Dagur - 05.12.1929, Síða 1
D AGUR
kemur ut á hverjum íimtu-
degi. Kostar kr. 6.00 árg.
Gjaldd&gi fyrir 1. júli.
Gjaldkeri: Ámi Jóhaons-
sen í Kaupfélagi Eyfiró-
inga.
Afgreiðslan
er hjá Jóni Þ. Mr,
Norðurgötu 3. Talsfmi 112.
Uppsögn, bundin við ára-
mót, sé komin til af-
greiðslumanns fyrir 1. áee.
XII.
ar.
Akureyri, 5. desember 1929.
50. tbl.
Atvinnu- og samgöngumálaráð-
herra, Tryggvi Pórhallsson, hefír
hinn 21. f. mán. skrifað stjórn
Eimskipafélags íslands á þessa Ieið:
»Ráðuneytið hafði með bréfi dags.
27. sept. þ. á. sagt upp samningi
við Eimskipafélag íslands um út-
gerðarstjórn Esju frá næstkomandi
áramótum. Hefir hin háttvirta stjórn
Eimskipafélags íslands nú með bréfi
dags. 5. þ. m. boðist til þess að
taka að sér útgerðarstjórnina áfram
og að lækka mánaðargjaldið fyrir
útgerðarstjórnina úr 2800 kr. í 1800
kr. á mánuði. Vill ráðuneytið út af
þessu taka fram eftirfarandi:
Emii Nielsen framkvæmdarstjóri
Eimskipafélags íslands hefir hingað
til annast útgerðarstjórn Esja af
hálfu Eimskipafélags ísiands og
hann hefir að öllu leyti komið fram
við ráðuneytið um það mál af fé-
lagsins hálfu. Hefir og ráðuneytið
borið fylsta traust til framkvæmdar-
stjórans bæði um þetta atriði og
leitað aðstoðar hans um mörg önnur
þýðingarmikil störf. En nú er það
fullráðið, að herra Emil Nielsen
hefir ekki á hendi framkvæmdarstjóra-
starf fyrir Eimskipafélag Isiands
lengur en til næstu áramóta. Hefir
ráðuneytið og sannar fregnir um
það, að það er enn með öllu
óráðið hver taki þá við því starfi.
Svo fáum vikum fyrir áramótin getur
ráðuneytið þvi enga hugmynd um
það haft, hverjum Eimskipafélag
Islands ætlaði yfirstjórn um útgerð
Esju, væri hún enn falin því á
hendur. Aftur á móti getur ráðu-
neytið átt kost á manni til forstöðu
um útgerð Esju, sem það telur til
þess sérstaklega færan, að Emil
Nielsen frágengnum.
Undanfarið hefir reksturshallinn
af útgerð Esju venjulega orðið yfir
hálft annað hundrað þúsund krón-
ur á ári. Pó að yfirleitt megi vart
gera ráð fyrir að strandferðir verði
reknar fyrst um sinn án reksturs-
halla, og þó að reksturshallinn
væntanlega myndi lækka vegna þess
að stjórn Eimskipafélags íslands
hefir séð sér fært að bjóðast til að
iækka nú mánaðargjaidið fyrir út-
gerðina, þá telur ráðuneytið að um
svo háa upphæð sé að ræða fyrir
ríkissjóð, að full ástæða sé að gera
tilraun til, með nýju skipulagi, að
lækka hinn geysiháa árlega rekst-
urshalla á útgerð Esju.
Auk hins mikla árlega reksturs-
halla, sem verið hefir á rekstri Esju
eru árlega veittar úr ríkissjóði tölu-
vert á annað hundrað þúsund krónur
til flóabáta (á fjárlögum næsta árs
t. d. 115.500 kr.). Af hálfu hins
opinbera hefir sem ekkert eftirlit
verið með því haft hvernig þessu
fé hefir verið varið, enda hefir rikið
engan mann haft í sinni þjónustu,
sem hefði sérstaklega þekkingu til
þess. Án sérstakrar athugunar hefir
í þessu efni haldist gamalt en mjög
kostnaðarsamt skipulag. Telur ráðu-
neytið fulla nauðsyn á að í þessu
efni sé komið á eftirliti og athugun
á hinu gamla skipulagi framkvæmt
af manni, sem hafi um það sér-
þekkingu.
