Dagur


Dagur - 27.06.1929, Qupperneq 1

Dagur - 27.06.1929, Qupperneq 1
DAOUR kemur út á hverjum fimtu- degi. Kostar kr. 6.00 árg. Gjalddagi fyrir 1. júlí. Gjaldkeri: Árni Jóhanns- son í Kaupfélagi Eyfirð- inga. Afgreiðslan er hjá Jóni Þ. Þ6r, Norðurgötu 3. Talsími 112. Uppsögn, bundin við ára- mót, sé komin til af- greiðslumanns fyrir 1. des. Akureyri, 27. Júní 1929. 27. tbl. XII. ár. Skólamái á síðasta pingi. Að tiihlutun kenslumálaráðherra var á'síðasta þingi flutt frumvarp til laga um mentaskóla og gagn- fræðaskóla í Reykjavík og á Akur- eyri. Mál þetta varð ekki útrætt á þinginu, en líklegt er að frá því verði gengið á næsta þingi á sama eða svipuðum grundvelli og lagður var í frumvarpi þessu. Hingað tii hefir ekki tekist að fá Alþingi til að samþykkja aðra lög- gjöf um Mentaskólann í Reykjavík heldur en launalögin og fjárlaga- ákvæðin um rekstrarstyrk til skólans. Fyrirkomulag skólans hvílir því að- eins á tilskipunum, sem stjórnir landsins hafa gert á ýmsum tímum. Par sem málunum er nú svo komið að stofnað hefir verið til menta- skóladeildar við Oagnfræðaskólann á Akureyri, er mikil þörf a að koma skipulagi á form mentaskólanna beggja og um leið á hina almennu unglingafræðslu í Reykjavík og Ak- ureyri sérstaklega. Síðastliðið sumar fól kenslumála- stjórnin tveimur skólafróðum mönn- um, þeim Ásgeir Ásgeirssyni fræðslumálastjóra og Sigurói Guð- mundssyni skólameistara, að marka frumdrætti að nýrri löggjöf um mentaskólana. Fóru þeir báðir utan til undirbúnings því máli. Samhliða þeim undirbúningi hafói kenslumála- ráðherra undirbúið málið fyrir sitt leyti, meðal annars heimsótt all- marga af hinum elztu og þektustu mentaskólum í Englandi og Skot- landi. I frumvarpi því, sem áður er getið, er farin sú leið að Iosa gagn- fræðakensluna bæði i Reykjavík og á Akureyri úr öilu beinu sambandi við mentaskólafræðsluna á þessum stöðum. En nemendur úr héraðs- skóium sveitanna og gagnfræða- skólum kaupstaðanna eiga allir þangað jafngreiöa og jafnerfiða göngu. Með því fyrirkomulagi, sem þar er lagt til, prófa ungmenni landsins gáfur sínat og námslöngun í héraðsskólunum og gagnfræða- skóiunum. Fiestir láta sér nægja þá skólagöngu, en nokkrir finna til löngunar til að halda áfram. Peir geta með ofurlitlu viðbótarnámi kept um inngöngu í fyrsta bekk af fjórum í öðrumhvorum mentaskól- anum. Gagnfræðaskólinn á Akureyri átti samkvæmt frumvarpinu að skiftast í tvær aðaldeildir, gagnfræðadeild og mentadeild. I gagnfræðadeild áttu #••••••••• ♦ ♦♦ að vera þrír bekkir, og próf þaðan eftir tveggja vetra nám að nefnast gagnfræðapróf, en eftir þrjá vetur gagnfræðapróf hið meira. í menta- deildinni, sem býr nemendur undir háskólanám, áttu að vera fjórir bekkir, og próf eftir tveggja vetra nám í þeirri deild að vera stúdents- próf hið fyrra, en eftir fjóra vetur lokapróf stúdenta. ^ður en stjórnarskiftin urðu 1927, hafði Mentaskólinn í Reykjavík að ýmsu leyti verið í megnri vanhirðu, þó að kennarar skólans ynnu þar með mikilli elju og ástundun. Síðan hefir ósleitilega verið unnið að endurbótum og bættri aðbúð og aðstöðu nemenda. Hafa þær lífs- nauðsynlegu umbætur, sem kenslu- málaráðherrann hefir gera látið á Mentaskólanum mælst hið versta fyrir