Dagur - 03.10.1929, Blaðsíða 3
41. tbL
DAGUR
165
Sálmar þeir sem þama eru lög við
eru: Þitt nafn er Jesús unun öll
(Salmab. nr. 88), Að hjarta Guðs
eg halla mér (Sálmab. nr. 373),
Besti faðir barna þinna gættu
(Sálmab. nr. 647) og Hvar lífs
um veg þú farinn fer (Sálmab.
nr. 344). Lögin em öll falleg og
einkennileg.
Ritið fæst hjá mér undirrituð-
uin og bóksölunum.
Friðrik J. Rafnar.
------o -----
'Fréttir.
Eldur. Snemma á föstudagsmorgun-
inn var brann bifreið vestan af Blöndu-
ósi í bifreiða'skýli Vilhjálms Jónssonar
hér í bæ. Kóm slökkviliðið á vettvang
og' tókst að slökkva eldinn, áður en
hann breiddist út.
Skömmu eftir hádegi sama dag kom
eldur upp í hárgreiðslustofu frú Guð-
ríðar Norðfjörð í Brekkugötu. Tókst
slökkviliðinu að ganga af eldinum dauð-
um í skjótri svipan, en innanstokks-
munir og vörubirgðir skemdust.
Gagnfræöaskólinn var settur 1. þ. m.
Margir nemendur voru ókomnir. Um
breytingar á kennaraliði skólans hefir
áður verið getið.
Ban'öi Guðniundsson frá Þúfnavöllum
hefir fyrir nokkru lokið magisterprófi
í sögu við Hafnarháskóla.
Á aukafundi bæjarstjórnarinnar 25.
f. m. var samþykt að heimila Kaupfé-
lagi Eyfirðinga að reisa hús til Smjör-
líkisgerðar á þeim stað í Grófargili* er
félagið hafði sótt um.
Pétur Jónsson, læknir, er fluttur í
hús Stefáns Jónssonar klæðskera (sjá
augl. hér £ blaðinu).
Illviðrishrinu gerði um síðustu helgi
og alsnjóaði. Síðan hefir verið dágott
veður, en þó heldur kalt.
DánarcLægur. Hinn 27. f. m. andað-
ist hér í bæ Jóhannes Jónsson, faðir
Júlíusar ökumanns og þeirra systkina.
Hann var kominn á áttræðisaldur.
Tryggvi Þórhallsson forsætisráðherra
mun ekki koma hingað norður í haust,
eins og hann þó hafði ráðgert.
€
Mentaskólinn í Reykjavík var settur
1. þ. m. eins og til stöð. Hinn nýi rek-
tor, Pálmi Hannesson, flutti við það
tækifæri ágæta ræðu, sem mjög er róm-
uð þar syðra.
Guðmundwr Hagalln rithöf. skemtir
með upplestri o. fl. á Þverá í önguls-
staðahreppi, kl. 8% í kvöld.
Bátur frá Siglufirði hleypti til grunns
Upp á líf og dauða í illviðrinu á laugar-
daginn. Báturinn mölbrotnaði, en menn
allir björguðust. Eigandi bátsins er
Páll Halldórsson á Svalbarðseyri.
Nova kom hingað í fyrrakvöld að
austan.
Fyrirlestur fyrir alþýðufræðslu Stu-
dentafélagsins flutti Guðmundur Gísla-
son Hagalín rithöfundur á þriðjudags-
kvöldið. Talaði hann um norska alþýðu-
inenningu og bar hana nokkuð saman
við islenzka, Hagalín hefir ferðast af-
ar mikið um sveitir Noregs og skýrði
hann í fyrirlestri sínum allítarlega frá
siðum og háttum og ástandinu eins og
það er þar bæði í andlegum og verkleg-
um efnum.
