Dagur - 02.05.1929, Blaðsíða 3
Vinnufatnaður,mesf úrval í Br«lí?.SÍ22;iun‘
/ r’all oigurgeirsson.
Kvikmynda-
vélar
handa skólum og kvikmynda-
húsum útvega eg fyrir ótrúlega
lágt verð. — Ennfremur allan
útbúnað er að kvikmyndasýning-
um lýtur.
Jónas Þór.
með Daða. — Kamban segir í fyrirlestvi
sínum sögu elskendanna eins og hún
var —. »ekkei-t meira og ekkert minna«
— og' sagan sýnir, að dómur Þorsteins
er réttur, í aðalatriðum að minsta kosti.
Líkur þær er Kamban færir fyrir því
að Ragnheiður hafi ekki svarið rangan
eið, eru mjög vel rökstuddar og ekki ó-
sennilegar, sama er yfirleitt hægt að
segja um sálfræðisröksemdaleiðslur
hans viðvíkjandi framferði Ragnheiðar
eftir eiðinn. — Sögulega séð var það þó
einkum tvent, sem gerði fyrirlesturinn
sérstaklega athyglisvérðan, og það var,
að fyrirlespi'inn skýrði og rökstuddi á-
stæðurnar fyrir því, að Ragnheiður var
látin sverja eiðinn, en það er atriði;
sem flestum mun hafa verið mjög ó-
Ijóst, og þesskonar eiðtaka virðist vera
talsvert einstæð og merkileg, jafnvel
eftir hugsunarhætti þeirrar aldar. —
í öðru lap var sú mynd, sem fyrirles-
aranum tókst að sýna af Brynjólfi
biskupi í fáum og skýrum dráttum að-
dáanleg. Hpnum tókst að láta sál bisk-
upsins tala gegnum hin gömlu, þurru
skjöl og lýsa honum, svo það verður á-
heyrendum ógleymanlegt.
Kamban endurtók fyrirlesturinn á
mánudagskv. og á þriðjudagskv. hafði
hann framsagnarkveld I annað sinn. —
í bæði skiftin var aðsóknin allgóð.
Frá Kaupfélagi Skagfirðinga. Aðal-
fundur þess var haldinn síðara hluta f.
m. Hagur félagsins fer óðum batnandi,
undir stjórn sr. Sigfúsar Jónssonar.
Úr stjóminni gekk að þessu sinni
Jónas Kristjánsson læknir. Var í hans
stað kosinn Pétur Sighvatsson úrsmið-
ur. Formaður stjórnarinnar er fram-
kvæmdarstjórinn, sr. Sigfús Jónsson.
Hinir stjórnarnefndarmenn eru Jóhann-
es Björnsson, hreppstjóri á Hofstöðum,
Jóhann Sigurðsson, óðalsbóndi á Löngu-
mýri og Sigurður Þórðarson, hrepp-
stjóri á Nautabúi (varamaður Jóns
Sigurðssonar alþm. á Reynistað, en
hann sagði sig úr stjórn K. S. í fyrra,
sem kunnugt er). Fulltrúar á Sam-
bandsfund voru kosnir sr. Sigfús og
Björn bóndi í Kolgröf, en til vara Sig-
urður á Nautabúi og Gísli á Víðivöll-
um.
Heinvilisiðnaðarsýmng. Sýslunefnd
Eyjafjarðarsýslu skipaði á síðasta
fundi sínum þriggja manna nefnd til
undirbúnings þátttöku f landssýningu á
heimilisiðnaði árið 1930. í nefndinni eru
Geir Þprmar, Guðrún Jóhannsdóttir Ás-
láksstöðum og Sigríður Jónsdóttir Ytra-
Hóli. Nefnd þessi hefir þegar byrjað
starf sitt og hefir hún ákveðið að halda
fund & Akureyri 3. í hvítasunnu með
nefndum þeim, sem skipaðra hafa verið
í sama augnamiði heima í hreppum
sýslunnar. Er þess aó vænta að almenn-
ingur sýni áhuga fýrir, þessu máli.