hjá afturhaldsmönnum í Reykja. vík og verið þeim til mikillar skap. raunar. í hinni löngu og ítarlegu greinargerð kenslumálaráðherrans fyrir frumvarpinu er nokkuð að þessu vikið og skal hér á eftir birtur kafli úr greinargerðinni, er að þessu lýtur: Eftir 1910 tók skólinn að gerast afar fjölsóttur. En hvorki Alþingi né iandsstjórnin virðist hafa veitt því eftir- tekt, að skóli, sem í liðuga hálfa öld hafði haft 50—100 nemendur, var nú að lokum á góðum vegi með að fá 300 nemendur, án þess að nokkuð væri gert, nema að fjölga bekkjum og bæta við kennurum, án þess eiginlega að málið væri nokkurntíma tekið til meðferðar á Alþingi. Að nokkuð þyrfti að gera sérstaklega til þess að bjarga við félagslífi nemenda í þessum geysistóra, yfirfylta skóla, virðist engum hafa komið til hugar. Hið eina já- kvæða úrræði var það, er stjórnin beitti sér fyrir á þingi 1927, að koma upp heimavist fyrir nokkuð af nemendurri. En sú framkvæmd var meir borin uppi af löngun til að bæla niður kröfuna um framhaldsnám á Akureyri heldur en af skilningi á þörf Mentaskólans, eins og glögt sést á meðferð málsins, enda hafa þeir, sem stóðu að þessu heimavistarmáli á Alþingi í það sinn, síðan gleymt bæði þeirri og öðrum umbótaþörfum skólans. Málið hafði verið svo lítið undirbúið, að það kom flatt upp á forgöngumennina á Al- þingi, er þeim var bent á, að slíkt hús yrði ekki bygt á lóð skólans sjálfs; til þess væri hún of lítil. Eins og þá stóð, hefði orðið að hola heimavistinni niður einhversstaðar í útjöðrum bæjar- ins. Þegar stjórnarskiftin urðu seint um sumarið 1927, var að því er virðist í fyrsta sinn í æfi skólans farið að at- ♦- • ♦ ♦ ♦-< huga ástand skólans af kenslumálastjórn- inni. Páverandi rektor, Geir T. Zoéga, lýsti yfir, að það væri í fyrsta sinn sem kenslumálaráðherra heimsækti skól- ann Við fyrstu athugun var auðsæ vanræksla þjóðfélagsins gagnvart þessari stofnun. Bærinn hafði látið byggja hús svo að segja fast að bakhlið skólans og þar hafði jafnvel árum saman verið höfð steinolíúgeymsla Nemendur hö*ðu nálega engan blett til útileika, nema ef telja skyldi örmjóa rönd bak við hús- ið. Húsið var vanhirt að utan. Pak- ið ekki verið málað í 7 — 8 ár. Hver krá í skólahúsinu var full af skólaborð- um. Kennararnir höfðu mist kennara- herbergið gamla og höfðu nú til sinna afnota lítið og vanhirt herbergi, þar sem vantaði nálega öll þægindi og þar sem hinn fjölmenni kennarahópur gat naumast staðið undir þaki milli tíma. Fyrir áhöid skólans, svo sem landa- bréf, var engin geymsla til, og varð að geyma nokkuð af þeim hlutum í sjálfri kennarastofunni. Á efsta lofti hússins hafði fyrrum verið spítali og geymsla, meðan heimavist var. jSJú var alt þetta gert að bekkjum, en með sem minstrj fyrirhöfn og svo illa um búið sem mest mátti vera. í fjósi rektors bak við húsið hafði verið gerð kenslustofa fyrir eðlis- og efnafræði, og var það hið óvistlegasta hús Ekki einu sinni haft fyrir að setja þar loftrás út, fyr en í sumar sem leið. Fyrir heilsu nemenda var ekki mikið gert. Alt hús- rúm í skólanum, sem mögulegt var að taka, var orðið að bekkjarúmi. Prengslin voru svo mikil, að hvergi var rúm til að hengja vosklæði nemenda, nema inni í bekkjunum sjálfum, á