Aðalmuninn á íslendingum og Norð-
mönnum taldi hann vera þann, að hjá
íslendingum væri skynsemi og róleg í-
hugun meira þroskuð og taldi hann þá
efagjarnari en Norðmenn. Aftur á móti
væri tilfinningalífið næmara og ó-
bundnara hjá Norðmönnum.
Hagalín er ágætlega máli farinn og
mjög skemtilegur sem fyrirlesari, enda
var það auðheyrt, að hann hafði notað
bæði augu og eyru vel til þess að kynn-
ast sem bezt öllum högum og hugsun-
arhætti frænda vorra í Noregi, meðan
hann dvaldi þar. Fyrirlesturinn var því
í alla staði hinn fróðlegasti.
Hagalín hefir nú dvalið um hríð hér
á Norðurlandi — hér í bænum aðal-
lega, til þess að líta eftir útgáfu nýrr-
ar bókar, sem út er áð koma eftir hann.
Heitir hún »Guð og lukkan«, og er nú
fullprentuð. — f síðustu viku fór hann
landveg norður á Húsavík og flutti þar
fyrirlestur s. 1. laugardag. Lætur hann
mjög vel yfir ferðinni og viðkynning-
unni við fólk í Suður-Þingeyjarsýslu,
þar sem hann fór um, enda hefir and-
legu - f jöri Þingeyinga lengi verið við
biugðið. —
Hann hverfur heim aftur til fsafjarð-
ar með »Islandi« á laugardaginn.
Freymóðwr Jóhannsson hefir haft
sýningu á málverkum í barnaskólanum
hér í bænum. Á sýningunni var fjöldi
landlagsmynda, bæði frá íslandi og
Danmörku, og auk þess voru þar mynd-
ir af mönnum og dýrum. Bera allar
myndirnar vott um, að Freymóður hef-
ir fengið geysimikla æfingu í því að
fara þannig með liti, að myndir hans
verði glæsilegar, léttar í litum og línum
og aðlaðandi. Aftur á móti eru
þróttur og frumlegur skilningur á við-
fangsefnunum ekki hin sterka hlið
Freymóðs sem listamanns — enn sem
komið er. Bezt af myndunum er »Snæ-
felk. Eru í þeirri mynd töfrandi falleg-
ir litir. Mjög góðar myndir eru einnig
»Boli«, »Síldarsöltun á Siglufirðk,
»Skriðjöklar við Hrútafelk, »Við Arre-
sö á Sjálandi« og »Trönumýri«. Af
mannamyndunum, sem ýmsar eru góð-
ar, er ef til vill eftirtektarverðust
myndin af Sigurði Guðmundssyni
skólameistara.
--------0--------
S ims key ti.
(Frá Fréttastofu fslands).
Rvík 29. sept.
Forvaxtahækkun Englands-
banka vegna mikils gullútflutn-
ings leiddi af sér forvaxtahækkun
í Skandinavisku löndunum og 1%
hækkun í bönkunum í Reykjavík;
en vextir af sparisjóðsfé og inn-
lánsfé hækka frá 1. október um
Á miðvikudagskvöldið brann á
Stokkseyri tvílyft íveruhús Jóns
hreppstjóra; brann húsið til
kaldra kola á klukkustund. Fólk
bjargaðist nauðulega og var engu
bjargað nema fatnaði og 1—2
rúmum. Sennilega hefir kviknað
ut frá rafleiðslu.
r
Ufsalan
í Klæðaverksmiðjunni Gefjun heldur áfram til
20. október. 20—50 pct. afsláttur. Enn er tæki-
færi til að eignast góð og hlý fataefni fyrir
veturinn.
GEFJUN.
Friðfinnur Guðjónsson er kos-
inn formaður Leikfélags Reykja-
víkur.
Vín: Sehober hefir myndað
heimwherssinnaða stjórn.
Prag: Nýjar kosningar fara
fram í Tekkoslovakíu í haust,
vegna ósamlyndis innan stjórnar-
innar.