Auk Esju gerir ríkið nú út þrjú
strandvarnarskip og vitaskipið Her-
móð. Auk þess er það mjög í ráði
að keypt verði nýtt strandferðaskip,
ef um það fengjust góð kaup, og
ennfremur hefir það komið til at-
hugunar, að einn eða fleiri af flóa-
bátunum, kæmi þar með í hóp til
útgerðar. Liggur það því fyrir að
kostnaður við slíka sameiginlega
útgerðarstjórn skiftist í marga staði,
enda væri um nægilegt verkefni að
ræða.
Neð skírskotun til þess, sem nú
hefir verið sagt, hefir ráðuneytið
ákveðið að fela núverandi skipstjóra
á Esju, Pálma Loftssyni, sem um
fjölmörg ár hefir verið í strandferð-
um, fyrst sem stýrimaður á skipum
Eimskipafélags fslands og nú síðast
sem skipstjóri á Esju, útgerðarstjórn
Esju frá næstu áramótum. Jafnframt
verður honum falin útgerðarstjórn
varðskipanna og Hermóðs og ef til
vill fleiri skipa. Loks verður honum
falið eftirlit af hálfu hins opinbera
með flóabátunum og að endurskoða
hið gamla og dýra skipulag um
þann rekstur.
Ber að afhenda í hendur honum
um áramótin öll gögn snertandi
útgerð Esju, og kemur hann að
öllu leyti fram af ráðuneytisins hálfu,
er þessi breyting fer fram.
Jafnframt því að tilkynna háttvirtri
stjórn Eimskipafélags íslands þetta,
vill ráðuneytið hérmeð nota þetta
tækifæri til þess að tjá framkvæmd-
arstjóra Eimskipafélags íslands, hr.
Emil Nielsen, ágætar þakkir fyrir
stjórn hans á útgerð Esju á undan-
förnum árum, og aðra starfsemi
hans í þjónustu íslands, sem þvi
miður verður nú, að miklu leyti a.
m. k., lokið á næstu áramótum, er
hann lætur af útgerðarstjórn Esju
og Eimskipafélags íslands.
Ráðuneytið vill ennfremur láta þá
von í Ijós, að góð samvinna megi
verða milli hins væntanlega útgerð-
arstjóra Esju og Eimskipafélags ís-
lands um framhaldsflutninga með
Esju frá skipum Eimskipafélags ís-
lands og yfiileitt um alt það, sem
verða má til þess að gera strand-
ferðirnar sem beztar«.
-----o—--
Á viðavangi.
Fyrirlestur um ísland.
Lögberg frá 24. f. m. skýrir svo
frá:
»Síra Kristinn K. Ólafsson, for-
seti kirkjufélagsins, flutti á Fimtu-
dagskvöldið í vikunni sem leið
langan og fróðlegan fyrirlestur um
ferðir sínar á íslandi í sumar. Var
fyrirlesturinn fluttur i Fyrstu lútersku
kirkju í Winnipeg, og var þar margt
fólk saman komið og leyndi sér
ekki, að »enn eins og forðum*
fýsir Vestur-íslendinga mjög að
heyra sagt frá ættlandinu og frá
frændum og vinum þar »heima«.
Er þetta í fyrsta sinn, sem síra
K. K. Ó. hefir séð ísland, því hann
er fæddur og uppalinn hér í landi,
og er hið sama að segja um frú
hans, en hún var með honum í
þessari för. Bæði eru þáu ættuð af
Norðurlandi, Pingeyjarsýslu og Eyja-
firði, og eiga þar frændfólk margt,
enda ferðuðust þau mest um þau
héruð, en komu þó fyrst að landi
á Austfjörðum og komu inn á
flesta firðina. Alla leið norðan úr
Pingeyjarsýslu og suður í Reykjavík
ferðuðust þau í bíl, netna á bát
yfir Hvalfjörð. Einnig fóru þau til
Pingvalla og alla leið austur í
Fljótshlíð.
