Dagur - 01.11.1928, Qupperneq 4
186
DAGUR
47. tbl.
við ræður, söng og margan annan gleð-
skap. Sóknaipresturinn, síra Gunnar
Benediktsson, hélt aðalræðuna fyrir
minni gullbrúðhjónanna og skáldkonan,
Kristín Sigfúsdóttir, flutti þeim kvæði,
er hún hafði ort. Gullbrúðhjónin voru
hin reifustu og léku á alls oddi, þó að
aldurinn sé farinn að færast yfir þau.
Jónas er hartnær 73 ára, en kona hans
litið eitt eldri. Bæði hafa þau enn góða
heilsu, nema hvað Jónas hefir lengi ver-
ið fatlaður af fótaveiki. — Jónas er
maður gáfaður og íhugull, fróður um
margt og hagyrðingur í betra lagi, en
fremur dulur í skapi og fáskiftinn.
Sambúð þessara hjóna hefir ætíð verið
hin bezta.
Meðal farþega, er komu hingað til
Akureyrar með »Drotningunni« á föstu-
dagskvöldið, voru frú Guðrún Ólafsson,
frú Sigríður Þorvarðardóttir og Pétur
Ólafsson framkvæmdarstjóri.
Sigurður Guðmundsson skólameistari
fór með »Drotningunni« áleiðis til út-
landa og dvelur þar eitthvaö ftram eft-
ir vetri, til þess að kynna sér skólamál.
Dánardægur. Látin er á Kristnes-
hæli húsfrú Kristín Jónsdóttir, kona
Sigul’jóns Friðjónssonar á Laugum í
Reykjadal.
Nýlega andaðist hér á sjúkrahúsinu
Ingimar Friðfinnsson bóndi á Nýjabæ
í Saurbæjarhreppi. Hann var um sex-
tugt að aldri. Jnnvortiskrabbi varð
honum að bana.
Þá er og fyrir skömmu önduð að
Keldunesi í Kelduhverfi Kristbjörg
Jónsdóttir, 92 ára að aldri. Hún var
móðir Jónatans Jóhannessonar utanbúð-
armanns hér í bæ, Kristjáns fyrv. pósts
og Helga bónda í Múla. Jarðarför henn-
ar fer fram í dag að Þverá í Laxárdal.
Hinn 24. f. m. andaðist Gissur Giss-
ursson, gamall maður og alþektur báta-
smiður hér um slóðir.
-------0-----—
Simskeyti.
(Frá Fréttastofu Islands).
Rvík 30. okt.
Washington; útlit er fyrir, að
Hoover forsetaefni vinni glæsi-
legan sigur við kosningarnar.
Oslo: Norskur verkfræðingur
heyrði í sumarbyrjun bergmál
loftskeyta frá Einhookenradio-
'stöð í Hollandi. Pröfessor Störm-
er hefir rannsakað bergmálið, og
hefir rannsóknin sýnt, að það
heyrist 3 til 17 sek. seinna en loft-
skeytin; skeytin endurkastast frá
stöðum ‘úti í geimnum /2 miljón
til 2/2 miljón kílómetra frá jörðu.
Störmer álítur, að skeytið endur-
kastist vegna þess, að sumstaðar
í geimnum séu rafmögnuð svæði,
sem loftskeytin komast ekki í
gegn um.
Berlín: Sendiherrar Þýzkalands
hafa afhent stórveldunum opin-
bera tillögu um að kalla saman
sérfræðinganefnd samkv. Genf-
samþyktinni til fullnaðarúrlausn-
ar skaðaþótamálsins.
Lakehurst 29/10: Greifi Zeppelin
fór héðan kl. 2 í nótt eftir Ame-
ríkutíma. Farþegar voru 25 og 45
póstsekkir. — ao/io: Zeppelin var
MIX
er mest
REYKTA
tóbakið hér á landi.
Glasgow
Mixture
r
Islenzkar húsmæður
Æ T T U eingöngu að nota innlenda framleíðslu, svo sem:
Kristalsápu,
Grænsápu,
Hreinshvitt, ný tegund,
»Gull«-fægilög, ný tegund,
Gólfáburð (gljávax),
Skósvertu,
Skógulu,
Kerti, mislit og hvít,
Handsápur o. fl.
Allar þessar vörur, jafngilda hinum beztu útlendu vörum, bæði
að verði og gæðum. — Hafið hugfast, að þetta er
íslenzk framleiðsla. —
er þekf
fyrir gæði.
^ „HREIN N“, Reykjavík.
Herkúles
MUNDLO S-saumavélar
eru B E S T A R. fást í
Verzluninni NORÐURLAND.
í gærkvöldi á 42 gráðu n.br. og 61
gr. v.l.; flughraði 120 km. á klst.
Veður gott. Loftskipið er væntan-
legt til Þýzkalands á morgun.
San Francisco: Chamberlain er
farinn heim yfir Canada. Kveðst
hann taka við embætti sínu er
heim komi.
Oslo: Störmer álítur, að æski-
legt sé að tilraunum verði haldið
áfram í hitabeltinu. Sérfræðingar
búast við, að rannsóknirnar geri
mögulegt að nota radiobylgjur til
rannsókna viðvíkjandi eðli geims-
ins. -
Þorleifur Jónsson póstmeistari
og Jóhannes Sigfússon Menta-
skólakennari hafa fengið lausn
frá embættum sínum.
Bæjarbruni varð seint í sept-
ember á Bjarnarnesi í Steingríms-
firði; brann íbúðarhús, ásamt
fjósi og heyi áföstu við. Fólk
slapp með naumindum út úr eld-
inum. Kýr lágu á túni og sakaði
því ekki. Alt óvátrygt og bóndinn
fátækur barnamaðúr.
Deilur út af leikfélaginu standa
enn yfir.
Héðinn Valdimarsson hefir
skrifað greinar í Alþýðublaðið um
skattamál Rvíkur. Kveður hann
niðurjöfnunarnefnd hafa jafnað
niður 160,539,41 kr. umfram það,
sem lög heimiluðu 1927, og hefir
margt að athuga við starfrækslu
skattstjóra, sem hann kveður hafa
sagt lausu starfi sínu. Svar við
greinum Héðins ókomið, enda ný-
komnar í blaðinu.
Ámundi Geirsson var kærður
fyrir að hafa verið ölvaður á al-
mannafæri. Var hann sýknaður í
undirrétti. Valdstjórnin áfrýjaði
til hæstaréttar. Var dómur undir-
réttar staðfestur. Allur málskostn-
aður greiðist af almannafé.
Prentsmiðja Odds Björnssonar.
HEYVIXXU VÉLAR:
Sláttuvélar, Rakstrarvélar, Snúningsvélar.
Sænskt efni — sænskt smíði.
Útbúnar með nýtísku stangastilli og fullkomnum
dragtœkjum.
Samband ísl. samvinnufélaga.
Hreins - KREOLÍN
er áreiðanlega bezt, ef notað er eftir forskriftinni.
Auk þess er það innlend framleiðsluvara. Sauð-
fjáreigendur! Kaupið því eingöngu:
Hreins-kreolin-baðlög.
hIf „Hreinn“, Reykjavík.
Ritstjórar:
Ingimar Eydal. Friðrik Ásmundsson Brekkan.
Gilsbakkaveg 5. Aðalstræti 15,