Dagur - 17.01.1929, Side 1
DAGUR
kemur út á hverjum fimtu-
degi. Kostar kr. 6.00 árg.
Gjalddagi fyrir 1. júlí.
Gjaldkeri: Árni Jóhanns-
son í Kaupfélagi Eyfirft-
inga.
Afgreiðslan
er hjá Jóni Þ. Þ4r,
Norðurgötu 3. Talsími 112.
Uppsögn, bundin vift ára-
mót, sé komin til af-
greiðslumanns fyrir 1. des.
• •-• •• * • •• • ••
XII. ár. £
• ••♦♦ • • • • •■•■■•■
Akureyri, 17. Janúar 1929
• ♦♦-•♦ • •-• •-♦-• • #-♦-
3. tbl.
Kosningaleiðbeining.
Flestir kjósendur bæjarins rnunu liafa kosið áður og vita því allar
þær reglur, sem þar þarf að fylgja. En sökum þess að ætíð eru ein-
hverjir nýir og einhverjir, sem gleymt hafa reglunum, viljum vér setja
hér eftirfarandi leiðbeiningar fyrir kjósendur. Það er æfinlega leiðin-
legt fyrir alla, þegar það fréttist, að einhver seðill hafi verið talinn ó-
gildur, og til þess að girða fyrir það, verður aldrei um of brýnt
fyrir kjósendum að fylgja reglunum, sem í sjálfu sér eru mjög einfald-
ar og vanda sem bezt til alls. Höfuðatriðin eru þessi: Setjið aðeins
einn kross fyrir framan bókstaf lista þess, er þér kjósið. Heimilt er að
breyta um röð manna á listunum og skal þá gert með tölustöfum
framan við nafn þess eða þeirra manna, sem kjósandi vill færa upp.
Það verður að varast að skrifa nokkuð á seðilinn annað en krossinn,
eins og áður er sagt og tölurnar, ef kjósandi vill breyta mannaröð.
Seðilinn skal ein-brjóta saman í miðju og leggja í atkvæðakassann.
Kosningin fer þannig fram:
Kjósandi fær hjá kjörstjórn seðil, er svo lítur út:
Kjörseðill við bæjarstjórnarkosning í Akureyrarkaupstað 18. jan. 1929.
A-Listi 0 B-Listi C-Listi
Brynleifur Tobiasson Erlingur Friðjónsson Ó'afur jónsson
Sigtryggur Þorsleinsson Einar Olgeirsson Tómas Björnsson
Ouðbjörn Björnsson Þorsteinn Þorsteinsson Gísli R. Magnússon
Lárus J. Rist •Ólafur Magnússon Valdemar Steffensen
Þorsteinn M. Jónsson Pálmi Hannesson Guðmundur Pjetursson
Síðan fer hann inn í kjörklefann, þar Iiggur blýantur á borði, með
honum setur hann X fyr*r traman bókstaf þess lista er hann kýs. Ef
hann kýs A-lista, lítur kjörseðillinn þannig út að lokinni kosningu:
Kjörseðill við bæjarstjórnarkosning í Akureyrarkaupstað 18. jan. 1929.
X A-Listi B-Listi C-Listi
Brynleifur Tobiasson Erlingur Friðjónsson Ólafur Jónsson
Sigtryggur Þorsteinsson Einar Olgeirsson Tómas Björnsson
Guðbjörn Björnsson Þorsteinn Þorsteinsson Gísli R. Magnússon
Lárus J. Rist Ólafur Magnússon Valdemar Steffensen
Þorsteinn M. Jónsson Pálmi Hannesson Guðmundur Pjetursson
Er þá ekki annað eftir en að brjóta seðilinn saman eins og fyr
segir og leggja hann í kassann.
Munið að A-listi er skipaður Framsóknarmönnum. Setjið
krossinn fyrir framan A-ið! *
Jarðarför konu minnar, Pórunnar Friðjónsdóttir, fer fram
fimtudaginn 24. þ. m. og hefst með húskveðju kl. 1 á hádegi
Glerárgötu 3.
Akureyri, 15. janúar 1929
Jón J. Jónatansson.
Vondir draumar
„ Verkamannsinsu.
Þegar eitthvað gengur erfiðlega,
hafa menn oft illa og erfiða drauma.
Oss er með öllu ókunnugt um
hvernig »Verkam.« og aðstandend-
um hans gengur kosningabaráttan,
en auðséð er, að draumarnir eru
enganveginn góðir og að »maran«
ríður honum.
Hann birtir einn af draumum
sínum á Laugard. var. Er hann sá,
að bandalag sé komið á milli Fram-
sóknar og íhalds um að kúga verka-
lýðinn. Hrekkur hann upp með and-
fælum og verður flemtsfullur; enda
er það vorkun. Oss mundi einnig
verða bilt við, ef oss dreymdi slik-
an draum!
