Dagur - 31.10.1929, Blaðsíða 3

Dagur - 31.10.1929, Blaðsíða 3
45. tW. % DAGBK 181 óbeint, að Jóh. Jóh: hefði ekki átt að sitja á löggjafarþingi þjóðarinn- ar að óútkljáðu máli, sýnir það bezt hversu veill málstaður sá er, sem það ætlar að verja, samvizkan segir ósjálfrátt til sín, og er það lofsvert. — En blaðið hefði átt að gera sér Ijóst, að ekki er hægt að bæta úr einu óhappi með þvi að bæta öðru við. — Eins og bent hefir verið á hér í blaðinu hefir Jóhannesi Jóhannes- syni verið sýnd talsvert mikil hlífð í öllu máli hans frá upphafi, og það hefir einnig verið tekið fram að fáum muni í raun og veru hafa mislíkað það. En öllu má ofbjóða — og það má endurtaka það, að betra hefði verið, að einhverjar skorður hefðu verið reistar gegn því, að flokks- menn hans notuðu hann með ofsa sínum sem verkfæri landinu til vansa — Og enn einusinni skal það tekið fram, að ábyrgðin hvílir öll á flokki hans frekar en á honum sjálfum. Krafan um »sjálfstæðis«-heitið. írtaldsblöðin gera kröfu til þess, að flokkur sá, sem þau styðja, sé nefndur Sjálfstæðisflokkur. Hafa blöð þessí látist vera í illu skapi, vegna þess að andstæðingablöðin hafi ekki hiklaust viðurkent »sjálfstæðis«-heitið sem rétt- nefni, en í þess stað haidið áfram að nefna flokkinn sfnu garala íhaldsnafni. L þessu sambandi er vert að geta þess, að fyrir nokkru birti Alþýðu- blaðið plagg nokkurt, er vel sýnir heil- indi flokksins í »sjálístæðis« nafngift- unni. Var það útfylt skýrsluform frá höfuðstöðvum flokksins og átti að vera til leiðbeiningar fulltrúunum við skýrslu- gerð um pólitíkst sálarástand kjósenda í Reykjavík. í skýrsluformi þessu er tekið fram um nafn, stöðu, heimiii og aldur kjósandans, ennfremur hvaða flokki hann tilheyri o. fl. Nú skyldu roenn ætla, að flokkur sá, sem kennir sig við sjálfstæði, nefni sig því nafni í skýrsluformi þessu; en það skringi- lega kemur nú samt í ljós, að þar eru taldir upp fjórir flokkar, sem gert er ráð fyrir að kjósendur hljóti að til- heyra, og þessir fjórir flokkar eru nefndir: íhaldsflokkur, Frjálslyndur flokkur, Jafnaðarmannaflokkur og Fram- sóknarflokkur, en Sjálfstæðisf lokkur er þar ekki nefndur á nafn. Fyrir eigin tilverknað er það þá bert orðið, að forvígismenn‘flokksins hafa á honum tvö heiti: Út á við kalla þeir hann Sjálfstæðisflokk, en inn á við sínu fyrra og rétta heiti, í- haldsflokk, og um leið viðurkenna þeir ekki flokkasamsteypuna sfn á milli, þó þeir flaggi með henni í blöð- um sínum og á almennum fundum. Alt þetta skýrir sig fulikomlega sjálft og þarf því engrar útlistunar við. Hér eftir fer það óneitanlega að verða nokkuð óaðgengilegt fyrir blöð íhaldsflokksins og forvígismenn hans að halda á lofti kröfunni um að vera kallaður sjálfstæðisflokkur. -----o------ S íms keyti. (Frá Fréttastofu fslands). Rvik 29. okt. París: Daldier, formaður radi- kala flokksins reynir nú að mynda stjórn með þátttöku socialista. New York: Afskaplegt verðfall á hlutabréfum — verðfallið er talið afleiðing gróðabralls, er olli óeðli- legri verðhækkun, sem ekki gat staðist. Khöfn: Pjóðbankanum (Folke- banken) fyrir Khöfn og Frederiks- berg hefir verið lokað. Stærsti skuldunautur bankans réði sér bana rétt áður. Hrun bankans kom fjár- málamönnum mjög á óvart. Vestm.eyjum: Maóur, Guðjón Ólafsson að nafni, féll útbyrðis af m.b. »Harpa« milli Eyjafjailasveitar og Eyja og druknaði. ísafirði: M.b. »Gissur hvíti* með 12 mönnum er talinn af, hefir senni- lega farist í áhlaupaveðri fyrra laug- ardag. ■ o Fr éttir. Kvikmyndavéf til Kristneshælis. sjúkiing- ar á Kristneshæli hafa ákvarðað að leita samskota, til þess að útvega hælinu litla kvikmyndavél. — Eins og flestir muna var hælinu útvegað píanó á sama hátt í fyrra. Þetta sýnir mjög lofsverða viðleitni í þá átt að gera hælisvistina skemtilegri og léttbærari fyrir þá, er þangaö þurfa að leita, væri því óskandi að sem flestir utan hælisins vikjust vel undir þetta og létu af mörkum nokkurn skerf, hver eftir getu sinni, til þess að hælið geti fengið kvik- myndavél sína hið bráðasta. Jóhannes Velden heldur hljómleik í kvöld i samkomuhúsi bæjarins með aðstoð Ounn- ars Sigurgeirssonar. Verður þetta