít-
alanum.
Laugavatnsskólinn er settur í dag.
Við setningu hans er margt stórmenna
úr -Reykjavík, þar á meðal kenslumála-
ráðherrann, biskup, landlæknir og
blaðamenn af öllum flokkum. Skólinn er
hitaður með laugarvatni og gufa leidd
inn í húsið til suðu. Er sá útbúnaður
allur talinn hinn merkilegasti og nijög
hagkvæmur. Skólanum hafa áskotnast
miklar og veglegar gjafir. Málararnir:
Kjarval, Guðmundur frá Miðdal, Ás-
grímur og Ólafur Magnússon, hafa all-
ir gefið honum dýr málverk eftir sig.
T. d. er gjöf Ásgríms talin 1000 kr.
virði. Enn hefir skólanum verið gefið
orgel, klukka, mikið af bókum o. fl. Síra
Jakob Lárusson er skólastjóri og Guð-
mundur Ólafsson frá Sörlastöðum er
kennari við skólann.
Útlán á bókum úr bókasafni guð-
spekifélagsins á Akureyri hefst á morg-
un (föstudaginn 2. nóv.). Bókasáfnið
er eins og áður í Brekkugötu 7 og verð-
ur opið Þriðjudaga og föstudaga frá
kl. 6—8 síðdegis.
Margar ágætai' bækur á boðstólum.
Hjedinn Valdimarjsson hefir hafið
rökstudda árás á Einar Arnórsson sem
skattstjóra. Hefir þetta haft þau á-
hrif, að Einar hefir sagt starfinu lausu.
Búist er við, að Helgi Briem verði
skattstjóri í stað Einars.
Lárus Jóhannesson hefir gert harða
árás á Landsbankann í Verslunartíð-
indunum. L. J. hefir ritstjórn Tíðind-
anna með höndum. Fyrirspufn hefir
komið til Verslunarmanna-ráðsins um
það, hvort það stæði bak við skammirn-
ar og bæri ábyrgð á þeim. Mælt er, að
það vilji ekki taka á sig ábyrgðina og
muni það taka upp það ráð að reka L.
J. frá ritstjórniími.
Tolr hnrn tn kenslu 1 vet‘
1 ClV UUIII ur. Geng í hús
ef óskað en
ÁRNI HÓLM.
. Aðalstræti 12.
U. M. F. A. fundur í Skjaldborg
þriðjudaginn 6. nóv. n. k. kl. 8% e. h.
Rætt um vetrarstarfið o. fl. Mikilsvert
að félagar mæti, bæði karlar og konur.
Gullb'rúðkaup. Hinn 27. f. m. héldu
hjónin á Völlum í Saurbæjarhreppi, þau
Jónas Jónasson og Sigurlína Haílgríms-
dóttir, gullbrúðkaup sitt. Gullbrúðkaup-
ið fór fram á Möðruvöllum í sömu sveit.
Þar býr Valdemar Pálsson og kona
hans Guðrún, dóttir gullbrúðhjónanna.
Ýmsir sveitungar þeirra voru þar sam-
an komnir og nokkrir kunningjar af
Akureyri, til þess að færa þeim heilla-
óskir. Gullbrúðkaup þetta fór hið bezta
fram; voru veitingar hinar rausnar-
legustu og skemtu menn sér ágætlega