Fimleika og söngleiki sýnir flokkur
ungra kvenna í Samkomuhúsi bæjarins
kl. 8% á sunnudaginn undir stjórn Ár-
manns Dalmannssonar. Óskandi væri að
menn sýndu leikfimisstarfseminni þann
áhuga, að þeir sæktu sýningu þessa.
Hjónaefni: Ungfrú Sigríður Frið-
riksdóttir og Stefán Ág'. Kristjánsson
\
frá Glæsibæ hafa nýlega opinberað trú-
lofun sína. •
Skip. Brúarfoss og Esja komu hing'-
að í gær, Esja að vestan, en Brúarfoss
aö austan og' frá útlöndum. Bæði skip-
in fóru aftur. í morgun.
»Geysir<c söng í Samkomuhúsinu á
sunnudaginn var við ágæta aðsókn, og'
tóku áheyrendur söng' flökksins með
miklum fögnuði eins og áður.
Dánardægur. Á sunnudaginn var and-
aðist á Kristnesi ungfrú Lár^ Jakobs-
dóttir héðan úr bænum, ung og' efnileg
stúlka.
Próf stendur yfir í barnaskólanum
um þessar mundir. Skólanum verður
sagt upp laugardaginn 11. þ'. m.
Veðráttan er heldur köld, fléstar næt-
ur snjóar niður að sjó, en tekur er'á
daginn líður.
Frú Lizzie Þórurinsson frá Halldórs-
stöðum kom hingað til bæjarins með
Brúarfossi í gær. Frúin dvelur hér í,
bænum nokkra daga og gerir ráð fyrir
að syngja hé um næstu helgi.
Á öðrwm. stað hér í blaðinu birtist
svar frá Matth. Jónassyni frá Reykjar-
firði til hr. Páls Vatnsdals. — Það er
ekki tilgangur vor að fara að hefja nýj-
ar deilur um »fánamálið« svo nefnda,
hér í blaðinu. En sökum þess að hr. M.
J. hefir verið synjað rúms í blaðinu
»íslending« — þar sem deilurnar hafa
staðið og hann hefir orðið fyrir árás
hr. P. V. — hefir oss ekki fundist rétt
að neita honum rúms fyrir svar sitt
hér.
Kvenkjólar frá kr. 12.00.
Kvensumarkájmr frá kr. 14.00
Regnfrakkcur karlm. og ungl-
inga frá kr. 46.00.
Alfatna-ðir karlm., ungl. og
drengja, feikna úrval.
Twufmxur karlm. frá kr. 8.50.
Rúmtefrpi hv. frá kr. 4.50.
Bathmdlarteppi frá kr. 2.00.
Flauel frá kr. 2.50.
Léreft hy. frá kr. 0.70.
Brauns Verzlun
Páll Sigurgeirsson.
Landbúnaður.
Fyrirspurnir og svör.
Á bændanámsskeiðinu, sem
haldið var hér í bænum 7.—-10.
apríl, komu fram ýmsar fyrir-
spurnir viðvíkjandi ræktunar- og
búnaðarmálum. Sökum þess að
hér er um mál að ræða, sem
bændur yfirleitt geta haft gagn
af að fræðast um, er svo 'til ætl-
ast að þ'essar spurningar og svör
við þeim birtist smám saman hér
í blaðinu. Hefir hr. ólafur Jóns-
son, framkvæmdastjóri Ræktun-
arfélags Norðurlands góðfúslega
lofað að svara fyrirspurnum þess-
um.
Er það rétt, að áburður undan
einni kú samsvari einum sekk af
kalksaltpétri?
Það er ekki hægt að svara þessu
ákveðið, þar sem allar innlendar
rannsóknir vanta, en það má færa
sterkar líkur fyrir því, að eins og
geymslu og notkun kúamykjunn-
ar yfirleitt er háttað hér hjá oss,
þá verði notagildi köfnunarefnis-
ins í henni eigi meira en þetta og
jafnvel nokkru minna í vissum
tilfellum.
Því má þó ekki gleyma í þessu
sambandi að kúamykjan inniheld-
ur auk köfnunarefnisins bæði fos-
forsýru og kali, sem eykur verð-
mæti hennar og notagildi saman-
borið við saltpéturinn.
