Dagur - 14.03.1929, Page 2
44
DAGUE
II. tbl.
••••••
Pflllffffilfllflfiffllll
GOODRICH
GÚMMÍ SKÓFATN AÐUR.
Bússur fullháar . . . kr. 33.50
do. hálfháar . . . - 29.50
Oúmmískór með hvítum
botnum . . . kr. 7.80 og 8.90
Stígvél hnéhá . . . . kr. 19.50
Drengjastígvél .... — 16.50
Svört kven- og barnastígvél af öllum stærðum.
Kaupið Goodrich skófatnað, hann er endingarbeztur.
Kaupfélag Eyfirðinga.
Myndastofan
Oránufélagsgötu 21 er opin alla daga
frá kh 10-6.
Guðr. Funch-Rasmussen.
\ fangahúsin, er andlegri og líkam-
legri heilbrigði fanganna hætta búin
af vistinni þar. Var því hin brýn-
asta þörf á stofnun Vinnuhælisins.
Sum Ihaldsblöðin sýnast þó líta
öðrum augum á þetta mál, því þau
hafa stofnunina og þá ógæfusömu
menn, er þar kunna að lenda, að
háði og spotti. Er slík fúlmenzka
við hæfi þeirra manna, er að blöð-
um þessum standa.
Vinnudómurinn.
Frumvarp það um vinnudóm eða
gerðadóm í kaupdeilumálum, sem
nú er flutt á Alþingi, fær heldur
misjafnar undirtektir. Flytjendur
málsins, svo og íhaldsblöðin, virð-
ast hafa tröllatrú á þessu úrræði,
en Jafnaðarmenn megnustu and-
stygð, og kalla blöð þeirra frum-
varpið grundvöll að «þrælalögum«
og tala um þrælahald í sambandi
við málið. Að sjálfsögðu eru hér
öfgar á báðar síður. Ekki er loku
fyrir það skotið, að dómurinn gæti
gert eitthvert gagn, en því miður
eru líkurnar fyrir því heldur veikar.
Aftur á móti er hræðsla um hættu
á hendur verkalýðnum í sambandi
við þetta mál, á engum rökum bygð.
Hann hefir eftir sem áður rétt til
að gera verkfall, ef hann vill ekki
hlíta úrskurði vinnudómsins, því
einungis er bannað að gera verk-
fall eða verkbann á meðan deilu-
málið er í höndum sáttasemjara eða
vinnudóms. — Vinnudómurinn skal
vera þannig skipaður, að héraðs-
dómari, sem er forseti dómsins, til-
neínir 4 menn í dóminn, 2 úr flokki
vinnuveltanda og 2 úr fiokki verka-
manna, og skulu síðan aðilar ryðja
sínum manni hvor úr dómi. Pá
skípar Hæstiréttur 2 menn og er
þannig ætlast til, að 5 menn sitji
í dómnum.
Málið var þegar gert að æsinga-
máli og er það illa farið, því brýn
þörf er rólegrar íhugunar, þegar
verið1 er að leita úrræða um lausn
jafn alvarlegs vandamáls og kaup-
deilumálið er.
Jslendingur“ fúll.
Ritstjóri >ísl.« þolir það ekki, að
talað sé hlýlega í garð forsætis-
ráðherra fyrir það, að honum tókst
að létta af verkföllunum á skipum
Eimskipafélagsins og togaraflotan-
um. Telur blaðið hann eiga frekar
ámæli skilið en þakkir, úr því hann
hafi ekki afstýrt verkfaliinu með
ðllu, eða minsta kosti komið á
vinnufriði fyr en eftir tvo mánuði.
Grunnhyggnislega er þetta mælt.
Veit ekki ritstjórinn, að í þann tíma
er verkfallið stóð, var málið í hönd-
um sáttasemjara ríkisins og að hann
lagði mikla vinnu i að miðla mál-
um og koma sættum á? En þar
var við ramman reip að draga, og
þá fyrst, þegar hann gaf málið frá
sér, var það hlutverk stjórnarinnar,
að skerast í leikinn. Par með er
ekki sagt, að starf sáttasemjarans
hafi verið þýðingarlaust, að minsta
kosti lítur forsætisráðherra sjálfur
svo á, að sú mikla vinna, er Björn
Pórðarson var búinn að leggja fram
i málinu, hafi verið grundvöllur
þeirra úrslita, er að lokum fengust.
En »íslendingur« skilur víst ekk-
ert af þessu, eða vill ekki skilja, og
hefir því ekkert að þakka. Hann er
bara fúll yfir því, að forsætisráð-
herrann lagði á sig vinnu og
vökur, við að leysa úr einu mesta
vandamáli þjóðarinnar og að hon-
um skyldi takast það.
Fjúrmálaráðherra skipaður.
Hinn 7. þ. m. tilkynti forsætis-
ráðherra þinginu, að Einar Arna-
son á Eyrarlandi, 1. þingm. Eyfirð-
inga væri orðinn fjármálaráðherra
og las upp konungsstaðfestingu
fyrir skipun hans.