Oslo: ítölsku leiðangursmenn-
irnir, sem hafa verið að leita að
Nobileflokknum, ei'u komnir til
Ti’omsö; leitin varð áranguslaus.
Róm: Cesare Rossi, sem snerist
gegn Mussoline eftir Matteotti-
morðið, er dæmdur í 30 ára fang-
elsi.
26. aept-
Eftirleitamenn á Suðurlandi lentu
í aftakaveðri á mánudaginn. Er sím-
að frá Holti undir Eyjafjðllum, að
einn leitarmanna þaðan úr sveitinni,
Eyþór, sonur Sveinbjarnar bónda
á Yztaskála, 17 ára gamall, hafi
veikst snögglega og dáið í hönd-
um félaga sinna í Langadal á Pórs-
mörk. Mun ekki hafa þolað vos-
búðina. — Frá Borgarnesi er símað,
að leitarmenn úr Lundarreykjadal
og Skorradal hafi hrept versta veð-
ur. Einn leitarmanna viltist, en
komst aftur heill á húfi til Botns-
dals. — Leitarmenn í Dölum viltust
og voru hætt komnir. — Borgfirð-
ingar segjast ekki muna annaðeins
veður í leitum. — Var stórhríð.
Rvík 2. okt.
Berlín: Sænski eldspítnahringur-
inn vili fá einkaleyfi til eldspýtna-
gerðar í Pýzkalandi gegn stórláni
til ríkisins. Sérleyfið fæst þó senni-
lega ekki.
Eggert Stefánsson hefir haldið
fjórða koncert sinn hér í Rvík við
fult hús og almenningslof.
Björn Guðmundsson hefir tekið
við skólastjórn í Núpsskólanum í
Dýrafirði.
Ungfrú Hólmfríður Árnadóttir
kenslukona hefir tekið við kenslu-
starfi Baldurs Andréssonar í Eiða-
skóla.
Frá Finnlandi.
Eftir nýafstaðnar þingkosningar á
Finnlandi er flokkur bannmanna í
þinginu talinn öllu sterkari en áður
var. Að m. k. 75 pct. þingmanna
eru fylgjendur bannsins. Hefir for-
sætisráðherrann þegar lýst yfir þvi,
að stjórnin muni gera sér far um
að framkvæma bannlögin.
Frá Rússiandi.
A bindindisþinginu f Moskva f
vor gerði dr. Deitschmann áætlun
Peysufata-
kápur,
dökkbláar og misl. óvenju
gott snið og efni.
Stærst úrval í
Brauns Verzl.
Páll Sigurgeirsson.
Stúlku
vantar í árdegisvist í hús Bryn-
leifs Tobiassonar kennara,
Eyrarlandsveg 26.
Eg hefi flutt
lækningastofu mína í hús Stef-
áns Jónssonar klæðskera. Við-
talstími framvegis kl. ll«/2—12
og 4—6 síðdegis. Sími 192.
Pétup Jónsson,
læknir.
tekur fólk í þýzkutíma
í vetur. — Menn gefi
sig fram við Ingimar
Eydal skólastjóra.
KENSLA.
Undirritaður veitir tilsögn í vetur
í orgelspili, söng og tónfræði.
ÁSKELL SNORRASON.
um, að tekjur ríkisins af áfengis-
framleiðsiu myndu fara minkandi á
næstu 5 árum. Taldi hann að fram-
leiðslan myndi minka smátt og
smátt úr 528 milj. lítra árið 1928—
1929 niður í 370 milj. lítra árið
1932-1933.
Áskorun
hefir nýlega verið gefin út til
amerískra borgara um stuðning
bannlaganna og eftirlits með þeim.
Er áskorunin undirrituð af aðeins
24 mönnum. En þeir eru allir í
fremstu röð meðal stóriðjuhölda og
vinnuveitenda, og kunnir, ekki að-
eins um öll Bandaríkin, heldur og
víða um heim. Pektustu nöfnineru
Henry Ford og Thomas Alfa Edison.
(Teraplar).