Dagur - 14.03.1929, Blaðsíða 1

Dagur - 14.03.1929, Blaðsíða 1
DAGUR kemur út á hverjum fimtu- degi. Kostar kr. 6.00 árg. Gjalddagi fyrir 1. júlí. Gjaldkeri: Árni Jóhanns- soa í Kaupfélagi Eyfirð- inga. Afgreiðslan er hjá Jóni Þ. Þ6r, Norðurgötu 3. Talsími 112. Uppsögn, bundin við ára- mót, sé komin til af- greiðslumanns fyrir 1. des. Frá Gagnfrœðaskólanum á Akureyri. » Arspróf 1. og 2. bekkjar hefst að þessu sinni 2. maí, inntökupróf 1. bekkjar 13. maí og gagn- fræðapróf 15. maí. Gagnfræðaskólanum á Akureyri, 12. marz 1929. Sigurðurður Guðmundsson. Sildareinkasalan. íSamkvæmt lögum Síldareinkasöl- unnar er reikningsár hennar frá og til 15. apríl. Um reikningsskil er því yfir höfuð ekki hægt að tala fyr, og því síður sem töluvert af kryddsíld o. fl. er óselt, sem ekki verður séð fyrir hvað fæst upp úr. F*etta ætti þeim fáu að vera Ijóst, sem sí og æ eru hrópandi um það, að Einkasalan geri mönnum engin reikningsskil. En það er ekki af því, að þeir ekki viti þetta, heldur af hinu, að þeir vilja láta fram- kvæmdastjórnina hlaupa á eitthvert hundavað, til þess að notfæra sér það í æsingaskyni, og hitt, sem þeir eru að hampa, að Einkasalan ætli yfir höfuð ekki að birta neina reiknina, er jafn staðiaust, því lögin mæla svo fyrir, og þeim ákvæðum verður vitanlega framfylgt, þegar að þeim kemur<, segir framkvæmda- stjórinn. 1 varasjóð Einkasölunnar mun falla um kr. 12—13 þús. og í markaðsleitarsjóð kr. 38—40 þús. Það er nú búið að greiða öllum sem svarar kr. 24.00 meðalverð út á innlagða síld og 1 kr. umfram fyrir reknetasíld; varlega áætlað er talið að enn megi gera ráð fyrir viðbót, er nemi kr. 1.50 — 2.00, þeg- ar alt er selt og full reikningsskil komin frá útlöndum. Að viðbættum matskostnaði, sem hver einstakur saltandi hingað til hefir greitt, en sem nú er tekinn upp sem starf- rækslukostnaður fyrirtækisins, svo og sjóðgjöldum og reksturssparn- aði einstaklingsins frá því, sem áður hefir verið, yrði þá nettoútkoma að meðaltali á hverja tunnu sem svarar kr. 28.50—29.00 fob. Um þessa væntanlegu niðurstöðu farast skýrsluhöf. svo orð: >Jeg efast um, að nokkurntíma fyr hafi afkoman af síldarsöltun verið svo góð fyrir heildina sem á síðastl. ári. Það er vitanlegt, að þegar bezt hefir blásið, hafa ein- staka menn hagnast meir, en hlut- verk Einkasölunnar er að vinna að almenningsheillinni og gera þessa framleiðslugrein trygga, þannig, að allir, sem við hana fást, geti borið þann hlut af borði, sem sannvirði framleiðslukostnaðarins krefur. Og þá er þjóðarheillinni með þessari framleiðslugrein borgið*. f skýrsiunni er getið um nokkur at- riði til bætts skipulags frá því sem áður hefir verið. Eru þau atriði: 1. Viðleitni til stærðaraðgreiningar á sildinni. 2. Merki hvers saltanda á hverri tunnu. 3. Söltunardagsetning á hverri tunnu. 4. Fobsalan. 5. Ýmsar nýjar verkunartilraunir. 6. Á- kveðinn saltskamtur. 7. Ýmsar til- raunir með sölu íslenzkrar síldar. 8. Efnarannsóknir. 9. Leppmennsk- an, sem þetta nýja skipulag hefir gersamlega sópað burt á þessu eina ári. Afstaða útflutningsnefndar og framkvæmdarstjórnar til sölumáls- ins er á þá leið, að ekki verður lögð áherzla á að spenna bogann, hvað framboðsverð á síldinni snert- ir, heldur með hóflegu verði reynt að auka neyzluna og eftirspurnina og á þann hátt fyrirbyggja sem fyrst þá takmörkun á veiði og sölt- un, sem þurft hefir að beita á sið- asta ári og hætt er við að þurfi að beita áfram, meðan söluhorfur ekki aukast. Samvinna í útflutningsnefndinni segir framkvæmdastjórinn að oftast hafi verið góð og ailir gert sér far um, að leysa starfið vel og sam- vizkusamlega af hendi, og sam- vinna framkvæmdastjóra við útflutn- ingsnefndina hafi einnig verið hin bezta, og samvinna milli fram- kvæmdastjóranna hin ákjósanleg- asta. Fer höf. mjög lofsamlegum orðum um þá Ingvar Pálmason og Einar Olgeirsson. 