Dagur - 24.01.1929, Blaðsíða 4
16
DAQUR
4. tbl.
Simskeyti.
(Frá Fréttastofu íslands).
Rvík 22. Jan.
Ríkisstjórnin hefir fyrirskipað
rannsókn á embættisrekstri jóhann-
esar Jóhannessonar bæjarfógeta og
falið Bergi sýslumanni Jónssyni að
framkvæma hana. — Ritstjórnar-
grein í »Alþýðublaðinu« í dag skýrir
svo frá, að aðalástæðan fyrir rann-
sókn þessari sé meðferð Jóh. Jóh.
á dánarbúum.
í gærkveldi slitnaði upp úr samn-
ingatilraunum milli stjórna Eimskipa-
félags fslands og Sjómannafélagsins.
Skipin eru því stöðvuð fyrst um
sinn. Frá hálfu Eimskipafélagsins
hefir í undangengnum samningsum-
leitunum verið gert það tilboð, að
ráðningakjör háseta og kyndara á
skipum félagsins yrðu þau sömu
og nú eru gildandij samkvæmt
samningum milli útgerðarmanna og
sjómanna á dönskum skipum. En
sá samningur var nýlega framlengd-
ur til 1. Apríl 1930. Pó haldist
fastakaup það óbreytt, sem hér er
nú hærra en á dönskum skipum.
Heildarkaup háseta og kyndara hjá
Eimskipafélaginu var að meðaltali
árið sem leið: Kyndara 64 kr. á
viku og háseta 72 kr., þegar fasta-
kaup og yfirvinnukaup var lagt
saman. Úrslitakröfur sjómannavoru
þær, að fastakaup kyndara hækki
úr 212 kr. á mán. í 250 kr. og
fastakaup háseta 191 kr. í 215 kr.
Yfirvinnukaup hækki úr 59 aurum
fyrir hálftímann upp f 70 aura, eins
og Eimskipafél. bauð. Stjórn Eim-
skipafélagsins teist svo til, að hækkun
þessi nemi 15,3% á heildarupphæð
fastakaups og yfirvinnu. — Samn-
ingatilraunum sáttasemjara mun
lokið að svo stöddu.
Seyðisfirði: Úrslit bæjarstjórnar-
kosninganna urðu þau, að verka-
mannalisti fékk 210 atkv. og kom
2 að. íhaldslistinn fékk 160 atkv.
og kom 1 að.
o
Á rétíing.
Eg hefi komist að því að grein
mín um »Fordson«-dráttarvélina
hefir valdið nokkrum misskilningi,
þar sem sumir hafa álitið eftir
greininni að ekki mundi kosta nema
kr. 34.33 að fullvinna 1 ]/2 dagsl.
Þetta er algerlega rangt, og þarf
ekki skarpskygnan mann til að sjá
að svo er, einmitt eftir fyrnefndri
grein. Eg tók það fram að hún
mundi geta tætt þetta á dag (10
tíinum), en annað sem þarf að nota
vél á þetta svo sem að saxa áburð-
inn saman við moldina og valta, á-
lit eg að þurfi um 6 tíma til, en þá
tel eg líka fullunnið; síðan bætast
ýmsir póstar við kofimaðarhliðina
svo sem olíuflutningar, milliferðir,
vélar og verkfæra, skerping verk-
færanna, hreinsun og smurning vél-
ar og verkfæra, eftirlit og hreinsun
vélarinnar í það minsta einu sinni á
ári, framda af þar til hæfum manni,
einnig málning vélarinnar, verk-
færabilanir o. fl.; einnig hlýtur mað-
urinn altaf að hafa fleiri vinnudaga
en vélin, sem líka jafnast niður á
Tilboð óskast um að mála efri-
hæð, þak og útiveggi Samkomu-
og Skólahúss Svalbarðsstrandar-
hrepps. Peir sem vilja taka þetta
verk í ákvæðisvinnu gefi sig fram,
við undirritaðan, fyrir 15. febr. n. k.
Veigastöðum, 22. jan. 1929.
Þorl Mðrteinsson.
„Ronoleke’
Oúmmí-baksturspokarnir eru nú
aftur komnir.
Kaupfélag Eyfirðinga.
Barnalýsi
nýkomið.
Kaupfélag Eyfirðinga.
1
vinnuna. Um þetta get eg ekki gef-
ið fullnægjandi skýrslu, þessvegna
gaf eg aðeins skýrslu um eyðslu vél-
arinnar og álit um hverju hún
mundi geta afkastað; þá mintist eg
heldur ekki á fyrningu verkfæra né
vélar.
En það þykist eg geta séð, að alt
þetta geti ekki farið fram úr því, að
öll áhöldin ásamt manni til að vinna
með þeim leigist fyrir kr.. 5,25 um
klukkutímann, og hafi þá vél og
verkfæri kr. 15.00 á dag (en þó á-
lít eg enn sem fyr, að 10 kr. muni
hrökkva í flestum tilfellum sem
rentur og afborgun, sé nóg verkefni
fyrir vélina). Fæði »skaffaði« sá,
sem unnið var hjá, svo að eftir
þessu kostar dagsláttan hann, borgi
hann 1 tíma í milliferðir, alls kr.