Öllum þeim, er náin kynni hafa
af Einari Árnasyni, mun ekki koma
það á óvart, að hann varð fyrir
vali flokks þess, er hann tilheyrir,
í þessa stöðu. Einar er maður, sem
ávinnur sér traust allra þeirra, er
með honum starfa, ekki aðeins
flokksbræðra hans heldur og skoð-
anaandstæðinga. Ber margt til þess.
Einar Árnason er djúphygginn mað-
ur, gætinn í öllum störfum, sam-
vinnulipur, en þó einbeittur og
heldur fast á hlut sínum í hverju
máli. Hann er og prýðilega máli
farinn, talar skipulega og slétt og
er maður yfirlætislaus í háttum sín-
um. Hann hefir, sem kunnugt er,
setíð lengi á þingi og er því orð-
inn þaulvanur að starfa að lands-
málum og þjálfaður í skóla reynsl-
unnar. Má því gera sér hinar beztu
vonir um fjármál landsins í hönd-
um hana.
y\ðalfundur
Kaupfélags Eyfirðinga
verður haldinn í samkomuhúsinu »SkjaIdborg« á
Akureyri og hefst fimtudaginn 18. apríl n. k.
kl. 10 árdegis.
DAGSKRÁ:
1. Athugun kjörbréfa.
2. Framlagðir endurskoðaðir reikningar félagsins
fyrir liðið ár.
3. Tillaga um skifting ársarðsins.
4. útbú félagsins.
5. Erindi deilda.
6. Tillögur til breytingar á samþyktum félagsins.
7. Framtíðarstarfsemi félagsins.
8. Kosningar.
Akureyri 13. mars 1929.
F. h. félagsstjórnarinnar.
Vilhjálmur Þór.
Pórunn Friðiónsdóítir. Simskeyti.
--- (Frá Fréttastofu Islands).
Systir min kœra, mln systir góð,
nú sendi eg til þln minn hug og ijóð.
Vel man eg þig unga með létta lund
og leiftrandi vonir um andans glóð.
Og seinna er helfjötrar hjarta þitt
skáru
og þú hófst samt þinn vœng yfir
flúðir og báru,
eg mintist þin hljóður svo marga stund
og meiðslanna þinna sáru. —
Eg kom til þin sjálfur með opna und,
i andviðrum heljar, við lokuð sund.
Min brúður til dauða af berklum nlst
með bœn í auga þér rétti mund.
Alt bauðstu fram hiklaust er
hafðirðu að inna
af höndum og fjársjóði kœrleika þinna
Ei bjartari og tárhreinni laug hefir lýst
um Ijósálfur drauma minna. —
/ návigi hugar við heljar fár
er hart að lifa sin þroskaár.
Enn er vetrar hið ytra á ýmsan háii
skal inn á við stefna og fága sár.
Pú skjólgarða reistir og blásali bjarta
og blómreiti vermdir og fékst til
að skarta.
Og góðvildin sindraði að siöustu nótt
eins og sólskin af þinu hjarta.
Systir min góða, min systir kcer,
nú sé þér lausnin frá þrautum vœr;
nú hvíli þig drottins friðarfang;
nú faðmi þlg kærleikans morgunblœr.
Svo vertu sæl. Enn um aldur og œfi,
við ástúðar þinnar og góðvildar hœfi,
þin minning hví'sli um vetrarvang
um veröld á tímans sœvi.
Sigurjón Friðiónsson.
Rvík 10. marz.
ALÞINGI. Þingsályktun um
skipun nefndar, til þess að rann-
saka hag og rekstur togaraút-
gerðar, var á dagskrá í gærdag.
Framhaldsumræða verður á
mánudag. Tillaga er komin fram
um að vísa málinu til sjávarút-
vegsnefndar og nefndinni ætlað:
1. Að gera tillögur um á hvern
hátt reksturinn verði gerður hag-
kvæmari og ódýrari, til þess að
tryggja fjárhagsafkomu útgerð-
arinnar. 2. Á hvem hátt bezt
verði fyrir komið stjórn og eign-
arumráðum þessara útgerðar-
fyrirtækja með tilliti til hags-
muna starfsfólksins og þjóðar-
heildarinnar. 3. Hvernig hægt sé
að tryggja verkafólki, sem við út-
gerðina starfar á sjó og landi, líf-
vænleg kjör.
Erlingur flytur frumv. til laga
um vigt á síld.
HNÍFSDALSMÁLIÐ. Dómur
í Hnífsdalsmálinu var kveðinn
upp á föstudagskvöldið af Hall-
dóri Júlíussyni. Hálfdán var
dæmdur í 8 mánaða betrunarhúss-
vinnu; Eggert í 6 mánaða fang-
elsi við venjulegt fangaviðurværi;
Hannes í 8 mánaða fangelsi. Þeir
skulu og greiða % málskostnaðar.
Hálfdán var viðstaddur dómsupp-
sögnina og krafðist að dóminum
væri vísað til Hæstaréttar og
dómaranum stefnt til ábyrgðar.
Verjandi málsins, Lárus Jóhann-
esson, var dæmdur í 40 kr. sekt
fyrir framkomuna í vörn sinni,
%