En vér mundum ekki birta hann
á prenti — og umfram alt, vér
múndum hvorki láta hann firra oss
allri skynsamlegri hugsun eða
freista oss til að umhverfa öllum
sannleika.
í sjálfu sér eru ummæli blaðsins
í garð Framsóknar og »Dags« ekki
svara verð, og mundum vér því leiða
þau hjá oss eins og annan. ósóma,
ef ekki stæði svo sérstaklega á, að
þau virðast helzt vera sögð í því
skyni að gera tilraun til að rægja
Framsóknarmenn hér á Akureyri og
»Dag« við flokksmenn sína, þá sem
ekki eru kunnugir öllum málavöxt-
um, skal því hér drepið á þau
nokkruin orðum.
»Verkam.« minnist á nokkur crrð,
sem stóðu í grein, er birtist í 51. og
52. tbl. »Dags« f. á., auðvitað tek-
ur hann þessi orð út af fyrir sig og
út úr öllu samhengi — en það gerir
i raun og veru ekkert til^ Allir les-
endur »Dags« vita, að oll ummæli
þessarar greinar eru í fylsta sam-
ræmi við stefnu og hlutverk flokks
vors í þjóðmálum þessa lands. Eðli-
lega hefir hún því vakið gremju til
beggja hliða. Allir vita líka að
Framsókn eða »Dagur« hefir aldrei
verið á móti neinni viðleitni verka-
manna til að bæta kjör sín. Þvert á
rnóti, það er Framsókn, sem bæði
fyr og síðar hefir tekið þyngsta
takið til bjargar slíkri viðleitni allr-
ar alþýðu bæði í kaupstöðum og til
sveita. Markleysuhjal blaðsins um
þetta efni fellur því um sjálft sig —
og sama er að segja um hinar mið-
ur góðgjörnu aðdróttanir í garð K.
E. A.
Blaðinu gremst, að »Dagur« að
nokkru leyti hefir skorist úr -»nauta-
ati« blaðanna hér (sjálft leikur það
hlutverk bolans, sem stendur og
hefir alt á hornum sér), þessu vilj-
um vér ekki svara öðru en því: að
vér birtum það eitt, er oss sýnist og
þ'egar oss gott þykir, tökum vér í
því á oss alla ábyrgð gagnvart
flokskkmönnum ■ vorum. Það er
naumast — eða mun nokkru sinni
verða — »Vkm.«, sem segir fyrir
um, hvað birtast skuli í dálkum
»Dags«. — Enda mun og »Verka-
maðurinn« kannast við það sjálfur,
þegar móðurinn rennur af honum.
Vér höfum það traust á málefn-
um vorum og mönnum þeim, er með
þau fara, að vér þurfum ekki að
svara hverjum hégóma heimskunn-
ar, sem andstæðingablöðin í ráða-
leysi sínu bera á borð, sérstaklega
þar sem venjulega er svo klaufalega
að farið, að hverjum skynsömum
manni, sem ekki er blindaður af of-
stæki eða hatri, er augljóst hvar
fiskur liggur undir steini. Ófræging-
ar og ofsi íhaldsblaðanna gagnvart
stjórninni og beztu mönnum Fram-
sóknar hafa gagnstæð áhrif við það,
sem til var ætlast. Og oss er það
fullljóst, að það er betra að hafa
last en lof slíkra blaða. Vér munum
aldrei hirða um, þótt oss sé legið á
hálsi fyrir, að vér viljum ekki fylla
þann flokkinn, sem sífelt stendur á
hljóðunum og reynir sig á, hver
hæst getur öskrað til þess að
blekkja og heimska alþýðu manna.
Lítum vér svo á, sem blöð eigi að
inna annað og betra hlutverk af
hendi í þjónustu þjóðfélagsins.
Að »Verkam.« telur »Dag« lítinn,
skal látið óátalið, því að það er
satt. En hitt vissum vér ekki að
blaðið »Verkamaðurinn« væri slfkt
stórblað, að það væri fært um að
minnast sérstaklega á lítilleika ann-
ara. En blaðið er kannske stærra,
en vér áttum von á — leynir á sér,
sem menn segja.
Þegar litið er á ástæðuna fyrir
hinum illa draum »Verkam.«, þá er
luin engin önnur en sú, að Fram-
sókn hefir gerst svo djörf að koma
fram méð lista til bæjarstjórnar-
kosninganna.
Framsóknarmönnum þar á móti
hefir þótt það i4ttmætt og sjálfsagt,
að Jafnaðarmenn kæmu fram með
lista, mæltu með honum, kysu hann
og kæmu að mönnum eðlilega eftir
því fylgi, sem þeir hefðu. En vér
höfum áskilið sama rétt fyrir oss.
Vér höfum ekki hér í blaðinu mælt
aukatekið orð í garð nokkurs
manns, sem skipar B-lista, en
»Verkam.« heldur sig ekki of góðan
til að koma með dylgjur um, að