60.00. Sumir hafa haldið því fram,
að of grunt yrði saxað, en því trúi
eg ekki, mér virtist það vera frá 12
—18 sm., og þar sem er mjög smátt
þýfi í óræktarholtum og Ijósleitt
leirlag undir, tel eg þetta of djúpt,
því það rótaði leirnum upp á yfir-
borðið.
Jónatan Benediktsson.
Eftir að eg hafði sent Áréttingu í
Dag, las eg grein um þetta efni eft-
ir hr. Ólaf Jónsson, þar sem hann
véfengir skýrslu mína, og vill, að ef
hún sé röng, sé hún leiðrétt.
Eg tel skýrsluna svo rétta sem
íramast getur verið, að vélin hafi
eytt olíu og benzíni fyrir kr. 17.33,
að mannskaupið megi ekki vera
minna en kr. 7.00 og að rentur og
afborganir fari eftir því að hvað
hagkvæmum kjörum menn komast
með lán til vélakaupanna og eins
hitt að kr. 10 á dag muni í flestum
tilfellum hrökkva ef mikið er unnið.
Þá er eg enn viss um, að með góð-
um herfum má tæta 1 y2 dagsláttu á
dag af óbrotnu landi (af meðalseigu
landi) en þess utan þarf að valta.
í dag skoðaði eg þúfnabanaflag
og er ekki fyrir sjálfan mig í nein-
um vafa um, að sú vinsla er eg tala
um, þoli samanburð.
Skýrsla, eins nákvæm og föng
eru á, mun brátt fylgja.
/. B.
•■.— o-----
Brekkugata 2. ,, Sími 242.
Akureyri.
Bílaeigendur!
Ef þið viljið fá þægileg og haldgóð sæti í bíla ykkar, þá
fáið þau hjá okkur. Búum til sæti, bæði í fólks- og vörubíla.
Hafið það hugfast, að góð sæti gera bílinn
eftirsóknarverðari.
Nærsveitamenn geta sent mál og fengið sætin með fyrstu ferð.
Dívanavinnustofa fakobs Einarssonar & Co.
FIMM STÚLKUR
óskast í ársvist að Kristneshæli frá 14. Maí n. k. að telja. Árs-
kaup kr. 500.00. Upplýsingar gefur yfirhjúkrunarkona hælisins.
Tilbúinn áburður.
Eftir samningi við Atvinnu- og samgöngumálaráðuneytið,
önnumst vér frá 1. Janúar 1929 allan innflutning og heildsölu
á tilbúnum áburði.
Samkvæmt lögum um tilbúinn áburð, frá 7. Maí 1928, verð-
ur áburðurinn ekki seldur öðrum en hrepps- og bæjarfélögum,
búnaðarfélögum, samvinnufélögum og kaupfélögum.
Áburðurinn verður undantekningarlaust að greiðast við móttöku.
Á komandi vori verða aðallega fluttar inn þessar tegundir af
tilbúnum áburði:
1. Pýskur kalksaltpétur með 15°/0 köfnunarefni og 28% kalki.
2. Nitrophoska 1. G. Algildur áburður með 16.5% köfnunar-
efni, 16.5% fosforsýru og 20% kali.
3. Superfosfat með 18% fosforsýru.
4. Kalidburður með 37% kali.
kríðandi er að ofantaldar dburðartegutidir séu pantaðar
sem fyrst.
Aðrar tegundir af tilbimum dburði verða aðeins útvegaðar
eftir pöntunum, enda séu þœr pantanir komnar i vorar hend-
ur fyrir 15. Mars 1929.
Upplýsingar um val og notkun tilbúins áburðar eru fúslega
látnar í té.
Samband isl. Samvinnufélaga.
ALFA-LAVAL 1878-1928
I 50 ár hafa Alfa-Laval skilvindur verið beztu og vönduðustu
skilvindurnar á heimsmarkaðinum.
ALFA LAVAL verksmiðjurnar hafa altaf
verið á undan öðrum verksmiðjum með ný-
ungar og endurbætur, enda hafa Alfa-Laval
skilvindurnar hlotiö yfir 1300 heiðursverðiaun
og fyrstu verðlaun, auk annara verðlauna.
Reynslan, sem fengin er við smíði á yfir
3,500,000 Alfa-Laval skilvindum, tryggir pað
að ALF A-L A V A L verði framvegis öll-
um öðrum skilvindum fremri að gerð og
gæðum.
Mjólkurbú og bændur, sem vilja eignast vandaðar vélar, til
mjólkurvinslu, kaupa hikiaust Alfa-Laval mjaitavélar, skilvindur,
strokkar, smjörhnoðara og aðrar Alfa-Laval vélar.
Samband íslenzkra samvinrjufélaga.
Ritstjórar:
Ingimar Eydal. Friörik Ásmundsson Brekkatt.
Gilsbakkaveg 6. Aðalstrseti 16.
------------------V--------------------------------------------
Prentsmiðja Odds Björassonar.
I