í síðasta sinn sem mönnum gefst kostur á að heyra þennan fiðiusnilling hér að þessu sinni, áður en hann hverfur aftur til útlanda, ættu því sem flestir að grípa tækifærið. Próf. Velden biður þess getið, að ungmennafélagar hér í bxnum geti fengið aðgöngumiða að hljómleik hans í kvöld fyrir hálfvirði; geta þeir fengið miðana lijá Þormóði Sveinssyni við innganginn. Hjónabönd: Ungfrú María Magnús- dóttir og Sigurður Elíasson smiður. — Ungfrú Svafa Konráðsdóttir og Frið- rik Hjaltalín verkstjóri. — Ungfrú Svafa Þórarinsdóttir og Ottó Schiöth verzlunarmaður. Sr. Sigwrðwr Einarsson, áður prestur í Flatey, hefir í vetur verið til þess settur að vera eftirlitsmaður við hina æðri ríkisskóla og mun jafnframt eitt- livað vinna á skrifstofu fræðslumála- stjórans. — Sr. Sigurður hefir að und- anförnu verið erlendis að kynna sér skólamál. Sagður er hann af kunnug- um frábær hæfileikamaður. Leikfélag Akureyrar æfir nú af full- um krafti leikritið »Tveir heimar« eftir Jón Björnsson. Er búist við að hægt verði að byrja að leika um aðra helgi — 8.—10. nóvember. Er það óvenju- snemma byrjað og ekki ólíklegt að end- urbætur þær, sem gerðar hafa verið á leiksviðinu, hafi átt þátt í að örfa for- ystumenn leikfélagsins til starfa í þetta sinn. Leikritið, sem byrjað er á í þetta sinn, hefir ekki verið gefið út, og því ekki tök á því fyrir fólk að kynnast því annarstaðar en á leiksviðinu að svo stöddu. Það er líka skrifað fyrir einum fjórum árum og var á leikskrá Leikfélags Reykjavíkur það árið, þeg- ar Guðm. Kamban kom heim með leik- sýningar sínar. Sýning þess fórst þó fyrir í það skifti. Síðan misti höfund- urinn handritið í brunanum í fyrra. Samdi hann síðan leikritið upp að nýju og þannig birtist það nú í meðferð leikfélagsins hér. Hinn vinsæli leikari Ágúst Kvaran leikur aðalhlutverkið: Örn héraðslækni — heimsmann í þeim skilningi, að hann bindur alla sína hugsun við þessa heims gæði — þetta líf. Hann vill ekki viður- kenna, að nokkurt framhald sé til eftir líkamsdauðann, fyr en hann — eftir andlát dóttur sinnar — fær sönnunina á þann hátt, að hún birtist honum. Freymóður Jóhannsson býr út leik- sviðið, og mega menn eiga von á, að hann sýni þar ýmislegt merkilegt og áður óþekt héi'. Leikurinn gerist í sveit á Norður- landi. Þorsteinn Stefánsson, cand. phil. frá Stekkjarflötum, er seztur að hér í bæn- um og tekur að sér tungumálakenslu og undirbýr menn til prófs í Gagn- fræðaskólanum hér. Þorsteinn er mjög efnilegur kennari. Sauðnautakálfarnir syðra týna töl- unni. Eru nú 5 þeirra sagðir dauðir; aðeins tveir kvígukálfar lifandi. GÓÐ BIRTA — eykur vinngleðina. Glerið skygt að innan — síðasta framförin. öpyrjið Osram salana. Kensla. Kenni dönsku, ensku og þýzku. Tek einnig að mér að búa unglinga undir próf við Gagnfræðaskólann hér. þorsteinn Stefánsson cand. phil. Brekkugötu 27. Stulka vön afgreiðslu í búð, sem talar og skrifar íslenzku, dönsku og nokkuð þýzku, óskar eftir atvinnu við verzlunarstörf strax eða sfðar. Tilboð, merkt: Atvinna, sendist Ingimar Eydal ritstjóra. Frímerki íslenzk, notuð, kaupir Gunnar S. Hafdal Aðalstræti 10. taka að sér að gera uppdrætti aðhúsum, reikna út járnbenta steinsteypu og veita leiðbeiningar um alt, er að verkfræði lýtur. BOLLI l SICURÐUR THORODDSEN, verkfræðingar, Reykjavik, Pósthólf 74. Símar 2221, 1935. Sunlight sápan er sérstaklega ætloð til slórpvotla. Þvoið lök, nærfatnað og gluggatjöld úr Sunlight síp- unni, þá verða þau snjóhvít. Þvottadaginn getið þér alls ekki verið án Sunlight Loftskeytastöðvamiar í Grímsey, Flatey og Húsavík eru reistar og tekn- ar til starfa. Verklýðsfélögin hér í bæ hafa breytt kauptöxtum sínum nú frá mánaðamót- unum á þá leið, að tímakaup í almennri vinnu karla verður kr. 1.10, en kvenna 65 au. Bókasafn Guðspekifélagsins við Brekkugötu 7 verður opnað til almenn- ingsnota 1. nóvember og verða bækur lánaðar framvegis á þriðjudögum og föstudögum kl. 6—8 síðd. Dánardægwr. Látin er fyrir nokkrum dögum á sjúkrahúsinu á Siglufirði frú Soffía óladóttir, kona Guðna Jónsson- ar hér í bæ. Hún andaðist að afstöðn- um holskurði. \ ■O

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.