Með bættri geymslu og notkun
má vafalaust auka verðmæti kúa-
áburðar að miklum mun.
Vér verðum að hafa það hug-
fast að köfnunarefnið, sem er að-
alverðmæti áburðarins, tapast
fyrst og aðallega í loftkendu ásig-
komulagi, — við uppgufun. Köfn-
unarefni þvagsins er í auðleystum
og rokkendum samböndum og fer
því fyrst forgörðum. Takmarkið
á að vera:
1. Að aðskilja fastan og fljót-
andi aburð strax í flómúm og
geynna þvagið í lagar- og loftþétt-
um gryfjwn, en mykjuna í vel
uppbomum haug í haugstæðum
eða áburðarhúsum.
2. Að bera þvagið á graslendi í
gróindum á vorin, en nota mykj-
una sem mest í garða og flög, eða
á annan hátt þannig að hún kom-
ist niður í jarðveginn og blandist
moldinni. (Samanber Ársrit Rf.
Nl. 1927: Um hirðing og notkun
húsdýraáburðar, bls. 109—122).
Getur komið til mála að bændur
fari aftur að brenna sauðataði og
kaupa tilbúinn áburð í stað kola?
Sauðatað er verðmætasti hús-
dýraáburðurinn er vér framleið-
um. í fyrsta lagi innheldur það
frá náttúrunnar hendi mest af
verðmætum efnum og í öðru lagi
er geymsla þess venjulega full-
komnari heldur en nokkurs ann-
ars húsdýraáburðar, er vér höfum
undir höndum.
Tómir
kassar,
seljast afar ódýrt.
Verzlun
Péturs H. Lárussonar.
„Silkiborgar“-
strokkur
sem bæði strokkar og hnoðar,
er til sölu með tækifærisverði.
Tekur 60 ltr., vinnur úr 40 ltr.
Pétur h. Lárusson.
1000 kg. af sauðataði innihalda
sem næst 8 kg. köfnunarefni, 2
kg. fosfórsýru og 6 kg. kali. Ef
vér reiknum með að köfnunarefni
sauðatáðsins sé hálfu lakara en
tilbúins áburðar, þá verður verð-
mæti 1000 kg. af sauðataði þann-
ig:
8 kg. köfn.efni á 0.65 kr. 5.20
2 kg. fosforsýru á 0.30 kr. 0.60
6 kg. kaíi á 0.40 kr. 2.40
Kr. 8.20
1000 kg. af votu sauðataði gefa
sennilega um 300 kg. af þurru
eldsneyti og hitamagnið er hálfu
minna en hitamagn venjulegra
ofnkola, eða samsvarar 150 kg.
af kolum, er kostuðu hér á
bryggju síðastliðið haust kr. 5.25.
Ágóðinn á því að nota sauða-
taðið til áburðar, samanborið við
að nota það til eldsneytis, verður
því kr. 2.95 á hver 1000 kg. af
sauðataði.
Vinnan við að hagnýta sauða-
taðið til áburðar og til eldsneytis
er látin mætast. Flutningur tilbú-
ins áburðar og kola sömuleiðis, en
auðvitað verður flutningur kol-
anna nokkru meiri, en sá reikn-
ingur verður að 'framkvæmast
fyrir hvern einstakan stað.
Verð tilbúins áburðar er nú
undir sannvirði óg getur verið
miklum sveiflum háð. ís og ófrið-
ur getur hindrað flutning hans.
Það er því ekkert er getur rétt-
lætt það, að slá slöku við hirð-
ingu og notkun húsdýraáburðar-
ins til jarðræktar. Eldsneytisþörf-
inni má víða fullnægja að miklu
leyti með mótekju.
(Framh.).
Sænsku,
Ensku, Pýzku og Dönsku kennum
við framvegis eins og að undanförnu.
Estrid & Fr. Ásmundsson Brekkan.
Ritstjórar:
Ingimar Eydal.
Gilsbakkaveg 5.
Friðrik Ásmundsson Brekkan.
Aðalstrwti 16.
*