1 því sambandí segir hann: »Einar Olgeirsson er sá framkvæmdastjórinn, sem mest hefir orðið fyrir barðinu á andstæð- ingunum og er það skiljanlegt frá þeirra .sjónarmiði, en vekur þó jafn- framt hjá hverjum hugsandi manni þá tilfinningu, að hér sé ekki verið að kasta að Einkasölunni sjálfri, heldur að pólitískum andstæðing<. Prjár breytingar á lögum og reglu- gerð Einkasölunnar telur fram- kvæmdastjórinn nauðsynlegar, til þess að Einkasalan og starfræksla hennar komi að tilætluðum notum. Pessar breytingar eru: 1. Að Einkasölunni verði trygt nægilegt rekstursfé. 2. Að henni veitist heimild til að kaupa tunnur. 3. Að Einkasalan taki sjálf i sínar hendur alla söltun síldarinnar. Fyrir nauðsyn þessara breytinga er gerð glögg grein. Einkasalan hefir ákveðið að styrkja þrjá menn til utanfarar, til að kynna sér meðferð alla og verkun síldar með þeim þjóðum, sem lengst eru komnar í þeim efnum, í því skyni, að þessir menn eftir heimkomuna leiðbeini saltendum í því, sem bet- ur má fara. Einkasalan mun auk þess gera sér far um, svo sem auð- ið er, að vanda betur en verið hefir til þeirra manna, sem næsta sumar eiga að hafa umsjón með söltuninni. Markaðsleitarstarfinu verður haldið áfram á þessu ári. Verður nú hér látið staðar num- ið, að skýra frá innihaldi skýrslu þessarar, enda er þetta orðið all- langt mál, þó lauslega hafi verið á ýmsu tekið og mörgu slept. Dag- ur hefir, síðan Einkasalan tók til starfa, ekki verið jafn margmáll um hana eins og sum önnur blöð. Hefðu þau sannarlega verið full- sæmd af því, að fara sér dálítið hægara en þau hafa gert, þvf meg- ínhlutinn af margmælgi þeirra hefir hnigið í þá átt, að gera fyrirtækið tortryggilegt og þá menn, er að því hafa staðið, án þess að vera dómbær um þessa hluti vegna þekk- ingarskorts, eða af enn lakari ástæð- um. Nú, þegar upplýsingar liggja fyrir frá fyrstu hendi, hefir Dagur ekki horft í að verja nokkru rúmi til að kynna mönnum þær og vekja athygli á skýrslu P. A. Ólafssonar. —------o------ Á víðavangi. Vinnuhœlið. Hælið tók til starfa um siðustu mánaðamót. Upphaflega var bygg- ingu þessari ætlað að vera sjúkra- hús, en henni varð aldrei lokið, var orðin til mestu vandræða öllum hlutaðeigendum og sýnilegt að hún mundi aldrei verða notuð til þess, er í fyrstu var áformað. Réðst þá landstjórnin í að kaupa húsið og gaf fyrir það um 30 þús. kr. og kostar auðvitað allar breytingar og endurbætur á því. Húsið er steinbygging, tvær hæð- ir með kjallara og risi. Pað er 17 m. langt og 8 m. breitt og auk þess viðbótarálma 7X3Ý2 m. Til fulln- ustu er gengið frá nokkrum her- bergjum, svo hægt er að taka móti 10-12 hælisgestum nú þegar, en þegar húsið er fullgert, rúmar það að minsta kosti 30 fanga. f kjállara hússins eru 4 eins manns klefar og 2 tveggja manna klefar og auk þess eldhús, búr, þvottahús, borðstofa, miðstöðvar- klefi og geymsluherbergi. Á 1. hæð er þegar búið að ganga frá 4 eins manns klefum, herbergi handa varð- manni og stórri rúmgóðri vinnu- stofu handa föngunum. Á þessari hæð verður baðherbergi og enn verður þar bætt við 4 eða 5 eins manns klefum og auk þess stofu fyrir sjúklinga. Á annari hæð verða síðar gerðir 11 eins manns klefar, 2 tveggja manna klefar og vinnu- stofa. Undir súð er gert ráð fyrir að verði lesstofa fanganna og fleiri herbergi. Alt húsið er raflýst. Par er og miðstöðvarhitun og vatns- leiðsla. íveruklefarnir eru málaðir og gólf dúklögð. Stórir gluggar eru á húsinu og járngrindur fyrir innan. Pessar járngrindur eru það eina, sem minnir á, að húsið sé fangahús. Vinnustofan veit móti sól og er björt og rúmgóð. Föngunum á að halda mjög til vinnu og verður byrjað á netagerð og fleiru. Uti verður unnið að jarð- yrkju og garðyrkju og eru verk- efni þar óþrjótandi. Stjórnin hefir keypt jörðina Litla-Hraun og lagt undir hælið, og er hún talin mjög vel fallin til jarðépla- og grasrækt- ar. Verður tekið til við útivinnu strax og fært þykir. Forstöðumaður hælisins er ráð- inn Sigurður Heiðdal kennari. Dvaldi hann erlendis í vetur og kynti sér rekstur og fyrirkomulag slíkra stofn- ana erlendis. Pað er þjóðkunnugt, að fanga- húsið í Reykjavík svarar á engan hátt til krafa tímans og er orðið þjóðinni til minkunar. Auk þess að rúm þess er svo lítið, að dómfeldir menn hafa orðið að bfða svo árum hefir skift, eftir því að komast að

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.