veggina eða inn í skápa, sem voru aðeins í loftsambandi inn í kenslustofurnar. Sal- erni fyrir meginþorra nemenda voru ekki nema þrjú og lítt útbúin, veggir á flestum skólaherbergjum skjöldóttir, gólfin mjög óslétt og hnútótt, og ekki dúklögð fyr en á neðstu hæð síðast- liðið sumar. Leíkvellir voru engir. Leikfimi í miður vel viðhöfðu húsi að- eins tvis\(ar í viku eins og fyrir tveim- ur mannsöldrum síðan. Allir bekkir voru fyltir á haustin, svo sem framast mátti verða, og farið að hafa útibú niðri í bæ, alveg laust við aðalskólann. Tessi vanræksla hafði svo gegnsýrt marga menn, sem heldzt höfðu kynni af skólanum, að það þótti nálega ó- hæfa, er sett var Ioftdæla í skólann snemma vetrar 1927—28 *>g hreinu lofti dælt inn f hinar yfirfullu skóla- stofur. Svo sem vænta mátti, var heilsufar ekki sem bezt í skólanum, og bar einkanlega mikið á berklaveiki. Var sumum kennurum skólans þetta mikið áhygguefni, þó að þeir gætu ekki að gert. Óttuðust þeir, að of fylling skólaherbergjanna og hin gömlu, lftt viðgerðu herbergi, sem nemendur áttu nú langdvalir í, væru að ekki litlu leyti orsök vaxandi krankleika. Eftir að kenslumálastjórnin hafði kynt sér alla afstöðu skólans, var byrjað á umbótum til að vinna á móti mestu ágöllunum. Loftrás var sett í skólann. Vorið 1928 voru ekki teknir fleiri nýir nemendur í skólann en unt var að þrengja í herbergi hans sjálfs, og lagð- ist þá niður útibúið niðri í bæ. Sum- arið 1928 var gerð höfuðviðgerð á neðstu hæð. Gólfin sléttuð og dúk- lögð, veggir fóðraðir og málaðir, sal- ernum fjölgað, svo að fullnægt væri venjulegum heilbrigðis- og þrifnaðar- kröfum. Ein kenslustofa var tekin til vosklæðageymslu fyrir allan skólann. A þriðju hæð var náttúrugripasafnið, sem áður var ónothæft nema til geym- slu, gert að góðum bekk fyrir náttúru- fræðiskenslu, jafnframt því að þar fer betur en áður um náttúrugripi skólans. í framhaldi af þessum aðgerðum hefir stjórnin búið undir, að lokið yrði við- gerð hússins utan og innan nú í sum- ar. Ennfremur að salur skólabókasafns- ins verði gerður nothæfur til daglegr- ar vinnu fyrir nemendur skólans. -----------------o----- Breyttir búnadarhœttir. (Niðurl). Um síðustu aldamót var farið að koma tilraunastöðvunum á fót, og menn fóru nú að gera tilraun- ir með fljótlegri ræktunaraðferð- ir en þaksléttuna. Sáðsléttu-að- ferðin var nú tekin upp, án þess þó að vinna mikið á, og fyrsta áratuginn varð hún mjög lítið þekt meðal bænda yfirleitt. Það var helzt hér norðanlands í grend við Akureyri, að hún var reynd. En eins og við var að búast, kom það þó fyrst til verulegra fram- kvæmda með þessa aðferð eftir að farið var að nota vélavinnu við hana. Árið 1918 komu hingað tvær dráttarvélar, og fyrsti þúfnabaninn kom árið 1921. Þúfnabanihn er að öllu saman- lögðu sú fullkomnasta jarðabóta- vél, sem vér hingað til höfum eignast. Með honum er hægt að tæta í sundur holt og jafnvel mýrar með svo góðum árangri að hægt er að sá í þær sama ár. — Þannig sjáum vér, þegar litið er aftur í tímann, hvernig fram- farirnar hafa haldið áfram og fullkomnast stig af stigi með. betri verkfærum og fullkomnari aðferðum. Þegar á alt er litið,

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.