Dagur - 21.02.1929, Blaðsíða 5
*
GENERAL MOTORS hefir enn á ný stórendurbætt CHEVROLET. Sex cylinder
mótorvéí er komin í hann, mikið kraftmeiri og ennþá gangþíðari en gamla vélin, en eyðir þó
lítið sem engu meira benzíni, en áður var. Fjölda margar endurbætur aðrar hafa verið gerðar,
vagninn stækkaður og útbúnaður allur bættur. — Verð fólksbifreiðanna hefir þó ekkert hækkað
þrátt fyrir þessar stórendurbætur. Pykir GENERAL MOTORS hafa leyst hér þrekvirki mikið og
er talið að þetta sé tvímælalaust stærsti viðburður í bílasögu heimsins, því GENERAL MOTORS
selur nú sex cylinder bifreiðar fyrir sama verð og jafnvel LÆGRA, en keppinautarnir selja
fjögra cylinder bifreiðar. Pað er engin tilviljun að Seneral Moíors gerir þetta, því síðastliðin 4
ár hefir fjöldi úrvals verkfræðinga unnið að endurbótum þessum. — Árið 1928 framleiddi Seneral
Motors helming af öllum bifreiðum, sem framleiddar voru í veröldinni. Salan hefir stórkostlega
aukist enn eftir að farið var að selja nýju gerðirnar. Svo á nýbyrjaða árinu hefir GENERAL
MOTORS sett ný og stærri met, en nokkru sinni áður, með framleiðslu sinni. — Sýning á nýju
CHEVROLET-gQrö'mm byrjaði í Ameríku 15. Des. en salan sjálf byrjaði ekki fyr en l.Jan. Sem
dæmi upp á, með hve mikilli hrifning bílakaupendur hafa tekið á móti hinum nýja CHEVROLET,
er það, að 36 dögum eftir að byrjað var að selja bílana, var búið að panta
áfjórða hundrað þúsund Chevrolet bifreiðar samtals;
til þess að geta fullnægt slíkri eftirspurn, er nú unnið samfleytt bæði dag og nótt á öllum hinum
65 tröllauknu verksmið/um CHEVROLET. — Fólksbifreiðagerðirnar eru sem hér segir:
2 dyra lokuð bifreið, verð kr. 4.400. — 4 dyra lokuð bifreið, verð kr. 4.900.
4 dyra lokuð bifreið, Landau, verð kr. 5.100. — 2 tegundir af opnum bifreiðum.
* \ • • |
BIFREIÐANOTENDUR!
CHEVROLET er sú tegund bifreíða, af ódýrari tegund-
um, sem langsamlega mestri útbreiðslu hafa ndð og mesta hylli
hlotið hér d landi, sem annarstaðar. — Eftir hinar störkostlegu
endurbœtur er engin bifreiðategund keppinautanna fœr um að
etja kappi við Chevrolet. Þegar þér þvi veljið yður bifreið,
þd munið þetia:
CHEVROLET er búinn til af félagi, sem aðstöðu sinnar
vegna getur og hefur eytt ógrynni fjdr til tilrauna, til að finna
það sem bezt er og sterkast. Dag og nótt eru stöðuglega farn-
ar reynsluferðir um misjafna og mjög vonda vegi til þess að
leita eftir göllum, sem þd strax eru endurbættir. — Þessvegna eru Chevrolet öllum bifreiðum keppinautanna betur fallin
fyrir okkar lélegu vegi. — CHEVROLET er nú kraftmeiri, rúmbetri, gangþýðari og fallegri en nokkur önnur bifreið, sem
fdanleg er fyrir svipað verð. — CHEVROLET eins og allar aðrar bifreiðar General Motors, fdst með mjög hagkvœmum
afborgunarskilmdlum og er þvi leikur einn fyrir alla að eignast bifreið.
Aðalumboðsmaður d Islandi fyrir General Motors:
Jóh. Ólafsson & Co., Reykjavik.
Umboð á Akureyri
Vilhjálmur Þór.