Hér skal ekki út i það farið að
segja frá efni fyrirlestursins, en vér
skildum fyrirlesarann þannig, að
honum hefði þótt iandið »fagurt og
frítt«, en þó jafnvel litist enn betur
á fólkið en landið. Sérstaklega
fannst honum mikið til um föður-
landsást íslendinga, trú þeirra á
landið og framtíð þjóðarinnar og
fórnfýsi þeirra, að Ieggja mikið í
sölurnar fyrir land og þjóð.
Eins og auglýst hafði verið, var
fyrirlesturinn fluttur til arðs fyrir
Jóns Bjarnasonar skóla. Skólastjór-
inn síra Run. Marteinsson, skipaði
forsæti, en áður en fyrirlesturinn
hófst, sungu þau Mr. Paul Bardal
og Mrs. J. Stefánsson nokkra söngva,
öllum viðstöddum til mikillar
ánægju,
Næsta kveld var fyrirlesturinn
endurtekinn í Selkirk, og mun síra
K. K. Ólafsson ætla sér að flytja
hann enn á nokkrum stöðum í
íslenzku bygðunum hér vestra, og
þarf ekki að efa að' því verði vel
tekið úti í sveitunum, engu síður
en í Winnipeg og Selkirk.
Siö. Egtjerz smánar flokk sinn.
í blaði Sigurðar Eggerz, er út
kom 22. f. m. stendur þessi máls-
grein:
»Ingimar Eydal hefir jafnan staðið
í sveit þeirra manna, er skemmst
hafa gengið í kröfum sínum fyrir
íslendinga hönd í sjálfstæðismál-
unum«.
Sigurður og Ingimar tilheyrðu
báðir Sjálfstæðisflokknum gamla.
Samkvæmt kenningu blaðs S. E.
hefir sá flokkur verið sú sveit manna,
er skemmst gengu i kröfum í sjálf-
stæðismálunum.
Á þenna hátt smánar S. E. sinn
eiginn flokk, Sjálfstæðisflokkinn
gamla, varpar skugga á minningu
Björns Jónssonar, Skúla Thórodd-
sen og margra annara ágætra for-
ystumanna flokksins og hrækir á
sjálfan sig.
Ástæðan til alls þessa er auðskilin.
Blað S. E. er á þenna hátt að
reyna að draga Sjálfstæðisflokkinn
gamla niður, svo að það regindjúp,
sem er á milli hans og flokksviðrinis
þess, er nú nefnir sig Sjálfstæðis-
flokk, minnki í augum landsmanna.
Smánaryrðin, sem rétt eru að gamla
flokknum, eiga að brúa djúpið.
Munnsöfnuður flrna frá Múla.
í »Verði« 16. f. m. er ritstjórnar-
grein um Pálma Hannesson rektor.
Af því P. H. er þektur af fjölda
manns hér fyrir norðan, þykir rétt
að birta kjarnann úr lýsingu Varðar
á honum. Bregður sú lýsing upp
dágóðri mynd af Antí-Kolumbusi
íhaldsflokksins og rithættinum í
fhaldsblöðunum.
Á ítúdentafundi sat Pálmi >múlbundinn
og bældur eins og barinn rakki< . . . .
• auðvirðilegt smámenni* .... >tusku-
mennic . . 1 . >drengskaparsnauður vesal-
ingur< .... >hnýttur aftan í mesta stór-
lygarann< .... »lætur hafa sig til verstu
ódrengskaparbragða, vegna dæmalauss
roluskapar og skorts á manndómU . . . ,
»einhver ógeðfeldasti farisei, sem hér er
til« .... »til háðungar þeirri stofnun,
sem hann er settur til að stjórna« , . . .
»hæfileikalítill kennari« .... »undirförult
smámenni« .... »góðir drengir hafa
skömm i honum< — »Framhleypniri og
lymskan haldast í hendur«.
Petta sýnishorn ætti að nægja.
Hvað sýnist mönnum um innræti
þess manns, sem lætur slika and-
stygð frá sér fara? Og hvað haida